Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1992, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1992, Side 4
20 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992.; Sýningar Art-Hún Stangarhyl 7. síml 673577 I sýningarsal og vinnustofum eru til sýnis og sölu ollumálverk, pastelmyndir, graflk og ýms- ir leirmunir. Opið alla daga frá kl. 12-18. Árbæjarsafn Opið um helgar kl. 10-18. Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74. sími 13644 Safn Ásgríms Jónssonar er opið á laugardög- um og sunnudögum kl. 13.30-16.00. Ásmundarsafn Sigtúni, sími 32155 Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina Bókmenntirnar I list Ásmundar Sveinssonar. Jafnframt hefur verið tekin I notkun ný við- bygging við Ásmundarsafn. Safnið er opið kl. 10-16 alla daga. Ásmundarsalur v/Freyjugötu Opið alla virka daga frá kl. 10-16. Café List Klapparstíg Ólafur Benedikt Guðbjartsson sýnir verk sín í nýju kaffihúsi, Café List. Einnig eru til sýnis myndverk eftir hann I kaffihúsinu Café 22 við Laugaveg 22. Café 17 Laugavegi 17 Þar stendur yfir sýning á verkum Hermínu Benjamínsdóttur og kallar hún sýninguna Frí- stundagaman Hermínu. Hún sýnir klippi- myndir og myndir unnar úr akrýl. Café 17 er opið á verslunartíma. Borð fyrir tvo Borgarkringlunni Þar stendur yfir sýning á málverkum Þórdísar Árnadóttur. Sýningin er opin á verslunartlma. Gamla Álafosshúsið Mosfellsbæ I gamla verksmiðjuhúsinu fást myndlistar- menn við myndlist, leirlist og glerlist. Opið alla laugardaga og aðra daga eftir samkomu- lagi. FÍM-salurinn Garðastræti 6 Á morgun kl. 14 verður opnuð sýning á verk- um Björns Birnir sem ber heitiö Umhverfi sandanna. Á sýningunni eru verk unnin með akrýllitum á striga og pappír, auk nokkurra teikninga sem gerðar eru meó tússi á pappír. Sýningin er opin alla daga kl. 14-18. Gallerí Borg v/Austurvöll, s. 24211 Opiö alla virka daga frá kl. 14-18. Gallerí einn einn Skólavöröustíg Inga Þórey Jóhannsdóttir sýnir málverk. Þetta er fjórða einkasýning Ingu. Málverkin á sýn- ingunni eru öll unnin í Glasgow á slðasta vetri. Sýningin stendur til 8. október og er opin frá kl. 14-18 alla daga. Gallerí Ingólfsstræti Bankastræti 7 Nú stendur yfir sýning á myndum, máluðum á silki, eftir Guðrúnu Arnalds. Einnig eru fjög- ur myndverk, unnin úr bývaxi og litadufti á striga eftir Jón Sæmundsson. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18. Gallerí List Skipholti, sími 814020 Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn. Opið daglega kl. 10.30-18. Gallerí Port Kolaportinu Opið laugard. kl. 10-16 og sunnud. kl. 11-17. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9. sími 13470 Bengt Adlers heldur sýningu sem ber titilinn „List og handverk, verk í þróun". Gallerí Umbra Amtmannsstíg 1 Aöalheiður Valgeirsdóttir sýnir vatnslitamyndir í Gallerí Úmbru. Sýningin er opin þriðjudaga til laugardaga kl. 12-18 og sunnudögum kl. 14-18. Sýningin stendur til 21. október. Hafnarborg Strandgötu 34 Þar stendur yfir sýning á verkum norska málar- ans Káre Tveter. Á sýningunni eru um sextíu verk, olíumálverk og vatnslitamyndir. Sýningin stendur til 5. október og er opin kl. 12-18 alla daga nema þriðjudaga. I Sverrissal stend- ur yfir myndlistarsýningin „Cuxhaven í