Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Side 2
2
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1992.
Fréttir
Friðrik Sophusson um síðustu kjarasamninga:
Kostaði einn milljarð
sem við viljum f á aftur
„Síðast þegar aðilar vinnumarkað-
arins komu til okkar kostaði það rík-
ið einn miUjarð. Við höfum sagt að
núna viljum við fá milljarðinn aftur
og vel það,“ sagði Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra í ræðu á fundi með
sjálfstæðismönnum í Reykjavík þeg-
ar hann var að tala um stöðuna á
vinnumarkaðinum.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði á
aðalfundi LÍÚ að heybrækur í stjórn-
arflokkunum hefðu komið í veg fyrir
að virðisaukaskattur yrði í tveimur
þrepum á næsta ári. En er Friðrik
sammála þessum orðum Jóns Bald-
vins?
„Ég sé engan tilgang með að taka
þátt í umræðum með þessum hætti.
Aðalatriðið er aö við náum þeim ár-
angri sem við verðum að ná,“ sagði
Friðrik Sophusson íjármálaráðherra
en hann sagði einnig að meðal ráð-
herranna væru syndaselir sem
töluðu of mikið.
- Á aðalfundi LÍÚ kom fram krafa
um gengisfellingu. Útilokar þú geng-
isfellingu?
„Það getur enginn útilokað gengis-
fellingu um alla eilífð. Ég tel aö geng-
isfelling sé engin lausn á þeim vanda-
málum sem við stöndum frammi fyr-
ir í dag,“ sagði Friðrik Sophus-
son.
Friðrik sagði, þegar hann var að
ræða vanda atvinnulífsins, að varast
yrði að gera samkomulag sem ekki
skilaði þeim árangri sem þyrfti að
nást. Ef það næst ekki, sagði hann,
er það það versta sem fyrir ríkis-
stjómina getur komið.
Þegar Friðrik segir að síðustu
kjarasamningar hafi kostað ríkissjóð
einn milljarð vísar hann til þess að
þá féll ríkisstjórnin frá skerðingu á
fæðingarorlofi og eins var fallið frá
að ríkið hætti að ábyrgjast laun við
gjaldþrot fyrirtækja og fleira.
-sme
DV-mynd Örn
Dýpkunarskipið á vinnusvæðinu.
SigluJðörður:
Höf nin stækkuð og dýpkuð
öm Þóraiinssan, DV, Hjótum:
Nú er unnið að stækkun og dýpkun
Siglufj arðarhafnar en sumarið 1991
var rekið þar niður stálþil og með
því aukið talsvert viðlegurými. Verið
er að moka um 5000 rúmmetrum af
efni á svæði sem er um 60x100 metr-
ar í námunda við stálþilskantinn sem
hlotið hefur nafnið Ingvarsbryggja.
Með þessu mun aukast veruiega
viölegupláss í höfninni þannig að þar
eiga að geta legið í vari jafnvel
stærstu loðnuskipin þó svo að allur
togarafloti Siglfirðinga sé inni sam-
tímis. Það er Dýpkunarfélagið hf.
sem vinnur verkið.
Á næsta ári vonast Siglfirðingar til
að geta steypt þekju á planiö við stál-
þilið. Hvort af því verður ræðst þó
af hver fjárveiting fæst til verksins.
Hitaveita Suöumesja:
Verðlækkun til hersins
en ekki til almennings
- ekki sambærilegt, segir Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitunnar
„Þetta eru ekki sambærilegir hlut-
ir og þaö er ekki hægt að segja að
af því að lækkun hefur orðið á heitu
vatni til Vamarliðsins þá eigi það að
lækka til almennings. Vamarhðið
borgar svo miklu meira fyrir vatnið
en almenningur. Munurinn hefur
verið að vaxa á undanfomum árum
og var orðinn svo mikill að þaö gat
ekki sætt sig við það,“ segir Júlíus
Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suður-
nesja, en nokkur urgur er í Suður-
nesjamönnum vegna um 10 prósenta
lækkunar á heitu vatni til Vamar-
liösins á sama tíma og almenna gjald-
skráin stendur í stað.
„Þegar samningurinn við Vamar-
liöið rann út var samið um aö ný
gjaldskrá ætti að byggjast á raun-
verulegum kostnaði okkar við að af-
henda því vatn. Það var erfitt aö
finna gamla verðinu stað í þeim út-
reikningum og þess vegna var fallist
á þessa lækkun. Þrátt fyrir hana er
verðið til Vamarhðsins miklu hærra
en almenningur á Suðumesjum þarf
að borga,“ segir Júhus.
Að sögn Júlíusar borgar Vamarhð-
ið sérstakt gjald fyrir aðgang að auð-
lindinni og þær greiðslur era til
dæmis notaðar til að lækka veröið
til almennings. Hann segir hins veg-
ar að enginn grundvöllur sé til að
lækka almennu gjaldskrána núna.
„Almenna gjaldskráin hefur ekki
hækkaö í tvö ár og þó aö verðbólga
hati ekki verið mikil þá hefur raun-
verð vatnsins lækkað. Ef okkur tekst
að halda verðinu óbreyttu til al-
mennings þá lækkar það auðvitað
smám saman," segir Júhus.
Vamarhðið kaupir yfir helming af
öhu vatni sem Hitaveita Suðumesja
selur.
-ból
Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambandsins:
Skil ekki hvað
Friðrikeraðfara
- fundur í atvinnumálanefnd í vikunni
„Nei, ég hef ekki heyrt þetta áð-
ur,“ sagði Ásmundur Stefánsson, for-
seti Alþýðusambandsins, þegar hann
var spurður hvort hann hefði heyrt
vilja ráðherrans um að endurheimta
einn mihjarð sem síöustu kjara-
samningar hefðu kostað ríkið.
„Ég satt að segja skil ekki alveg
hvað Fiðrik gæti verið að fara með
þessum yfirlýsingum," sagði Ás-
mundur.
„Það er nokkuð ljóst að við stönd-
um frammi fyrir alvarlegum vanda
í atvinnumálum. Það er afkomu-
vandi í sjávarútvegi og raunar fleiri
greinum. Ef á að takast á við þennan
vanda, meðal annars með fyrir-
greiðslum af hálfu hins opinbera og
framtaki, þá sé ég tæplega að Frið-
riki geti orðið að þeirri ósk. Það held
ég að sé honum jcdnvel Ijóst og öllum
öðrum."
Ásmundur sagði að varðandi ahar
aðgerðir, sem gera þyrfti, væri
tíminn knappur ef setja ætti lög sem
tækju gildi um næstu áramót. „Það
er ljóst að ef gera á ráðstafanir sem
taka eiga gildi um áramót verður að
ljúka lagasetningu í desember."
„Það hefur verið rætt um að hún
komi saman í byijun þessarar viku,“
sagði Ásmundur þegar hann var
spurður hvort atvinnumálanefndin
færi að koma saman til fundar. Árni
Benediktsson, einn fulltrúa í nefnd-
inni, hefur sagt aö sér þyki illa á
málum haldið og bent á að nefndin
hafi ekM komið saman í vel á þriðju
viku. Ásmundur var spurður hvort
hann tæki undir gagnrýni Áma.
„Nei, ég geri það reyndar ekki. Ég
held ekki að það mikilvægasta sé
hvað nefndin heldur marga fundi -
heldur frekar hitt, hvort efninu miði
eitthvað áfram.“
- Miðar áfram?
„Það sem hefur gerst að undan-
fómu hjá okkur Alþýðusambands-
megin er aö við höfum rætt við ríkis-
stjómina og stjómarandstöðuflokk-
ana hvem fyrir sig. Við höfum nýtt
tímann vel en hvort það skilar svo
árangri er aftur önnur saga,“ sagði
Ásmundur Stefánsson. -sme
Fjörug af mælisveisla
fjórburasystranna
„Þær byijuðu daginn á því að fara
í sunnudagaskólann, eins og ævin-
lega á sunnudagsmorgnum, og svo
hófst afmæhð klukkan þijú um dag-
inn,“ sagði Guðjón S. Valgeirsson,
faðir íjórburasystranna í Mos-
fellsbæ, sem áttu fjögurra ára af-
mæli í gær.
DV hefur margoft greint frá þeim
Alexöndra, Brynhildi, Diljá og Elínu
og í gær var vægast sagt fjör hjá þeim
systram.
Heimilið var undirlagt af bömum
á öllum aldri, aðallega nágrönnum
stulknanna, og komu flest þeirra með
emn pakka handa hverri þeirra svo
að leikherbergið leit út eins og meðal
leikfangaverslun.
Aðspurður sagði Guöjón uppeldiö
ganga samkvæmt óskum, það væri
nú htið mál að vera með fjórar stelp-
ur á sama aldrinum.
Systumar eru ahar á sömu deild-
inni í leikskólanum Glaðhömram í
Mosfellsbæ og láta vel af vistinni
enda era þær '/, af allri deildinni og
fá því líklega sínu framgengt.
-ingo
Búðahnupl:
Myndin tengdist
ekki viðtalinu
í helgarblaöi DV var viðtal við Skýrt skal tekið fram að gefnu
ónafngreinda foreldra sem áttu tilefhi að þessi mynd tengist á eng-
fjórtán ára dóttur er staðin var að an hátt þeim atburðum sem frá er
búðahnuph. Með þessari grein birt- sagt í umræddu viötali. DV biöst
ist ljósmynd af unghngadansleik velviröingar á myndbirtingunni og
þar sem þekkja mátti aö minnsta þeim óþægindum sem hún hefur
kosti tvær unglingsstúlkur. valdið.