Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ.1993 Spumingin Tókstu þátt í sjómanna- deginum? Þórir örn Sigvaldason: Nei, ekkert rosalega mikiö. Unnur Björnsdóttir: Nei, ég sat heima. Arnar Tumi Þorsteinsson: Já, dálítiö. Ég fór niöur í miðbæ. Kristinn Sigurður Pétursson: Nei, ég var ekki í bænum. Jökull V. Harðarson: Nei, ég komst ekki. Eva Mjöll Sigurbjörnsdóttir: Já, Ég fór niður á höfn. Svo sá ég krafta- keppni í Hafnarfiröi. Lesendur^ Svar til Ibs Wessmans matreiðslumanns: Humarinn hlýtur að kveljast Magnús H. Skarphéðinsson skrifar: Útilokað er aö álykta það að risa- humarinn eða bara hvaða sjávar- eða landdýr sem er kveljist ekki þegar hann eða þau eru sett sprelllifandi ofan í sjóðandi vatn til aflífunar og matreiðslu eins og Ib Wessman mat- reiðslumaður fullyrðir í lesendabréfi til DV 3. júní sl. Ég myndi í fyrsta lagi blygðast mín ofan í tær ef ég væri Ib Wessman og hefði átt þátt í því að flytja inn þessa þjáningaifullu matreiðsluaðferð hingað til lands eins og skilja má af skrifum hans. Ég vona bara, karma þessa lands vegna, að þessi Wessman sé ekki íslendingur. Af nógum þján- ingariðnaði er samt að taka hér á landi. Ég nefni sem dæmi þrengsla- búskapinn í landbúnaðinum (búra- eldi alifugla sem og ýmissa annarra dýra). Sú fullyrðing að lifandi dýr finni ekkert til þegar þeim er dýft ofan í sjóðandi vatn er alveg út í bláinn. Það eru svipuð rök og við öfga- sinnamir höfum svo oft heyrt að kjúklingamir sem aldir eru upp í búrunum ómannúðlegu og ógeðslegu hafði það bara ágætt þar. í annan stað upplýsir hann að í mörgum tilfellum geri matreiðslu- Bréfritari er ekki hrifinn af búraeldi alifugla. menn annað af tvennu, að setja hum- arinn í saltvatn eða stinga á stjórn- stöðvar dýranna svo þau missi til- finningaskynið og finni ekkert fyrir soðningunni. Þó svo þú hefðir rétt fyrir þér í því að þetta taki alla þján- ingu af dýrunum við þessa smekk- legu meðhöndlun, sem er vægast sagt mjög ótrúverðugt, þá stendur stað- reynd staðreyndanna eftir. Hvað um þá risahumra sem eru soðnir lifandi þar sem engin viðleitni til mannúð- legrar aflífunar er til staðar? Nei, kæri Wessman. Heldur ættum við íslendingar að sjá sóma okkar í því að reyna að draga úr þeirri þján- ingu sem við völdum sjálfum okkur og öðrum dýrum sem þessa jörð gista. Fallegt og göfugt skref í því væri að stöðva samstundis þann ljóta sið sem þú virðist hafa átt þinn þátt í að tekinn var upp hér á landi fyrir 16 árum. Málvillur í rituðu máli Lárus skrifar: Þrátt fyrir að ég sé ekki með sér- menntun í íslenskum fræðum tel ég mig merkja það aö málvillum fer mjög fjölgandi í rituðu máli. Ég vil því vekja upp umræðu um helstu málvillur sem herja á málið um þess- ar mundir. Ein er sú málvilla sem er að verða landlæg hér á landi en það er ótímabær notkun á samteng- ingunni „og“. Þegar ég var í gagnfræða- og menntaskóla var lögö á það rík áhersla að samtengingin „og“ væri aldrei notuð á eftir kommu í setn- ingu. í dag er þessi regla þverbrotin, jafnvel af mönnum sem eiga að telj- ast sæmilega ritfærir. Þessi ósiður hefur gengið svo langt að það sjást jafnvel setningar sem byija á „Og“. Mér þætti gaman að fá að vita það hjá íslenskufræðingi hvort einhveij- ar breytingar hefðu orðiö á þessari reglu, úr því að þessi misnotkun er orðin svo algeng. Til eru dæmi um það að ákveðin málvilla verði svo algeng meðal fólks að hún verði að málvenju og verði tekin góð og gild í íslenskri tungu. Ég vonast til þess að gripið verði í taumana og þessi ósiður verði kæfður áður en hann nær meiri útbreiðslu en þegar er oröið. Einn angi af málvillu, skyldur þeirri sem hér á undan er nefnd, er að byrja málsgreinar á „En“. Þá gæti verið skrifað þannig; „Hann hefur mjög ákveðnar skoðanir. En ég er honum ekki sammála." í þessu til- felli er einfaldast að sleppa orðinu „En“. Eitt annað vil ég nefna um vonda meðferð íslensk máls. Svo virðist sem afskaplega fáir íslendingar hafi á hreinu hvernig nota eigi kommu. Hún er í mörgum tilfellum ofnotuð, í sumum tilfellum ekki notuð og í enn öðrum tilvikum notuð á vitlausum stöðum. Allt er þetta pirrandi, sér- staklega ofnotkun kommunnar. Það væri ekki úr vegi að Sjónvarp- ið tæki að sér aö viðhalda málinu með því að hafa þætti með einhverj- um þekktum málvísindamönnum sem tækju á algengustu málvillum fólks. Frágangur á rusli Sverrir skrifar: Það hefur lengi loðað við Reykvík- inga að vera sóðar. Það