Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1992, Blaðsíða 14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar. smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aörar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)VÍ605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Stöndum með lögreglunni
Um þessar mundir situr ungur maöur í gæsluvarð-
haldi eftir aö hafa verið eltur uppi og handtekinn fyrir
meint afskipti af sölu fíkniefna. Hinn grunaði flúði und-
an lögreglunni og varð valdur að hörðum árekstri í
Mosfellssveit þar sem hann ók á lögreglubíi. Lögreglu-
maður sfasaðist lífshættulega og í kjölfar árekstursins
lagði hinn grunaði maður til annars lögreglumanns með
hníf. í bíl mannsins fannst mikið magn af kókaíni.
Þessi atburður vakti mikinn óhug af mörgum ástæð-
um. Það heyrir til undantekninga að lögreglan þurfi að
elta meinta sökudólga uppi í lífshættulegum ökuferðum.
í öðru lagi mátti engu muna að lögreglumenn létu lífið
í brennandi biff eiðinni eftir að áreksturinn haföi átt sér
stað. Reyndar hggur lögreglumaður ennþá á sjúkra-
húsi, þungt haldinn. í þriðja lagi ber þessi atburður
vott um að aukin harka sé að færast í fíkniefnasmygl
og sölu og það er ekki lítið í húfi þegar rúmlega eitt kíló
af kókaíni finnst í bifreiðinni sem hinn grunaði maður
ók en það er talið tugmilljóna króna virði.
Eftirmálar þessa voveiflega atburðar eru öfugsnúnir.
í stað þess að athyglin beinist að refsiverðu athæfi
glæpahyskis snýst hún um vinnubrögð lögreglunnar. í
ljós hefur komið að bifreiðin, sem hinn grunaði maður
ók, var í leigu fíkniefnalögreglunnar sjálfrar. Lögreglan
hefur viðurkennt að hafa beitt svokallaðri tálbeitu til
að koma upp um skúrkana. Útsendari lögreglunnar vill-
ir með öðrum orðum á sér heimildir til að leiða hina
meintu sökudólga í gildru.
Lögreglan hefur jafnframt játað að hún þurfi á stund-
um að beita mútum og reiða fram fé til að fletta ofan
af glæpum í fíkniefnamálum. Það nýjasta í máhnu er
svo það, að rannsókn málsins hefur verið tekin úr hönd-
um fíkniefnalögreglunnar og falin Rannsóknarlögreglu
ríkisins. Þess eru fá ef engin dæmi áður og tengist senni-
lega þeim ásökunum að fíkniefnalögreglan hafi farið
út fyrir valdsvið sitt og beitt ólögmætum aðferðum til
uppljóstrana. Þetta hefur orðið th þess að kastljós fjöl-
miðla síðustu dagana hefur beinst að þessum þætti
málsins en ekki að hinum meintu sökudólgum. Lögregl-
an er undir smásjánni en ekki glæpurinn sjálfur.
Af þessu tilefni er full ástæða til að láta í ljós þá skoð-
un að fíkniefnalögreglan þurfi ekki að biðjast afsökunar
á gerðum sínum. Hún á fuha samúð og stuðning skil-
inn. Það duga engin vettlingatök gagnvart þeim aðilum
sem hér stunda smygl og sölu á fíkniefnum. Þessum
ófögnuði verður að bægja frá eins og kostur er. Að und-
anfömu hefur verið skýrt frá að tohgæslan á Keflavíkur-
flugvelh hefur hvað eftir annað gómað farþega til lands-
ins með fíkniefni innan klæða. Meiri brögð eru að því
að fíkniefni séu í umferð og afleiðingar fíkniefnaneyslu
eru að verða að áberandi vandamáh í þjóðfélaginu.
Á sama tíma kvartar fíkniefnalögreglan undan f]ár-
skorti tíl að halda uppi eftirhti, löggæslu og rannsóknum
á þessum ófógnuði undirheimanna. Þeir menn sem taka
að sér löggæslustörf í fíkniefnamálum eiga undir högg
að sækja vegna skilningsleysis og tómlætis um umfang
fíkniefhaneyslunnar. Líf þeirra er jafnvel í hættu.
Þegar gerð er tilraun til að upplýsa um stórfeht fíkni-
efnasmygl og dópsalar em innan seilingar verður að
gera ráð fyrir að lögreglumenn geti beitt sínum ráðum,
tálbeitum og jafnvel mútugreiðslum th að fletta ofan af
glæpunum. Thgangurinn helgar meðahð. Dópsalar eiga
enga miskunn inni hjá þjóðfélaginu eða yfirvöldum.
