Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993 Fréttir Óánægja eftir að Össur var kosinn umhverfisráðherra krata: Óvíst að Rannveig taki starfi þingf lokksformanns - ekki sú niðurstaða sem ég hafði óskað mér, sagði hún „Það er ekki um annað að ræða en una þessari niðurstöðu en þetta var ekki sú niðurstaða sem ég hafði óskað mér. Mig hefði frekar dreymt um það að störf mín undanfarin 15 ár á ýmsum vígstöðvum hefðu verið þess eðlis að nú þætti mönnum aö þaö væri fengur að mér á nýjum stað. Það var öðruvísi mat uppi á teningn- um og það verður svoleiðis. Ég er hins vegar ekki búin að gera upp við mig hvort ég er reiðubúin að fara í formennsku fyrir þingflokkinn núna og ætla að nota tímann í fríinu til að velta málunum fyrir mér,“ sagði Rannveig Guðmundsdóttir eftir flokksstjórnarfund Alþýðuflokksins sem lauk skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Össur Skarphéðinsson var kosinn í embætti umhverfisráðherra í leyni- legri atkvæðagreiöslu á þingflokks- fundi Alþýðuflokksins í gærkvöldi. Atkvæði fóru þannig að Össur hlaut 7 en Rannveig Guðmundsdóttir 5. Verulegur ágreiningur var uppi fyrir þingflokksfundinn um hvort Össur eða Rannveig færu í umhverf- isráðuneytið. Varð formaðurinn, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrir miklum þrýstingi af hálfu stuðningsmanna Rannveigar en þar fóru fremst í flokki Jóhanna Sigurðardóttir og kratar í Reykjaneskjördæmi. í þeirri stöðu valdi Jón Baldvin ekki að bera upp tillögu um Össur á fundinum. Þess í stað lagði hann til aö kosið yrði um kandidatana í leynilegri kosningu og að sá er biði lægri hlut yrði þingflokksformaður. Eftir að niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru ljósar fór Rannveig fram á að umfjöUun um þingflokksformann yrði frestaö. Var orðið við þeirri beiðni. Óánægðar konur boðuðu eft- irmál í þann mund er boðaður flokks- stjómarfundur hófst í næsta sal fundaði Rannveig með sínum stuðn- ingsmönnum og komu þau seinna á fundinn, fylktu liði. Á flokksstjóm- arfundinum, sem lokaöur var fjöl- miðlum, uröu heitar umræður um stööu Rannveigar. Stuðningsmenn Rannveigar, sérstaklega konur, létu í ljós mikla óánægju með lyktir mála og fannst sumum að Rannveigu hefði verið sýnt mikið vantraust. Sagði Lára V. Júlíusdóttir að styrkja hefði þurft stöðu kvenna í ríkisstjórninni og lét ennfr emur í það skína að eftir- málar yrðu af því að Rannveigu var hafhað sem ráðherra. Það var þungt hljóðið í Jóhönnu Sigurðardóttur þegar hún yfirgaf fundinn nokkru áður en honum lauk. „Þetta var önnur niðurstaða en ég hefði kosið. Ég þarf að átta mig á þessari stööu sem komin er upp,“ sagði hún. „Ef ég hefði verið valin til þeirra metorða sem um ræðir hefði ég tahð að ég væri aö fá umbun 15 ára starfa. Það hefur verið sagt að formennska í þingflokki sé ekki lítið embætti en menn skoða þau mál mismunandi augum," sagði Rannveig. Samstaða um Guðmund Árna Sú tillaga Jóns Baldvins að Guð- mundur Árni Stefánsson yrði heil- brigðis- og tryggingaráðherra og Sig- hvatur iðnaðar- og viðskiptaráð- herra var samþykkt samhljóða. Þá var Sigbjöm Gunnarsson samhljóða kosinn til formennsku i fjárlaga- nefnd, að sögn sem umbun fyrir vel unnin störf. Jón Sigurðsson og Eiður Guðnason hverfa nú úr ráðherrastólum. Ráð- herraskiptin munu eiga sér formlega stað á ríkisráðsfundi á