Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Page 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1993
Skýjað og rigning
Þuríður Pálsdóttir.
Er Þjóð-
leikhúsið
hjáleiga?
„Þjóðleikhúsiö er mjög merk
stofnun. AUt tal um að leigja það
út eins og einhverja hjáleigu er
út í bláinn. Þeir leikhópar eru
ekki til sem gætu tekið viö því
menningarlega hlutverki sem
leikhúsið gegnir í þjóðfélaginu,"
segir Þuríður Pálsdóttir, formað-
ur þjóðleikhúsráðs, um þær hug-
myndir að leigja út rekstur Þjóð-
leikhússins.
Ekki æviráðnir starfsmenn!
„Ég hef gengist fyrir ýmsum
hugmyndum en ekki þeirri að
bjóða út rekstur Þjóðleikhússins.
Ég er hins vegar tilbúinn að
skoöa allt svona,“ segir Ólafur
G. Einarsson menntamálaráð-
herra en Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra segir að mennta-
málaráðherra hafi sagt að frekar
ætti að líta á Þjóðleikhúsið sem
leiksvið fyrir frjálsa leikhópa
heldur en stofnun með fjölda
æviráðinna starfsmanna.
Ummæli dagsins
Aumt bakhús
nýrrar bílageymslu!
„Annars er þaö umhugsunar-
vert hvernig stjómmálamenn
hafa umgengist Þjóðleikhúsið.
Stofnun þess var mikilvægur og
táknrænn áfangi í huga alda-
mótakynslóðarinnar í sjálfstæð-
isbaráttunni. Nú er það aumt
bakhús nýrrar bílageymslu," seg-
ir Viðar Eggertsson, nýskipaður
leikhússtjóri á Akureyri, en hann
veit ekki hvernig fjármálaráö-
herra ætlar að einkavæða Þjóð-
leikhús íslendinga.
Aðalfundur
Valsmanna
Aðalfundur handknattleiks-
deildar Vals verður haldinn í
kvöld kl. 20 í gamla félagsheimil-
inu að Hlíðarenda.
Fundiríkvöld
Á dagskrá em venjuleg aðal-
fundarstörf.
Smáauglýsingar
A höfuðborgarsvæðinu verður aust-
an og norðaustan gola eða kaldi,
Veðrið í dag
skýjað og dálítil rigning. Hiti 8-10
stig.
A landinu verður austlæg átt, all-
hvöss eða hvöss á Vestfjörðum en
annars hægari og skýjað og rigning
víða um land, mest um austanvert
landið. Hiti 4-12 stig.
Stormviðvörun: Búist er við stormi
á Vestfjarðamiðum og norðvestur-
miðum.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað 7
Egilsstaöir skýjað 5
Galtarviti rigning 7
Keíla víkurflugvöllur skýjað 7
Kirkjubæjarkla ustur þoka 8
Raufarhöfn rigning 5
Reykjavík skýjað 8
Vestmannaeyjar rigning 7
Bergén léttskýjað 11
Helsinki skýjað 8
Kaupmannahöfn léttskýjað 15
Ósló léttskýjað 13
Stokkhólmur léttskýjað 11
Þórshöfn þoka 8
Amsterdam þokumóða 15
Barcelona þokumóða 17
Berlín skýjað 16
Chicago þokumóða 19
Feneyjar þokumóða 22
Frankfurt léttskýjað 18
Glasgow skýjað 15
Hamborg þokumóða 14
London mistur 16
Lúxemborg léttskýjað 18
Madrid alskýjaö 15
Malaga þokumóða 16
Mallorca hálfskýjað 21
Montreal léttskýjað 13
New York alskýjað 17
Nuuk súld 1
Orlando heiðskírt 25
París léttskýjað 19
Róm þokumóða 19
Valencia þokumóða 18
Vín skýjað 18
Winnipeg skúr 12
í kvöld eru tólf leikir á dagski’á
í 2. umferð Mjólkurbikarkcppni
KSÍ. Allirleikirnir heflastkl. 20.
Íþróttiríkvöld
2. umferð
BÍ-HK
UBK -UMPA
Haukar-Fjölnir
ÍR-Stjarnan
Víðir-Þróttur R.
Ægir-Grótta
Neisti-KA
KS-Hvöt
Völsungur-Tindastóll
Leiftur-Austri R.:
Austri E.-Huginn
Einherji-Höttur
Skák
Stórmeistarinn Lars Bo Hansen og al-
þjóðameistarinn Karsten Rasmussen
urðu efstir og jafnir á danska meistara-
mótinu sem fram fór í smábænum Tond-
er. Þeir þurfa að heyja einvígi um Dan-
merkurmeistaratitilinn.
Þessi staða er frá mótinu. Schandorff
haíði hvítt gegn Rasmussen sem á leik-
inn. Rasmussen valdi 14. - Rxg3. Ætti
hvítur að drepa riddarann til baka með
drottningunni eða á hann eitthvað betra?