Ijósi listarinnar". Sýningin kemur frá Cuxhaven sem er vinabær Hafnarfjaröar í Þýskalandi. Sýningin stendur til 19. október. Hótel Lind Kristrún Pálmadóttir er með slna fyrstu sýn- ingu á Hótel Lind. Á sýningunni eru 11 verk unnin í akrýl og meö blandaöri tækni. Verkin eru öll frá þessu ári. Nýlistasafnið Vatnsstíg 3B Ragna Róbertsdóttir sýnir verk úr grágrýti, hrauni og gúmmíi, auk teikninga á vegg. Sýn- ingin er í öllum sölum safnsins og myndar eina heild. Ragna hefur sýnt víöa, bæði hér á landi og erlendis. Sýningin er opin frá kl. 14-18 alla daga og lýkur 11. október. Sýning á Hressó Opnuö hefur veriö í veitingahúsinu Hressó sýning á Ijósmyndum eftir Kristján Logason. Myndimar eru ýmist svarthvítar, handmálaðar eða í lit. Kjarvalsstaðir Þar stendur yfir sýning á verkum eftir sex ís- lenska myndlistarmenn af yngri kynslóðinni sem allir hafa valiö sér fígúruna sem mynd- efni. Þeir eru: Brynhildur Þorgeirsdóttir, Helgi Þorgils Friöjónsson, Kjartan Ólason, Hulda Hákon, Jón Óskar og Svala Sigurleifsdóttir. Sýningin stendur til 25. okt. og er opin dag- lega kl. 10-18. I austursal Kjarvalsstaöa er sýning á teikning- um eftir Alfreó Flóka. Einnig eru sýndar af- straktmyndir eftir Ásmund Sveinsson og gler- verk eftir Trónd Patursson, færeyskan mynd- listarmann. Kjarvalsstaöir eru opnir alla daga frá kl. 10-18. Jóhann fæddist árið 1923, sonur Ingibjargar Eyfells og Eyjólfs Eyfells listmálara. Hann var við nám í bygg- ingarlist, skúlptúr, málaralist og keramik í Bandaríkjvmum á árunum 1945-53. Fram til ársins 1969 starfaði hann sem teiknari, hönnuður, arki- tekt, listamaður og kennari ýmist í Bandaríkjunum eða á íslandi. listasafn íslands: Jóhann Eyfells Sýning á verkum eftir Jóhann Ey- fells verður opnuð laugardaginn 3. október klukkan 15 í Listasafhi ís- lands. Á sýningunni er úrval af verk- um Jóhanns frá síðasta áratug og hún er sú stærsta sem haldin héfur verið hér á landi á höggmyndum hans. Frá 1969 hefur hann haft fasta bú- setu í Flórída og verið prófessor í myndlist við University of Central Flórída auk þess að starfa sem lista- maður. Sýning Jóhanns stendur til 22. nóvember alla daga nema mánu- daga kl. 12-18. Jóhann Eyfells sýnir verk sem unnin eru á síðasta áratug á sýningunni. DV-mynd GVA Mokka: Dýr úr miðbæ Reykjavíkur Á Mokka stendur nú yfir sýning á málverkum af dýrum úr miðbæ Reykjavíkur eftir Huldu Hákon. Þar er hægt aö berja augum ýmis verk eins og Branda Þorsteins, Bjart og Jóstein á Hverfisgötunni, Amarhól- inn, Heiðu Berhn, brotna rúðu, hunda, vetramóttina, sel sem lónar stundum við Grandagarð og fleiri verk. Hulda er fædd árið 1956 og lauk námi árið 1983. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum á íslandi og erlendis. Sýn- ingin á Mokka stendur fram til 28. október. Hulda Hákon er með málverkasýn- ingu á Mokka. Gallerí Úmbra: Vatnslitamyndir Aðalheiðar í gær var opnuð sýning á vatnslita- myndum Aðalheiðar Valgeirsdóttur í Gallerí Úmbm á Torfunni. Sýningin er opin þriðjudaga til laugardaga klukkan 12-18 og sunnudögum klukkan 14-18 og stendur til 21. októ- ber. Aðalheiður laulí námi frá Mynd- hsta- og handíðaskóla íslands, graf- íkdeild, árið 1982. Þetta er önnur einkasýning Aðalheiðar en hún hélt sýningu á grafíkverkum í