Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1992, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1992, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1992. Messur Árbæjarkirkja: Messa kl. 11 árdegis, altaris- ganga. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Fríð- ur Sigurðardóttir og Halla Jónasdóttir syngja. Sunnudagaskóli Árbæjarsafnaðar kl. 11 í safn- aöarheimili Árbæjarkirkju, Ártúnsskóla og Se- lásskóla. Fyrirbænastund miövikudag kl. 16.250. Sr. Guömundur Þorsteinsson. Áskirkja: Barnaguösþjónusta kl. 11. Guös- þjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu. Kirkjubíllinn ekur. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiöholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guösþjónusta kl. 11. Ath. breyttan messutíma. Kynning fermingarbarna. Organisti Daníel Jón- asson. Aö lokinni guðsþjónustu veröa fundir meö foreldrum fermingarbarna. Kl. 17. Sam- koma KFUM og K, Kristniboössambandsins og Kristilegu skólahreyfingarinnar. Ræöumað- ur Tore Kopperud frá Noregi. Kl. 20.30. Sam- koma á vegum „Ungs fólks meö hlutverk". Ræöumaður: Ragnar Snær Karlsson. Bæna- guösþjónusta þriöjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11. Guösþjón- usta kl. 14. Organisti Guöni Þ. Guðmundsson. Sjö hljóðfæraleikarar úr sókninni ásamt Ernu Huld Árnadóttur flytja kantötuna 0 Gottes Stat eftir Buxtehude. Barnakór og bjöllusveit. Pálmi Matthíasson. Digranesprestakall: Barnasamkoma í Safnaö- arheimilinu viö Bjarnhólastíg kl. 11. Guösþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 14. Safnaöarfundur aö lokinni guösþjónustu. Sr. Þorbergur Kristj- ánsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11.00. Dómkórinn syng- ur. Organisti Marteinn H. Friöriksson. Sérstakur kórsöngur í tilefni af kirkjuviku. Sr. Hjalti Guö- mundsson. Barnastarf í safnaöarheimilinu á sama tíma. Kirkjubíllinn fer um vesturbæinn. Bænaguðsþjónusta kl. 17.00. Forsöngvari Björk Jónsdóttir. Sr. Hjalti Guömundsson. Elliheimiliö Grund: Guösþjónusta kl. 10.00. Sr. Ólafur Jóhannsson. Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 11. Fella- og Hólakirkja: Barnaguösþjónusta kl. 11. Umsjón Sigfús B. Ingvason og Guörún Magn- úsdóttir. Kl. 14 fermingarguðsþjónusta og alt- arisganga. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Org- anisti Guöný M. Magnúsdóttir. Fermd verða Vilhelmína Birgisdóttir, Æsufelli 2, og Halldór Arnar Karlsson, Austurbergi 4. Fyrirbænastund mánudag kl. 18. Helgistund í Geröubergi fimmtudag kl. 10.30. Prestarnir. Frikirkjan í Hafnarfirói: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Einar Eyjólfsson. Fríkirkjusöfnuóurinn i Reykjavik: Guðsþjónusta kl. 14.00. Miövikudag 14. október morgunand- akt kl. 7.30. Organisti Pavel Smid. Cecil Har- aldsson. Grafarvogssókn: Barnaguösþjónusta í félags- miöstöðinni Fjörgyn kl. 11. Nýr sunnudaga- póstur. Aöstoöarfólk guöfræöinemarnir Sveinn Valgeirsson og Ellnborg Gísladóttir. Guösþjón- usta kl. 14. Foreldrar fermingarbarna og ferm- ingarbörn aöstoöa. Fundur meö foreldrum fermingarbarna eftirguðsþjónustuna. Kaffiveit- ingar. Organisti Sigurbjörg Helgadóttir. Vigfús Þór Árnason. Grensáskirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Grensáskirkju