Eftir 14. - Rxg3 ætlaði Rasmussen að
svara 15. Dxg7? með 15. - Dxh4! 16. Dxh8 +
(16. Dxf7 + Kd8) Ke7 og hótar drotttning-
unni auk 17. - Re2 mát. En honum sást
yfir óvæntan leik, 15. Rxf7!, þvi aö nú
gengur ekki 15. - Kxf7 16. Dxe6+ Kf8 17.
DÍ7 mát. Besti kosturinn er 15. - Bf5! 16.
Rxd6+ Ekki 16. Dxg7? Re2+ 17. Kf2
Dxh4+ 18. Kxe2 Dg4 + ! 19. Dxg4 Bxg4 +
20. Ke3 Kxf7 og vinnur mann. 16. - Dxd6
17. Dxg3 0-0-0 og svartur getur teflt tafl-
ið áfram þótt hann sé peði undir. Svo fór
reyndar að Rasmussen sneri taflinu við
og vann skákina.
Jón L. Árnason
Bridge
Ein er sú sagnvenja sem hefur verið að
ryðja sér til rúms, en það er yfirfærsla
eftir innákomu andstæðinga á grand-
opnun (Transfer Lebensohl). Hún gengur
út á það aö allar sagnir svarhandar frá
tveimur gröndum eru yfirfærslur í litinn
fyrir ofan. Spil dagsins er dæmi um notk-
un á þeirri sagnvenju, þrír tíglar norðurs
voru yfirfærsla í hjarta og vegna góðrar
samlegu taldi suður sig geta stokkið alla
leið i fjögur. Austur gat hins vegar doblað
yfirfærslusögnina og leiðbeint félaga sín-
um með útspil gegn þeim samningi. Suð-
ur gjafari og allir utan hættu:
♦ 863
V D9865
♦ 854
+ KD
♦ ÁDG1042
V G3
♦ 76
+ 962
♦ K9
V Á1074
♦ ÁG2
+ ÁG104
Suður Vestur Norður Austur
1 g 2* 34 dobl
4V p/h
Sagnhafi drap tíguldrottningu austurs á
ás og spilaði laufum. Fyrst var kóngur
tekinn en síðan drottning yfirdrepin á ás
og lauftíu spilað. Tígli var hent í þriðja
laufið og síðan var gosa spilað. Vestur
trompaði lágt og aftur var tigli hent í
blindum. Vestur gerði hið eina sem hélt
spillnu í hættu, spilaði tígli. Hann var
trompaður í blindum og trompi spilað.
Austur setti lítið spil og nú varö sagn-
hafi að hitta á að gera rétt. Hann gat sett
ásinn eða spilað tíunni. Ef austur átti
bæði KG var spilið alltaf niður. Ef vestur
átti eingöngu kónginn, skipti ekki máli
hvort gert var þar sem vestur yrði enda-
spilaður ef hann fengi á kónginn. Ef vest-
ur átti bæöi KG var nauðsynlegt að spila
ásnum en eins og legan var var nauðsyn-
legt að setja tíuna. Athyglisverð staða
sem virðist vera að mestu leyti ágiskun.
ísak Örn Sigurðsson
„Hugmyndin að þessu kvíknaði
fyrir allnokkru. Ég, Árni Kópsson
og Gunnar Guðjónsson höfðu gert
nokkuð aö því að láta jeppana okk-
ar „fljóta" yfir ár og krapapytti
þegar við vorura að keppa í torfær-
unni og það gafst nokkuð vel. T.d.
létum við Gunni jeppana „fljóta“
eina 200 metra fyrir austan á sínum
tíma. Það er vel hægt að gera það
saroa með vélsleða eins og ég sann-
aði á sjómannadaginn,“ segir Guð-
bergur Guðbergsson sem fór á 140
hestafla vélsleða út í Viðey sl.
sunnudag.
„Takmarkiö var í sjálfu sér að
sýna fram á að þetta væri hægt en
það er ekkert meira á döfinni í
þessum efnum,“ sagði Guðbergur
og neitaöi ennfremur alfariö að
hann hygðist næst stefna að því að
fara á vélsleðanum sjóleiðina til
miga
Guóbergur Guðbergsson.
Akraness. „Það væri í sjálfu sér
hægt en það þyrfti fyrst að þétta
sleöann betur." Þess má reyndar
geta að vélsleðinn blotnaði á leið-
inni frá Viðey og til lands og sökk
en það kom ekki að sök. Guðbergur
var með bauju um „borð“ sem
hann greip til um leið og gripurinn
var að sökkva og það var því lítið
mál að ftnna vélsleðann aftur og
koma honum á þurrt
Guðbergur er enginn nýgi'æðing-
ur þegar óvenjulegur akstursmáti
er annars vegar. Hann sá t.d. um
áhættuatriðin í Löggulífi, Skyttun-
um, Sódómu Reykjavik og fleiri ís-
lenskum kvikmyndum og er auk
þess vel þekktur fyrir frammistöðu
sína í torfæruakstri. Að undan-
fórnu hefur ofurhuginn veriö
keppnisstjóri í rally-crossi en þar
fyrir utan gælir Guöbergur við þá
von að draumur hans um að láta
flugvél draga sig á sjóskíðum eigi
eftir að rætast.
Myndgátan
Lausn gátu nr. 639:
Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði.