Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Page 10
10
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1992.
4»-« <*
X <-P
Fallegt og níösterkt
parkett frá (|]perstorp
(1XX’
IflafiA samband við sölumenn okkar
HF.OFNASMIÐJAN
Háteigsvegi 7, s 21270, 105 RevKiavik
Utlönd
Bill Clinton hefur náö að nýju fyrra
forskoti á George Bush forseta og er
samkvæmt nýjustu könnum Gallup
fyrir CNN-sjónvarpsstööina kominn
meö 49% fylgi. í könnuninni sögðust
37% aðspurðra ætla að kjósa Bush.
Ross Perot er spáð 14% atkvæða. Það
er minna en verið hefur.
Þetta er meiri munur en verið hef-
ur frá því um miðjan síðasta mánuð
þegar Clinton virtist stefna á yfir-
burðasigur. Eftir það snerist lukku-
hjóhð honum í óhag og um tíma
munaði aðeins 2% á frambjóðendun-
um í könnun CNN.
Nýjasta könnunin er þó frábrugðin
hinum fyrri að því leyti að nú er
reynt að skipta óákveðnum kjósend-
um milh frambjóðendanna. Séu aö-
eins þeir sem hafa gert upp hug sinn
taldir með er munurinn 8%. Það er
umtalsvert meiri munur en verið
hefur síöustu daga.
Fréttaskýrendur í Bandaríkjunum
eru sammála um að síðustu upp-
ljóstranir í svokölluðu Íran-Contra
máU valdi mestu um að kjósendur
haUa sér í auknum mæU að CUnton.
Um helgina kom fram að Bush hefði
vitað um hrask embættismanna með
vopn þar sem ætlunin var að selja
Hillary Clinton víkur ekki frá Bill, manni sinum, á kosningafundum. Hún hefur tekið virkan þatt i baráttunni og
margir telja að hún verði áhrifamikil í landstjórninni komist þau hjón í Hvíta húsið. Clinton er nú sigurvissari en
áður og hefur aukið forskot sitt á Bush forseta verulega. Símamynd Reuter
írönum flugskeyti og fyrir peninga
og frelsi fimm gísla í Líbanon. Hagn-
aðinn átti að nota til að fjármagna
baráttu Contra-skæruUða í Nic-
aragua. Bush hefur aUtaf neitaö aðUd
að máUnu en hann var varaforseti á
þeim tíma.
Aukið fylgi CUntons má einnig
rekja tU þess að stuöningsmenn hans
voru um tíma orðnir mjög sigurviss-
ir. Margir þeirra litu á kosningarnar
sem formsatriði eftir að þeirra mað-
ur hafi haft undirtökin í baráttunni
vikum saman. Skoðanakannanir í
síðustu viku vöktu menn af þymi-
rósarsvefninum og hleyptu nýju Ufi
í baráttuna.
Bush hefur haldið því fram um
helgina að Saddam Hussein íraksfor-
seti undirbúi herlega veislu tU að
fagna falU Bandaríkjaforseta. Bush
segir að Saddam geri þetta Banda-
ríkjamönnum tU háðungar ef þeir
fella manninn sem braut herveldi
íraka á bak aftur.
Aðstoðarmen Bush segja að þeirra
maður muni beijast tU síðustu
stundar. Þeir viðurkenna þó að róð-
urinn verði erfiður og einn þeirra
sagöi í gærkvöld að „það yrði kalt
og vindasamt á lokasprettinum".
Reuter
Fylgi
forsetaframbjóðendanna
49%
37%
14%
Clinton Bush Perot
---B
Ný CNN-skoðanakönnun gefur Bill Clinton 12% forskot á George Bush:
Íran-Contra málið er
Bush þungt í skauti
- „verður kalt og vindasamt á lokasprettinum,“ segja aðstoðarmenn forsetans
Ef Bill Clinton sigrar á morgun:
Munum öll reyta kjúklinga
- segir Ross Perot og veitist að demókratanum
MUljarðamæringurinn Ross Perot
hefur skipt um skotmark f kosninga-
baráttunni fyrir forsetakosningam-
ar í Bandaríkjunum og í gær veittist
hann að BUl Clinton, frambjóðanda
demókrata.
Perot sagði að ef fylkisstjórinn í
Arkansas yrði kosinn forseti „mun-
um við öU lifa á því að reyta kjúkl-
inga.“
Arásimar á Clinton marka stefnu-
breytingu hjá Perot sem til þessa
hefur beint gagnrýni sinni að mestu
aö Bush forseta og stuðningsmönn-
um hans.
Starfsmenn Perots sögðust telja að
um 30 prósent stuðningsmanna
CUntons væm „sveigjanlegir" og
gætu snúist á sveif með Perot og
komið honum þannig inn í Hvíta
húsið.
Perot réðst einnig á Bush og sagði
að hann vissi ekki að efnahags-
kreppa ríkti í Bandaríkjunum. „Allir
sem kunna að telja vissu að það var
kreppa en hann vissi það ekki.“
Á kosningafundum um helgina og
í nýrri 30 mínútna sjónvarpsauglýs-
ingu hélt Perot því fram að Clinton
byggi ekki yfir nægUegri reynslu tU
að stjóma landinu. í auglýsingunni,
sem verður sýnd á besta sjónvarps-
tíma í kvöld, segir Perot frá 23 máda-
flokkum þar sem Arkansas-fylki er
meðal hina neðstu í öUum Bandaríkj-
unum.
Reuter
Texasbúa
MUdi óvissa ríkir um hvort
George Bush tekst að halda
meirihluta í Texas en þar vann
hann góðan sigur í forsetakosn-
ingunum 1988. Skoðanakannanir
sýna aö Clinton er í þaö minnsta
jafhoki Bush í ríkinu. í sumum
könnunum hefur Chnton öriítið
forskot á Bush en í öðmm em
þeir hnífjáfnir.
Texasbúar kjósa 32 kjörmenn
og er því eftir núklu að slægjast
fyrir frambjóðenduma. Aðeins
Kalifomía hefur fleiri kjörmenn
en þar er Clinton talinn öruggur
meö sigur. Skoöanakannanir
ætla honum 16% meira fylgi en
Bush. Mjótt er á mununum í
Idórídaþar sem 35 kjörmenn eru
valdir. í öðrum fjölmennum ríkj-
um er Clinton með meirihluta.
Slagur forsetaframbjóðend-
anna stendur um að fá sem flesta
kjörmenn. Nýjustu kannanir
benda til aö Clinton hafi þar yfir-
buröi þótt menn greini á um
hvort hann hafi tryggt sér þá 270
kjörmenn sem hann þarf.
Reuter
Eyrun á Ross Perot voru höfð að skotspæni í hrekkjavökuskrúðgöngu í
Bandaríkjunum um helgina eins og sjá má á brúðunni sem maðurinn held-
ur á. Simamynd Reuter