Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993 Fréttir_____________________________________ Ráðherrabreytingar Alþýðuflokksins: Jón Baldvin með einarðari þingflokk - „óróinn“ tálinn hverfa í ráðherrastólnnum Þær breytingar, sem ákveönar voru á ráðheraliði Alþýðuílokksins í gærkvöldi, þurfa ekki að koma á óvart. í DV í febrúar var gerð ítarleg grein fyrir þeim breytingum sem nú hafa orðið. Sighvatur Björgvinsson fer í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Eiður Guðnason hverfur til sendi- herrastarfa í útlöndum, Karl Steinar Guðnason aíþakkar vísan ráðherra- stól og fer væntanlega í forstjórastól Tryggingastofnunar. Þá urðu nokk- uð hörð átök vegna Össurar Skarp- héðinssonar og Rannveigar Guð- mundsdóttur sem mögiilegra um- hverfisráðherra þar sem Össur hafði betur. Ekkert var hins vegar sagt um að Guðmundur Árni Stefánsson tæki við heilbrigðisráðuneytinu en þó tal- ið ólíklegt að þeir bræður, hann og Gunnlaugur, sætu báðir sem óbreyttir þingmenn. Sighvatur í skjól Jón Sigurðsson mun brátt koma sér fyrir í skrifstofu seðlabanka- stjóra. Vitað var að Sighvatur Björg- vinsson hafði augastað á iðnaöar- og viðskiptaráðuneytinu. Sighvatur hefur stjómað einu erfiðasta ráðu- neytinu, heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytinu, í tvö ár og hefur mætt mikið á honum þann tíma vegna nið- urskurðar. Hafa óvinsældir Sighvats orðið svo miklar að krötum þótti nauðsynlegt aö hann fengi friösam- ara ráðuneyti, honum yrði hreinlega komið í skjól. Karl Steinar Guðnason afþakkaði ráðherrastól, væntanlega í heilbngð- isráðuneytinu. Guðmundur Árni Stefánsson stekkur því viðstöðulaust úr þingsæti í ráðherrastól þegar hann tekur við heilbrigðisráðuneyt- inu. Einhvetjum karm að þykja djarflega teflt að setja nýjan þing- mann í svo erfitt ráðuneyti. En kratar, sem DV hefur rætt við, benda á að Guðmundur Árni hafi meiri reynslu af stjórnunarstörfum en velflestir alþýðuflokksþingmenn eft- ir mörg ár sem bæjarstjóri Hafnar- fjarðar. Hann sé því best til þess fall- inn að fara í erfiðasta ráðuneytið sem losnar við breytingamar. Loks má rifja upp loforð um ráðherrastól sem Guðmundi Árna mun hafa verið gef- ið ef hann féllist á að hætta við próf- kjör í Reykjanesi fyrir síðustu kosn- ingar og láta Jóni Sigurðssyni eftir fyrsta sætið. Nú er komið að reikn- ingsskilum. Slagur vegna Rannvelgar Þó ákveðið hefði verið að Össur Skarphéðinsson tæki við umhverfis- málunum er það eina breytingin sem styr hefur staðið um. Jóhanna Sig- urðardóttir og hópur krata, þar á meðal á Suðumesjum, vildi fá Rann- veigu Guðmundsdóttur í umhverfis- ráðuneytið, þó hún, samkvæmt heimildum DV, hafi í raun aldrei verið inni í myndinni sem ráðherra krata í þessari ríkisstjórn. Stuðn- ingsmenn Rannveigar þykja þegar eiga sterkan fulltrúa í ríkisstjóm þar sem Jóhanna Sigurðardóttir er. DV var tjáð að ekki yrði horft fram hjá Össuri sem menntuðum líffræðingi með reynslu á því sviöi. Þyki hann nánast eins og „klæöskerasaumað- ur“ í umhverfisráðherrastóhnn. Við breytingamar koma tveir nýir