Bessastöðum ámánudag. -hlh Nýir ráðherrar Alþýðuflokksins að afloknum flokksstjórnarfundi I gærkvöldi: Guðmundur Árni Stefánsson, t.v., vérðandi heilbrigðis- og tryggingaráðherra, og össur Skarphéðinsson, verðandi umhverfisráðherra. Formleg ráð- herraskipti verða á ríkisráðsfundi á mánudag. D V-myndir JAK Jón Baldvin segir ekkert tilefni til hótana gagnvart sér: Verðum að hlíta ákvörðun meirihluta Guömundur Ami Stefánsson: Tilhlökkunog eftirsjá „í mér hrærist blanda af tilhlökkun og eftirsjá. Ég er búinn að vera í mjög áhugaverðu starfi í Hafnarfirði þar sem hlutimir hafa gengið mjög vel. Það er virkileg eftirsjá að því góða samstarfi sem ég hef átt þar við flokk og bæjarbúa alla. Á hinn bóg- inn hlakka ég til að takast á viö þetta erfiða og vandasama starf sem bíður mín í heilbrigðisráðuneytinu," sagði Guðmundur Ámi Stefánsson, bæjar- stjóri í Hafnarfirði, eftir aö hann hafði verið valinn til að gegna emb- ætti heilbrigðis- og tryggingaráð- herra fyrir Alþýðuflokkinn. - Kvíðir þú því að fara í eitt erfið- asta ráðuneytið? „Nei, ég hef áður tekist á við erfiða hluti og það er enginn verkkvíði í mér. Ég geng að þessu eins og hveiju öðru verki,“ sagði Guðmundur og lýsti yfir ánægju sinni með þann stuðning sem hann fékk til starfans ogþakkaðitraustið. -hlh Össur Skarphéöinsson: Vartilbúinn aðvinnalengur „í slorinu" „Þetta var mikið drama en ég er nú vanur því á mínum póhtíska ferh. Ég hef oft lent í hörðum átökum og vanur því aö una niðurstöðu. Ég var búinn að segja Jóni Baldvini það að hver sem niðurstaðan yrði þá mundi ég styðja hana. Ég átti jafnvel von á að það yrði gerð tihaga um annan mann í þetta embætti og var alveg sáttur við það. Það er mjög erfitt verkefni að koma inn í þessa ríkis- stjóm í núverandi stööu og því hefði ég ekki tekið því illa þó ég hefði setið hjá að þessu sinni. En það er karlinn í brúnni sem ræður, við erum háset- amir. Ég er oröinn vanur aö vinna í slorinu og hefði vel getað hugsað mér að gera það lengur," sagði Össur Skarphéðinsson við DV að afloknum flokksstjómarfundi krata í gær- kvöld. „Ég er þakklátur fyrir aö sam- verkafólk mitt í þingflokknum skuh treysta mér til þessara starfa. En það er eðlilegt að menn setji spurningar- merki viö mig þar sem ég hef ekki veriðlengií Alþýðuflokknum." -hlh „Eg hef ekki ástæöu til að ætla annað en aö friður ríki eftir fundinn í kvöld. Að vísu var vali þingflokks- formanns frestað en vilji þingflokks- ins hggur fyrir. Það voru alhr á einu máli í stuðningi sínum við Rann- veigu Guðmundsdóttur til fomstu í þingflokknum. Það er í fyrsta sinn í 78 ára sögu flokksins sem kona er valin þar til forystu,“ sagði Jón Bald- vin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins, við DV í gærkvöldi. Vegna þrýstings og hótana af hálfu stuðningsmanna Rannveigar Guð- mundsdóttur sagðist Jón ekki hafa lagt fram tillögu um Össur Skarp- héðinsson sem umhverfisráðherra. „Ég gerði ekki neina tihögu þar sem gert var upp á milli Rannveigar og Össurar. Það var þingflokkurinn sjálfur sem kvað upp úr um þetta í atkvæðagreiðslu þannig að ekkert tilefni er til að beina hótunum aö mér. Menn sem starfa saman í þing- flokki verða að vera tilbúnir að hhta meirihlutaákvörðun í lýðræðislegri kosningu. Þegar mér varð ljóst að ekki væri hægt að segja um það fyrir- fram hvort hefði meirihluta lét ég kjósa milli þeirra.