syngur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Yngri börnin fara niður I miöri messu. Messa kl. 14 með fermingarbörn- um og foreldrum þeirra. Sr. Halldór S. Gröndal þjónar fyrir altari. Sr. Gylfi Jónsson prédikar. Fermingarbörn lesa bænir og texta. Organisti Árni Arinbjarnarson. Þriðjudagur: Kyrröarstund kl. 12.00. Orgelleikur 110 mínútur. Fyrirbænir, altarisganga og léttur hádegisveröur. Þriöju- dagur kl. 14.00. Biblíulestur. Sr. Halldór S. Gröndal annast fræösluna. Kaffiveitingar. Hallgrimskirkja: Fræöslusamvera kl. 10. Sr. Siguróur Pálsson. Fjölskyldumessa kl. 11.00. Altarisganga. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Kirkja heyrnarlausra. Messa kl. 14. Sr. Miyako Þóröar- son. Sr. Thoshiki Toma frá Japan prédikar. Þriójudagur: Fyrirbænaguösþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Háteigsklrkja: Morgunmessa kl. 10. Sr. Arn- grímur Jónsson. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer um Hlíðar og Suóurhlióar á undan og eftir messu. Messa kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson. Biblíulestur mánudagskvöld kl. 21.00. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miövikudögum kl. 18. Hjallasókn, messusalur Hjallasóknar, Digranes- skóla: Barnaguðsþjónosta kl. 11. Guösþjón- usta kl. 14. Kór Hjallasóknar syngur. Organisti Oddný Þorsteinsdóttir. Kristján Einar Þorvarö- arson. Kársnesprestakall: Barnastarf í safnaðarheimil- inu Borgum sunnudag kl. 11. Guósþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Organisti Stefán R. Gíslason. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Keflavikurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Bjóöum fötluö börn sérstaklega velkomin. Guösþjónusta kl. 14. Ræóuefni: Vinnan, atvinnuleysi og sjálfsímynd einstakl- ingsins. Umræöur yfir kaffibolla I Kirkjulundi eftir messu. Mömmumorgnar á miövikudögum í Kirkjulundi. Kyrróarstund og kvöldbænir í kirkjunni á fimmtudögum kl. 17.30. Sóknar- prestur. Landspitalinn: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúla- son. Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristins- son. Kór Langholtskirkju (hópur III) syngur. Organisti Jón Stefánsson. Barnastarf á sama tlma. Kaffisopi eftir guðsþjónustu. Aftansöngur alla virka daga kl. 18.00. Laugameskirkja: - Upphaf kirkjuviku - Guós- þjónusta kl. 11. Sr. Jón D. Hróbjartsson. Barna- starf á sama tíma undir stjórn Þórarins Björns- sonar. Bjöllusveitin leikur. Fermingarbörn aö- stoöa. Eftir guðsþjónustuna verður fundur með foreldrum fermingarbarna. Einnig mun for- eldrafélag bjöllusveitar bjóöa upp á léttar veit- ingar á vægu verói. i kirkjuviku veröur tónlist í hádeginu kl. 12.10-12.40 og bænastundir kl. 18.00 frá mánud.