kratar á þing: Petrína Baldursdóttir úr Reykjaneskjördæmi og Gísh S. Einarsson úr Vesturlandskjördæmi. Petrína er mikið til óskrifað blað en Gísli, fyrrum forseti bæjarstjómar Akraness, hefur notið mikiha vin- sælda á Skaganum og þótt öflugur atkvæðasegull. Dofna andófsraddir? Að þessum breytingum gerðum segja viðmælendur DV meðal krata að formaðurinn, Jón Baldvin Hannibalsson, standi uppi með ein- arðari þingflokk en áður. Allir hópar í flokknum eigi þar sína fulltrúa þannig að bæði einingin og breiddin sé til staðar. Þótt „vinstrimönnum" hafi fjölgað í þingflokki krata þykir ekki hætta á að þær andófsraddir, sem borið hefur á úr þeim hópi, muni heyrast af sama krafti og áður. Með því að Guðmund- ur Ámi og Össur verða ráðherrar munu þeir ekki eiga eins hægt um vik að „vera með læti“. Þá var jafn- vel búist viö að Gunnlaugur Stefáns- son yrði formaður fjárlaganefndar en menn leiöa getum aö þvi að ein- hveijum innan flokksins hafi þótt nóg að hafa annan Stefánssona í meiriháttar áhrifastöðu. Fyrir valinu varð því Sigbjöm Gunnarsson, af og til kenndur við óróa. Formaður fjár- laganefndar stundar ekki stjórnar- andstöðu. „Vinstrikratar styrkja óneitanlega stöðu sína við brottfór Jóns Sigurðs- sonar og ágreiningur vegna þess að Jón hefur ekki komið fram öhum sínum einkavæðingaráformum hverfur. Ég held að breytingin muni líka styrkja samkomulag flokkanna í ríkisstjórn á ýmsan hátt. Sjálfstæð- isflokkurinn mun eiga betra meö átta sig á áherslum Alþýðuflokksins. Það er betra að menn viti almennilega hvar þeir hafa hver annan,“ sagði framámaður meðal krata við DV. -hlh Kratar skiptast á stólum m % $*í í DM Viöskípta- og iönaðarráöherra Jón Sigurðsson seölabankashóri Heílbrigöisráöherra Sighvatur Björgvinsson viöskipta- og iönaöarráöherra Umhverfisráðherra Eiöur Guðnason sendiherra iaöur Össur Skarphéðinsson umlwerfisráðherra íi Guðinundur Ámi Stefánsson heilbrigöi: Karl Steinar Guðnason forstjöri Tryggingastofnunar Rannveig Guðmundsdóttir Petrína Baldursdóttir Gísli S. Einarsson þingmaöur Já, ráðherra I þingflokki Alþýðuflokksins sitja tíu manns. Þar af eru fimm ráð- herrar og svo formaður þingflokks- ins sem er íghdi ráðherrastóls í launum og áhrifum. Það gera sex sem eru meira en óbreyttir. Þar sem Alþýðuílokkurinn er jafnaðarmannaflokkur er þetta auðvitaö ófært ástand og óviöun- andi fyrir þá fjóra sem hvorki eru ráöherrar né þingflokksformenn. Þess vegna íhuga þeir nú, kratarn- ir, að stokka upp stjómina til að gera fleiri þingmenn aö ráðherr- um. Hvemig fara þeir að því? Jú, Al- þýðuflokkurinn hefur aðgang að bitlingum. Bitlingar em handa þingmönnum sem em orðnir þreyttir á þingi og í rauninni er þingmennska í Alþýðflokknum skyldustarf eða reynslutími fyrir fólk sem sækist eftir bithngum. Fyrst þurfa menn að gegna þeirri þegnskyldu í flokknum að sitja á þingi og síðan fá þeir bithnga þegar þingmennimir hafa sýnt fram á aö þeir em orðnir þreyttir og búnir með kvótann. En menn geta líka orðið þreyttir á ráðherradómi og það gildir um þá Jón Sigurðsson og Eið Guðna- son. Jón