Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Síða 8
24
ÞRIÐJUDAGUR13. APRÍL1993
íþróttir
Islandsmótið í borðtennis:
Aðalbjörg
vann þrefalt
- Kjartan Briem bestur í karlaílokki
Kjartan Briem úr KR og Aöalbjörg
Björgvinsdóttir úr Víkingi uröu ís-
landsmeistarar í karla- og kvenna-
flokki í borðtennis en íslandsmótiö
fór fram í húsakynnum TBR um
páskahelgina. Kjartan sigraði Gunn-
ar Finnbjörnsson úr Erninum í úr-
shtaleik í karlaflokki, 3-1, (21-16,
21-14, 19-21 og 21-11) og Aðalbjörg
vann stöllu sína úr Víkingi, Ingi-
björgu Ámadóttur, í kvennaflokki,
3-0 (21-9, 21-14 og 21-10).
Aðalbjörg var mjög sigursæl á
mótinu og vann þrjá íslandsmeist-
aratitla, í einhðaleik, tvíliöaleik og i
tvenndarleik og Kjartan tók tvo titla.
Reiknaði ekki með
að ná öllum þremur
„Ég reiknaöi ekki með að ná í alla
þessa titla. Ég var mjög ánægð með
leik minn í úrslitum í einliðaleiknum
en í hinum tveimur úrshtaleikjunum
fékk ég dygga aðstoð frá meðspilur-
um mínum. Ég var samt mjög stress-
uð fyrir úrslitaleikinn í einliðcdeikn-
um enda erum við Ingibjörg í raun
miklu jafnari heldur en úrslitin gefa
til kynna," sagði Aöalbjörg í samtali
við DV eftir mótið.
Þetta var þriðja árið í röð sem Aöal-
björg hampar íslandsmeistaratitlin-
um í einhðaleik og hún er án efa
besti borðtennisleikarinn í kvenna-
flokki um þessar mundir.
Vantar fleiri
stelpur í íþróttina
„Ég þakka þennan árangur hversu
ég hef verið dugleg við að æfa. Ann-
ars er breiddin ekki nógu mikil hjá
okkur stelpunum og það vantar
fleira kvenfólk til að stunda þessa
skemmtilegu íþrótt sem er mjög góð
fyrir stelpur á öllum aldri. Framund-
an er núna heimsmeistaramótið sem
fram fer í maí og þaðan fer ég beint
til Kína þar sem ég verð í æfingabúð-
um í tvo mánuði ásamt sex öðrum
unglingum," sagði Aðalbjörg.
Fjórði titillinn
á 5 árum hjá Kjartani
Kjartan Briem náði að endurheimta
titihnn í einhðaleik karla sem hann
vann árið 1991 og hann hefur nú
unniö fjórum sinnum á síðustu fimm
árum. I fyrstu umferðinni náði hann
að leggja íslandsmeistarann frá því
í fyrra, Kristján Jónasson, og hefndi
þar með ófaranna frá því í fyrra en
þá sigraði Kristján hann einmitt í
fyrstu umferðinni. Kjartan fékk
mesta keppni í undanúrshtunum en
þar sigraði hann Tómas Guðjónsson,
3-2.
„Það er svolítið fyndið að þegar
dregið var í töfluröðina fyrir þetta
mót var hún alveg eins og í fyrra.
Ég lenti því eins og í fyrra gegn
Kristjáni í 1. umferðinni og nú tókst
mér að sigra nokkuð örugglega,"
sagði Kjartan Briem við DV eftir
mótið.
Átti samt von
á að spila betur
„Ég er búinn að æfa mjög vel síðustu
mánuði en átti eiginlega von á að
spila betur en það var engu að síður
nóg til að vinna. Ég lenti í miklum
vandræðum gegn Tómasi Guðjóns-
syni í undanúrslitunum, en hann er
mjög sterkur spilari, og eftir að úr-
slitin voru ljós var ég nokkuö bjart-
sýnn á að endurheimta titihnn,"
sagði Kjartan í samtali við DV.
„Ég var aldrei í neinum sérstökum
vandræðum í úrslitaleiknum enda
held ég að Gunnar æfi ekki ýkja mik-
ið, er svolítið hægur. Hann hefur
góðar uppgjafir og þar kemur hann
öllum í vandræði. Ég átti hins vegar
frekar auðvelt með að komast í sókn
og þar gengur mér best,“ sagði Kjart-
an. -GH
Aðalbjörg Björgvinsdóttir, þrefaldur íslandsmeistari. DV-myndir ÞÖK
Kjartan Briem náði að endurheimta titil sinn í einliðaleik.
