Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1993, Side 7
MÁNUDAGUR 26. APRÍL1993
31
Þaðgustaði
afGusturumí
Reiðhöllinni
Sex hestamannafélög á Suð-
vesturhomi landsins héldu
sveitakeppni í Reiöhöllinni fyrir
og um helgina. Keppt var í fjórum
flokkum og mátti hver sveit
senda þijá keppendur í hvern
flokk. Börn og unglingar kepptu
í tölti og fjórgangi en ungmenni
og fuilorðnir að auki í fimm-
gangi Fimm stigahæstu einstakl-
ingamir kepptu auk þess um ein-
staklingsverðlaun. Ekki var getið
hesta í mótsskrá svo þeirra verö-
ur ekki getið í þessari grein.
Sveit Gusts í Kópavogi var bet-
ur mönnuð knöpum en aðrar
sveitir að þessu sinni. Sveitin
hlaut flest stig samanlagt,
1.324,82, og var kosinn athyglis-
verðasta sveit mótsins.
í flokki fullorðinnasigraði sveit
Gusts í tölti með 240.80 stig, sveit
Sörla í fimmgangi með 140.70 stig,
sveit Fáks í fjórgangi með 151.26
stig og samanlagt i flokki fullorð-
inna með 517.06 stig.
í flokki ungmenna sigraði sveit
Fáks í fimmgangi með 137.10 stig
en sveit Gusts sigraöi í tölti með
200.00 stig, fjórgangi með 114.22
stig og samanlagt með 4242.32
stig.
f flokki unglinga sigraði sveit
Harðar í öllum greinum, hlaut
120.01 stig fyrir íjórgang, 180.60
stig fyrir tölt og 300.61 stig saman-
lagt.
I barnaflokki sigraöi sveit
Gusts í öllum flokkum, hlaut
96.12 stig fyrir fjórgang, 143.60
stig fyrir tölt og 239.72 stig saman-
lagt.
Ingólfur og Sigurbjörn
með tvöfalt
Ingólfur Pálmason (Sörla) sigraöi
tvöfalt í einstaklingsgreinum í
barnaflokki. í unglingaflokki
sigraöi Sigurður Pétursson
(Sörla) í tölti en Marta Jónsdóttir
(Mána) í fjórgangi
f ungmennaflokki sigraði íris
B. Hafsteinsdóttir (Gusti) i tölti,
Berglind Ámadóttir (Herði) i
fjórgangi og Guðmar Þór Péturs-
son (Herði) í fimmgangi.
í flokki fullorðinna sigraði Sig-
urbjörn Bárðarson (Fáki) í tölti
og fjórgangi en Hulda Gústafs-
dóttir (Fáki) sigraði i fimmgangi.
-EJ.
Lagaskyldan
verðlaunuð
Sú lagasetning á landsþingi
Hestaíþróttasambands fslands
árið 1992 að skylda öll böm til aö
bera reiöhjálm í keppni hefur
oröið til þess aö HÍS hefur f'engiö
viðurkenningu samtakanna Ör-
yggi bama á okkar ábyrgð.
Framtak HÍS er talið vera mik-
ilsvert framtak í þágu öryggis
barna. Þessi viðurkenning sýnir
hestamönnum að tekið er eftir
þegar vel er gert og hvetur þá til
að halda vel á spöðunum í fram-
tíöínni.
SIÍðlfSfiFIETT!
Skeiöamenn veija stóð-
hesta úr litabæklingum
Sfjóra
Hrossa-
ræktarfé-
lags
Skeiða-
hrepps hef-
ur látið
útbúa
myndar-
legan
bækling til að auglýsa þrjá stóð-
hesta sem verða í leigu á vegum
sambandsins í sumar. Litmyndir
era af þeim Gassa frá Vorsabæ,
Emi frá Efri-Brú og Stíganda frá
Sauðárkróki og birtar em ein-
kunnir þeirra og kynbótaspá.
Folatollur fyrir Emi er 15.000 kr.
með VSK en 20.000 fyrir Gassa
og Stíganda. Sannarlega myndar-
legt framtak þessí bæklingur.
______________íþróttir
ÁmiogBroddi
stóðusigvel
íAusturríki
Broddi Kristjánsson og Árni
Þór Hallgrimsson komust í 8
manna úrsht á opna austurríska
meistaramótinu í badminton um
helgina - Broddi í einliðaleik og
þeir síðan saman í tvfliöaleik.
