Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1993, Side 7
MÁNUDAGUR 22. MARS 1993
7
dv Fréttir
Tæring í iagnakerfi Jaðarsbakka-
laugar. DV-mynd Sigurgeir
Akranes:
Tæring í lögn-
umJaðars-
bakkalaugar
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Talsverð tæring hefur verið í hluta
af lagnakerfinu í Jaðarsbakkalaug á
Akranesi síðustu mánuði og hefur
skapað nokkur vandamál. Að sögn
Daníels Árnasonar bæjartæknifræð-
ings skipaði bæjarstjórn nefnd í mál-
ið, hönnuð, einn frá tæknideild bæj-
arins og annan frá hitaveitu.
Nefndin hefur nú skilað áliti og
telur að skipta þurfi út hluta kerfis-
ins. Ekki er þó um bráðaðkailandi
ástand að ræða en lagnakerfið verð-
ur lagfært eftir þörfum og mun ekki
raska starfsemi laugarinnar.
frystiklefa
Helgi Jónsson, DV, Ólafefixði:
Refaskinn hjá Þórði Guðmunds-
syni í Burstabrekku hér í Ólafsfirði
eyðilögðust nýlega. Skinnin geymdi
Þórður í frystiklefa og haíði haft þau
þar í talsverðan tíma. Markaður fyr-
ir þessi skinn hefur verið erfiöur
undanfarin ár.
En þegar Þórður opnaði frystiklef-
ann á dögunum kom í ljós að frost
var farið af vegna bilunar í frystibún-
aði og öll skinnin voru ónýt. Þarna
voru einnig í geymslu refaskinn frá
Kálfsá.
Þetta er mikið áfall fyrir loðdýra-
búið og ekki síður Sparisjóð Ólafs-
fjarðar, sem átti veö í skinnunum,
því miklir fjármunir hafa tapast.
Hugsanlega nokkrar milljónir.
Sigldimeðvara-
hluti í togara
Björgunarbáturinn í Sandgerði fór
með varahluti í togarann Runólf SH
rétt utan við Sandgerði fyrir helgina.
Runólfur sparaði sér ferð í land
eftir varahiutunum með því að keyra
upp undir land og sigldi björgunar-
báturinnútámótihonum. -ból
Skólaostur
Skólaostur í sérmerktum
kílóapakkningum á einstöku
tilboðsverði í næstu verslun.
VERÐ NU:
658 kr.
kílóið.
VERÐ AÐUR:
kílóið.
ÞU SPARAR:
116 kr.
á hvert kíló.
m
OSIA-OG
SMJÖRSALANSE