Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 15 „Samkvæmt lögum eru þeir, sem ekki eru 1BSRB, skyldaðir til að kosta starf- semi samtakanna. í þessari kaskó- tryggingu BSRB felst alls ekki réttur til að beita samtökunum í flokkspóli- tískum tilgangi.“ BSRB í kaskó Nýlega var efnt hér til ráðstefnu á vegum Evrópuráðsins þar sem fjallað var um félagafrelsi. Tölu- vert var rætt um stöðu verkalýðs- félaga og réttinn til að standa utan þeirra. í máli þeirra, sem vildu halda í skylduna til að vera í slíkum félögum, kom meðal annars fram að auðvitað ættu menn að geta val- ið á milh félaga og þeir ættu ekki að þurfa að sætta sig við að félögin beittu sér fýrir öðru en því sem lýtur að gerð kjarasamninga. Á ráðstefnunni kom fram að gildi verkalýðsfélaga fyrir þjóðfélagið í heild fæhst í því að þau stuðluðu að stöðugleika sem viðsemjandi um launamál fyrir stóran hóp manna. Það yrði að gera skýran mun á verkalýðsfélögum og stjómmála- flokkum eða öðrum hugsjónafélög- um. Hvort heldur menn vhdu skylda menn th aðhdar að verka- lýðsfélögum eða ekki ættu þeir að vera sammála um að í þeirri aðild gæti ekki fahst nauðung th að kosta almenna póhtíska starfsemi. Af þeim sökum yrðu verkalýðsfélög að haga starfsemi sinni í samræmi við almenna og sanngjama virð- ingu fyrir skoðanafrelsi. Ríkastar skyldur í því efni væru hjá þeim félögum sem byggðust á skylduað- ild eða nytu réttar th að innheimta félagsgjöld án tihits til aðildar. Pólitísk afskipti Hér á landi þarf enginn að fara í grafgötur um að verkalýðshreyf- ingin telur sig gegna miklu póli- tísku hlutverki. Nýlega fóru th dæmis forystumenn Alþýðusam- bands íslands (ASÍ), Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) og Kennarasambands íslands á fund Jóhönnu Sigurðardóttur fé- lagsmálaráðherra th að sýna henni stuðning í átökum innan Alþýðu- flokksins sem einnig hafa leitt til spennu í ríkisstjóminni. Þetta er aðeins eitt dæmi af mý- mörgum, sem koma í hugann, þeg- ar hinum pólitíska og jafnvel hokkspóhtíska þætti í starfi margra verkalýðsfélaga er velt fyr- ir sér. Á meðan Sovétríkin og Var- sjárbandalagið voru enn við lýði var það th dæmis í tísku að setja áróður gegn aðhd íslands að Atl- antshafsbandalaginu og varnar- samstarflnu við Bandaríkin inn í 1. maí ávörp verkalýðshreyfingar- innar. Lögbundin kaskótrygging Það eru auðvitað félagsmenn BSRB sem borga þessar póhtísku auglýsingar samtakanna. Forysta BSRB þarf ekki að óttast að hún missi neinar tekjur þótt auglýsing- amar kunni að brjóta í bága við skoðanir þeirra sem greiða félags- Sé unnt að réttlæta skylduaðhd að verkalýðsfélögum vegna hlut- verks þeirra við gerð kjarasamn- inga verða forystumenn félaganna að vera traustsins verðir. Miðað við það, sem fram kom á ráðstefnu Evrópuráðsins um félagafrelsi, fer forysta BSRB út fyrir hæfheg mörk Björn Bjarnason alþingismaður KjaHariim Nýlega hleypti BSRB af stokkun- um auglýsingaherferð í sjónvarpi, líklega gegn hugmyndum sem nefndar hafa verið í fjölmiðlum og snerta fjármögnun hehbrigðiskerf- isins. Þar er einstakhngur tahnn búa við meira öryggisleysi en kaskótryggður bhl og talað í hálf- kveðnum vísum. gjöldin. Samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfs- manna eru þeir skyldaðir th að borga th BSRB hvort sem þeir vhja vera í samtökunum eða ekki. Sé hkingin í auglýsingaherferð BSRB gegn hehbrigðis- og tryggingaráð- herra notuð má segja að BSRB njóti lögbundinnar kaskótryggingar. í póhtískum afskiptum sínum. Samkvæmt lögum eru þeir, sem ekki eru í BSRB, skyldaðir th að kosta starfsemi samtakanna. í þessari kaskótryggingu BSRB felst ahs ekki réttur th að beita samtök- unum í flokkspóhtískum thgangi. Björn Bjarnason „Það eru auðvitað félagsmenn BSRB sem borga þessar pólitísku auglýsingar samtakanna. Forysta BSRB þarf ekki að óttast að hún missi neinar tekjur þótt auglýsingarnar kunni að brjóta í bága við skoðanir þeirra sem greiða félagsgjöldin." Fyrirbyggjandi aðferðir gegn sifjaspellum Besta aðferð okkar er aukin fræðsla til barna af hendi foreldra og uppalenda hvort sem er í leik- skólum, skóladagheimhum eða í skólanum. Ekki koma öll börn við í leikskólum og skóladagheimhum og ekki eru allir foreldrar thbúnir að veita hörnum sínum þá aðstoð sem þau þurfa á að halda vegna of náinna kynna og tengsla við af- brotamennina. Öh böm koma hins vegar við í skólanum. Samtalsformið Fræðslan kemst best th skha í umræðum við börnin. Þannig skapast svigrúm th mannlegra tengsla og þjálfun fyrir þau í að tjá sig. Hlusta á skoðanir þeirra og