Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993
Veiðivon________________________________
Hörkubyrjun í Blöndu:
Veiddu fjóra laxa
fyrsta veiðidaginn
- fréttir úr öllum ánum sem hafa verið opnaðar
„Viö erum hörkuhressir með þessa
byrjun í Blöndu. Það veiddust fjórir
laxar á opnunardaginn,“ sagði Ing-
ólfur Ólafsson, leigutaki Blöndu, í
gærkvöldi. En veiðin hófst í Blöndu
á laugardaginn.
„Þetta voru tveir 13 punda og tveir
12 punda, fiskarnir veiddust á devon
og maðk. Við missum þrjá fiska á
þessum fyrsta veiðidegi. Daginn eftir
veiddist einn lax. Fyrsti laxinn í fyrra
veiddist á þriðja degi, svo þetta er
miklu, miklu betra,“ sagði Ingólfur í
lokin.
Fjórir af níu
löxum niðurgöngufiskar
„Laxá á Ásum hefur gefið 9 laxa, 5
á rétti leið upp ána en 4 laxa á leið
niður. Fjórir af þessum níu eru nið-
urgöngufiskar,“ sagði veiðimaður
sem var að koma úr ánni í gærdag,
Opnunarhollið í Blöndu veiddi 4 laxa
og var myndin tekin af hópnum við
veiðihúsið um kvöldið. DV-mynd Ó
Norðurá hafði gefið 23 laxa i gærkvöldi en áin gaf 7 laxa í gær. A myndinni eru Snæbjörn Kristjánsson og Hall-
dór Sigurþórsson með lax úr ánni. DV-mynd G.Bender
með aðeins einn lax eftir dag í ánni,
11 punda fisk.
„Við urðum varir við annan lax í
ánni, annars var þetta rosalega ró-
legt. Við fengum fiskinn í Dulsunum.
Allir laxarnir sem veiðst hafa hafa
komið á maðkinn. Stærsti laxinn er
14 pund en niöurgöngulaxarnir eru
5 og 4 pund. Það hefur verið gott
veður á daginn við Ásana en á nótt-
inni er kalt. Það hefur örugglega
haft mikil áhrif á fiskgöngur í ána,“
sagði veiðimaðurinn ennfremur.
Þverá ekki nema fimm gráður
„Við opnunina í Kjarrá veiddist
einn fiskur á þremur dögum, 10,5
punda fiskur, og svo veiddist annar
12 punda í dag. Það eru bændadagar
í Kjarrá þessa dagana," sagði Óli
Hrútfjörð, kokkur í veiðihúsinu við
Þverá í Borgarfirði, í gærkvöldi.
„Þveráin hefur gefið 11 laxa og
hann er 14,5 pund sá stærsti ennþá.
Áin er ekki nema fimm gráður svo
það er ekki ekki von á miklu ennþá,
en þetta kemur,“ sagði Óli ennfrem-
ur.
Norðurá gaf 7 laxa í gærdag
„Norðuráin gaf 7 laxa í dag svo hún
hefur gefið 23 laxa. Áin hefur hreins-
að sig verulega síðan um helgi,“ sagði
tíðindamaður okkar á bökkum Norð-
urár í gærkvöldi.
„Ég held að það verði veisla þegar
líður á vikuna og áin fer í sitt rétta
horf,“ sagði okkar maður á bakkan-
um. -G.Bender
Tilkynningar
Flóamarkaður F.E.F.
Félag einstæðra foreldra heldur flóa-
markað í Skeljanesi 6, Skerjafirði, í kvöld,
þriðjudagskvöld kl. 20 22. Mikið og gott
úrval af fatnaði, búsáhöldum og fleiru.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Opið hús í Risinu kl. 13-17 í dag, frjáls
spilamennska. Danskennsla Sigvalda kl.
20. Laugardag 12. júní fara Göngu-Hrólfar
með rútu í Skíðaskálann, létt og
skemmtileg ganga um Hveradali. Veit-
ingar í skálanum að göngu lokinni. Skrá-
setning á skrifstofu félagsins, s. 28812.