Broddi sigraöi Thomas Sögárd
frá Danmörku, 17-16, 15-10, í 1.
umferð og Kai Abraham frá Áust-
urríki, 7-15, 15-4, 15-4, í 2. um-
ferð, en Abraham er fyrrum
þýskur landsliðsmaður. f 8
manna úrshtum tapaði Broddi
sfðan fyrir Kenneth Jonasson frá
Danmörku, 5-15, 17-18, eftir að
hafa veriö 17-13 yfir í seinni lot-
unni.
Árni vann Daniel Gaspar frá
Tékklandi, 18-15, 15-10, í fyrstu
umferð en tapaði fyrir Patrick
Andreasson frá Svíþjóð í 2. um-
ferð, 2-15, 2-15.
í tvfliðaleiknum unnu Broddi
og Árni sigur á hohensku hði,
14- 17,15-10,15-9, í 1. umferð, og
lögðu síðan Þjóðverjana Keck og
Helber í 2. umferð, 9-15, 15-6,
15- 2. í 8 liða úrslitum töpuðu þeir
síðan fyrir Harald Koch og
Júrgeh Koch frá Austurríki, 9-15,
10-15, og voru þar með fallnir úr
keppni. -VS
Rögnvaldog
Stefánfengu
mikiðhrós
Ami Hennaimsson, DV, Þýskalandi:
Wahau Massenheim sigraði
Barcelona, 24-20, í fyrri leik hð-
anna í undanúrslitum í Evrópu-
keppni meistaraliöa í handknatt-
leik í Þýskalandi í gær. Massen-
heim, sem sló FH-inga úr úr
keppninni, haföi yfirhöndina all-
an leikinn. Liðið náði mest 7
marka forskoti i fyrri hálfleik en
staðan í leikhléi var 14-8.
Martin Schwalb var marka-
hæstur hjá Massenheim með 8
mörk og Finnin Kállmenn var
með 6 mörk. Hjá Barcelona var
Serano atkvæðamestur með 5
mörk og Mazip skoraöi 4 mörk.
Siðari leikur hðanna fer fram í
Barcelona 1. maí.
Rögnvald Erhngsson og Stefán
Amaldsson dæmdu leikinn og
stóöu sig mjög vel. Gamla hand-
boltastjaman Erhard Wund-
erlich aðstoðaöi íþróttafrétta-
menn við lýsingu á leiknum í
þýska sjónvarpinu og hrósaöi
hann þeim Rögnvald og Stefáni
mjög iýrir frammistöðuna. Hann
sagði þá hafa verið samkvæmir
sjálfum sér og haft mjög góð tök
á leiknum allan tímann.
FRÍ2000
varsamþykkt
Á aukaþingi Frjálsíþróttasam-
bands íslands á laugardaginn var
fyrirhugaö útbreiðsluátak sam-
bandsins, FRÍ 2000, samþykkt, en
á síðasta ársþingi var lagður
grundvöhurinn að þeirri framtiö-
arstefnu.
„Það má segja að við höfum
þegar veriö búnir að hrinda hluta
átaksins í framkvæmd meö því
að ráöa landshðsþjálfara og nú
raunum viö fara af stað af fúllum
krafti,“ sagði Magnús Jakobsson,
formaöur FRÍ, i samtah við DV í
gær. -VS
SiguráSvium
ísland varð í fjórða sæti af fimm
þjóðum á Norðurlandamóti ungl-
ingalandshöa í körfuknattleik
sem lauk í Helsingör í Danmörku
í gær. ísland vann Svíþjóð, 67-52,
í lokaleiknum, en hafði áður tap-
aö fyrir Finnlandi, 85-96, Noregi,
62-72, og Danmörku, 55-74.
Þessar fimm konur stoöu i efstu sætunum í kvennaflokki i firmakeppni Fáks. Frá hægri sigurvegarinn Unnur
Steinsen á Silfur-Blesu, fulltrúi Stúdíó Brauös. Þá kemur Ólöf Guðbrandsdóttir, fulltrúi Nóa hf. á Kveik, Edda Hin-
riksdóttir, fulltrúi Skalla, á Rúm, dóttir hennar Guðrún E. Bragadóttir, fulltrúi Barka hf., á Fjölva og loks Elin Rós
Sveinsdóttir, fulltrúi Litavers, á Össu. DV-myndir EJ
DV sigraði bæði
hjá Gusti og Fáki
-flölmenni í firmakeppni hjá báðum félögum
Firmakeppni Fáks var að venju
haldin á sumardaginn fyrsta og
firmakeppni Gusts tveimur dögum
síðar. Að þessu sinni í óvenju miklu
blíðvirði á báöum stöðum, þó svo aö
snjóað hafi mihi móta.
184 fyrirtæki styrktu Fák en kepp-
endur voru á milli 140 og 150. Um 170
fyrirtæki styrktu Gust en keppendur
hafa sjaldan verið fleiri, um 120.