EUert B. Schram
,F(^ST.UpAGyR. 2^, ÁG,ÚglXl9p2.
Það er nú að heita má almenn vitn-
eskja að útrýming blasir við tveim-
ur þriðju hlutum þess fólks sem
byggir Sómalíu, enda þótt almenn-
ingur hafi hingað til látið sig þetta
litlu skipta, aö minnsta kosti á
Vesturlöndum. Það var þá fyrst
sem Egyptinn Boutros Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, vakti athygh á ósamræminu
milli áhuga Vesturlandabúa á
stríöinu á Balkanskaga og útrým-
ingu heillar kynslóðar fólks í Só-
malíu, sem áhugi fjölmiðla vakn-
aði.
Nú er svo komið að fjölmiðlafólk
úr ólíklegustu áttrnn þvæhst hvað
fyrir öðru í Mogadishu, án þess að
neytendur fjölmiðla séu mikils vís-
ari.
Þær hörmungar sem þama geisa
eru meiri en jafnvel reyndustu
menn Rauða krossins fá lýst.
Þar hefur ríkt alger upplausn síð-
ustu fimm ár, síðan uppreisn hófst
gegn Siad Barre einræðisherra,
sem hrifsaði völdin í byltingu hers-
ins 1%9 og tók við af svokallaðri
lýðræðisstjórn sem við tók eftir að
ítalir létu stjómina af hendi eftir
áratuga samvinnu við Breta um
.
„... það er hungursneyðin sem fylgir stríðinu sem núna fyrst vekur
athygli", segir hér m.a. Símamynd Reuter
Vesöld á ábyrgð
Vesturlanda
sfjóm Sómalílands, sem áður
fyrr tók yfir hluta af Keníu, sem
var breska Sómalíland, og Djibo-
uti, sem var franska Sómaliland.
Ítaíir létu af stjóm 1960, en 1969 tók
við sá einræðisherra sem mótað
hefur þá glötunarstefnu sem landið
hefur verið á síðan, Mohammed
Siad Barre, á seinni árum einka-
vinur Vesturlanda.
Flugrán
Þáttaskil urðu vegna Palestínu-
araba árið 1976. Sómaha er í Araba-
bandalaginu og þar vom meðal
annars bækistöðvar Al-Fatah. En
1976 gerðist það að þýskri flugvél,
nafnið á henni var Landshut, var
rænt. Henni var snúið hingað og
þangað um Miðausturlönd, í þeim
tílgangi að fá lausa 17 Palestínu-
menn í Kúveit og tvo fanga í Þýska-
landi. Vél þessi lenti að lokum í
Mogadishu. Um borð í véUnni voru
nærri 200 manns, flestir vestur-
þýskir borgarar.
Vestur-Þjóðveijar, í samvinnu
við Nato, sömdu við Siad Barre um
að fá að gera árás á flugvélina í
Mogadishu. Hluti af þeim samning-
um var að vopnasölubanni Nato-
ríkja til SómaUu væri aflétt. Árásin
var gerö, hún tókst með fádæmum
vel, öUum farþegum var bjargað
og árásarmennimir, sem voru Pa-
lestínumenn, undir forystu ungrar
stúlku voru handteknir, tveir
þeirra Ula særðir, annar þeirra for-
inginn. Leyfiö sem Barre gaf tíl
árásar á flugvélina hafði það í for
með sér að stefna Vesturlanda
gagnvart Sómalíu gjörbreyttist.
Þær herstöðvar, og einkum flota-
stöðin 1 Berbera við Adenflóa, sem
Sovétmenn höfðu fengið að nota,
vom þeim ekki lengur tUtækar.
1977 sleit Sovétstjómin aUri hem-
aðarsamvinnu við Sómalíu, en
þremur árum senma komu Banda-
ríkjamenn tU Berbera og sú flota-
stöð varð síðar einn helsti upp-
byggingarstaður þeirra í flotastríð-
inu gegn írak á Persaflóa. í staðinn
fékk SómaUa einn mUljarð doUara
í hemaðaraðstoð frá Bandaríkjun-
um. Ekki síður, í ljósi flugránsins
í Mogadishu, fékk Barre óvenjuieg-
an aögang að vopnabúri Þjóðveija.
