Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1993, Page 4
20 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1993 - Sýningar Art-Hún Stangarhyl 7, simi 673577 I sýningarsal og vinnustofum eru til sýnis og sölu olíumálverk, pastelmyndir, grafik og ýmsir leirmun- ir. Opið erfrá kl. 12-18. Ás, leirsmiðja, keramikgallerí, Ási, Mosfellsbæ Opið virka daga kl. 10-17 og laugardaga kl. 14-17. Lokað sunnudaga og mánudaga. Ásmundarsafn Sigtúni, simi32155 Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina Náttúr- an í list Ásmundar Sveinssonar. Safnið er opið kl. 10-16 alla daga. Ásmundarsalur Freyjugötu 41 Torfi Ásgeirsson myndlistarmaður sýnir málverk. Sýningin stendur til sunnudagsins 24. október og er opin daglega kl. 14-22. Borgarkringlan- Ijósmyndasýning Ljósmyndarinn Jóhannes Long sýnir barnaljós- myndir út októbermánuð. Gallerí 11 Skólavörðustíg A morgun kl. 16 verður opnuð sýning á tækifæris- verkum eftir Steingrím Eyfjörð og Lars Emil Árna- son. Sýningin er sölusýning og stendur í tvær vikur. Gallerí Borg Færeyski listamaðurinn Zacharias Heinesen sýnir um tuttugu málverk. Opið virka daga kl. 12-18 og um helgar kl. 16-18. Henni lýkur 24. okt. Gallerí Fold Austurstræti 3 Opið er í Gallerí Fold mánudaga til föstud. kl. 10-18 og laugard. kl. 10-16. Galleríið Hjá þeim Skólavörðustig 6b. Hjalti Einar Sigurbjörnsson hefur opnað sýningu á handþrykktum tréristum. Á sýningunni eru 8 verk og ber sýningin yfirskriftina Vörður. Sýningin stendur til 26. október og er opin mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 10-14. Gallerí Hulduhólar Arngunnur Ýr sýnir ný verk unnin á árinu 1993. Kallast verkin Himnar og eru olíumálverk unnin ýmist á striga, léreft eða i tré. Alls eru 26 verk á sýningunni sem er opin kl. 16-19. Galleri List Sklpholti Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn. Opið daglega kl. 10.30-18. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9 Birgir Björnsson sýnir málverk. þetta er önnur einkasýning Birgis í Galleri Sævars Karls og þer hún heitið „Nýjar myndir". Sýningin er opin á verslunartima, á virkum dögum kl. 10-18 og á laugardögum kl. 10-14. Galleri Úmbra Amtmannsstíg 1 Ása Ölafsdóttir sýnir myndir, unnar með bland- aðri tækni. Þetta er tólfta einkásýning Ásu, sem auk þess hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýning- um hér heima og erlendis. Gerðuberg Finna B. Steinsson hefur opnað myndlistarsýn- ingu i Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Sýn- ingin stendur til 14. nóv. Hún er opin frá kl. 10-22 mánud. til fimmtud. og kl. 13-17 föstud. til sunnud. Hafnarborg Strandgötu 34 Þar stendur yfir sýning á verkum I eigu stofnunar- innar. Sýningin er haldin í tilefni af þvi að 10 ár eru liðin frá stofnun Hafnarborgar. íslenska húsið Fákafeni9 Nú stendur yfir samsýning fjölda listamanna á keramiki, gleri og myndlist. Opið alla virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-14. Kjarvalsstaðir Á morgun kl. 16 verður opnuð yfirlitssýning á verkum eftir franska myndhöggvarann Auguste Rodin. Sýningin, sem kemur frá Rodinsafninu i Paris, hefur að geyma 62 höggmyndir og 23 Ijós- myndir af listamanninum og umhverfi hans. Sýn- ingin stendur til 5. desember. Nýlistasafnið Vatnsstig Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Elisabet Norseng og Pétur Magnússon sýna í Nýlistasafninu. Sýn- ingin er opin alla daga frá kl. 14-18 og henni lýkur