Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1992.
19
Fréttir
Frumvarp um aðgang að upplýsingum um umhverfismál:
Til að uppfylla ákvæði
í EES-samningunum
- segir Eiður Guðnason umhverfismálaráðherra
„Þetta frumvarp er flutt til þess aö
uppfylla alveg bein ákvæði í EES-
samningunum. Þar er að finna til-
skipun um frjálsan aðgang að upp-
lýsingum um umhverfismál og frvun-
varpið flutt til að uppfylla þær,“ sagði
Eiður Guðnason umhverfismálaráð-
herra. Hann hefur flutt á Alþingi
frumvarp til laga um aðgang að upp-
lýsingum um umhverfismál og upp-
lýsingamiðlun.
Lögunum er ætlað aö tryggja ai-
menningi aðgang að upplýsingum
um umhverfismál hjá stjómvöldum.
Samt em í frumvarpinu ákvæði
sem heimila stjómvöldum að synja
um upplýsingar að öllu leyti eða að
hluta. Flest em þau eðlileg en þó er
h-liðurinn þannig orðaður að hægt
er að neita um allar upplýsingar ef
ráðamenn vilja það. Þar stendur að
synja megi um upplýsingar ef það
hafi áhrif á umhverfisvemd.
„Það er rétt að þetta er mjög
óheppilega orðað og ég benti nefnd-
inni á það þegar ég flutti framsögu
fyrir frumvarpinu að þennan hð
væri æskilegt að orða betur," sagði
Eiður Guðnason.
Hann var spurður að því, ekki síst
sem fyrrverandi fréttamaður, og
þannig titlaður í símaskránni, hvort
hann væri hlynntur meiri upplýs-
ingaskyldu stjómvalda en nú er?
„Að minnsta kosti tel ég að þar
þurfi skýrari reglur. Sjálfsagt þarf
aö auka uppiýsingaskylduna á ýms-
um sviðum. Það hafa oftar en einu
sinni verið lögð fram frumvörp á
Alþingi um þetta efni en þeim hefur
yfirleitt verið illa tekið. Ýmsir hafa
lagt þann skilning í þau að þau tak-
marki upplýsingaskylduna frá því
sem nú er þar sem engar eða mjög
fáar reglur gilda um upplýsinga-
skyldu stjómvalda. Ég tel að auka
megi* upplýsingaskylduna og það sé
öhum fyrir bestu að þar um gildi
skýrar reglur," sagði Eiður Guðna-
son.
-S.dór
Evrópska efnahagssvæðið:
Newsweek greinir frá deilum íslendinga
í nýjasta hefti tímaritsins Newswe-
ek er tveggja síðna grein um ísland
og deilumar hér um Evrópska efna-
hagssvæðið, EES. Greinarhöfundur,
Daniel Pedersen, segir það reyndar
ekki undarlegt að íslendingar, sem
séu ekki fleiri en íbúar 33. stærstu
borgar Þýskalands, skuh vera
hræddir um sjálfstæði sitt í samein-
aðri Evrópu úr þvi að Bretar, Frakk-
ar og Danir era það.
Það er skoðun greinarhöfundar að
Margaret Thatcher, fyrram forsætis-
ráðherra Bretlands, myndi verða
hrifin af íslensku þjóðinni því enginn
stjórnmálaflokkur á Alþingi sé
hlynntur inngöngu í Evrópubanda-
lagið.
Vitnað er í þá skoðun Jóns Bald-
vins Hannibalssonar utanríkisráö-
herra að samningurinn um EES ryðji
brautina fyrir nýjum fjárfestingum í
nýjum iðngreinum.
Olafur Ragnar Grímsson er einn
viðmælen'da greinarhöfundar og læt-
ur hann þá skoðun sína 1 ljós að þeg-
ar smáatriðin séu skoðuð sé samn-
ingurinn um EES htt fýshegur.
„Við erum farin að éta af útsæð-
inu,“ er haft eftir Þorvaldi Gylfasyni
prófessor. Hann er einnig sagður
hafa látið þau orð falla að andstæð-
ingar samningsins vonist til aö geta
bolað stjórninni frá.
Greinarhöfundur hefur það eftir
Matthíasi Johannessen ritstjóra að
nýr fijáls markaður sé áhættunnar
virði.
-IBS
PORCELANOSA - flísar fyrir vandláta
MARAZZI - flísar fyrir alla
PAVIGRES - ódýrar og sterkar flísar
AGROB - flísar á mannvirki
LIP og DEITERMANN lím og fúgi
PORSAN - ódýrustu hreinlætistækin
SANYL - þakrennur á nýbyggingar og í endurnýjun
Útsölustaðir:
ÁLFABORG Knarrarvogi 4, Reykjavík. VERSLUNIN VÍK Neskaupstað,
ÁLFABÆR Bæjarhr. 20, Hafnarf., T.F. BÚÐIN Fellabæ,
Ó.M. BÚÐIN Grensásvegi 14, Reykjavík, KEA Akureyri
LITAVAL Keflavík, BORG HF. Húsavik,
VERSLUNIN MÁLMEY Grindavík, VERSLUNIN HEGRI HF Sauðárkróki,
S.G. BÚÐIN Selfossi, ‘ KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA Blönduósi.
KAUPFÉLAG RANGÆINGA HvoIsvelli.SÖGIN Patreksfirði,
MIÐSTÖÐIN Vestmannaeyjum, ' VERSLUNIN HAMRAR HF Grundarfirði
ALFABORG
Knarrarvogi 4, simi 686755
’91 Saratoga Se. Kr. 1.685.000
’91 Dodge Shadow Kr. 1.185.000
’91 Grand Voyager Kr. 2.250.000
’91 Dodge W 250 Pickup 4x4
Cummins Turbo Diesel Kr. 2.147.000
’91 Jeep Cherokee Ltd. Kr. 2.975.000
v