Grænirdagar
í Kópavogi
Undanfarin ár hefur trjárækt aukist gíf-
urlega í landi Kópavogs. Á sumrin hefur
Vinnuskóli Kópavogs í samstarfi við
Skógræktarfélag Kópavogs gróðursett
um 60 þúsund tré á sumri og í sumar
heldur það áfram. Dagana 7.-13. júni er
ætlunin að fegra hæjarlandið í samstarfi
við bæjarbúa með trjáræktarátaki sem
gengur undir nafninu „Grænir dagar“.
Dreift hefur verið upplýsingum um
grænu dagana á hvert heimili í Kópavogi
þar sem bæjarbúar geta séð hvenær gróð-
ursetning fer fram nálægt þeirra heimili.
Sýningar Brúðubílsins
Miðvikudaginn 9. júní verðpur Brúðubíl-
inn í Fífuseli kl. 10 og Freyjugötu kl. 14.
Tapað fundið
Páfagaukur tapaðist
Gulur páfagaukur flaug út um glugga á
Nesvegi sl. laugardagskvöldið. Ef einhver
getur gefið upplýsingar um hann þá vin-
samlegast hringið í síma 612326.
Eigendaskipti á Fil A Fil
Eigendaskipti urðu á versluninni Fil A
Fil í Borgarkringlunni í mai. Nýir eigend-
ur eru Margrét Rögnvaldsdóttir og Hlin
Kristinsdóttir. Verslunin býður upp á
skyrtur á dömur og herra á öllum aldri.
Þá býður verslunin á herraskyrtur með
extralöngum enmun. Einnig er mikið
úrval af silkiklútum, bindum og slaufum
á dömur og herra.
Verslunin Barnaland
flytur
Nýlega flutti verslunin Bamaland í bjart
og vistlegt húsnæði að Skólavörðustíg
21a, (Fatabúðarhúsið). Bamaland, sem
er umboðsala meö notaðar bamavörur,
hefur í nokkur ár haft á boðstólum úrvai
af bamavögnum, kerrnm, rúmum og fl.
Áður var verslunin til húsa að Njálsgötu
65. Einnig er í versluninni hægt að fá
leigðar ýmsar bamavörur. Eigandi versl-
unarinnar er Hilmar Öm Gunnarsson
en hann tók við rekstri Bamalands fyrir
ári.
Ættarmót afkomenda
Stakkadalssystra
Sunnudaginn 13. júni nk. verður í félags-
heimilinu Fólkvangi á Kjalamesi ættar-
mót afkomenda Jóhaimesar Jónssonar
bónda og Herborgar Zakaríasdóttur
Stakkadal í Aðalvik 1850-1886. Böm Jó-
hannesar og Herborgar vom Ragnhildur,
Friðrik, Jónína og Guðrún. Friðrik, er
fluttist til Vesturheims, og Jónína létust
bamlaus. Ragnhildur og m.h. Hjálmar
Jónsson, útvegsbóndi Stakkadal og Látr-
um, áttu fjóra syni. Guðrún og m.h. Ámi
Gíslason, Látrum, áttu einn son. Frá
Ragnhildi og Guðrúnu er margt afkom-
enda.
Sumar í Sigtúni
Út er komið garðyrlguritið Sumar í Sig-
túni. Er það í stóm broti, 48 litprentaðar
blaðsíður. Blaðið er hið eigulegasta að
ailri gerð - vandað að útliti, vel upp sett
og prentað í prentsmiðjunni Odda.
Blómaval gefúr út. í því má finna marg-
víslegar greinar og fróðleik sem tengist
sumri og sól - svo sem um rósir, blóma-
rækt, garðyrkju, tijárækt, hollustuvörur
og útivist ýmiss konar. Með útgáfú þessa
sumarblaðs bryddar Blómaval upp á nýj-
ung í starfsemi sinni og hefur fengið til
liðs við sig fjölmörg fyrirtæki sem kynna
framleiðslu sína og vöruframboð á mjög
upplýsandi máta. Blaðinu verður dreift
ókeypis til viðskiptavina í verslun
Blómavals næstu daga. Viðskiptavinir
úti á landi geta fengið blaðið sent ef þeir
æskja þess.