er búinn að-vera ráöherra í sjö ár sem er langur tími fyrir mann sem hefur allan tímann beð- ið eftir öðrum og betri bithngi held- ur en ráðherrastól. Eiður hefur setið í tvö ár í ríkisstjórn, sem er þreytandi, bæði fyrir hann og hina ráðherrana sem em með honum. Þess vegna þarf að finna bithng handa honum. Útafskipting Jóns Sigurðssonar þarfnast aðeins nánari skýringar. Hann ætlaði aldrei að verða þing- maður og vildi fá einn bitling á eft- ir öðrum. En Alþýðuflokkurinn hefur þá reglu að menn þurfi að setjast á þing til að öðlast rétt th bithnga og þess vegna lét Jón Sig- urðsson til leiðast að setjast inn á þing með þvi skilyrði að verða ráð- herra. Nú er Jón búinn með kvót- ann og nú getur hann fengið stólinn í Seðlabankanum sem hann sóttist eftir frá upphafi. Annað gildir um Eið Guðnason. Hann er búinn að vera flokknum afskaplega hohur og verið þing- maður á annan áratug. Enda Eiöur orðinn mjög þreyttur og leiöur og veröur nú sendiherra hjá Samein- uðu þjóðunum. Þar er gott að hvíl- ast og þar er gott að vera þegar maður eru orðinn þreyttur og leið- ur. Karl Steinar vill ekki verða ráð- herra en á þó rétt á því að verða ráðherra miðað við langan þing- mannsferil. Karl Steinar fær því úthlutað til sín forstjórastól í Tryggingastofnun ríkisins. Það er ömggara og ekki eins þreytandi. Þetta gengur nefnhega aUt út á það að hvíla menn eftir þreytandi starf og menn vUja ekki fá þreytandi störf áfram ef þeir geta sloppið við að verða þreyttir áfram og þá þarf auövitað að finna hentuga bithnga þar sem menn verða ekki mjög þreyttir eftir að vera þreyttir fyrir. Nú geta alþýðuflokksmenn búið til tvo nýja ráðherra í staðinn fyrir þá sem hætta. Annar er Össur Skarphéðinsson sem verið hefur formaður þingflokks, þannig að annar þingmaöur getur orðið þing- flokksformaður og þá eru bara eftir tveir, því Karl Steinar er búinn að fá sinn bitling sem bíður eftir hon- um. Guðmundur Ámi Stefánsson kemur inn á þing fyrir Jón Sigurðs- son og verður ráðherra strax af því Guðmundur Árni er bæjarstjóri í Hafnarfirði og menn hætta ekki sem bæjarstjórar nema fá eitthvað fyrir sinn snúð. Þar með getur ann- ar krati orðið bæjarstjóri og hættir þá væntanlega í einhveijum bitl- ingi sem hægt er þá aö úthluta til annars krata og svo koll af kolli. Sjálfsagt verða þeir tveir sem eft- ir eru í þingflokknum óánægðir með sitt hlutskipti að vera ekki ráöherrar eins og hinir. En annar af þessum tveim er séra Gunnlaug- ur, sem er bróðir Guðmundar Áma, svo fjölskyldan fær ráöherra og Gunnlaugur verður að bíða á meðan Guðmundur er ráðherra en erfir svo ráðherrastóhnn þegar Guðmundur Árni er orðinn þreytt- ur eins og menn verða eftir tveggja ára setu í ráöherrastól. Séra Gunn- laugur er þar af leiðandi orðinn íghdi ráöherra og þess vegna verð- ur þessi eini sem ekki verður ráö- herra strax að ávarpa þingflokk sinn: já, ráöherra, sem er alþýðu- heiti yfir alþýðuflokksmenn, vegna þess að flokkurinn er jafnaðar- mannaflokkur sem fer ekki í manngreinarálit. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.