Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993 13 Neytendur Þó að vörugjald hafi verið fellt niður af ýmsum byggingavörum hefur það ekki alls staðar skilað sér í lækkuðu vöruverði. Vörugjald fellt niður af byggingavörum: Engin lækkun á sum- um byggingavörum Nýlega voru samþykkt lög á Al- þingi í tengslum við kjarasamninga um að fella niður vörugjald af ýms- um byggingavörum. Gildistöku lag- anna var flýtt og öðluðust þau gildi þann 7. apríl síðastliðinn. Vörugjaldið var m.a. fellt niður af gleri, steypustyrktaijámi, milli- veggjasteini, vír úr járni og af gang- stéttarhellum, svo eitthvað sé nefnt. Lausleg könnun DV leiddi í ljós að niðurfelling vörugjalds af þessum vörum hefur í mörgum tilfellum enn ekki skilað sér í lægra vöruverði til neytandans. Gler hefur lækkað Rúðugler hefur þó lækkað í verði um 6-8%. Einfalt 4 mm gler kostar á bilinu 14-1800 krónur en kostaði áður 15-1900 krónur fermetrinn. Einnig hefur verðið á vír úr jámi lækkað. Hjá Vímeti hf. í Borgarnesi, sem selur m.a. í byggingavöruversl- anir, kostar 50 kg rúlia nú 4.588 krón- ur en kostaði áður 4.793 krónur. Lækkunin er 4% og hefur hún yfir- leitt skilað sér til neytandans. Birgðir á gamla verðinu Verð á steypustyrktarjárni hefur hins vegar staðið í staö hjá ílestum verslununum og skýringin, sem gef- in var á því, var sú að þær lægju oft með 2-3 mánaða lager og enn væri því verið að selja birgðir á gamla verðinu. Þeir hjá Húsasmiðjunni áttu þó ekkert frekar von á því að nýja sendingin yrði ódýrari því að ý’erðhækkanir erlendis myndu að öllum líkindum éta upp mismuninn. Hugsanlega yrði þó 2-3% lækkun. Byko hafði þó lækkað verðið á steypustyrktaijáminu um 5% og var það sagt eingöngu gert til að bregð- ast við samkeppni. Afslátturinn var af birgðum seni keyptar höfðu verið með fullum aðflutningsgjöldum. Verðið þar á 8 mm kambstáli var 239 krónur stöngin en var áður 252 krón- ur. Til samanburðar kostar 8 mm stöng 260 krónur hjá Kaupfélagi Ár- nesinga en þar kemur ekki nýtt verð fyrr en birgðimar þrýtur. Milliveggjasteinn lækkar ekki Byko og Kaupfélag Árnesinga vom einu verslanirnar af þeim sem haft var samband við sem seldu milli- veggjastein. Verðið á honum hafði ekkert breyst. Hjá Byko var milliveggjasteinn 5x50x50 cm seldur á 230 krónur stykkið, 7x50x50 á 290 krónur og 10x50x50 á 368 krónur. Hjá KÁ kost- aði 5x50x50 241 krónu, 7x50x50 303 krónur og 10x50x50 396 krónur stykkið. Byko var eina verslunin sem var með gangstéttarhellur og hafði verðið á þeim ekki lækkað. -ingó Gler — meðalverð — 6-8% lækkun U Milliveggjasteinn — meðalverð — 236 kr. 236 kr. (5x50x50) (5x50x50) Engin iækkun Samkvæmt upplýsingum frá Ingi- hér á síðunni. vörunnar. Áætlað er að þetta leiði til björgu Þorsteinsdóttur, lögfræðingi í Vegna áætlaðrar heildsöluálagn- u.þ.b. 8,3% lækkunar á útsöluverði fjármálaráðuneytinu, var 9% vöm- ingar, sem er 25%, var vörugjaldið þessara vara. gjald á þeim vörum sem rætt er um þó í reynd 11,25% ofan á tollverð -ingo Sviðsljós Ung og efnileg. Ragnar Örn Arnarson og Júlía Björgvinsdóttir. Úrslit í fyrirsætukeppni unglinga: •• Ragnar Om og Júlía unnu Fyrirsætukeppni unglinga á aldr- inum 13-16 ára var haldin í fyrsta skipti á fostudagskvöld. Það var Módel 79, sem stóð fyrir þessari keppni. Jóna Lámsdóttir sá um að skipuleggja þessa keppni en hún var haldin vegna gífurlegrar aðsóknar unglinga L-samtökin. Þar sem ungl- ingar á þessum aldri eru aö stækka og þroskast var engin lágmarkshæð keppenda en meira tillit tekið til and- lits þeirra sem sóttu um. Þau voru 150 sem sóttu um, allir voru prófaðir og svo voru 34 valdir úr. Það var svo fimm manna dómnefnd sem sá um að velja 3 stúlkur og 3 pilta sem sigur- vegara. Það var Ragnar Örn Arnarson, 16 ára, sem þótti bera af strákunum. Aðspurður sagðist hann ekki hafa ætlað að taka þátt í svona keppni en Þorleifur, vinur hans, fékk til að koma með sér og sagði að þeir væru að fara að skrá sig í samtökin. Svo þegar þeir voru búnir að því komst hann að hann var orðinn þátttakandi í keppninni. í öðru sæti varð Styrmir Karlsson og þriðji varð Birgir Örn Einarson. Júlía Björgvinsdóttir bar sigur úr býtum í stelpnaflokknum. Hún skráði sig í keppnina af því að hún hafði áhuga á módelstörfum og vildi gjarnan vera meö. Þegar kynnir kvöldsins, Páll Óskar Hjálmtýsson, tilkynnti um sigurvegarana fór það ekki fram hjá neinum að sú sem varð mest hissa var Júlía sjálf. í öðru sæti varð Freyja Kristinsdóttir og Áslaug Dröfn Sigurðardóttir í því þriðja. Magnea Ólafsdóttir fékk sér- staka viðurkenningu sem besta sýn- ingarstúlkan. Að sögn Jónu er stefnt að því aö hafa þetta árlegan viðburð svo ungl- ingar geta farið að setja sig í stelling- ar fyrir næsta ár. . HMR Júlía átti ekki von á að hafna í fyrsta sætinu. Frá vinstri Freyja Kristinsdótt- ir, Magnea Ólafsdóttir, Júlía Björgvinsdóttir og Áslaug Dröfn Siguróardóttir. DV-myndir HMR EINN HRAÐSKREIÐASTI BÁTUR LANDSINS SUMMER BOATS, 21 FET Vél: Chevrolet 320 hestöfl. Drif: Stern Power Race. Fjögurra hjóla vagn. Upplýsingar gefur Magnús Óskarsson í sima 673000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.