Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Page 1
Verið að hengja upp að Kjarvalsstöðum.
DV-mynd GVA
Verk lans Hamilton Finlay sýnd í Kjarvalsstöðum:
Mest umtalaði
listamaður Skota
Á morgun, laugardaginn 9. janúar,
hefst menningarhátíðin Skottís,
skosk-íslenskir menningardagar, á
því að opnuð verður sýning að Kjar-
valsstöðum á verkum eftir Ian Ham-
ilton Finlay. Ian Hamilton Finlay
hefur hlotið alþjóðlega frægð sem
ljóðskáld, myndlistarmaður og
skrúðgarðahönnuður. „Finlay er
eini listamaðurinn sem eitthvað
kveður að í Skotlandi. Hann er einn
af fimm frægustu listamönnum í
heiminum. Hann byijaði hstferil
sinn sem rithöfundur og ljóðskáld.
Hann var sá fyrsti í Evrópu sem
samdi konkret póetíu, uppsetningin
á ljóðunum er hlutir," segir Þorri
Hringsson, upplýsingafulltrúi Kjar-
valsstaða.
Litla-Sparta, garður hans í Stony-
path, Lanarkshire, sem hann hefur
þróað í meira en 25 ár, er viður-
kenndur sem eitt af mikilvægustu
samtímahstaverkum í Evrópu.
„Garðurinn er heimih hans því að
hann er sérvitringur sem fer ekki
út úr garðinum. Hann þjáist af ótta
við víðáttur og verður að vera í lok-
uðu rými. Hann hefur unnið í garðin-
um síöasthðin 25 ár að því að byggja
upp garð sem er í raun og veru lista-
verk. Inn í garðinn hefur hann sett
skúlptúra sem tengjast hinni upp-
runalegu garðhugmynd. Það þýðir
að garðurinn á að vera sem náttúru-
legastur en samt eiga að vera í hon-
um hlutir sem minna fólk á að það
sé statt í garði,“ segir Þorri.
Tengir ólík viðfangsefni
Árið 1%1 hleypti Finlay af stokk-
imum Wild Hawthom útgáfunni og
hefur síðan framleitt meira en 800
verk undir merkjum þessarar út-
gáfu, þar á meöal póstkort, ljóð, tíma-
rit, bæklinga af öhum stærðum og
gerðum og jafnvel hlífar fyrir
sultukrukkur.
Á sýningunni á Kjarvalsstöðum
koma fyrir öh þekktustu viðfangs-
efni hans: sjórinn, fiskibátar, Arka-
día og franska byltingin. Með þvi að
tengja þessi ólíku viðfangsefni sam-
an gefst hrífandi tækifæri til að sjá
breiddina og samhengið í verkum
Finlays í gegnum tíðina. TU að fuU-
komna þessar útgáfur era einnig
nokkrir neon-skúlptúrar sem margir
hverjir eru byggðir á ljóðum og
teikningum er htu fyrst dagsins ljós
á prenti hjá WUd Hawthom útgáf-
unni. -em
íslenska óperan:
Tvær efnilegar í
pianó- og fiðluleik
Laugardaginn 9. janúar kl. 14.30
munu Margrét Kristjánsdóttir fiðlu-
leikari og Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari halda tónleika í ís-
lensku óperunni.
Margrét Kristjánsdóttir lauk burt-
fararprófi frá Tónhstarskólanum í
Reykjavík árið 1988. Hún hlaut styrk
tU framhaldsnáms við Mannes Col-
lege of Music í New York og lauk
þaðan B.M. prófi 1991 og masters-
prófi frá sama skóla 1992. Margrét
hefur tekið þátt í fjölmörgum tónhst-
arhátíðum í Evrópu, Bandaríkjunum
og Kanáda þar sem hún lék m.a. ein-
leik í fiðlukonsert eftir Vivaldi ásamt
kammersveit.
Nína Margrét Grímsdóttir lauk
einleikaraprófi frá Tónhstarskólan-
um í Reykjavík árið 1985 og hlaut
styrki tíl framhaldsnáms í Englandi
og Bandaríkjunum frá British
CoimcU og American-Scandinavian
Foundation. Hún mun í ár ljúka Pro-
fessional Studies námi frá Mannes
Cohege of Music í New York.