Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1992, Síða 1
I
Þrír myndlistarmenn
að Kjarvalsstöðum
Laugardaginn 31. október verða
opnaðar að Kjarvalsstöðum klukkan
16 þrjár myndlistarsýningar á verk-
um Hrólfs Sigurðssonar, Eiríks
Smith og Thórs Barðdal. í austm-sal
er yfirlitssýning á verkum Hrólfs
Sigurðssonar listmálara. í verkum
hans eru engir atburðir, engin frá-
sögn, engin hreyfing, aðeins kyrrlát
fegurð þar sem birta landsins um-
breytist í birtu litarins.
í vestursal er sýning á nýjum verk-
um eftir Eirík Smith, olíumálverkum
og vatnslitamyndum. Eiríkur Smith
er einn vinsælasti Ustamaður þjóðar-
innar. Fáir íslenskir Ustamenn eiga
að baki jafn fjölbreyttan feril og Ei-
ríkur, en hann hefur átt hlut í öUum
helstu straumum og stefnum nú-
tímaUstar sem til íslands hafa borist
og er áhugavert að sjá nýjustu verk
þessa þekkta Ustamanns.
í vesturforsal opnar ungur mynd-
höggvari, Thór Barðdal, sýningu á
marmara- og granítskúlptúrum sem
aUir voru unnir í Portúgal á þessu
ári. Sýningarnar standa til sunnu-
dagsins 15. nóvember. Eirikur Smith við eitt verka sinna á sýningunni á Kjarvalsstöðum. DV-mynd Sveinn
íslenskur tón-
listardagur
íslenskur tónUstardagur verður
haldinn hátíðlegur í Efstaleiti laug-
ardaginn 31. október og verða beinar
útsendingar á rás 1 og 2 frá klukkan
13 þann dag fil klukkan 19. Þar koma
fram jafn óUkar söngkonur og HaU-
björg Bjarnadóttir, Shady Owens og
Jóhanna Linnet, auk söngvara á borð
við Ragnar Bjarnason og Helga
Björnsson.
Klukkan 17 verður útvarpað frá
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Háskólabíói, þar sem rokk-
hljómsveit leikur ásamt Sinfóníunni
verk Trúbrots; Lifun. Þar syngja
meðal annars Björgvin Halldórsson
og Sigríöur Beinteinsdóttir og Ed
Welch stjómar.
Þann 30. október verður Tónlist-
arráðstefna í Ríkisútvarpinu sem ber
yfirskriftina: Hvert þykir þér brýn-
asta úrlausnarefnið í íslenskum tón-
Ustarmálum um þessar mundir?
Henni lýkur með aðalfundi Tónlist-
arbandalags íslands á laugardags-
morgni.
Sunnudaginn 1. nóvember verður
fjölskylduhátíð í Perlunni í tilefni
þess að á tónUstardeginum lauk ári
söngsins, en tónUstarár æskunnar
hófst. Skemmtunin hefst klukkan
14.30 og koma þar fram ungir hljóð-
færaleikarar og söngvarar. Auk þess
munu meðal annars Andrea Gylfa-
dóttir, Eyþór Amalds, Móeiður Jún-
íusdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson
syngja barnalög. Valgeir Guðjónsson
stjórnar samkomunni og fiöldasöng.
TónUstarhúsið er í brennidepU í hug-
um tónUstarmanna um þessa helgi.
Hugmyndir um nýja staðsetningu
hafa lyft málefninu á nýtt flug og þvi
munu Samtökin um byggingu tón-
Ustarhúss leita stuðnings um þessar
hugmyndir í RÚV á tónUstardegi.
Menningarmidstöðin Gerðuberg:
Orðlist Guðbergs
Bergssonar
Laugardaginn 31. október klukkan
15 verður opnuð sýningin OrðUst
Guðbergs Bergssonar í Menmng-
armiðstöðinni Gerðubergi. Sýningin
er haldin í tilefni af sextugsafmæU
skáldsins þann 16. október síðastlið-
inn. Henni er ætlað að gefa mynd af
Guðbergi sem Ustamanni og pérsónu
og í tengslum við hana verður dag-
skrá sem byggist á verkum hans.
Guðbergur er vafalaust þekktastur
fyrir ritiist en hann hefur skrifað um
það bti tuttugu bækur, skáldsögur,
smásögur og ljóð, auk þýðinga, eink-
um úr rómönsku málunum. Guð-
bergur hefur einnig lagt gjörva hönd
á önnur Ustform og tengist það til-
raunum hans til að víkka ritlistar-
formið.
Á sýningunni verða sýndar kUppi-
myndir, teikningar, ljósmyndasögur,
kvikmyndir, munir og fleira og í úti-
búi Borgarbókasafnsins í Geröubergi
verður bókasýning. Einnig gefst sýn-
ingargestum kostur á aö hlýða á
hljóðverk Guðbergs, sem hann nefn-
ir Ljóð - hljóð. Flutt verður leiklesin
dagskrá í leikstjóm Viðars Eggerts-
sonar og einnig verður dagskrá í
umsjá skáldsins. Sýningin stendur
tti 28. nóvember.
Sýningin Orðlist Guðbergs Bergs-
sonar í tilefni 60 ára afmælis skálds-
ins verður opnuð á laugardag.
Norræna húsið:
Höggmyndalist í Danmörku
Sunnudaginn 1. nóvember klukk-
an 17 heldur Vtilad Vtiladsen, for-
stöðumaður ríkisUstasafnsins í Dan-
mörku, fyrirlestur í fundarsal Nor-
ræna hússins. Fyrirlesturinn ber
heitið Omkring billedhugger-traditi-
onen í Danmark.
Vtilad Vtiladsen er kominn hingað
í boði Norræna hússins í samvinnu
við Listasafns Siguijóns Ólafssonar
og Listasafns íslands. Hann lauk
mag. art. prófi í Ustasögu 1975,
kenndi í þeirri grein við Kaup-
mannahafnarháskóla 1973-79 en var
síðan ráðinn forstöðumaður lista-
safnsins í Randers. Hann gegndi því
starfi þar til hann tók við forstöðu
ríkisUstasafnsins 1985.
Kráa-
rýnir fer
1 Naust-
kjall-
arann
-sjábls. 18
Papar
á Púls-
inum
-sjábls. 19
Síldin í
Stykkis-
hólmi
-sjábls. 21
Kvik-
mynda-
hátíðin
Harð-
fiskur
- sjá bls. 22
íþrótta-
viðburð-
ir helg-
arinnar
-sjábls. 23
Hvemig
verður
helgar-
veðrið
-sjábls. 24