Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993
25
Afmæli
Guðrún Gísladóttir
Guðrún Gísladóttir, fyrrv. hús-
freyja, Ystahvammi í Aðaldal, er
níræðídag.
Starfsferill
Guðrún fæddist í Presthvammi í
Aðaldal og ólst þar upp. Eftir að hún
gifti sig hófu þau hjónin búskap í
Ystahvammi, fyrst sem leiguliðar en
keyptu síðan jörðina 1930 eftir að
hafa búið í Geitafelli í tvö ár. Þau
stunduðu síðan búskap í Ysta-
hvammi til 1966 er þau hættu bú-
skap að mestu. Þá voru þau á Húsa-
vík á veturna en í Ystahvammi á
sumrin.
Guðrún var ráðskona á Sjúkra-
húsi Húsavíkur um árabil og vann
síðan á býtibúri sjúkrahússins til
ársins 1981 er hún fór á Dvalarheim-
ilið Hvamm á Húsavík.
Guðrún starfaði í Kvenfélagi Að-
aldæla um áratugaskeið.
Fjölskylda
Guðrún giftist 14.6.1925 Jóni
Gunnlaugssyni, f. 7.10.1901, d. 22.3.
1974, bónda í Ystahvammi. Hann var
sonur Gunnlaugs Snorrasonar, b. í
Geitafelii í Aðaldal, og Oddnýjar
Sigurbjömsdóttur húsfreyju.
Böm Guðrúnar og Jóns em Ásta,
f. 29.3.1926, saumakona á Húsavík,
gift Hermanni Aðalsteinssyni og
eiga þau íimm böm; Oddný, f. 9.4.
1927, saumakona á Seltjamarnesi,
var gift Sigþór Guðnasyni sem lést
1962 og era böm þeirra fjögur; Val-
gerður, f. 1.11.1928, húsfreyja á Héð-
inshöfða á Tjömesi, gift Jónasi
Bjamasyni og eiga þau fimm börn;
Aðalbjörg, f. 8.3.1930, húsfreyja að
Litlureykjum í Reykjahverfi, gift
Sigtryggi Árnasyni og eiga þau fjög-
ur böm; Helga, f. 9.1.1932, húsfreyja
í Lækjarhvammi í Aðaldal, gift Gísla
Kristjánssyni og eiga þau sex böm;
Baldur, f. 18.11.1934, b. í Ysta-
hvammi í Aðaldal, kvæntur Fann-
eyju Helgadóttur og eiga þau fimm
börn; Þórólfur, f. 4.5.1941, smiður á
Hánefsstöðum í Svarfaðardal,
kvæntur Þorbjörgu Alfreðsdóttur
og eiga þau þrjú börn.
Systkini Guðrúnar: Nanna Gísla-
dóttir, f. 13.12.1891, d. 2.10.1984,
húsfreyja í Garðshomi, gift Hauki
Ingjaldssyni og urðu börn þeirra
sex; Baldur Gíslason, f. 1.9.1893, d.
24.11.1933, b. í Fagraneskoti, kvænt-
ur Laufeyju Guðmundsdóttur og
eignuðust þau fjögur böm; Kristín
Þuríður Gísladóttir, f. 31.7.1895, d.
21.7.1984, hótelstýra í Reynihlíð, gift
Pétri Jónssyni og eiguðust þau fimm
börn; Ólafur Gíslason, f. 5.9.1897,
d. 11.5.1976, b. á Kraunastöðum, var
kvæntur Bergljótu Jónsdóttur og
eignuðust þau þrjú börn; Ragna
Gísladóttir, f. 1.10.1899, d. 17.1.1985,
húsfreyja í Austurhaga og síðar í
Fagranesi, gift Sæþóri Kristjánssyni
og eignuðust þau fjögur börn; Björn
Gíslason, f. 10.9.1901, d. 9.1.1946, b.
