Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1992, Qupperneq 1
Frumsýning í Þjóðleikhúsinu:
Ríta gengur menntaveginn
Föstudaginn 2. október verður
frumsýnt á Litla sviði Þjóðleik-
hússins gamanleikritið Ríta gengur
menntaveginn (Educating Rita) eft-
ir breska rithöfundinn Willy Russ-
ell í leikstjóm Maríu Kristjánsdótt-
m-.
Russell er meðal vinsælustu nú-
tímahöfunda Breta og hérlendis
hafa verið sýnd eftir hann verkin
Sigrún Ástrós og söngleikurinn
Blóðbræður. í verkum sínum
blandar hann gjaman saman góðu
skopi og boðskap, þannig að hvort
styður annað og útkoman er hlýleg
en umfram allt skemmtileg verk
sem eiga erindi við alla.
Ríta gengur menntaveginn er á
vissan hátt þroskasaga höfvmdar-
ins sjálfs. Russell er fæddur og
uppahnn í Liverpool og hlaut litla
og lélega menntun. Sem ungur
maður var hann afar óráðinn í því
hvað hann vildi taka sér fyrir hend-
ur í lífinu og starfaði við hár-
greiðslu í sex ár.
Hugur hans stóð samt helst til
skrifta og í leikritinu fjallar Russ-
eli um hárgreiðslukonuna Rítu sem
er ekki fyllilega sátt við hlutskipti
sitt í lífinu. Hún fer að sækja bók-
menntatíma og kennarinn hennar
er miðaldra drykkfelldur karlmað-
ur. Honum er sárlega misboðið að
þurfa að eyða tíma með þessari
menningarsnauðu snyrtidömu en
Ríta reynist hins vegar ekki öll þar
sem hún er séð.
Ríta er leikin af Tinnu Gunn-
laugsdóttur en kennarann leikur
Amar Jónsson. Þýðandi er Karl
Ágúst Úifsson en Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir sér um leikmynd og
búninga.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Arnar Jónsson i hlutverkum sínum í leikritinu
Rita gengur menntaveginn. DV-mynd GVA
Frumsýning f slensku óperunnar:
Lucia Di
Lammermoor
íslenska óperan frumsýnir Lucia
Di Lammermoor eftir Gaetano
Donizetti á föstudagskvöldið 2. okt-
óber. Þessi þekkta ópera hefur ekki
áður verið flutt á sviði hérlendis og
engin íslensk söngkona hefur til
þessa spreytt sig á titilhlutverkinu
sem verður í höndum Sigrúnar
Iljálmtýsdóttur í uppfærslu óper-
unnar.
Óperuna um hinar ógæfusömu ást-
ir Luciu og Egardos og átök Luciu
við Enrico bróður sinn þarf ekki að
kynna sérstaklega fyrir óperuunn-
endum. Til þess er óperan nógu
þekkt og hefur auk þess verið sýnd
hér, bæði í Ríkissjónvarpinu og á
Stöð 2.
Leikstjórinn í uppfærslunni á Luc-
iu heitir Michael Beauchamp. Hann
er gerkunnugm- þessu verki og hefur
meðal axmars sviðsett það í Sydney
í Ástralíu með Joan Sutherland í
aðalhlutverkinu. Robin Stapleton
stjómar hljómsveit íslensku óper-
unnar og Lubos Hruza sér um leik-
mynd og búninga.
Frumsýningin verðiu: föstudaginn
2. október, hátíðarsýning verður
sunnudaginn 4. október og 3. sýning
föstudaginn 9. október.
íslenska óperan frumsýnir hina þekktu óperu Donizettis, Lucia Di Lammermoor, á föstudag.
DV-mynd ÞÖK