Ásmund- arsal árið 1989. Aðalheiður hefur einnig tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis, síðast í Finnlandi nú í haust ásamt félögum í íslenskri grafík. Aöalheiður Valgeirsdóttir sýnir í Gallerí Úmbru. Menningarstofnun Bandaríkjanna: Bandarískar einþrykksmyndir Sýning einþrykksmynda eftir bandaríska grafíkhstamenn, sem nefnist Collaborations in Monotype fí, er nú í Menningarstofnun Banda- ríkjanna. Sýningin hefur farið víöa um Norður- og Mið-Evrópu á síðast- hðnum þremur árum við góðan orðstír. Sýning þessi er á vegum Upplýsingaþjónstu Bandaríkjanna en heiðurinn af vah verkanna á Phyllis Plous, safnvörður við Há- skólalistasafniö í Santa Barbara í Kalifomíu. Einþrykksformið á ört vaxandi vinsældum að fagna en til skamms tíma htu listamenn niður á einþrykk og töldu það vera eins og hverja aðra prentiðn. Tækni hennar er frekar einföld. Listamaðurinn málar á plötu og þrykkir síðan yfir með pressu áður en litimir ná aö þoma. Sýningin verður opin aha virka daga á skrifstofutíma frá klukkan 8.30-17.45 aht til 1. nóvember. Norræna húsið: Myndlistar- sýning frá Álandseyjum Á laugardag, 3. október, verður opnuö sýning í sölum Norræna hússins á verkum 11 álenskra hstamanna sem sýna vatnshta- myndir, grafík og röð Ijósmynda. Listamennirnir heita: Anita Hehström, Bror-Erik Elfsberg, Britta Gustafsson, Charles Hemmingson, HUdur Stenback, Johan Bergström, Juha Pykala- inen, Krister Sundback, Maret Ekner, Nanna Sjöström og Ruth Eggestad. Þeir hafa tekið þátt í mörgum samsýningum á Álandseyjum, í Finniandi, Svíþjóð og víöar um heim. Sýningin er hður í kynn- ingu á Álandseyjum sem haldin var í Norræna húsinu um síðustu helgi. Sýningin í Norræna húsinu verður opin daglega klukkan 14-19 og stendur til 25. október. FÍM-salurinn: Umhverfl sandanna Laugardaginn 3. október verð- ur opnuð í FÍM-salnum, Garða- stræti 6, sýning á verkum Bjöms Bimis sem ber heitið Umhverfi sandanna. Sýnd em verk unnin með akrýlhtum á striga og papp- ír, auk nokkurra teikninga sem gerðar era með tússi á pappír. Bjöm stundaði nám hérlendis og í Bandaríkjunum. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Björn Bimir er yfirkennari mál- aradeUdar Myndhsta- og hand- íðaskóla íslands. Akrýllá Hótel Iind Þann 1. október opnar Kristrún Pálmadóttir myndhstarkona sína fyrstu sýningu á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. Á sýningunni em 11-verk unnin í akrýl og með blandaðri tækni. Verkin eru öU frá þessu ári. Olíumyndir Stefáns Stefán Magnússon sýnir ohu- myndir í hstahomi upplýsinga- miöstöðvar ferðamanna á Akra- nesi. Sýningin stendur yfir tíl 15. október og er opin á sama tíma og upplýsingamiðstöðin. Sýningar Mokkakaffi v/Skólavörðustíg Þar stendur nú yfir sýning á málverkum af dýrum úr miöbæ Reykjavíkur eftir Huldu Há- kon. Hulda hefur haldið einkasýningar og tek- ið þátt í samsýningum á islandi og erlendis. Sýningin stendur út mánuðinn. Nesstofusafn Neströð, Seltjarnarnesi Nýtt lækningaminasafn sem sýnir áhöld og tæki sem tengjast sögu læknisfræöinnar á is- landi. Stofan er opin á sunnud., þríðjud., fimmtud. og laugardögum frá kl. 12-16. Að- gagnseyrir er kr. 200. Norræna húsið Á morgun kl. 15 verður opnuð sýning í sýn- ingarsölum Norræna hússins á verkum 11 álenskra