í Presthvammi, kvæntur Sigríði
Björnsdóttur og eignuðust þau þrjú
böm; Ásta Gísladóttir, f. 26.11.1905,
d. 27.1.1917; Þorgerður Gísladóttir,
f. 26.9.1907, d. 26.2.1910; Þorgerður
Gísladóttir, f. 6.11.1909, húsfreyja á
Knarrarbergi í Flatey, síðar í Vest-
mannaeyjum, nú vistmaður á
Grund, gift Jónatan Árnasyni og
eignuðust þau fimm börn. Fóstur-
systir Guðrúnar er Sveinbjörg
Ámadóttir, f. 21.11.1921, húsfreyja
á Hofi í Hólahreppi, gift Jóni Guð-
mundi Gunnnlaugssyni og eignuö-
Guðrún Gísiadóttir.
ustþauþrjúböm.
Foreldrar Guðrúnar voru Gísli
Sigurbjörnsson, f. 15.4.1867, d. 1.3.
1954, b. og póstur í Presthvammi í
Aðaldal, og kona hans, Helga Sigur-
veigHelgadóttir, f. 26.2.1866, d. 7.9.
1951, húsfreyja.
Guðrún tekur á móti gestum í
Félagsheimilinu Ýdöluin á afmælis-
daginnfrákl. 15.00.
Anna Thorstensen
Til hamingju með
aímælið 8. júní
AnnaThorstensen, fyrrv. húsvörð-
ur í Ráðherrabústaðnum við Tjam-
argötu, nú til heimilis að Vistheimil-
inu Seljahlíð í Hjallaseli 55, Breið-
holti, er sjötíu og fimrn ára í dag.
Starfsferill
Anna fæddíst á Þverá í Öxnadal í
Eyjafirði en flutti tveggja ára til
Akureyrar og ólst þar upp fram á
unglingsár. A fimmtánda árinu
flutti hún til Reykjavíkur þar sem
hún réð sig þá í vist en hún hefur
síðan verið búsett í Reykj avík.
Anna hefur starfað við fram-
reiðslustörf um áratugaskeið, fyrst
á Hótel Skjaldbreið, auk þess sem
hún var aöstoðarþjónn á sumrin á
Hótel Garði við Hringbraut. Hún
varð aðstoðarstúlka húsvarðar í
Ráðherrabústaðnum 1950 og tók síð-
an við af húsverðinum er hann
hætti en þvi starfi gegndi hún í ára-
tugi eða nokkuð fram yfir sjötugt.
Fjölskylda
Anna giftist 10.6.1937 Tryggve D.
Thorstensen, f. 11.10.1914, d. 25.11.
1986, prentara. Hann var sonur Ole
Thorstensen, skósmiðs í Reykjavík,
og konu hans, Anine Thorstensen
húsmóður.
Böm Önnu og Tryggve era Sonja
Helene, f. 9.5.1938, afgreiðslustúlka
í Reykjavík, gift Jóni B. Skarphéð-
inssyni, f. 1.11.1938, vörubfistjóra í
Reykjavík, og era börn þeirra Erla,
f. 11.9.1968, ogBirgitta, f. 30.1.1972,
en stjúpdóttir Jóns er Elisabet
Cochran, f. 25.11.1959; Sigurður
Ingvi, f. 3.12.1940, flugumferðar-
stjóri í Kópavogi, kvæntur Guðríði
Vestmann Guðjónsdóttur hjúkran-
arkonu og era börn þeirra Ánna
Margrét, f. 26.8.1965, Tryggve Daní-
el, f. 18.11.1967ogKristín, f. 12.7.
1972; Tryggve Daníel, f. 20.12.1945,
vélaverkfræðingur erlendis, og er
dóttir hans Drífa Hjördís, f. 14.8.
Í97L
Systkini Önnu urðu fjórtán en átta
þeirra era á lífi. Þau era Eva, f. 1.5.
1906, hjúkrunarkona í Reykjavík;
Ragnheiður, f. 15.5.1907, hjúkrunar-
kona í Reykjavík; Hrefna, f. 7.12.