Svo skemmtilega vildi til að sama
fyrirtækið, DV, vann hjá báðum fé-
lögum. Hjá Fáki í meistaraflokki en
Gusti í barnaflokki.
Tveir meistaraflokksknapanna hjá
Fáki tefldu fram stóðhestum: Hulda
Gústafsdóttir á Glæði frá Hafsteins-
stöðum sem var í þriðja sæti og Sig-
valdi Ægisson á Gjafari frá Reykja-
vík. í meistaraflokki sigraði DV, en
fuhtrúi þess var Sigurbjörn Bárðar-
son á Sverði.
í karlaflokki vöktu athygli stjórn-
armenn Fáks, sem vom allir klæddir
í félagsbúninga, sér til mikils sóma.
Þar sigraði Radíóbúðin. Fulltrúi
hennar var einn stjórnarmanna
Fáks, Hjörtur Bergstað á Erró. í
kvennaflokki sigraði Stúdíó Brauð.
Fulltrúi þess var Unnur Steinsen á
Silfur-Blesu. í unghngaflokki sigraði
Goddi, Fulltrúi Godda var Ásta Frið-
riksdóttir á Smyrh. í barnaflokki
Bjarni Sigurösson keppti fyrir Björn Sigurðsson byggingaverktaka í firma-
keppni Gusts i Kópavogi og sigraði í karlaflokki á Flóka.
sigrnðu Flugleiðir. Fulltrúi Flugleiða
var Ásgeir Om Ásgeirsson á Fleyg.
Þátttaka hefur sjaldan verið meiri
hjá Gusti. Þá vakti athygh mikih
fiöldi áhorfenda. Keppt var í fiórum
flokkum en þremur efstu veitt verð-
laun. Af þessum tólf verðlaunahöf-
um vom þrír úr sömu fiölskyldunni.
Bjami Sigurðsson sigraði á Flóka
fyrir Bjöm Sigurðsson bygginga-
verktaka í flokki fuhorðinna, en son-
ur hans, Sigurður, sigraði í barna-
flokki fyrir DV á Hæringi. Ásta Dögg,
dóttir Bjarna, varð svo í öðru sæti í
unghngaflokki á Elhða.
Sigurvegari í unghngaflokki var
Þórir Kristmundsson, sem keppti
fyrir Þórsbakarí, á Krumma og sig-
urvegari í kvennaflokki var Sigrún
Sigurðardóttir, sem keppti fyrir
Smith/Norland, á Funa.
-E.J.
Nýtt stangarmál Höskulds
-tilflestaUra mælinga á hrossum nema hitamælinga
Höskuldur mælir Hektor frá Akureyri
með nýja stangarmálinu.
Höskuldur Hildibrandsson hrossa-
ræktandi hefur hannað nýtt stangar-
mál fyrir hrossaræktendur, ráðu-
nauta og aðra sem telja sig þurfa að
nota slíkt tæki. Stangarmáhð er mjög
fiölbreytt. Hægt er að nota það við
flestahar mæhngar á hrossum nema
hitamælingar.
„í fyrra var samþykkt á hrossa-
ræktarnefndarfundi að færa sig al-
farið úr bandmáli í stangarmál th
samræmis við það sem hefur verið
gert í útlöndum," segir Höskuldur.
„í framhaldi af því kom Kristinn
Hugason hrossaræktarráðunautur
að máli við mig og spurði hvort ég
gæti hannað svona tæki, því þau tvö
tæki sem komu til greina þá, þóttu
ekki nógu meðfærileg.
„Þetta stangarmál er niðurstaðan.
Stöngin er létt, meöfærileg og auð-
veld til mælinga fyrir ráöunauta,
hrossaræktendur og aðra sem þess
þurfa með. Hægt er að mæla hæö á
herðakamb, lengd, boldýpt, brjóst-
breidd, lendarbreidd, hæð lendar,
lægsta punkt á bak, hæð á lend og
annað sem þarf að mæla á hrossum.
Stöngin er úr rafbrynjuðu áh til að
fá lit og sterkan shtflöt. Hluti stang-
arinnar er framleiddur í tölvustýrðri
vél hjá Baader í Kópavogi en Garöa-
smiðjan sf. í Garðabæ framleiðir
stangarmáhð, sem er selt á 37.350
krónur með VSK,“ segir Höskuldur
Hildibrandsson.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér
möguleika stangarinnar geta séð Hö-
skuld að starfi í næstu viku, en hann
mun mæla öh kynbótahross sem
verða dæmd í Víðidalnum á vegum
BúnaðarsambandsKjalamess. -E.J.