Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rítstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993.
ísafjörður:
Kría kom upp
um þjófana
Lögreglan á ísafirði gómaði tvo
bensínþjófa á flugvellinum á ísafirði
á þriðja tímanum í nótt. Lögreglan
var á venjubundinni eftirlitsferð þeg-
ar hún sá til félaganna og hlupu þeir
og reyndu að fela sig. Með góðri sam-
vinnu við fljúgandi vini sína tókst
lögreglunni að klófesta þjófana þegar
kría, sem var ósátt við nærveru
þeirra, stakk sér yfir höfði þeirra.
Mennirnir voru fluttir á lögreglu-
stöðina og sleppt eftir yfirheyrslur.
Þeir hafa báðir komið við sögu lög-
reglu áöur. -pp
PatreksQörður:
Eldur í smábát
Eldur kom upp í Þórmundi RE, sex
tonna plastbát, í höfninni á Patreks-
firði í gær.
Slökkvilið var kallað á staðinn og
réð það niðulögum eldsins á skömm-
um tíma. Talið er að eldurinn hafi
kviknað út frá olíueldavél og er lúk-
ar, stýrishús og siglingatæki mikið
skemmdefekkiónýt. -pp
Brotistinní
tískuvöruverslun
Brotist var inn í tískuvöruverslun
við Laugaveg 61 í nótt. Enginn var
handtekinn í tengslum við innbrotið
en aðfaranótt sunnudags var brotist
inn í sama fyrirtæki og einnig í þrjú
önnur í sama húsi. Ekki er vitað
hvort sömu aðilar voru á ferð í bæði
skiptin. -PP
Mývetningarráku
féáfjallígær
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það var gert samkomulag sem
,kalla má málamiðlun svo að Mývetn-
ingar eru ekki að brjóta neitt þótt
þeir reki upp fé á þessum tíma,“ seg-
ir Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri um upprekstur Mývetninga á
fé sínu sem hófst í gær.
Gert var samkomulag, sem Skútu-
staðahreppur, jarðanefnd S-Þingeyj-
arsýslu og fulltrúi Landgræðslunnar
voru aðilar að, en það heimilar Mý-
vetningum að reka fé sitt á Mývatns-
öræfi í áfóngum. Nú í vikunni mátti
samkvæmt samkomulaginu reka
15% fjárins til fjalla og var það gert
í gær. Sveinn Runólfsson skoðaði
afréttarlöndin um helgina og fór
fram á að upprekstrinum yrði frestað
í einhveija daga vegna lélegs ástands
gróöurins en bændurnir töldu sig
ekki geta oröið við þeim tilmælum.
LOKI
Eru aðrir Stuðmenn tilbúnir í
tuskið?
Tvítug stulka féll 1 Hvítá 1 gærkvöldi:
Stúlkan fannst
staði í morgun
Stúlka, sem féll í Hvítá i Borgar-
firði um klukkan tíu í gærkvöldi,
fannst látin í ánni við Þorgauts-
staöi, skammt austur af bænum
Siðumúla, um ldukkan sjö í morg-
un.
Leitað var í alla nótt að stúlkunni
við góð skilyrði og gekk fjöldi fólks
úr héraðinu meðfram ánni auk
fólks úr sumarbústöðum í Húsa-
felli. Björgunarsveitin Ok, úr upp-
sveitum Borgarfiarðar, tók einnig
þátt í leitinni, einkaflugvél úr Borg-
arnesi leitaði úr lofti ásamt þyrlu
landlielgisgæslunnar sem var farin
í loftiö um 19 mínúíum eftir að til-
kynning um óhappiö barst til Land-
helgisgæslunnar.
Húsafell
,-S>' Skarösheíöi
DV
Stúlkan var í sumarhúsi i Húsa-
felli ásamt foreldrum sínum. Hún
ætlaöi að vaða út i Hvitá, um einn
kílómetra fyrir ofan ármót Hvítár
og Norðlingafljóts, þegar slysið
varð. Skammt fyrir neðan fellur
áin i þunguin stokki og er straúm-
hörð.