“ Um viðbrögð Rannveigar sagði Jón Baldvin: „Formennska í þingflokki er ekki síður mikilvægt starf en forsvar fyrir minnsta ráðuneytinu. Að verkstýra þingflokki, stýra samskiptum við samstarfsflokk í ríkisstjórn og vera málsvari út á við er að mínu mati mikhvægara sem póhtískt starf en hitt. Menn geta metið þetta öðruvísi en reyndur stjórnmálamaður hlýtur að meta þetta svona.“ - Össur og Guðmundur Ámi em títt nefndir þegar rætt er um óróa í flokknum. Er nú búið að stinga upp í þá með ráðherrastöðum? „Össur var gerður að formanni þingflokksins og talsmanni hans sem tiltölulega nýr maður í flokknum. Hann hefur að sjálfsögöu verið að fullu ábyrgur fyrir stefnu þeirri sem þingflokkurinn mótar. Því er ekki hægt að nefna hann óróasegg. Hitt er rétt að Guðmundur Árni hefur gagnrýnt margt varðandi stjórnar- stefnuna, einstaka ráðherra og ein- stök mál. Menn minnast þess einnig að hann hefur löngum verið nefndur th fokksforystu. Nú gerist þaö að þingflokkurinn felur honum vanda- samasta ráðherrastarf á vegum flokksins. Að taka við af manni sem staðið hefur sig best okkar manna í ríkisstjórn þýðir að gerðar verða miklar kröfur th Guðmundar Árna. Hann verður mældur á strangan mælikvarða þar sem samanburður- inn er við Sighvat. Nú er að duga eða drepast, sýna hvað í manni býr.“ -hlh Stuttar fréttir Svefnpokapláss Ferðamálaráð hefur skorað á stjórnendur Flugstöövar Leifs Eiríkssonar að koma í veg fyrir að stöðin verði þekkt erlendis sem helsta svefnpokagistiheimhi íslands. Tíminn greindi ffá þessu. Ráðhúsið fram úr áætlun Framkvæmdir viö Ráðhúsið í Reykjavik fóru rúmar 200 mhlj- ónir fram úr áætlun á síðasta ári. Þá kostaði búnaöur i húsið um 100 milljónir meira en áætl- anir gerðu ráð fyrir. Samtals var í fyrra varið 731 miRjón í húsið. Kvófigefinn Aht að 750 skip munu á næstu dögum fá kvóta Hagræðingasjóðs án endurgjalds. Um er að ræða 8.800 þorskígildistonn. Rétt á kvóta eiga skip sem uröu fyrir meira en 6,9% aflaskerðingu við upphaf fiskveiðiársins 1. sept- ember í fyrra. Fleiri vinir Hafnfirðingar eignuðust 1.880 nýja vini á nýafstaöinni athafna- sýningu, Vor ’93. Fjarðarpóstur- inn greinir frá þessu. Viðræðurumherinn Viðræður eru nú hafnar milli íslenskra og bandarískra stjórn- valda um framtíð varnarsamn- íngsins. Átta manna sendinefhd frá Bandaríkjunum er stödd hér á landi vegna þessa. Deilur iagðar niður Samkomulag hefur náðst mihi Hagvirkis-Kletts og skiptastjóra Fórnarlambsins. Samkvæmt Mbl. mun þrotabúið fá hluta krafna og skiptastjóri fehur frá mótmælum við staöfestingu nauðarsamninganna og kyrr- setningu eigna Hagvirkis-KIetts Framkvæmdastjóri EFTA Líklegt er taUð að Kjartan Jó- hannsson, fastafuUtrúi íslands í Genf, verði valinn framkvæmda- stjóri EFTA á næsta fundi utan- ríkisviðskiptaráðherra EFTA- landanna. Mbl. greindi fráþessu. -kaa Þegar Rannveig Guðmundsdóttir kom til þingflokksfundar krata ásamt helsta stuðningsmanni sínum, Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra, virtist létt yfir þeim stöllum. Rannveig bar í brjósti von um að verða um- hverfisráðherra. Hún beið lægri hlut í leynilegri atkvæðagreiðslu á fundin- um þar sem Össur Skarphéðinsson hlaut 7 atkvæði en hún 5. Rannveig og Jóhanna voru mjög ósáttar við þær lyktir mála.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.