Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992. Fréttir Framleiðandi um rifnu og leku þakklæðninguna á VR-húsinu: „Þakdúkinn" á að nota í brúar- og vegagerð „Þaö var lýst yfir af framleiðénd- um að þeir skildu ekki hvað þessi dúkur væri að gera þarna við þess- ar aðstæður - hann hefði aldrei verið ætlaður þar sem regn og sól kæmist beint á. Hann hefði verið ætlaður sem vamarlag undir fargi, til dæmis við vegagerð, í brúm eða á svölum. Þessi dúkur morknar með árunum og missir styrkinn," sagði Bjöm Marteinsson, verk- fræðingur hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, í samtali við DV í gær. Hann hefur undir hönd- tungumálamisskilmngur við pöntun ekki útilokaður um upplýsingar frá framleiðanda þakdúksins sem klæddur var á þak VR-hússins - dúksins sem nú er rifinn og lekur. Eins og fram kom í DV í gær um ábyrgð vegna leka og galla ff á þak- inu vísaði bygginaraðilinn, Byggðaverk hf., á eftirhtsaðilann, Hönnun hf., eftirlitsaðilinn á arki- tektinn, Ingimund Sveinsson, og arkitektinn á söluaðilann, Polaris - arkitektinn sagði reyndar að söluaðilinn hefði gefið fyrirmæh um að í lagi væri að nota efnið. Um það atriði segir Guðmundur B. Ól- afsson hjá VR. „Hönnuðimir fengu greinilega svar frá söluaðilanum, Polaris hf., um að dúktegundina Bituhuene HD mætti leggja á plankaklætt þak.“ Samkvæmt þessu hefur nú komið - í ljós að söluaðihnn spurði aldrei framleiðandan hvort óhætt væri að nota „þakdúkinn" á þak. Sam- kvæmt bréfi framleiðandans þohr dúkurinn ahs ekki að vatn komist í samband við sólarljós á yfirborði hans - þessi dúkur á sem sagt að vera neðanjarðar eða undir fargi. „Þetta hefur sennhega ekki kom- ist til skila til söluaðila frá fram- leiöanda í hvaða notkun dúkurinn var ætlaður. Oftast nær, þegar tal- að er um þakdúka, því orði snarað yfir á eitthvert erlent mál, þá halda menn ahtaf að það sé verið að tala um vatnsdúk á stíflu, utan á kjah- ara eða það sem á að grafa í jörð - þéttidúk að jarðvegsvatni. Það er hugsanlegt að þama hafi verið um tungumálamisskhning að ræða,“ sagði Bjöm. „Samverkandi áhrif vætu og sól- ar em sérstaklega slæm fyrir þenn- an dúk. Þegar sól skín á bleytu. Svo getur þetta orðið frostþíðuskemmd. Menn þurfa að íhuga sinn gang verulega vel áður en þeir treysta á erlenda reynslu," sagði Bjöm Mar- teinsson. Ingimundur Sveinsson arkitekt upplýsti í DV í gær að sami „þakdúkur“ heíði verið notaður á fleiri hús. Samkvæmt upplýsingum DV var efnið einnig notað á þak Kirkju Óháða safnaðarins. -ÓTT Ólympíufararnir við heimkomuna i gær. Fremstar eru gullsundkonurnar. Frá vinstri Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Bára Erlingsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir og Katrín Sigurðardóttir. DV-mynd Ægir Már AfreksfólMð á ólympíumóti þroskaheftra kom heim í gær: Athöfnin stórkostleg Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Við vomm í lokahófi í gærkvöld og sváfum í þrjá tíma. Við lögðum af stað klukkan þrjú í nótt að íslensk- um tíma þannig að fólk er þreytt en mjög ánægt. Móttökuathöfnin hér er virkhega mikh upplifun fyrir okkar fólk og veglega að þessu staðið. Það hefur ekki kynnst þessu áður. Þegar það kom heim af heimsmeistaramót- inu 1989, stærsti hlutinn af þessu fólki með töluvert af verðlaunapen- ingum, fékk það ágætar móttökur en þessi athöfn er alveg stórkostleg," sagði Þórður Ámi Hjaltested, aðalf- ararstjóri íslensku keppendanna sem komu th landsins í gærdag eftir frækheg affek á ólympíumóti þroskaheftra sem fram fór í Madrid á Spáni. „Við erum stolt af ykkur og af þeim miklu afrekum sem þið haflð unnið og af þeim orðstír sem þið hafið bor- ið í nafni íslánds. Þið hafiö unnið th meiri affeka en nokkur hópm1 ís- lenskra íþróttamanna hefur áöur unnið th,“ sagði Ólafur G. Einarsson menntamálaráöherra. „Svona stórkostlegum árangri bjóst ég varla við enda lýsa honum enginn orð næghega mikið. Með öðru sætinu á ólympíuleikunum, með mörgum heimsmetum, íslandsmet- um, ólympíumetum, og guhi og verö- launnapeningum sem telja má í tug- um hafið þið komið íslandi í fremstu röð þjóða,“ sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra. „Við gleðjumst öh innhega yfir þessum glæshega árangri og von- umst th þess að þetta verði einhver hvatning th áframhaldandi íþrótta- iðkana. Ég sé líka ástæðu