listamanna sem sýna vatnslitamynd- ir, grafík og röð Ijósmynda. Sýningin er opin daglega kl. 14-19 og stendur til 25. október. i bókasafni hússins er sýning á bókum eftir álenska rithöfunda og bækur um eyjarnar. Þar er einnig sýning á frímerkjum frá Álandseyjum. Nýhöfn Hafnarstræti 18 Þar sýnir Guðbjörg Lind Jónsdóttir. Á sýning- unni eru verk unnin með olíu á sl. tveimur árum. Sýningin. sem er sölusýning, er opin virka daga kl. 12-18 og frá 14-18 um helg- ar. Lokaö á mánudögum. Henni lýkur 7. okt- óber. Katel Laugavegi 20b, sími 18610 (Klapparstígsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda lista- menn, málverk, grafík og leirmunir. Listasafn ASÍ v/Grensásveg Þar hefur verið opnuð sýning á málverkum eftir Þorlák Kristinsson. Verkin á sýningunni eru öll ný af nálinni. Sýningin er í boði safns- ins og er opin alla daga kl. 14-19. Sýningin stendur til 4. október. Listasafn Einars Jónssonar Njarðargötu, síml 13797 Opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-18. Listasafn íslands Sýning á verkum eftir Jóhann Eyfells verður opnuð á morgun kl. 15. Á sýningunni er úr- val af verkum Jóhanns frá síðasta áratug og hún er sú stærsta sem haldin hefur verið hér á landi á höggmyndum hans. Sýningin stend- ur til 22. nóvember, alla daga nema mánu- daga kl. 12-18. Kaffistofa safnsins opin á sama tíma. Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar Laugarnestanga 70 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma. Listinn gallerí - innrömmun Síðumúla 32, sími 679025 Uppsetningar eftir þekkta íslenska málara. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Listasafn Háskóla íslands i Odda, sími 26806 Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14- 18. Aðgangur að safninu er ókeypis. Sjónminjasafn Islands Nú stendur yfir sýning Skipaútgerðar ríkisins. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18. Menningarstofnun Bandaríkjanna Laugavegi 26 Collaborations in Monotype II nefnist sýning einþrykksmynda eftir bandaríska grafíklista- menn sem stendur yfir í Menningarstofnun Bandaríkjanna. Sýningin er opin alla virka daga kl. 8.30-17.45 til 1. nóvember. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11, sími 54321 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15- 18. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar Hverfisgötu 59. sími 23218 Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmyndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslun- artíma þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafn íslands Opið þriöjudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 12-16. Minjasafnið á Akureyri Aðalstræti 58, sími 24162 Opið daglega kl. 11-17. Vinnustofa Snorra Álafossvegi 18a, Mosfellsbæ Þann 16. júlí sl. opnaði Snorri Guðmundsson sýningu á Listaverki náttúrunnar sem eru höggmyndir úr hrauni og öðrum náttúruleg- um efnum. Hraunið, sem valið er í hvern grip, er allt út slöasta Heklugosi. Sýningin er opin frá kl. 14-20. Akranes Stefán Magnússon sýnir olíumyndir í lista- horni upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Akranesi. Sýningin stendur yfir til 15. október er opin á sama tíma og upplýsingamiðstöðin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.