kynnast því hvernig hvert og eitt þeirra bregst við hinum mismun- andi áreitum í umhverfinu. Með samtalsforminu getum við komið inn á rétt þeirra til að hða vel, rétt- inn th að finna fyrir öryggi, ást, umhyggju og greina á mihi hvað er ást og umhyggja og hvað er kyn- ferðisleg áreitni. Rétt th að segja nei við ástaratlot- um sem þeim líkar ekki, hvort sem um foður, móður eða annan ná- kominn er að ræða. Þau séu ekki KjaUariim Gunnhildur H Axelsdóttir leikskólastjóri skyldug að vera hlýðin og þegja ef þeim líður hla með það. Að þau megi öskra og brjóta þær hlýðni- reglur sem þeim hefur verið inn- rætt til að veija sig. Þau séu ekki skyldug að þegja yfir leyndarmáh þó svo að þau hafi lofað því ef þeim hður hla með það. Þannig náum við th þess að þroska viðhorf þeirra til umhverf- isins og takast á við neikvæða áreitni. Samtalsaðferðin skhar ánægjulegum árangri og hjálpar börnum th að byggja upp sjálfstæð- ar skoðanir og treysta á eigin dóm- greind. Með samtalsaðferð er hægt að ræða ýmis hugtök eins og sið- leysi og hverju það tengist. Skh- greina gott og vont. Hvort hægt sé að sjá á viðkomandi að hann sé vondur maður. Hvort aðeins vond- ir einstakhngar fremji glæp. Hvort einhver sem manni þykir vænt um geti framið glæp. Að segja nei Mikhvægur þáttur í allri um- ræðu er að koma inn á mikhvægi þess að segja nei, hingað og ekki lengra. Þjálfa börn upp í að segja nei. Segja nei við fuhorðna og það sé í lagi. Bömum er kennt það mjög ung- um að forðast vissar hættur í um- hverfinu eins og það að leika sér ekki við umferðargötur og í því sambandi læra þau umferðarregl- umar. Eins er hægt að kenna böm- um hvemig bregðast skuh við kyn- ferðislegri áreitni, ekki bara frá ókunnugum heldur einnig frá ein- stakhngum sem það þekkir og treystir. Böm, sem rætt er við og gefið tækifæri th að tjá sig og spyrja, þroska fyrr hjá sér öryggi og trú á eigin dómgreind en böm sem sjaldan fá tækifæri th um- ræðna við fuhorðna og þá um leið færari að takast á við atvik sem ógnað getur öryggi þeirra. Gunnhildur H. Axelsdóttir „Börn, sem rætt er við og gefið tæki- færi til að tjá sig og spyrja, þroska fyrr hjá sér öryggi og trú á eigin dómgreind en börn sem sjaldan fá tækifæri til umræðna við fullorðna.. Framkvæmdir Seðlabank- ansiEinholti „í banka- ráði sam- þykkti ég þessa fram- kvæmd þar sem það lá fyrir að við- gerðir þyrftu að fara fram á þaki hússins. Eftir aö hafa kynnt mér Olafur B. Thors bankaráðsmaður máhö taldi ég að viðgeröar væri þörf, einnig með hhösjón af því hvemig árar f þjóðfélaginu. Það er samdráttur ahs staöar og tíminn er réttur að ráðast í fram- kvæmdir. Á þessum stað er mjög sérhæft safn um efnahags- og atvinnu- sögu íslendinga sem ég efast um að rúmist í Þjóðarbókhlöðunni, auk þess sem þaö hús er ekki á leiðinni í notkun. Með bættri aðstöðu í Einhoitinu gefst fræðimömium kostur á að vinna þama við góð skilyröi við að kynna sér þennan mikhvæga þátt í okkar sögu. Aðstaðan er fyrir hendi og í siálfu sér fannst mér htiö mál að stuðla að því að hækka húsið og gera aörar breyt- ingar. í raun fmnst mér þetta Mö bestamál. Að menn hafi þarna verið að skapa aðstöðu fyrir Jóhannes Norðdal er alveg fráleitt. Breyt- ingar á húsnæðinu haí'a staðið th lengi en framkvæmdir dregist á langinn. Þegar að því kom að það þurfti hvort sem var að gera við husið þá fannst okkur upplagt að nota tækifærið." A sínum tírna lagöi ég ffam bókun i bankaráði um að ég væri andvígur því að byggja of- an á húsnæði Seðlabankans í Einholtínu, . þarsembóka- ®e,r.. og myntsafn bankaraðsmaður bankans hefur verið th húsa. En ég lagðist: ekki gegn tihögu um að ráðast í endurbætur á hús- næðinu fyrst meirihluti bankar- safnið verða þama Gunnarsson við þakið. IJklega er rétti tírninn til að gera það núna þegar lítið er um atvinnu hjá iönaöarmönn- En ég er mjög efms um thveru þessa bókasafns og tel að það væri betur konhð að taka upp viðræður viö landsbókavörð um aö koma safninu iim í Þjóðarbók- hlöðuna. Ef seija á 50 mhljónir í verkiö vegna þess að húsið liggi undir skeromdum þá er náttúrlega ekk- ert annað að gera en að gera við. Þá geta menn deilt um hvort koma eigi safninu í sama form eða hvort á að nýta þakið betur. Hins vegar er ég bara efins um að það eigi yfirleitt rétt á sér að Seölabankinn sé meö allt þetta bókasafh og þaö myndi nýtast möiuium annars staðar. Það er of lokað þama og fæstir sem vita af því. Því hefði átt að nýta tækifærið og koma safninu fyrir í Þjóðar- bókhlöðuimi."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.