Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1992, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1992, Blaðsíða 19
81 .SGGI HaaðT/10 ,8S HUÖAQUHIVOIM Evrópukeppni: Draumur orðinn að veruleika Langþráður draumur hand- knattleiksmanna að koma á lagg- imar Evrópumóti landsliða er nú loksins orðinn að veruleika. Eftir langan undirbúning var stofii- fundur handknattleikssambands Evrópu (EHF) haldinn í Berlín 1991 og fyrsta þing þess var í Vín- arborg í júní í sumar. Aðildar- þjóðir að Evrópusambandinu em nú um 40 talsins en í fyrsta mót- inu tilkynntu 34 þjóðir þátttöku. Höfuðstöðvar EHF verða í Vínar- borg og voru þær formlega teknar í notkun í september. Upphafið að stofnun Evrópu- sambandsins má rekja til alþjóða- þingsins sem haldið var á Ma- deira 1990. Austur-Evrópuþjóðir voru mótfallnar stofnuninni en þjóðir á borð við ísland, Þýska- land og Spán vora hins vegar á því að hrinda þessu máb úr vör. Þessi tillaga fékk fljótlega mikinn meðbyr með þeim árangri að nú hefur Evrópukeppni landshða verið komið á fót, og þó fyrr hefði verið. Formaöur Evrópusambandsins er Staffan Holmquist, formaður sænska handknattleikssamband- ins, og varaformaður er Hans Jörgen Hinrich. Evrópusamtökin munu á næsta ári hafa yfirum- sjón með Evrópukeppni félags- hða sem fram að þessu hefur ver- ið undir stjóm alþjóða samband- ins(IHF). -JKS Evrópukeppnin: Misjafn árangurgegn mótherjunum íslendingar hafa átt misjöfnu gengi að fagna gegn mótherjum sínum sem þeir drógust gegn í Evrópukeppni landshða í gær í Vínarborg. íslendingar hafa fimm sinnum leikið gegn Finnum, þrívegis hafa íslendingar unnið, tapað einu sinni en þjóðirnar gerðu jafntefh, 10-10, í undankeppni ólympíu- leikanna í Bhbao á Spáni 1972. íslendingar hafa unnið allar fjórar viðureignimar gegn Búl- göram til þessa, síðast í B-keppn- inni í Frakklandi 1989. íslendingar hafa tvívegis borið skarðan hlut hlut frá borði gegn Hvíta-Rússlandi, 20-22, á friðar- leikunum í Moskvu 1986 og 22-29 í Bratislava 1989 á alþjóðlegu handknattleiksmóti. Af fyrri viðureignum má sjá að róður íslenska hðsins verður síð- ur en svo auðveldur en ef vel verð- ur haldið á sphunum eiga íslend- ingar að fara langt með mótheija sínaíriðhnum. -JKS Dregiö í gær í riðla í fyrstu E vrópukeppni landsliða í handknattleik: Báðir leikirnir heima gegn Hvíta-Rússlandi I gær var dregið í riðla í Evrópu- keppni landshða í handknattleik, þeirrar fyrstu sinnar tegundar sem fram fer á meðal handknattleiks- landshða í Evrópu. íslenska landsl- iðið fékk erfiða mótherja og er greinilegt að okkar menn verða að sýna allar sínar bestu hhðar ef vel á að fara. Einnig var dregið í gær í riðla í sömu keppni kvennalandsl- iða og má segja að íslenska kvenna- hðið hafi komið betur frá drættin- um en karlahðið. íslendingar drógust í 4. riðil með Finnlandi, Hvíta-Rússlandi, Króa- tiu og Búlgaríu. í 1. riðh drógust Rúmenía, Danmörk, Slóvakía, Úkraína og Moldavía. í 2. riðU; Ungverjaland, Noregur, Slóvenía, Litháen og Georgía. í 3. riðU; Svi- þjóð, AusturríM, Tyrkland, Eist- land og Belgía. í 5. riðU; Frakkland, Þýskaland, HoUand, Grikkland og ísrael. í 6. riðU; Spánn, Sviss, Lett- land, PóUand og Kýpur. í 7. riðU; Rússland, Tékkóslóvakía, ítaha og Lúxemborg. Fyrstu sjö liðin fara beint í úrslitin Eftir riðlakeppnina fer úrshta- keppnin fram í Portúgal, í júní 1994. Efstu sjö hðin í riðlunum fara beint í úrshtin. Liðin sjö sem lenda í öðra sæti í riðlunum verða