Leikhús dv
í
ÞJÓÐLEKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðiö kl. 20.00:
KÆRA JELENA
eftir Ljúdmilu Razumovskaju.
Á morgun, 9/6, fim. 10/6.
Aðeins þessar 2 sýningar.
KJAFTAGANGUR
eftir Neil Simon.
Lau. 12/6, örfá sæti laus, sun. 13/6, örfá
sæti laus.
Siðustu sýningar þessa lelkárs.
MY FAIR LADY söngleikur
eftir Lerner og Loeve.
Allra síðasta sýning.
Fös. 11 /6, nokkur sæti laus.
LEIKFERÐ
RÍTA GENGUR MENNTA-
VEGINN
eftir Willy Russel
Þrd. 8/6 kl. 20.30 - Logaland i Borgarf irði.
Mvd. 9/6 kl. 20.30 - Borgarnes.
Fld.10/6 kl. 20.30 -Ólafsvík.
Föd. 11/6 kl. 20.30-Stykkishólmur.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og
fram að sýningu sýningardaga. Miða-
pantanlr frá kl. 10.00 vlrka daga I sima
11200.
Qreiðslukortaþj. -Græna línan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
Þjóðleikhúsið -góða skemmtun.
Gönguskór töpuðust
Ef einhver hefur fundiö dökkbrúna
Skarpa gönguskó á bilastæðinu við Dal-
hús 25-35 eða á leiðinni Dalhús-Miðhús
þá vinsamlegast hringið í síma 679024.
Námskeið
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavikurdeild RKJ gengst fyrir nám-
skeiði í skyndilijálp og hefst það miðviku-
daginn 9. júni. Kennt verður 4 kvöld.
Kennsludagar verða 9., 10., 16. og 21. júní.
Námskeiðið telst vera 16 kennslustundir.
Þátttaka er heimil öllum 16 ára og eldri.
Námskeiðið verður haldið í Ármúla 34,
3. h. (Múlabæ). Þeir sem hafa áhuga á
að komast á þetta námskeið geta skráð
sig í síma 688188 frá kl. 8-16. Námskeiðs-
gjald er 4000 kr. Skuldlausir félagar í RKÍ
fá 50% afslátt. Einnig fá nemendur í
framhaldsskóla og háskóla 50% afslátt.
Fyrirlestrar
Líffræðifélag íslands
Næsti fyrirlestur Líffræðifélagsins verð-
ur haldinn í dag, 8. júni, og verður fyrir-
lesari dr. John P. Ball frá Háskólanum í
Umeá í Svíðþjóð. Fyrirlesturinn fer fram
á ensku og nefnist hann: Tilraunir með
hlutverk fæðu í búsvæðavali anda og
fæðuvenjur anda í í kafi. (Experiments
on the role of food in habitat use by ducks
and their underwater feeding behavio-
ur). Fyrirlesturinn verður haldinn í
Ámagarði, húsi Háskóla íslands, stofu
201 og hefst kl. 20.30 og er hann öllum
opinn.
Fundir
Gæði í skólastarfi
Á aðalfundi Landssamtakanna Heimili
og skóli, sem verður haldinn í Komhlöð-
unni (bakhús Lækjarbrekku) miðviku-
daginn 9. júni kl. 20.30, flytur dr. Stefán
Baldursson erindi um gæði í skólastarfi.
Dr. Stefán hefur m.a. unnið að tillögum
um framkvæmd gæðamats í skólum í
nefnd á vegum Skólamálaráðs Reykja-
vikur en hann á einnig sæti í nefnd um
mótun menntastefnu sem skilaði áfanga-
skýrslu í vetur. Fundargestum gefst
tækifæri til fyrirspurna að erindi loknu.
Venjuleg aðalfundarstörf að loknum
umræðum.
A NÆSTA SÖLUSTAÐ
EÐA I ASKRIFT I SiMA
tímarit fyrir alla
632700