Borðtennisúrslit
Meistaraflokkur karla
1. KjartanBriem.............KR
2. Gunnar Finnbjörnss ..Erninum
3. Bjarni Bjamason.....Víkingi
3. Tómas Guðjónsson........KR
Meistaraflokkur kvenna
1. Aðalbjörg Björgvinsd. ...Víkingi
2. Ingibjörg Árnadóttir.Víkingi
3. Ásdís Kristjánsdóttir.Víkingi
3. Lilja R. Jóhannesdóttir .Víkingi
Tvíliðaleikur karla
1. Tómas Guðjónsson/Hjálmtýr
Hafsteinsson................KR
2. Kjartan Bríem/Jóhannes
Hauksson....................KR
Tvíliðaleikur kvenna
1. Aðalbjörg Björgvinsdótt-
ir/Hreftia Halldórsdóttir ..Víkingi
2. Ingibjörg Ámadóttir/Lilja Jó-
hannesdóttir...........Víkingi
Tvenndarleikur
1. Aðalbjörg Björgvínsdóttir-
/KjartanBriem...........Vík-KR
2. Ingibjörg Ámadóttir/Kristján
Jónasson...............Vikingi
1. flokkur karla
1. Björn Jónsson.........Víkingi
2. Ólafur Rafnsson.....Víkingi
3. Ólafur Stephensen....Víkingi
3. PéturKristjánsson..Stjömunni
1. flokkur kvenna
1. Lilja R. Jóhannesd...Víkingi
2. Berglind Sigurjónsdóttir.KR
3. Hrafnhildur Siguröard .Víkingi
3. Auður Þorláksdóttir.....KR
2. flokkur karla
1. Andrésjónsson............KR
2. Flóki Ingvarsson......Víkingi
3. Smári Einarsson.....Víkingi
3. Amþór Guðjónsson.Stjörnunni
Punktastaða í mfl. karla
1. Peter Nilsson, KR.......240
2. Guðm Stephensen, Vik.....73
3. Kristján Jónasson, Vik...73
4. KristjánV. Hahdórss., Vík... 51
5. Pétur Stephensen, Vík... 39
Punktastaða í mfl. kvenna
1. AðalbjörgBjörgvinsd., Vík ....47
2. IngibjörgÁraad., Vík.....36
3. ÁstaUrbanic,Eminum.......6
1. flokkur karla
1. Ólafur Rafnsson, Vík.....47
2. Emil Pálsson, Erninum....35
3. Vignir Kristmundss., Erninum
........................... 30
1. flokkur kvenna
1. Lilja Jóhannesd., Vík.....9
2. Láney Ámadóttir, Vík......7
3. Berglind Sigurjónsd., KR..2
2. flokkur karla
1. Amþór Guðjónsson, Stjörn ...17
2. Andrés Jónsson, KR.......16
3. Flóki Ingvarson, Vík.....11
Halla María Helgadóttir í liði Víkings reynir hér að brjóta sér leið fram hjá Guönýju Gunnsteinsdóttur i leik Stjörn-
unnar og Víkings á laugardaginn. Liðin mætast í kvöld og þá getur Víkingur tryggt sér titilinn.
DV-mynd Brynjar Gauti
Meistarataktar
Vikingsstúlkna
- lögöu Stjömuna, 20-13, og geta tryggt sér titilinn 1 kvöld
Víkingur vann stóran sigur á
Stjörnunni, 20-13, í Víkinni á laugar-
daginn er liðin mættust í þriðja sinn
í einvígi sínu um íslandsmeistaratith
kvenna í handknattleik. Víkingur
hefur þar með 2-1 yfir og getur tryggt
sér titihnn í Ásgarði í kvöld þegar
hðin eigast við í fjórða leiknum.
Leggjum allt kapp á
að klára dæmið í kvöld
„Við gerðum þetta erfitt með því að
misnota dauðafæri í fyrri hálfleik en
eftir aö við unnum upp muninn og
komumst tvö og síðan þrú mörk yfir
var eftirleikurinn auðveldur. Þetta
er alls ekki búið en við munum leggja
allt kapp á að klára dæmið í kvöld.
í fyrra vann Víkingur titilinn í
Garðabæ í 5 leikjum en nú verður
það vonandi í fjórum leikjum," sagöi
Theodór Guðfinnsson, þjálfari Vík-
ings, við DV eftir leikinn.
Víkingur gerði tvö fyrstu mörkin í
leiknum en Stjaman svaraði með
næstu fimm mörkum. Stjaman var
yfir, 6-8, en þá fór allt í baklás hjá
liðinu og Víkingur bætti við fjórum
mörkum fyrir hlé og leiddi, 10-8, í
hálfleik. Viö þetta mótlæti fór allur
vindur úr seglum Garðabæjarhðsins
og Víkingur náði yfirburðastöðu.
Staðan breyttist úr 13-11 í 19-11 en á
þessum kafla var vöm Víkinga frá-
bær með Möru Samardziju í miklum
ham í markinu. Inga Lára Þórisdótt-
ir átti stórleik í fyrri hálfleik og Haha
María Helgadóttir átti góða spretti.
Valdís Birgisdóttir átti skínandi leik
sem og Svava Sigurðardóttir. *
Hjá Stjörnunni var Nina Getsko
yfirburðamaður, varði 16/3 skot.
Aðrir leikmenn liðsins léku langt
undir getu og var ótrúlegt að sjá
hversu liðið brotnaði andlega við
mótiætið undir lok fyrri hálfleiks.
Mörk Víkings: Inga Lára 6/1, Valdís
5/2, Svava 3, Halla María 3/1, Elísabet
2, Hanna 1.
Mörk Stjömunnar: Sigrún 3, Ragn-
heiður 3/2, Guðný 2, Margrét 2, Una
1, Þórann 1, Ingibjörg 1.
Naumt hjá Víkingi í 2. leiknum
Víkingur vann nauman sigur í öðr-
um leik liðanna í Garðabæ sl. mið-
vikudagskvöld, 17-18, eftir að Stjarn-
an var yfir, 17-14, undir lok leiksins.
Mörk Stjömunnar: Ragnheiður 8,
Una 3, Sigrún 3, Guðný 2, Stefanía 1.
Mörk Víkings: Inga Lára 9, Haha
María 3, Valdís 2, Hanna 1, Svava 1,
Matthhdur 1, íris 1.
-BL