Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Blaðsíða 3
3
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
Fréttir
Kærunefndjafnrettismála:
Andstætt lögum að
synja körlum um
launað fæðingarorlof
Sú túlkun starfsmannaskrifstofu
fjármálaráðuneytisins að ekki sé
skylt að greiða körlum í þjónustu
ríkisins laun í fæðingarorlofi er ekki
í samræmi við lög. Þetta er úrskurð-
ur kærunefndar jafnréttismála sem
sendur hefur verið íjármálaráð-
herra.
„Þær reglur sem gilda eru and-
stæðar lögum og tilgangi jafnréttis-
laga,“ segir Elsa Þorkelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs. „Við
höfurn beint þeim tilmælum til íjár-
málaráðherra að þessu verði breytt."
Aðspurð sagði hún að það myndi
skjóta skökku við ef ríkið væri að
setja á laggirnar nefnd sem fjalla á
um brot á lögunum ef ríkið ætlaði
svo að hundsa niðurstöður nefndar-
innar.
Það var í fyrra sem tveir feður, sem
Nýr forstjóri Hagkaups:
Slæst við
landbúnaðar*
kerf ið ef til
þess kemur
- segir Óskar Magnússon
báðir eru ríkisstarfsmenn, sendu
kærunefnd jafnréttismála kæru þar
sem þeim hafði verið synjað um laun
í þann eina mánuð sem þeir hugðust
vera í fæðingarorlofi. Foreldrar geta
skipt sex mánaða fæðingarorlofi á
milli sín en þó er fyrsti mánuðurinn
bundinn við móður af heilsufars-
ástæðum.
Eftir að feðumir höfðu fengið synj-
un hjá fjármálaráðuneytinu leituðu
þeir til Tryggingastofnunar ríkisins
en var synjað um greiðslu þar á
þeirri forsendu að konur þeirra, sem
einnig eru ríkisstarfsmenn, hefðu
aldrei fengið greidda dagpeninga. Þvi
ættu þeir ekki slíkan rétt.
Kærunefhd jafnréttismála segir
engin efnisleg rök virðast vera fyrir
slíku misrétti sem karlar eru beittir.
-IBS
Óskar Magnússon hæstaréttarlög-
maður hefur verið ráðinn forstjóri
Hagkaups frá og með 1. október nk.
en hann hefur verið lögmaður fyrir-
tækisins undanfarin ár. Óskar tekur
við stöðu Jóns Ásbergssonar en Þor-
steinn Pálsson, sem verið hefur
framkvæmdastjóri, gegnir þeirri
stöðu áfram.
„Starfiö leggst ágætlega í mig. Þetta
er stórt fyrirtæki í mikilli sókn. Með
nýjum mönnum verða einhverjar
breytingar en engar stórkostlegar
stefnubreytingar. Eins og Hagkaup
hefur gert mun ég einbeita mér að
því að bjóöa góða vöru á góðu verði
og ef slást þarf við landbúnaðarkerf-
iö til þess þá verður það gert,“ sagði
Óskar Magnússon við DV.
Óskar, sem er 39 ára gamali, hefur
ásamt Asgeiri Þór Árnasyni rekið
lögmannsstofu í Reykjavík frá 1987
en var þar áður fréttastjóri DV í
fimm ár. Óskar var stjórnarformað-
ur Olís frá 1991 til 1993 og varafor-
maður Lögmannafélagsins 1991 til
1992.
-bjb
MiWdax:
Veruleg niður-
felling skulda
Búist er við að skýrist í dag hvern-
ig stjóm Byggðastofnunar afgreiðir
beiðni forráðamanna fiskeldisfyrir-
tækisins Miklalax í Fljótum um nið-
urfellingu 80 prósenta af skuldum
fyrirtækisins hjá stofnuninni. Brynj-
ar Níelsson, umsjónarmaður nauða-
samningaumleitananna, bjóst við
svari við erindinu fljótlega.
Fiskeldisfyrirtækið Miklilax er nú
í nauðasamningaumleitunum þar
sem heildarskuldir þess nema tæp-
um 800 milljónum króna en skuldir
fyrirtækisins við Byggðastofnun
nema tæplega 600 milljónum króna.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV er búist við aö fyrirtækið fái
verulega niðurfellingu skulda hjá
stofnuninni, að minnsta kosti í sam-
ræmi við stjómarsamþykkt Byggða-
stofnunar frá í fyrra þar sem gert er
ráð fyrir að skuldir fyrirtækisins
verði felldar rnöur í 180 milljónir
króna, þar af verði 60 milijónum
breytt í vikjandi lán. -GHS
Óskar Magnússon.
Skeifunni 13 Auðbrekku3 Norðurtanga3
Reykjavík Kópavogi Akureyri
(91) 68 74 99 (91)4 04 60 (96) 2 66 62
Tilboð fyrir hópa: 2.000 kr.
afsláttur á mann ef í
hópnum eru 15 manns eöa
fleiri. 40.000 kr. spamaður
fyrir 20 manna hóp.
frá nudjiun óepteniber
Veittur er 5% stackfrdðsluafeláttur*
a marmirm
\íwíbýlií
12 nceturog
3 daga d
Hotel Graf
Moltke. **
í Hamborg bjóðum viö gistingu á
eftirtöldum gæöahótelum:
Graf Moltke, Beriin, Monopol, SAS
Plaza, Metro Mercur og Ibis.
Ein helsta versunarborg Þýskalands, vörugæði og hagstætt verð.
Nafntogaðir veitingastaðir, krár, vínstofiir, skemmtistaðir,
fjömgt næturlíf af öllu tagi. Tónleikar, sígild
tónlist, jass og rokk, leiksýningar, eitt virtasta
óperuhús í Evrópu, frábær söfn, fallegt umhverfi,
gott mannlíf.
Brottfarir á fimmtu-,
föstu- og
laugardögum.
Heimflug á sunnu-,
mánu- og
þriðjudögum.
*M.v að greitt sé með minnst 14 daga fyrirvara. Innifalið er flug, gisting, morgunverður og
flugvallarskattar. Á tímabilinu 30. sept. til 28. nóv. er innifalið í verði akstur til og frá flugvelli í
Hamborg og íslensk fararstjóm í brottforum síðdegis á fimmtudögum með heimkomu síðdegis á
sunnudögum. Aksturinn verður að bóka sérstaklega.
Börn, 2ja - 11 ára, fá 10.500 kr. í afslátt. Börn að 2ja ára aldri greiða 3000 kr. Enginn
bókunarfýrirvari. Forfallagjald, 1.200 kr., er ekki innifalió í verði. Forfallagjald er valfrjálst
en Flugleiðir hvetja farþega til að greiða það til að firra sig óþarfa áhættu.
**Verð miðast við gengi 6. ágúst 1993. OATLAS/*
EunacAno.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofumar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18.)
FLUGLEIDIR
Traustur islenskur ferðafélagi