1912, húsmóðir á Akureyri; Hulda,
f. 12.10.1914, hjúkrunarkona í
Reykjavík; Hjalti, f. 22.10.1910,
fyrrv. verkamaður í Reykjavík; Sig-
ríður, f. 10.2.1916, húsmóðir í
Reykjavík; Þorsteinn, f. 6.8.1920,
fyrrv. starfsmaður bæjarfógeta á
Ákureyri; Helga, f. 6.9.1922, hjukr-
unarkona í Reykjavík.
Foreldrar Önnu voru Svanlaugur
Jónasson, f. 4.11.1882, d. 15.10.1946,
verkstjóri hjá Akureyrarbæ, og
kona hans, Kristjana Rósa Þor-
Anna Thorstensen.
steinsdóttir, f. 23.11.1882, d. 20.2.
1957, húsmóðir.
Svanlaugur var sonur Jónasar
Jónssonar, b. á Varmavatnshólum,
og Sigurlaugar Svanlaugsdóttur.
Kristjana var dóttir Þorsteins
Jónssonar, b. á Bessahlöðum í
Öxnadal og síðar b. á Engimýri, og
konu hans, Ragnheiðar Friðriku
Jónsdóttur.
Anna verður að heiman á afmæl-
isdaginn en tekur á móti gestum í
sal Múrarafélags Reykjavíkur,
Síöumúla 25, milli kl. 16.00 og 18.00.
Ingibjörg Helene Guðmundsdóttir
Ingibjörg Helene Guðmundsdóttir
húsmóðir, Lambhaga46, Selfossi, er
fertugídag.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist að Langsstöðum í
Flóa í Hraungerðishreppi og ólst þar
upp í foreldrahúsum. Hún gekk í
bamaskóla í Þingborg og síðar í
gagnfræðaskólann á Selfossi.
Að skólagöngu lokinni starfaði
Ingibjörg við margvísleg störf, m:a.
sem aðstoðarstúlka við heimavist-
arskólann í Þingborg, starfsstúlka
hjá Sláturfélagi Suðurlands og sem
fiskverkakona í Þorlákshöfn.
Síðasta áratug hefur Ingibjörg
starfað við Fjölbrautaskóla Suður-
landsáSelfossi.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 25.12.1972 Guö-
mundi Ólafssyni, f. 2.10.1942, starfs-
manni Búrfellsvirkjunar. Hann er
sonur Ólafs Sigurðssonar frá Háa-
rima í Þykkvabæ, Rang., og Ást-
rósar Guðmundsdóttur frá Akra-
nesi. Bjuggu þau lengst af í Vatns-
kotiíÞykkvabæ.
Ingibjörg og Guðmundur eiga fjög-
ur böm. Þau era: Sigrún Hildur, f.
11.7.1971, húsmóðir í Bolungarvík,
í sambúð með Atla Guömundssyni
bifvélavirkja og eiga þau einn son;
Ástrós, f. 30.9.1973, húsmóðir á
Eyrabakka, í sambúð með Ragnari
Emilsyni sjómanni; Guöleifur, f.
30.6.1980; Elínborg, f. 19.4.1988.
Systkini Ingibjargar era Sigurður,
f. 24.6.1950, verkamaður á Selfossi,
kvæntur Hrönn Sverrisdóttur, hús-
móður frá Eyrarbakka, og eiga þau
bæði böm frá fyrri hjónaböndum,
Sigurður tvö og Hrönn fjögur; Sonja,
f. 28.5.1956, húsmóðir og verkakona
á Selfossi.
Ætt
Foreldrar Ingibjargar voru Guð-
mundur Guðleifsson, f. 22.8.1907, frá
Oddgeirshólahöfða í Hraungerðis-
hreppi í Flóa, síðar b. að Langsstöð-
um í sömu sveit, og Hildigaard
Werner, f. 2.7.1927, d. 18.8.1988, frá
Travemunde í Þýskalandi.
