Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Síða 14
14 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjórl: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Allsherjarsátt Mikill hiti hefur hlaupiö í stjórnarsamstarfið eftir þær uppákomur sem orðið hafa vegna tilrauna til innflutn- ings á dönsku svínakjöti og holle'nskum kalkúnum. Sú deila hefur haft áhrif út í þjóðfélagið vegna þess að al- menningur sér í nýju ljósi og á afar skýran hátt í hvaða ógöngum landbúnaðarmálin eru. Á að vemda innlenda landbúnaðarframleiðslu með bönnum og tollum eða á að gefa neytendum kost á því að kaupa sambærilega vöm erlendis frá fyrir minna heldur en innlenda fram- leiðslan kostar? Þetta er auðvitað gamalkunnugt ágreiningsefni en hefur kristallast með sérkennilegum hætti - að því leyti að stjómarflokkarnir sjálfir og einir takast á í málinu. Hér er ekki verið að bítast um einhver kíló af tiltekinni vömtegund heldur um þá meginstefnu sem gilda skal í landbúnaðar- og innflutningsmálum. Annarsvegar er verið að vemda bændastéttina, sveitimar og þá fram- leiðsluatvinnugrein sem þar er stunduð. Hinsvegar er verið að berjast fyrir lægra vömverði og hag neytenda. Bæði þessi sjónarmið hafa auðvitað nokkuð til síns máls. En í ljósi þeirra efnahagsþrenginga sem yfir ganga og með vísan til marggefmna yfirlýsinga um uppstokkun í afskiptum ríkisvaldsins af atvinnustarfsemi, hefur þeim kröfum vaxið ásmegin að landbúnaðurinn sé ekki stikkfrí frekar en aðrar atvinnugreinar. Segja má að allur iðnað- ur hafi lagst af hér á landi vegna innflutnings á iðnaðar- vamingi sem íslensk framleiðsla getur ekki keppt við. í viðskiptalífmu hafa menn mátt horfa upp á verslunar- ferðir tugþúsunda íslendinga án þess að fá rönd við reist. í sjávarútvegi verða menn að sætta sig við það verð sem býðst fyrir aflann á fiskmörkuðunum. Núverandi ríkisstjóm hefur skorið upp herör gegn sjóðasukkinu sem á sínum tíma varð til vegna þeirrar viðleitni stjómvalda að dæla peningum 1 óarðbæra starf- semi. Hvaða rök hníga að því á sama tíma, og í öllum þeim miklu umskiptum sem em að verða í þjóðlífmu og þjóðar- búinu, að landbúnaðurinn njóti áfram sérstakrar vemd- ar af hálfu hins opinbera - hvort heldur það snýr að verðlagi, offramleiðslu eða framboði og frjálsu vah neyt- enda? Enda þótt við viljum sjálfsagt flest að landið sé byggt og landbúnaður lifi, hljóta þær kröfur að vera rétt- mætar og tímabærar að stjórnvöld og stjórnmálamenn horfist í augu við þá staðreynd að hvorki landbúnaðinum né heldur neytendum er greiði gerður með boði og bönn- um. Það er hðin tíð. Forsætisráðherra segir að það sé sátt um það í Sjálf- stæðisflokknum að landbúnaðurinn lagi sig að þörfum neyslunnar. Það kann að vera rétt þótt hægt gangi. Þær sættir em hinsvegar með þeim hætti að neytendum og skattgreiðendum er gert að greiða á annan tug mihjarða króna á ári hveiju í margvíslegu formi. Ekki fer heldur á milli mála að hvaða og hverskonar sátt sem einn stjórn- málaflokkur gerir innan sinna vébanda verður sú sátt að sjálfsögðu að vera í samræmi við vilja kjósenda - eigi hún að takast. Það er mikh einfeldni ehegar þrákelkni að halda því fram að sú sátt, sem formaður Sjálfstæðisflokksins vísar th, sé viðunandi lausn. Rás atburðanna, hvort heldur sem er af thvhjunum, mistökum eða ótrúlegu ráðaleysi stjóm- valda, hefur leitt th þess að viðbrögð almennings em sterk og ótvíræð. Landbúnaðarmálin þarf að stokka upp á nýtt. Allir vilja vonandi lifa í sátt við bændur en sú sátt verður að vera reist á grundvelli ahsherjarhags- muna. EUert B. Schram MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 ! /l.'in rt.’í 1 Si'S'l 3:T0 : • - „Með flokknum hefur slegist i för sá hluti kaupmanna sem kyrkti smákaupmanninn með stórverslunum og gerði næstum engum manni fært að kaupa nálabréf og mjólk nema hann ætti bíl.