Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Side 28
36
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992.
Skyidu þessar vera frá Selfossi?
Sveitó Sel-
fyssingar
„Það kom hér til dæmis stelpa
frá Selfossi.. ,og haíöi ekki farið
í verslunferð síðan fyrir jól,“
sagði Bolli Kristinsson í verslun-
inni 17 um ágæti sunnudagsaf-
greiðslu Kringlunnar.
Hjónaskilnaður
„Þetta er eins og þegar hjón eru
að skilja, þau byrja ekki á að segja
blaðamanni frá því,“ sagði Matti
Bjarna.
Ábyrgðarleysi
„Við getum ekki borið ábyrgð á
Ummæli dagsins
hvort húsið hrynji eða ekki,“
sagði Ellert Már Jónsson, tals-
maður fyrirtækisins sem hafði
eftirlit með byggingu VR-hússins.
Sætin í stæðunum?
„Við munum fljótlega fara að
merkja og númera sætin sem
verða í stæðunum,“ sagði Jón
Magnússon, starfsmaður á Laug-
ardalsvelli.
BLS.
28
Atvinnaíboðí Atvínna óskast Atvinni'húsnæði.... 31 31 31
Barnagaesfa. Bátar 4*.......4»..«+..3Í 30
Bílaleíga .30
Biiaróskast Bílartilsölu 30 30,32 30
Bókhald Byssur Dulspeki 32 30 32
Dýrahald.. 29
Eirikamál Fastelgnir , . . 4, . . .4 . ■ • 4,. . ,4.3t 30
32
Fjórhjól... Flug 30 30
Smáauglýsingar
Fyrir ungborn 27
Fyrir veiðimenn .30
Fyrirtækí 30
Garöyrkja
Heimilistaaki........................ 28
Hjól 29
Hljóðfæri 28
Hreingerningar 32
Húsavíðgerðír 32
Húsgögn 28
Húsnæöiíboði 31
Húsnæöíóskast 31
Kennsla - námskeið 32
Lyftarar... 30
Málverk 29
27
Parket. 32
Sendibllar 30
Sjónvörp 29
Skemmtanir 32
Spákonur ♦►.<♦►,«♦►,<♦».<♦►.«♦►.«♦►.<4' ».«;„4«».,32
SumarbúBtaðír 30
Teppaþjónusta 28
Tilsölu.. 27
Tílkynningar
Tölvur 29
Vagnar - kerrur ......30,32
Varahlutir 30
Versiun ...32
Vetrarvörur 30
Viðgerðir 30
Vínnuvélar 30
Vörubílar...., 30
Ýmíslegt................. 31,32
Þjónusta.....................32
Ökukennsta................. 32
Léttskýjað á
höfuðborgarsvæðinu
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðan og noröaustan gola eða kaldi
og léttskýjað, hægviðri í kvöld og
nótt. Vaxandi sunnanátt og þykknar
upp í fyrramáhð. Hiti 4 til 9 stig í dag
en kólnar í nótt niður undir frost-
mark. Hlýnar í fyrrmáhð.
Veðrið í dag
Á landinu verður norðan og norð-
austan gola eða kaldi um mestan
hluta iandsins, þokuloft eða súld viö
noröur- og norðausturströndina
fram eftir degi en annars víöast bjart
veður. Hæg\aðri í nótt en fer að
þykkna upp vestast á landinu í fyrra-
máhð með vaxandi sunnanátt. Held-
ur kólnar í bili og má víöa búast við
næturfrosti en fer að hlýna vestan
til á landinu í fyrramáhð.
Klukkan 6 í morgun var norð-
austangola eða kaldi víðast hvar á
landinu. Léttskýjað var á Suður- og
Vesturlandi en víða þokuloft eða súld
á Norður- og Norðausturlandi. Hiti
var á bilinu 3 til 7 stig.
Austur við Noreg er 1005 mb. lægö
en hæðarhryggur á Grænlandshaíi
hreyfist austur. Fyrir vestan Græn-
land er víðáttumikil 970 mb. lægð á
hreyfmgu norðaustur.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyrí súld 5
Egilsstaðir þoka 4
Galtarviti rigning 5
Hjarðames úrkoma 6
Kirkjubæjarklaustur skýjað 4
Raufarhöfn rigning 6
Reykjavik léttskýjað 3
Vestmannaeyjar léttskýjað 6
' Veðrið kl. 6 í morgun
Þórður H. Lárusson knattspymuþjálfari:
„Viö eram mjög ánægðir með
sigurinn. Þetta er 3. árið sem ég er
með í þessu og þetta er búið að
ganga mjög vel. Við erum búnir að
spila 27 leiki og höfum uirnið rúm-
lega helminginn. Þetta er 3. leikur-
inn okkar við Dani síðan ég kom
inn í þetta og við höfum unnið þá
alltaf þannig að þetta er kannski
komiö í vana hjá okkur, a.m.k.
vona ég þaö,“ segir Þórður H. Lár-
usson, annar þjálfari drengja-
landshðs íslendinga í knattspyrau
sem skipað er leikmönnum yngri
en 16 ára, en landsliðiö fagnaði ein-
mitt 4-1 sigri eftir leik gegn Dönum
á þriðjudag.