Þjóðverjar era háðir ýmiss konar
takmörkunum á vopnaútflutningi
sínum, en þeim var aflétt. Siad
Barre er eini einræðisherrann í
veröldinni sem hefur fengiö gefins
Leopardskriðdreka Þjóðverja, sem
margir telja þá bestu í heimi, að
ótöldum skotfærasendingum, með-
KjaHarinn
Gunnar Eyþórsson
fréttamaður
al annars í sovésk vopn.
Fram tU 1977 hafði Sómalía veriö
höU undir Sovétríkin og fengið það-.
an ómælda aðstoð. En 1977 urðu
þáttaskU.
Ogaden og Kúba
Það ár réðst Siad Barre með um
40 þúsund manna her gegn Eþíópíu
í Ogadenauðninni, sem er nær ein-
göngu byggð Sómölum, en er innan
landamæra Eþíópíu. Eþíópíustjóm
brást við þeirri innrás með því að
kalla til kúbverskt herhð, enda var
þetta á sama tíma og Kúbumenn
vora að leggja Angólu undir MPLA
hreyfinguna. Auk Kúbumanna
komu tíl sögunnar austurþýskir
hemaöarráögjafar, og kalda stríðið
var þá í algleymingi. Þetta samein-
aða hð gjörsigraöi her Sómala, en
stríðsástand ríkir enn í dag í Ogad-
en.
Upp úr þessu varð Siad Barre
skjólstæöingur Vesturlanda, gegn
Kúbu og öðrum. En öU, eða nærri
öU sú aðstoð sem veitt var rann til
hermála. Afleiðingin varö sú að
nær allir andstæðingar Siads Barr-
es, sem vora annar hver þjóðflokk-
ur í Sómahu, gátu hafið stríð á
hendur honum. Alhr vora vopnað-
ir. Borgarastríð hófst 1988 og lauk
með því ástandi sem nú ríkir: eng-
inn ræður.
Sómalir erU taldir tíl araba, þeir
era hamítar en ekki negrar og hirð-
ingjar að stærstum hluta. Þeir reka
úifalda sína, kýr og geitur á beit
um stórt svæði í Austur-Afríku,
allt frá Keníu til Eþíópíu. Landbún-
aður er mjög takmarkaður. íslam
er ahsráðandi, iðnaður er hverf-
andi.
Stjórnleysi
En Siad Barre gerði að minnsta
kosti eitt, hann hélt stjórn á land-
inu. Eftir að hann var hrakinn frá
hefur ríkt ólýsanleg upplausn. Öh
þau vopn sem hann keypti eða fékk
gefins fyrir það að vera ekki komm-
únisti eru nú í höndum stjórn-
lausra hópa án nokkurs aga sem
ekki aðeins gera hjálparstarf Ul-
mögulegt heldur selja „þjónustu
sína“ tU hjálparstofnana með þeim
hætti að starfsmennimir era
stundum drepnir og hjálpargögn-
um rænt.
Þaulreyndir starfsmenn alþjóða
hjálparstofnana segjast aldrei hafa
kynnst öðra eins og því sem nú er
að gerast í Sómahu, ekki einu sinni
í Afganistan. Upplausnin er Vest-
urlöndum, og reyndar Sovétríkjun-
um fyrirverandi að kenna, það era
þessi ríki, Bandaríkin, Sovétríkin
og Þýskaland sem hafa gefið eða
selt fyrir gjafvirði þau morðvopn
sem nú gera hjálparstarf í Sómahu
nær ómögulegt og hafa kostað
hundrað þúsunda lífið.
En það er hungursneyðin sem
fylgir stríðinu sem núna fyrst vek-
ur athygli. AUt að fiórar og hálf
mihjón Sómala eiga hungurdauða
yfir höfði sér. 95 prósent allra
bama innan 10 ára era vannærð
og mestur hluti þeirra í lífshættu,
þökk sé baráttu vestrænna ríkja
gegn kommúnismanum.
Gunnar Eyþórsson
„Upplausnin er Vesturlöndum, og
reyndar Sovétríkjunum fyrrverandi aö
kenna, það eru þessi ríki, Bandaríkin,
Sovétríkin og Þýskaland sem hafa gefið
eða selt fyrir gjafvirði þau morðvopn
sem nú gera hjálparstarf í Sómalíu nær
ómögulegt... “