“ Er raf magnskapla- mjólk lausnin? Einn er sá flokkur hér á landi sem hefur einhvern veginn ruglast í tímaskyninu og tekið upp þau læti sem áður þóttu góð stjórnmál á þessu landi en juku flónsku þjóð- arinnar með því aö boða að ekki færu saman hagsmunir þeirra sem búa á möhnni og á mýrlendinu. Með flokknum hefur slegist í for sá hluti kaupmanna sem kyrkti smákaupmanninn með stórversl- unum og gerði næstum engum manni fært að kaupa nálabréf og mjólk nema hann ætti bíl. Nú eru runnar svo miklar sögur af bændum undan rifjum flokksins að maður gæti haldið að þeir lægju heima og gerðu fátt annað en að taka við gírógjafaseðlum frá rík- inu. Látið er í það skína að þeir sem áður voru lyftistöng þjóðarinnar séu orðnir baggar á khpptu, kembdu og þvegnu fákunum á stöllunum á Reykjavíkursvæðinu. Rússaþorskur í gegnum Keflavíkurflugvöll Mikið má vera ef sjómenn verða ekki bráðum taldir vera drjólar sem standa dósentum fyrir-Jirifum og það verði að flytja inn Rússa- þorsk í gegnum Keflavíkurflugvöll á sama hátt og kalkúnalæri undir vemdarvæng einhvers mesta kalk- únhana sem gaggað hefur með spekingslegum þögnum og lágu flugi í fjölmiðlum og stjómmálum á síðustu áratugum þessarar aldar. Mikið má vera ef Mjólkurárvirkj- unin og framleiðslugeta hennar á rafmagni hefur ekki stigiö vissum stjórnmálamönnum til höfuðs af ákveðnum landskjálka og hún eigi jafnvel þátt í því að kalkúnalæri og Rússaþorskur flæða inn í gerv- aht bónus- og hagkaupskerfi lands- ins. Auðhumla samtímans Nú skal ég skýra mál mitt nánar: KjaUariim Guðbergur Bergsson rithöfundur draumurinn rættist ekki tók ennþá betra viö í óskheiminum, þökk sé rafmagnsveitunni sem hann ætlaði að leggja til Hollands, Evrópu og alheimsins eftir köplum sem áttu að vera handunnir á Reykjavíkur- svæðinu. Rafmagnskaplamjólk Ég veit ekki hvað það er í íslensku þjóðlífi sem veitir sumum mönnum meiri rétt en öörum til þess að vaöa í skýjum án þess að þess sé krafist að þeir komi nokkurn tímann nið- ur á jörðina nema þegar þeir fara ofan í hana. Þeir eru ekki einu sinni neyddir til þess af verkalýðsfélög- unum með hinu margumtalaða „handafli" heldur virðist liggja úr skýjunum opin og dularfuh leið fyrir þá inn í kjama stjórnkerfis- „Mikiö má vera ef sjómenn verða ekki bráðum taldir vera drjólar sem standa dósentum fyrir þrifum og það verði að flytja inn Rússaþorsk í gegnum Kefla- víkurflugvöll á sama hátt og kalkúna- læri.. Einn er sá banki eða svarti kast- ali sem stendur við Arnarhól og stjórnmálafræðingar okkar segja að í honum standi á guhnum bási Auðhumla samtímans. Hún lætur með aðstoð kastalabúans streyma úr spenum sínum margar nærandi bunur út um ísland. Þess vegna er að innan tíðar verður landbúnaður afnuminn en í staðinn fá íbúarnir að drekka þá víðfrægu, upplýsandi og hagfjáraukandi mjólk sem kast- alabúinn lofaði, á ráðherratíð sinni, að við fengjum ómælda í engu öðru en risastóru álmáli þeg- ar hann stofnaði nýtt álver á hveiju horni landsins. Þegar álvera- ins. Aftur á móti þykist ég vita að enginn á jörðu niðri geti lifað á þeirri rafmagnskaplamjólk sem rafmangskaplamj ólkurmálaráð- herrann boðaöi sem framtíöarfæðu jafnt fyrir karlmenn sem Helgu í öskustónni. Þetta gerðist fyrir tíma þeirra lausnarorða sem felast í skinku og kalkúnalærum. Auðvitað er skink- an og lærakjötið framlenging á kaplamjólkurhagfræðinni sem varð hvorki bændum né öðrum landslýð th hagsbóta en síst jafnað- arstefnu Alþýðuflokksins. Guðbergur Bergsson Skoðanir annarra ÞJóðarhagsmunir „Þjóöarhagsmunir krefjast þess, að núverandi stjórnarflokkar haldi samstarfi sínu út þetta kjör- tímabh.... Vel má vera, að frekari breyting á verka- skiptingu innan ríkisstjómarinnar geti verið gagn- leg. En það er er enginn annar raunhæfur kostur fyrir hendi. Þess vegna eiga formenn stjórnarflokk- anna að taka höndum saman um að koma dehumál- unum um landbúnaðarmáhn í ákveðinn farveg og einbeita sér síðan að stóru málunum.“ Úr forystugrein Mbl. 12. sept. Vímulaus stjjórnmál „Viðeyjarvíman er nú sem óðast að renna af ráð- herrunum og grámyglulegur veruleikinn er að taka við.... „Cold turkey“ eöa kaldir kalkúnar er notað yfir ákveðið ástand sem fólk lendir í þegar langvar- andi víma rennur af því. Viðeyjarviman er einmitt að renna af ríkisstjóminni og fráhvarfseinkennin láta ekki á sér standa. Kaldir kalkúnar yfirskyggja nú allt annað á stjórnarheimhinu, en enginn veit hver niðurstaðan verður á endanum þegar afeitrun- inni er lokið og vímulaus stjórnmál ná á ný fótfestu." Garri í Tímanum 21. sept. Bognar en brotnar ei „Andstæðingar Alþýðuflokksins halda því stund- um fram, að flokkurinn sé óttasleginn í helgreipum Sjálfstæðisflokksins, og þori sig hvergi að hræra af ótta við að hrökkva út úr ríkisstjórn. En hvað með landbúnaðarmál síðustu vikna? Hefur Alþýðuflokk- urinn kiknaö í hnjánum undan samstarfsflokknum í þeim málum? Þvert á móti.... Þar hélt formaður flokksins fram hagsmunum neytenda með svo sterk- um hætti, að það hrikti í reiða stjórnarskútunnar; meira að segja Morgunblaðið fann hjá sér knýjandi þörf th að skrifa leiðara th að draga úr spennunni." Úr forystugrein Alþbl. 21. sept.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.