„Þaö má segja aö þetta hð standi
jafnfætis öörum þjóðum. Það má
vera aö yngri flokkarnir hafi verið
afskiptir innan KSÍ á slnum tima
en það er ekki lengur. Menn eru
farnir að gera sér grein fyrir mikil-
vægi unghngaknattspyrnunnar og
Þórður H. Lárusson sem þjálfar
landsllð íslendinga U-16.
horfa þannig til {ramtíðarinnar.
Þetta eru þeir drengir sem taka
þátt í meistaraflokki síðar meir og
félögin eru þar af leiöandi farin að
Maóur dagsins
leggja meiri rækt við þá. Eg full-
yrði aö ég yrði ósáttur ef þónokkur
hluti af þessum strákum kemst
ekki aha leið þegar fram líða stund-
ir,“ segir Þórður.
Þórður hefur verið knattspyrnu-
þjálfari í nokkur ár. Hann lék sjáif-
ur með Fram i öðrum flokki en
meiddist iha og sneri sér að knatt-
spyrauþjálfun eftir það. Hann seg-
ist að lokum vera bjartsýnn á
seinni leikinn gegn Dönum. „Hann
leggst vel í mig sérstaklega þar
sem við förum með 3ja marka for-
skot út og einhvern veginn fmnst
raér viö alltaf hklegir til að skora.“
Mæla af munni fram
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði í ft.
Reykja-
víkurmótið
í körfubolta
í kvöld fer fram einn leikur í
Reykjavíkurmótinu í körfuknatt-
leik. ÍS og ÍR leika x fþróttahúsi
Kennaraháskólans og hefst leik-
urinn klukkan 20.00.
Með þessum leik er mótið
hálfhað og hefur Vaiur unnið alla
sína ieiki og hefur því forystuna.
KR fylgir fast á hæla Vals og hef-
ur tapað 1 leik, leik gegn Val sem
Íþróttiríkvöld
fór 102-89. Það er nánast forms-
atriði aö annahvort þessara hða
sigri mótið. Til aö KR takist það
þarf liðið að sigra Val þegar liðin
mætast að nýju nk. sunnudag og
þá með 14 stigum.
Reykjavíkurmótið
í körfubolta
ÍS-ÍR kl. 20.00.
Skák
Nýstárleg skákkeppni fór fram fyrir
skömmu á e'yjunni Aruba í Karíbahafi.
Þetta var keppni öldunga (Smyslov, Gell-
er, Polugajevskí, Ivkov, Panno og
Uhlmann) gegn úrvalsliði kvenna (þrjár
Polgar-systur, Tsíbúrdanidze, Galjamova
og Arakhamia). Öldungar höfðu betur,
fengu 39 vinninga gegn 33 kvenna og
munaði þar mestu um frábæra frammi-
stöðu Polugajevskís, sem fékk 8,5 v. af
12 mögulegum. Judit Polgar náði bestum
árangri kvenna og næstbestum árangri
allra, með 7,5 v.
í þessari stöðu hafði Judit Polgar svart
og átti leik gégn Uhlmann:
8
7
6
5
4
3
2
1
23. - Rx£2! 24. Kxf2 Bb6 Hvítur á nú úr
vöndu að ráða - riddarinn á e3 hlýtur að
falla. Ef 25. Kg2 Dxe3 26. Hhfl Hh7 og
næst 27. - Bh3+ og vinnur skiptamun.
25. Kel Bxe3 26. Hhfl Hh7 27. DflB Hxh2
og Uhlmann réð ekki við sóknina.
Jón L. Árnason
I W #
A li I
Á 1«
£
A
& & A 41
A A ÉL A A !■* s
ABCDEFGH
Bridge
Skákmaðurinn Fischer hefur verið stöð-
ugt í fréttunum undanfamar vikur en
bridgespilarar eiga lika sinn Fischer (eða
öllu heldur sína Fischer). í austurríska
kvennalandsliðinu, sem náði ólympíu-
meistartitlinum í Salsomaggiore fyrr 1
þessum mánuði, er snjöll spilakona sem
heitir Doris Fischer. Hún var sagnhafi í
austur í leik Austurríkis gegn Portúgal á
mótinu. Norður gjafari og allir á hættu:
V 1063
♦ 87653
* G1032
♦ Á7654
V 8542
♦ 94
+ 94
* KG8
V Á7
♦ ÁKDG10
+ ÁK8
♦ D932
V KDG9
♦ 2
+ D765
Sömu spil voru spiluð í öllum leikjum í
keppninni og langflestir sagnhafa spiluðu
3 grönd á AV-hendumar. Þeir fóra flestir
niður í þeim samningi en Fischer var ein
af fáum sem náði aö standa hann. Suður
spilaði út þjartakóng í byijun og Fischer
drap á ás. Hún renndi síðan niður öllum
tigulslögunum og suður varðist vel með
þvi að henda þremur spöðum og einu
laufi. í þessari stöðu reyndu margir sagn-
hafa að taka ÁK í laufi í þeirri von að
laufdrottningin félli en Fischer hafði tak-
markaða trú á að það gengi. Hún tók
þess í stað á laufás og spilaði sig síðan út
á hjarta. Suður tók þrjá slagi á hjarta
áður en hún spilaði sig út á laufi en þá
var kóngurinn orðinn einn eftir þjá sagn-
hafa. Lokahnykkinn, til þess að fá níunda
slaginn, gerði Fischer síðan méð þvi að
leggja niður spaðakónginn og tryggði sér
slag á spaðagosa.
Isak örn Sigurðsson