th á þess- um stað og stimdu að deha þökkmn mínum og kveðjum th foreldra og aðstandenda keppendanna þjálfara og forystumanna íþróttasambands fatlaöra og einstakra félaga innan þess sambands fyrir ykkar framlög sem aht þetta fóhc hefur lagt fram í þágu þess fólk sem er nú komið heim og ég veit að þessi hópur gleöst ekki síður heldur en keppendur sjálfir yfir hinum glæshega árangri," sagði Ehert B. Schram, forseti íþróttasam- bands íslands. Þegar dregið var úr nöfnum Kringlunni í gærdag. uldlausra áskrifenda DV S gær- Enn eru eftir þrír bflar í pottinum orgun kom upp nafh Sigrúnar í áskriftargetraun DV og næst masdóttur, Efstaleiti 1 í Reykja- verður dregið um Lada Sport frá k og er hún nú eigandi að glæsi- Bifreiöum og landbúnaðarvélum gúm Mazda 121 frá Ræsi hf. en hf. þann 21. október. grún veitti bílnum viðtöku í -dR Matsmenn vegna VR-hússins skila brátt aliti: Munu meta hverj- ir bera ábyrgð - áætIaðurkostnaöurviöþakdúkaskipti4,5miIljómr Guðmundur B. Olafsson, lögfræð- ingur hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, segir að gert sé ráð fyr- ir að kostnaður við endurbætur á þaki VR-hússins við Hvassaleiti 56 verði 4,5 mhljónir króna. Ætlunin sé að ráðast í þær framkvæmdir fyrir veturinn - hvort sem um verður að ræða bráðabirgða- eða varanlega við- gerð. Verið er að leita thboða í lagn- ingu nýs þakdúks á húsið. Þetta þýðir að eigandi hverrar íbúðar þarf að greiða 75 þúsund krónur að meðaltali verði það hlut- skipti íbúanna að greiða hann. Ekk- ert hggur fyrir um að svo verði. Guð- mundur segir að verið sé að reyna að leita sátta í málinu - við aha þá aðha sem nálægt verkinu komu. Eins og fram kom í DV í gær vísuðu bygg- ingaraðhi, eftirhtsmenn og arkitekt hver á annan þegar blaðið spurði þá um ábyrgð í sambandi við fram- komna gaha. Framangreindar mhljónir eru þó aðeins vegna viðgerða á þakinu. Fhsalagnir í flestum íbúðum hússins eru gahaðar og múrhúöun er farin að gefa sig á stigahúsi og við svalir. Þvi liggur fyrir að 4,5 mhljónirnar eiga eftir að margfaldast. Varðandi þessi atriði sagði Guð- mundur: „Ég gerði mér ekki grein fyrir að fhsamáhð væri svona stórt. Það var óskað eftir að það yrði tekið inn í tjónamat á húsinu. Ef það þarf að gera við flísalögn í 56 af 60 íbúðum er þetta ansi mikhl peningur. Það er óskað eftir að kostnaðartölur komi fram í matinu og hver ber ábyrgð á þessu. Um leið og þetta mat kemur verðum við að fara yfir það og sjá hver ber ábyrgð," sagði Guðmundur. Hann sagöi að miðað við íbúðaverð í VR-húsinu mætti gera ráð fyrir að kostnaður við byggingu þess hefði verið á fimmta hundraö mihjóna króna. Sextíu íbúðir eru í húsinu. Guðmundur kvaðst ekki hafa gögn á reiðum höndum sem sýna hve hár hönnunar- og eftirhtskostnaður við húsið hefði verið. Samkvæmt þeim upplýsingum sem DV hefur nam sú upphæð á annan tug prósenta af byggingakostnaði - mörgum tugum mhljóna króna. -ÓTT 35 sagt upp á Grundartanga: Fólk hefur að engu að snúa - segir aöaltrúnaöarmaður starfsmanna 34 th 35 starfsmönnum verður sagt upp í Jámblendiverksmiðjunni á Grundartanga að sögn Kjartans Guð- mundssonar aöaltrúnaöarmanns starfsmanna. í gær tilkynntu dehd- arstjórar í einstökum dehdum sínu fólki um breytingamar. Þessar upp- sagnir jafnghda um 30 stöðughdum. Uppsagnimar koma thtölulega jafnt niöur á dehdum fyrirtækisins en þær em fimm; viðhaldsdehd, ofn- dehd, flutningadehd, skrifstofudehd og rannsókna- og þróunardehd. Starfsmennimir hafa flestir þriggja mánaða uppsagnarfrest og sumir sex mánaða. „Þetta er ískyggheg staða. Það em allir slegnir yfir þessu en við getum htið gert. Ég sé ekki annað en allar uppsagnimar komi th framkvæmda þó ýmislegt geti náttúrlega gerst á þremur th sex mánuðum. Fólk hefur að engu að snúa,“ segir Kjartan Guð- mundsson, aöaltrúnaðarmaður starfsmanna í Járnblendiverksmiðj- unni. Kjartan sagði ákaflega htið að ger- ast í atvinnulífi á svæðinu sem fólkið gæti leitað í, þó vissi hann af þremur sem væm komnir í ný störf. Jón Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Jámblendiverksmiðjunnar, vhdi síðdegis í gær ekki tjá sig um máhð að öðm leyti en því að byijað væri að ræða við það starfsfólk sem fyrir uppsögnunum verður. Hann bjóst við að endanlegar niðurstöður mynduhggjafyrirídag. -Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.