-föstudags. Önnur dagskrá vikunnar veröur auglýst sérstaklega. Fimmtu- dagur: Kyrröarstund kl. 12. Orgelleikur, altaris- ganga, fyrirbænir. Lóttur málsverður í safnaöar- heimilinu aö stundinni lokinni. Nesklrkja: Barnasamkoma kl. 11.00. Muniö kirkjubílinn. Guömundur Óskar Ólafsson. Messa kl. 14.00. Sr. Frank M. Halldórsson. Miövikudagur: Bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guós- þjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Molasopi eftir guösþjónustuna. Sóknarprestur. Seltjamameskirkja: Messa kl. 11. Organisti Hákon Leifsson. Prestur sr. Solveig Lára Guö- mundsdóttir. Barnastarf á sama tíma. Umsjón hafa Eirný og Bára. Léttur hádegisverður eftir messu þar sem starfsfólk kirkjunnar kynnir hina ýmsu þætti safnaóarstarfsins. Miövikudagur: Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisveröur í safnaöarheimil- inu. Stokkseyrarkirkja: Barnaguösþjónusta kl. 11. Akureyri: Þýskir dagar á Bautanum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Veitingahúsið Bautinn á Akureyri efnir til þýskra daga um þessar mundir og standa þeir yfir frá morg- undeginum fram til 18. október. Á boðstólum verður þýskur matur á góöu verði og sérstakur „Oktober- fest-bjór“ sem bruggaður er að hætti þýskra af Viking Brugg á Akureyri. Sem dæmi um þær veitingar sem í boði eru má nefna þýska baunasúpu með fleski, medisterpylsu með steikt- um kartöflum, „frankfurter-pylsu“ með kartöflusalati, „Baden Baden grísakótilettur" og Berlínarsteik. Viking Brugg á Akureyri er að leggja grunninn að fyrstu októberhá- tíðinni á íslandi þessa dagana og í verksmiðjunni hefur verið bruggaö- ur mjöður af því tilefni, sá sami og drukkinn er á hinni eiginlegu októ- berhátíð í Þýskalandi. Þessi mjöður verður á boðstólum á þýskum dögum Bautans og verðið er óvenjuhagstætt eða 350 krónur fyrir hálfan lítra og 500 krónur fyrir lítrakrús. í tflefni þessara daga á Bautanum gefst þeim sem sækja Bautann heim á þessum tíma kostur á að taka þátt í léttri spumingakeppni og eru verð- laun m.a. „sælkerakarfa Þjóðverj- ans“ sem inniheldur ýmislegt góð- gæti og er að verðmæti um 15 þúsund krónur. Októberfest Viking Bruggs færist síðan tfl höfuðborgarsvæðisins og á laugardag klukkan 22 veröur opnun- arhátíð á Eiðistorgi þar sem hljóm- sveitin Júpíters og þýsk blásarasveit munu skemmta gestum. Á sunnudag verður efnt tfl kappdrykkju á Gauki á Stöng og þýska blásarasveitin mun halda uppi stemningunni. Þjóöleikhúsið Sími 11200 Smíðaverkstæðíð: Stræti laugardag kl. 20 Stóra sviöið: Hafið laugardag kl. 20 Kæra Jelena föstudag kl. 20 sunnudag kl 20 Emii í Kattholti sunnudag kl, 14 Litla sviðið: Ríta gengur menntaveginn laugardag ki. 20.30 sunnudag kl. 20.30 Borgarleikhúsið Simi 680680 Stóra sviðið: Dunganon föstudag kl. 20 iaugardag kl. 20 íslenska óperan Lucia Di Lammermoor föstudag kl. 20 sunnudag kl. 20 Ljóðatónleikar í Gerðubergi Laugardaginn 10. október klukkan 17 verða fyrstu ljóðatón- leikar Gerðubergs í vetur. Þá syngur Elsa Waage kontraalt Ijóðasöngva, meðal annars eftir Hallgrím Helgason. Emfl Thor- oddsen, J. Sibelius, G. Mahler og Kurt Weil. Meðleikari veröur Jónas Ingimundarson píanóleik- ari. Tónleikarnir verða endur- teknir á mánudag. Elsa Waage hóf söngnám viö Tónlistarskóla Kópavogs undir handleiðslu Elísabetar Erlings- dóttur. Síðan lá leið hennar tfl Hollands þar sem hún stimdaði einkanám hjá Dixie Nefll tónlist- arstjóra við óperustúdíóið í Amsterdam. Árið 1984 hóf Elsa BA-nám við Catholic University of America í Washington DC og lauk þaðan prófi 1987. Elsa Waage kontraalt syngur Ijóða- söngva á Ijóðatónleikum I Gerðu- bergi. Kammermúsík- klúbburinn Fyrstu tónleikamir á starfsári