Til stóð að þyrla Landhelgisgæsl-:
unnar færi aftur til leitar í morgun
og einnig leitarmenn úr björgunar-
sveitinni Brák i Borgarnesi en ekki
kom til þess.
Stúlkan var úr Reykjavík, ógrft
og barnlaus. Ekki er hægt aö greina
frá nafni hennar að svo stöddu.
-pp
ítalska skemmtiterðaskipið Dapne kom til Akureyrar í gær en þetta er fyrsta koma skemmtiferðaskips af 28 sem
verða til bæjarins í sumar. Dapne lá úti á Pollinum en farþegar voru ferjaðir i land og margir þeirra brugðu sér
i dagsferð austur á bóginn, m.a. til Mývatns. DV-mynd gk
Veðriðámorgun:
ÞuirtáSuð-
vestur- og
Vesturlandi V
o
Á morgun verður austan- og °
norðaustanátt, stinningskaldi
eða allhvasst á norðanveröum
Vestfjörðum en yfirleitt mun
hægari annars staðar. Rigning
verður einkum um austanvcrt
landið og með noröurströndinni
en lengst af þurrt á Suðvestur-
og Vesturlandi. Hiti 6-14 stig.
Veðrið í dag er á bls. 28
Nei, takk
- segir Jakob Frímann
„Ef til mín yrði leitað myndi ég
segja takk en nei, takk,“ sagði Jakob
Frímann Magnússon, menningar-
fulltrúi íslands í London, í samtali
við DV í morgun, aðspurður hvort
hann tæki boði um að gerast bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, nú þegar Guð-
mundur Árni Stefánsson er að verða
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra.
Fleiri nöfn hafa komið upp, meðal
þeirra bæjarfulltrúanna Tryggva
Harðarsonar, Ingvars Victorssonar
og Jónu Óskar Guðjónsdóttur, for-
setabæjarstjórnar. -bjb
Ögmundur Jónasson:
Dæmiðekkiverið
hugsaðtilenda
„Á fundinum lýstu ráðherrar því
yfir að ekki væri að vænta teljandi
niðurskurðar í samneyslunni. Við
eigum ekki annarra kosta völ en taka
þá trúanlega. Það vekur hins vegar
undrun hvað þessi samningamál eru
vanhugsuð og byggð á miklum sandi.
Þrátt fyrir alla yfirleguna í tengslum
viö samninga ÁSÍ og VSÍ hafa menn
ekki hugsað dæmið til enda. Við er-
um forviða á því hversu allt er svíf-
andi í þessum málum,“ segir Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB.
Opinherir starfsmenn, kennarar og
bankamenn gengu á fund ríkis-
stjómarinnar í gær til að ræða stöð-
una í samningamálunum. Á fundin-
um fengust þær upplýsingar að ekki
stæði til að grípa til stórkostlegs nið-
urskurðar í opinberum rekstri vegna
nýgerðs kjarasamnings ASÍ og VSÍ.
Þess í stað yrði auknum útgjöldum
ríkisins mætt með auknum sköttum
oglántöku. -kaa
SVR hlutafélag
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn ætla að leggja til á
næsta borgarráðsfundi að Strætis-
vögnum Rekjavíkur veröi breytt í
hlutafélag í eigu borgarinnar. Breyt-
ingar á rekstrarformi SVR verða
kynntar á fundi með starfsmönnum
SVR í dag en ekki er búist við að
neinum starfsmönnum verði sagt
upp. -GHS
Varnarliðsviðræður
Sendinefnd Bandaríkjasijómar
kom hingað til lands í gær til að
ræða við íslensk yfirvöld um fyrir-
hugaðan niðurskurð til varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli. Viðræð-
urnar munu hefiast í dag. Vamar-
samningur íslendinga og Banda-
ríkjamanna hefur verið í gildi frá
1951 en undanfarin ár hafa sfióm-
völd vestanhafs lýst yfir þeim vilja
símun að draga úr kostnaði við rekst-
urKeflavíkurflugvallar. -bm
RAFMOTORAR
Powlgen
SuAuriandsbraut 10. S. 686489.
ÞREFALDUR1. vinningur