dregin sam- an, tvö og tvö, og leika heima og heiman. Liðið, sem verður stakt, fer beint í úrshtin án frekari keppni. Það fara því 4 af þeim 7 hð- um, sem hafna í öðra sæti í riðlun- um, áfram í úrshtin auk þeirra 7 sem vinna riðlana og 12. hðið í úr- shtunum verður Portúgal, gestgjaf- amir. Báðir leikirnir á heima- velli gegn Hvíta-Rússlandi Að sögn Gunnars K. Gunnarsson- Evrópukeppni landsliða í handknattleik - karlar 4. riðill Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjðlfari hefur i nógu að snúast á næst- unni og einnig Konráð Olavsson sem er til hægri á myndinni. ar, framkvæmdastjóra Handknatt- leikssambands íslands, er þegar farið að ræða leikdaga í 4. riðh. Líklegt er að fyrsti leikur íslenska hðsins verði gegn Króötum hér á landi þann 7. apríl á næsta ári. ÚtUeikurinn gegn Króatíu verður líklega 20. október 1993. í sömu ferð á að reyna að leika útíleikinn gegn Búlgaríu en heimaleikurinn gegn Búlgörum fer líklega fram 23. nóv- ember 1993. Búið er aö ákveða að íslendingar leiki báða leikina gegn Hvíta- Rússlandi í Laugardalshölhnni. Leikimir verða að öhum hkindum dagana 7. og 9. janúar 1994. Reynt verður að fá báða leikina hingað heim gegn Finnum en hklegar dag- setningar á leikjunum era 10. okt- óber á næsta ári og 16. janúar 1994. Tveir möguleikar í kvennakeppninni Tímasetningar á landsleiki kvennahðanna hafa ekki enn verið ræddar enda mun hægara um vik þar vegna þess að ekki er heims- meistarakeppni á dagskrá eins og hjá karlahðunum 1993. íslenska kvennalandshðið dróst gegn Rúss- landi, ítahu og Portúgal. Rætt hefur verið um að hafa keppnina í formi „túmeringar“ í Portúgal en hinn möguleikinn er að keppt verði með sama fyrir- komulagi og hjá körlunum. Þá fari efstu 7 hðin í riðlunum 7 beint í úrshtin og 4 af þeim 7 hðum sem enda í öðra sæti riðlanna keppi innbyrðis, eins og karlamir, en tólfta hðið verði hð Þýskalands, þar sem til greina kemur að úrshta- keppnin fari fram. -SK Evrópukeppni landsliða í handknattleik - konur Island Portúgat „Skemmtilegt verkefni" - segir Þorbergur Aðalsteinsson „Við fyrstu sýn hst mér ágætlega á dráttinn í Evrópukeppninni. Það er þó alveg Ijóst að leikimir gegn Hvíta-Rússlandi og Króatíu verða nvjög erfiðir. Að minnsta kosti tveir leikmenn úr hði Samveldismanna frá ólympíuleikunum era í hði Hvíta-Rússlands og uppistaðan hjá Króatíumönnum kemur frá Zagreb sem era núverandi Evrópumeistarar félagshða. Af þessu má sjá að í hði Króatíu era engir aukvisar á ferð,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson landshðsþjálfari í samtah við DV í gær. Báðir leikir við Búlgara heima? „Það eykur sigurmöguleika okkar aö fá báða leikina gegn Hvíta-Rússlandi í Reykjavík og eins og máhn hta út í dag era verulegar líkur á því að báðir leikimir gegn Búlgöram fari einnig fram hér á landi. Það mun komast á hreint á næstu dögum hvort Búlgarir era reiðubúnir aö leika báða leikina hér,“ sagði Þor- bergur ennfremur. Þorbergur taldi að ef allt gengi upp hjá íslenska hðinu í riðlinum væra möguleikarnir að komast áfram í úrshtakeppnina í Portúgal 1994 veru- legir. „Finnar eiga ekki að verða nein hindrun en þeim hefur þó farið mik- ið fram á síðustu árum. í höi þeirra er þó einn fremsti handboltamaður heims í dag, Kellmann, sem leikrn: í Þýskalandi. Við eigum fyrir höndum skemmtilegt verkefni og áhorfendur fá loksins að sjá leiki sem skipta máh,“sagðiÞorbergur. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.