Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Síða 7
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993
31
Iþróttir
Verðlaunahafar i fimmgangi ungknapa. Frá hægri sigurvegarinn Gisli Geir Gylfason, Sigurður V. Matthíasson,
Marianna Gunnarsdóttir, Þorvaldur Á. Þorvaldsson og Davfð Jónsson. DV-mynd EJ
í & I • ' ■ : Wýw |||My' ' iMm JIl |míí %'||| Bii M í «
Sigurbjörn Bárðarson með fullar hendur verðlaunagripa eftir farsæla keppni
í Reykjavikurmeistaramóti í hestaiþróttum.
ellcfu
gull
Sautjánda deildarmót íþrótta-
deildar Fáks var haldið í Víði-
dalnum um og fyrir helgi. Fáks-
menn hafa ekki verið jafn
óheppnir með veður á íþrótta-
móti sinu frá upphafi því snjó-
koma ógnaði framkvæmd þess.
Alla þrjá keppnisdagana þurfti
að moka snjó af keppnisvöllum.
Þó tökst að Ijúka mótinu án
áfalla.
Keppendur voru færri en
nokkru sinni fyrr. Sem dæmi má
nefiia að í tölt fullorðinna voru
einungis þrettán keppendur
skráðir til leiks og ellefu í fimm-
gang. Þar voru þó senniiega á
ferðinni flestir af sterkustu knöp-
um Fáks. í ungknapaflokkum
voru enn faerri knapar skráðir.
Sigurbjörn Bárðarsonhélt upp-
teknum hætti, fékk ellfu gull-
verðlaun og vann allar greinar
fullorðinna nema Qórgang. Þar
stóð efstur Sveinn Ragnarsson á
Kol. Sigurbjöm keppti á sömu
hestum og áöur: Höfða í fimm-
gangsgreinum, Oddi í ijórgangs-
greinum og Hæringi í ólympísku
greinunum.
í 150 metra skeiði sigraði Sigur-
bjöm á Snarfara á 14,94 sek. en í
250 metra skeiði á Völu á 24,54
sek.
í barnaflokki sigraði Davíð
Matthíasson á Dreyra í fjórgangi,
hlýðnikeppni, íslenskri tvíkeppni
og varð stigahæstur knapa. Hann
er bróðir Siguröar V. Matthías-
sonar, sem keppti í ungmenna-
flokki og fékk tvenn gullverð-
laim. Þeir bræöur fengu saman-
lagt sex gullverölaun. Ásgeir Ö.
Ásgeirsson sigraði á Fleyg í tölti.
í unglingaflokki sigraði Ásta
K. Briem á Tjörva í fjórgangi,
ólympískri tvíkeppni og varð
stigahæstur knapa, Saga Stein-
þörsdóttir sigraði á Heru í tölti
og Guðrún Berndsen á Bletti i
hlýðnikeppni.
I ungmennaflokki sigraði Mari-
anna Gunnarsdóttir á Kolskegg í
fjórgangi, Gísli G. Gylfason á Kol
i fimmgangi og Ófeigi í hlýðni-
keppni og íslenskri tvíkeppni.
Sigurður V. Matthiasson sigraði
á Bessa i tölti og varð stigahæstur
knapa. -E.J.
HASKOLABIO SYNIR
hágæðaspennumyndina
Jennifer 8
A slóð raðmorðingja hef-
ur leynilögreglumaðurinn
John Berlin engar vís-
bendingar, engar grun-
semdir og engar fjarvist-
arsannanir.
... og nú er komið að
þeirri áttundu.
Sýnd kl. 5, 7, 9.1 0 og 11.10.
Leikstjóii Bruce Robinson.
UMA THURMAN