er ekki nóg með að unga fólkið fleygi rusli, svo sem umbúðum utan af sælgæti, síg- arettum og hverju sem er, í götuna þó að rusladallur sé aðeins fáum skrefum frá, heldur er eldra fólkið ekkert skárra. Ég öfunda satt að segja ekki fólk í hreinsunardeildum borgarinnar af að hreinsa allt það rusl sem til fellur frá íbúum höfuð- borgarsvæðisins. Rusl er heiti sem á um fleira en það sem hér á undan er nefnt. Mjög al- gengt er að sjá spýtnarusl alls konar eða gijóthrúgur í kringum hús og er það bæði leiðinlegt að horfa á og get- um í sumum tilfellum valdið hættu. Það er í sumum tilfellum afsakanlegt að vera með spýtnarusl eða grjót- hrúgur í kringum nýbyggingar í Hringið í síma 63 27 00 millikl. 14og 16-eða skrifið NJfn og slmamr. vcrðúr að fytgja bréluni skamman tíma en úr því á að bæta svo fljótt sem auðið er. Við íslendingar hreykjum okkur af því við útlendinga að eiga hrein- asta land í heimi og ómengað en hætt er við að útlendingar komist á aðra skoðun ef þeir kynna sér eitt- hvað hvernig málum er háttað í höf- uöborginni. Eitt dæmi er sérlega slæmt og búið að vera um áraraðir. Fjölmargir út- lendingar dvelja á Hótel Loftleiðum, því annars ágæta hóteli. Fyrir austan þá byggingu er ljót hrúga af drasli, spýtnarusli og gijóti sem er búin að vera þar í áraraðir. Það er ótrúlegur slóðaháttur af stóru fyrirtæki að gera ekkert í þessu máh langtímum sam- an en því miður einkennandi fyrir marga aðra. Hrúga af spýtum og grjóti við Hótel Loftleiðir fer í taugarnar á bréfritara. Sóuitopinbersfjár Sigurður Lárusson skrifar: Að undanfömu hefur mikið verið rætt um þá fjóra sjónvarps- þætti sem Baldur Hermannsson gerði fyrir Ríkisútvarpið og sýnd- ir voru í Sjónvarpinu nýlega. Ekki ætla ég að þessu sinni að ræða efni þeirra eða þær sjón- varpsmyndir sem þeiro fylgdu þó margt mætti um það segja. : Hitt finnst mér með ólíkindum, að Menningarsjóður útvarps- stöðva skyldi gi-eiða Baldri 8,9 miiljónir fyrir þennan samtining sém ég tel að sæmilega röskur maður hefði getað tekið saman á einu ári. Myndefninu held ég að heföi ekki átt að þurfa nema einn til tvo mánuði að púsla saman. Svo bítur stjórn menningar- sjóðsins höfuðiö af skömminni með því aö greíða honum 3 milij- ónir fyrir fiutningsréttinn. Þetta finnst mér Ijótt dæmi um meðferð opinbers fjár. Þó benda megi á mörg dæmi opinberra stofnana eða nefnda um svipað fiárbruðl réttlætir það ekki þennan gjörn- ing. Mér finnst því að stjórn sjóðsins heföi átt að sjá sóma sinn í að segja af sér eða biðjast opin- berlega afsökunar á þessu frum- hlaupi. Útibúerlendra banka Magnús skrifar: Ég vil koma á framfæri athuga-_ semd vegna yfirlýsingar ASÍ, VSÍ og ríkisstjórnarinnar um vaxta- mál. í yfirlýsingum þessra þriggja aðila tel ég vanta að at- hugað verði hvort fá megi erlenda banka til að setja hér upp útibú. Hér á ég við banka eins og t.d. í EB-löndunum og Bandaríkjun- um. í þessu sambandi mætti at- huga hvort frekari lagabreyting- ar þyrfti til en þær sem eru þegar komnar í tengslum við EES. Það er viðurkennt hagfræðilega að virk samkeppni verður undir og fákeppni ofan á, ef heima- markaður er eingöngu látinn einn og sér ura hlutina. Því vant- ar hérlendis samkeppni frá er- lendum aðilum. Þetta finnst mér mjög mikilvægt og þá sérstaklega í smáríkjum eíns og íslandi. Hæp- ið er að erlendir bankar sýni þessum málum áhuga, á meðan atvinnu- og fiárhagsmál okkar standa eins og í dag. Því finnst mér nauðsynlegt að skoða þessa hluti og stefna að aðgerðum til langs tíma til að ná þessu mark- miði. Týnd myndavél Sverrir Meyvantssón hringdi: Ég var með myndavél í afmæli sem fram fór í Ölkjallaranum 28. maí sl. Ég tapaði myndavélinni þar á staðnum en ég tók myndir þar sem eru mér mjög verðmæt- ar. Það væri mér miklils virði að fá filmurnar í hendumar. Sá sem hefur myndavélina undir hönd- um má eiga hana ef hann einung- is setur filmuna úr vélinni í Póst- hólf Pósts og síma númer 453. Afsökunarbeiðni ónauðsynleg Birgir hringdi: Mér finnst það algerlega ónauð- synlegt fyrir sjávarútvegsráð- herra aö biðja Bill Clinton afsök- unar á ummæium um hann. Það voru Bandaríkjamenn sem byrj- uðu á að móðga okkur og þvi engin ástæða ti) þess aö beygja sig í duftið fyrir þeim. Halldór hringdi: Er ekki timabært að rjúfa þing og efha til kosninga úr því Ijóst er að rikisstjómin nýtur ekki trausts meirililuta þjóðarinnar?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.