Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 5 Fréttir Jóhannes Jónsson 1 Bónusi: Þung spor að sækja um leyfi til Framleiðsluráðs - segir viðskipti heima á hlaði tíðkast hjá kalkúnabóndanum á Reykjum „Ég hef verið aö íhuga málið. Mér er sagt að eina leiðin fyrir mig sé að fara í Framleiðsluráðið. Það er spurning hvort það verði gefið leyfi á þeim forsendum að þessi vara sé ekki til í landinu. En þetta eru þung spor. Mér flnnst þetta vera eins og að fara til Ora og biðja um leyfi til að flytja inn grænar baunir. Þetta er skítt,“ sagði Jóhannes Jónsson í Bón- usi í samtali við DV, aðspurður um viðbrögð hans við bréfi ríkistoll- stjóra þess efnis að embættið heimil- aði tollafgreiðslu á kalkúnakjöti Jó- hannesar - ef umsögn og staðfesting Framleiðsluráðs landbúnaðarins liggur fyrir og leyfi fæst fyrir inn- flutningnum. Jóhannes sagði valkosti ekki marga í stöðunni varðandi það að fá þau 132 kíló af kalkúnalærum sem Tollgæslan lagði hald á afhent á ný. Ljóst er að ef Jóhannes sækir um leyfi hjá Framleiðsluráði er hann þar með að viðurkenna forræði landbún- aðarráðuneytisins á kalklúnainn- flutningnum - forræði sem bæði hann og Jón Baldvin Hannibalsson viðurkenndu ekki áður og eftir að kjötið kom til landsins. Jóhannes sagði að hann hefði aldr- ei beðið um kjöt í verslanir sínar frá Reykjum í Mosfellsbæ sem er eina búið sem framleiðir kalkúnakjöt. „í gegnum tíðina hefur þetta verið skammtað fyrir stórhátíðir," sagði Jóhannes. „En maður heyrir að fólk hefur sótt þetta mikið þama heim á hlað á Reykjum þar sem bóndinn hefur selt megnið af þessu. Ég veit þetta frá fólki sem segist kaupa þetta af bóndanum heima á hlaði. Við höf- um ekki haft aðstöðu til þess að selja frosna kalkúna í svo miklum mæli. Verslanirnar eru ekki til þess gerðar. En svona kalkúnalæri, eins og við vorum að flytja inn, henta okkur mjög vel. En ef þig langar að hafa kalkún í kvöldmatinn verður þú að kaupa 4-5 kílóa kalkún - ef hann fæst einhvers staðar. En eins og ég þekki það í gegnum tíðina hefur þetta kjöt alltaf verið skammtaö," sagöi Jóhannes Jónsson. -Ótt Jón Guðmundsson, fuglaframleiðandi á kalkúnabúinu Reykjum í Mosfellsbæ: Getur ekki boðið eins kalkúnalæri og Bónus - ekkert launungarmál að við höfum sölu héma heima lika Jón Guömundsson, bóndi að Reykj- um. „Þaö er ekkert launungarmál að við höfum sölu hérna heima. Hér getur fólk verslað lítils háttar við okkur. En hér er allt bókhald og sölu- kassi með virðisaukaskatti. Það hef- ur hins vegar ekkert verið selt í Bón- us héðan því að varan passar ekki fyrir hann. Hann [Jóhannes Jóns- son] má ekkert hafa fyrir því sem hann er að selja til þess að hægt sé að hafa þetta ódýrt,“ sagði Jón Guð- mundsson, kalkúnabóndi að Reykj- um í Mosfellsbæ, í samtali við DV þegar ummæli Jóhannesar í Bónusi voru borin undir hann um að sala á kalkúnakjöti færi fram úti á hlaði. Jón og synir hans eru nánast einu kalkúnakjötsframleiðendurnir í landinu. Af þeim sökum á Jóhannes í Bónusi talsvert undir því að Jón geti ekki annað eftirspurn á „kalk- únakjötsmarkaðnum“. Aðspurður um það hvort nóg kalkúnakjöt væri í framboði sagði Jón: „Já, já. Það hefur aldrei vantað til- fmnanlega. Þessi vöntun, sem menn hafa verið að tala um, hefur byggst á því að þegar verslanirnar taka ein- hvern slatta til að selja fyrir jól verða sumar búðirnar tómar. Þá er kjötið ekki til þar en er kannski í hinni búðinni. Það er ekkert kerfi þannig að menn vísa ekki hver á annan," sagði Jón. Jón segir að kalkúnakjötið sé ekki eingöngu selt í heilu lagi heldur einn- ig sundurhlutað. Hins vegar viður- kennir hann að hann bjóði ekki eins vöru og Bónus er nú að flytja inn - soðin kalkúnalæri. „Það eru margir ágætir kjötiðnað- armenn sem synir mínir hafa sam- band við. Þeir hluta og skera niður þannig að alls konar útgáfur eru til af þessu." - Er þá hægt að kaupa kalkúnalæri líka? „Já.“ - En er hægt að kaupa hjá þér eins vöru, soðin kalkúnalæri, og Bónus hefur reynt að flytja inn? „Nei, ekki matreidda. “ -Ótt Allir bílar í okkar eigu eru yfirfarnir af fagmönnum okkar. Greiðslukjör við allra hæfi. Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga 10-16. BÍW&VÉISLEÐASAIAN< BIFREIÐAR&LANDBÚNAÐARVÉLARFF SMífl' Suðurlandsbraut 14 & Armúla 13, sími 681200 LADA Úrval notaðra bíla Skoda Favorit, ’91, S g., 5 d., rauö- ur, ek. 40.000. V. 350.000. Suzuki Swift ’88, 3 d., grár, ek. 87.000. V. 280.000. Mercedes Benz 280 GE, ’85, 5 d., grænn, ek. 126.000. V. 2.000.000. Lada Samara 1500, ’92, 5 g., 5 d., rauður, ek. 18.000. V. 580.000. Mazda 326LX 1300, ’87, 3 d., blár, ek. 90.000. V. 330.000. Honda Civic GLi ’91, sjalfsk., 4 d., Honda Civic GTi 1600, ’89, 5 g., 4 brúnn, ek. 44.000. V. 1.040.000. d., blár, ek. 78.000. V. 790.000. MMC Lancer GLX ’91, sjálfsk., 5 d., MMC Lancer GLXi ’91, sjálfsk., 5 hvítur, ek. 41.000. V. 980.000. d., rauður, ek. 34.000. V. 1.050.000. Honda Civic ’84, sjálfsk., 3 d., hvít- ur, ek. 134.000. V. 220.000. MMC Lancer GLXi, ’91, 5 g., 4 d., blár, ek. 39.000. V. 980.000. Suzuki Swift, ’90, 5 g., 4 d., grár, ek. 36.000. V. 630.000. Daihatsu Charade, ’90, sjálfsk., 4 d., rauður, ek. 31.000. V. 680.000. Hyundai Scoupe turbo, ’93, sjálfsk., 3d., rauður, ek. 17.000. V. 1.190.000. Suzuki Swift GLi, ’91, 5 g., 5 d., blár, ek. 34.000. V. 680.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.