Foreldrar Guðmundar var Guðleif-
ur, frá Stettum í Hraunshverfi,
Ingibjörg Helene Guðmundsdóttir.
Hannesson og Sigríður Eiríksdóttir
frá Sólheimum í Hrunamanna-
hreppi.
Hildegaard var dóttir Friedrichs
Werner frá Travemunde, sund-
kennara, skipstjóra og aflaklóar, og
Helene Weme frá Saxlandi. Faðir
Friedrichs var Heinrich skipstjóri
er stundaði íslandssiglingar.
95 ára
60 ára
Hallfríður R. Jónsdóttjr,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
85ára
Guðrún Ólafsdóttir,
Óðinsgötu 19, Reykjavik.
Magnús Guðj ónsson,
Lyngholti 20, Keflavík,
Steindór G uðmundsson,
Egilsstöðum, Ölfushreppi.
Rafn B. Helgason,
Stokkahlöðum II, Eyjafjarðarsveit.
ÞóraJónsdóttir,
Holtsgötu 31, Njarðvík.
50ára
80 ára
Stefán Guðmundsson,
Hamraborg32, Kópavogi.
Lilja Gísladóttir,
Kumbaravogi, Stokkseyri.
Unnur Magnúsdóttir skrifstofu-
maður,
Drafnarstíg 2, Reykjavík.
Unnur varð áttræð í gær.
EiginmaðurUnn-
arvarHinrik
Jónsson, sýslu-
maðuríStykkis-
hólmi, semlést
1965.
Unnurererlend-
isumþessar
mundir.
Steina Friðsteinsdóttir,
Hrauntúni25, Vestmannaeyjum.
Huida Lilý Árnadóttir,
Einholti 13, Akureyri.
Gísli Guönason,
Blómsturvöllum 1, Neskaupstað.
NiIsErik Gíslason,
Lyngholti 2, Akureyri.
40 ára
Jensína Jóhannsdóttir,
Þverbrekku 4, Kópavogi.
Eiríkur Bjarnason,
Sandlækjarkoti, Gnúpverjahreppi.
■Áslaug Guðlaugsdóttir,
Víðilundi 24, Akureyrí.
70 ára
Guðfinna Stefánsdóttir,
Fifilgötu 8, Vestmannaeyjum.
Baldur Jónsson,
Goðabyggð 9, Akureyri.
Soffia Vigfúsdóttir,
Miðtúni 24, Reykjavík.
Vilborg Tryggvadóttir,
Austurbrún 6, Reykjavík.
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Eyjólfsstöðum, Áshreppi.
Móeiður Ágústsdóttir,
Hásteinsvegi 15, Stokkseyri.
Sigrún Magnúsdóttir,
Ásgarði 65, Reykjavik.
Borgný Gunnarsdóttir,
Aðalstræti 57, Þingeyri.
Dagný Sigvaldadóttir,
Borgartúni 2, Djúpárhreppi,
Ólafía Guðrún Halldórsdóttir,
Heiðarbrún 68, Hverageröi.
Hákon Skírnisson,
Borgum, Nesjahreppi.
Halldór Jónsson,
Lerkihlið l, Sauðárkróki.
FinnurFinnsson,
Reykjasíðu 15, Akureyri.
Sigríður Sigurjónsdóttir,
Fossvöllum 23, Húsavík.
Sigurður Jóhann Jóhan nsson,
Seljavegi 31, Reykjavik.
Þór unn Hj altadóttir,
Langholtsvegi 77, Reykjavík.
Guðrún Gestsdóttir,
Tjarnarlundi 8J, Akureyri.
Ásthildur Thorsteinsson,
Hurðarbaki, Reykholtsdalshreppi.
Óli Bjarni Ólason,
Vallargötu3, Grimsey.
Björn Þorsteinsson,
Eiðistorgi 1, Sehjamamesi.
Sigurður Jóhannsson,
Vesturgötu 69, Reykjavik.