Kammermúsíkklúbbsins 1992-93 verða sunnudaginn li. október klukkan 20.30 í Bústaðakirkju. Á efn- isskránni verða verk eftir Carl Maria von Weber og Franz Schubert. Flytjendur verða Guðný Guð- mundsdóttir, 1. fiðla, Zbigniew Du- bik, 2. fiðla, Helga Þórarinsdóttir, lágfiðla, Richard Talkowski, kné- fiöla, Dean Ferrell, bassafiðla, Einar Jóhannesson, klarínetta, Josef Ogni- bene, hom, og Hafsteinn Guðmunds- son sem spflar á fagott. Orgeltónleikar Orgeltónleikar verða í Grensás- kirkju sunnudaginn 11. október klukkan 20.30. Þar mun orgelleik- ari kirkjunnar, Ami Arinbjamar- son, leika orgelverk eftir Sweel- inck, Lubeck, Bach og César Franck. Þessir tónleikar em hðir í kirkju- viku sem hefst'sunnudaginn 11. október og stendur tfl næsta sunnudags. Orgel Grensáskirkju er 18 radda orgel, smíðaö f Danmörku í orgelverksmiðjunni Bruno Christensen. Aðgangur að tónleik- unum er ókeypis. Kaldalónstríóið Kaldalónstríóið mun á laugardag- inn, 10. október, halda opinbera tón- leika að Laufskálum 11 á Hellu á Rangárvöllum og hefjast tónleikam- ir klukkan 16.30. í Kaldalónstríóinu leika Nora Kornblueh á selló, Óskar Ingólfsson á klarínett og Snorri Sigf- ús Birgisson á píanó. * Fyrir hlé á tónleikunum veröur flutt Grave fyrir selló og píanó eftir Lutoslawski, Cantilena fyrir klarí- nett og píanó eftir Snorra Sigfús og The Sky Composes Promises fyrir klarínett, selló og píanó eftir Snorra Sigfús sem síðan leikur tvö einleiks- verk eftir Arvo Párt. Eftir hlé verða leikin tvö verk eftir Atla íngólfsson en tónleikunum lýk- ur meö því að leikin verður útsetning Atla á invensjón eftir J.S. Bach. Kraftakeppni framhaldsskólanna Sóprantónleikar í Langholtskirkju Harpa Harðardóttir sópransöng- kona heldur tónleika í Langholts- kirkju sunnudaginn 11. október klukkan 20.30 og em tónleikamir síöasti hluti burtfararprófs hennar frá Söngskólanum í Reykjavík. Harpa stundar nú nám viö kenn- aradeild skólans. Á efniskrá tónleikanna eru verk eftir Verdi, Schumann, Strauss, Grieg, Jórunni Viðar, Pál ísólfsson og Karl O. Runólfsson. Harpa er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Fj ölbrautaskólanum í Breiö- holti og hóf nám við Söngskólann í Reykjavík haustið 1983. Aðal- kennari hennar þar hefur veriö Ólöf Kolbrún Harðardóttir en síð- ustu misseri hefur Garðar Cortes gegnt því hlutverki. Jafnframt námi sínu hefur Harpa sótt nám- skeið hjá prófessor Helene Kar- usso, E. Ratti og Anthony Rose. Harpa Haröardóttir sópran heldur tónleika í Langholtskirkju á sunnu- dag. Á laugardaginn, 10. október, fer fram kraftakeppni framhaldsskól- anna í tívolíinu í Hveragerði. Keppn- in hefst klukkan 12.30 og em allir velkomnir. Keppt verður í kapphlaupi frá Kömbum ásamt pylsuáti, ísáti, þeyti- vindu og gengiö yfir bátafjömina á jafnvægisslá, bátakeppni, skotfimi og fleiri greinum. Sá skólinn sem flest stigin fær mun verða sigurvegari í keppninni og fá viðurkenningarskjal ásamt bikar sem kraftmesti fram- haldsskólinn árið 1992. Kynnir verður Hermann Gunnars- son en dómarar koma frá útvarps- stöðvum og dagblööum. í tilefni dags- ins kostar aðeins einn miða á mann í hvert tæki í tívolíinu í Hveragerði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.