sunnudaginn 24. október. Mokkakaffi v/Skólavörðustig Þar stendur yfir allóvanaleg sýning á Ijósmyndum af likamsræktarkonum eftir Bill Dobbins sem bú- settur er f Los Angeles í Kalifornlu og talinn i hópi færustu myndasmiða á sinu sviði. Sýning- unni lýkur 7. nóvember. Nesstofusafn Neströð, Seltjarnarnesi Safnið opið samkvæmt umtali. Upplýsingar i sima 611016. Norræna húsið Þar stendur yfir sýning á listaverkum úr Skagen- safninu á Jótlandi. Á sýningunni eru verk eftir Önnu og Michael Ancher, Holger Drachmann, Viggo Johansen, P.S. Kroyer, Carl Locher, Laurits Tuxen, Viggo Johansen og Carl Madsen. Sýning- unni lýkur sunnudaginn 24. október. Hún er opin daglega kl. 14-19. Nönnukot, kaffihús Hafnarfirði Þóra Einarsdóttir og Yoko Þórðarson halda sýn- ingu á verkum sínum í kaffihúsinu Nönnukoti. Sýningin stendur til 5. nóvember. Sýningar Katel Listhúsinu í Laugardal Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda lista- menn: málverk, grafík og leirmunir. Listasaf n ASÍ Grensásvegi Á morgun kl. 16 verður opnuð sýning á grafíkverk- um eftir Sigrid Valtingojer. Sýningin er 10. einka- sýning hennar en auk þess hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin er opin daglega kl. 14-19, lokað á miðvikudögum. Sýningin stendur til 7. nóvember. Listasafn Einars Jónssonar Njarðargötu, sími 13797 Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga. Inngangur frá Freyjugötu. Listasafn ísiands Yfirlitssýning á grafíkmyndum Braga Ásgeirssonar stendur nú yfir á efri hæð Listasafnsins. Er þetta fyrsta sýningin í nýjum flokki sérsýninga sem Lista- safnið hyggst standa fyrir á næstu árum. Á sýning- unni verða u.þ.b. 80 þrykk frá 1952 til 1993. Lista- safn Islands er opið daglega nema mánudaga kl. 12-18. Sýningunni lýkur 31. október. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 Þar stendur yfir sýning sem ber heitið Hugmynd- Höggmynd úr vinnustofu Sigurjóns Ólafssonar. Úrval verka frá ólíkum tímabilum i list Sigurjóns hefur verið sett upp. I tilefni þess að fimm ár eru liðin frá vigslu Sigurjónssafns verður ókeypis að- gangur að safninu allar helgar i október milli kl. 14 og 17. Sérstök leiðsögn um safnið er á sunnu- dögum kl. 15 fyrir börn og foreldra. Sýningin mun standa fram á vor og er sérstaklega hönnuð með skólafólk í huga. Safnið er opið á laugardögum og sunnudögum kl. 14-17 og er kaffistofan opin á sama tíma. Listhúsí Laugardal Engjateigi 17, s. 680430 Sjofn Har. Vinnust. er opin virka daga kl. 13-18 og kl. 11-16 laugardaga eða eftir samkomulagi. Guðbjörn Gunnarsson (Bubbi) sýnir höggmynd- ir. Sýningin stendur til 23. október og er opin alla daga kl. 10-18 nema sunnudaga kl. 14-18. Listinn gallerí-innrömmun Síðumúla 32, sími 679025 Uppsetningar eftir þekkta íslenska málara. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Listasafn Háskóla íslands iödda.sími 26806 Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Að- gangur að safninu er ókeypis. Listmunahúsið Hafnarhúsinu, Tryggvagötu Á morgun kl. 16 opnar Helga Magnúsdóttir sýn- ingar i Listmunahúsinu og jafnframt i Listmuna- húsi Öfeigs, Skólavörðustíg 5. i Listmunahúsinu sýnir tíun olíumálverk og í Listmunahúsi Ófeigs sýnir hún pastelmyndir, vatnslit og skissur. Verkin er öll unnin á sl. tveimur érum. Sýningarnar standa til 7. nóvember og er Listmunahúsið, Tryggva- götu, opið virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18. Listmunahús Ófeigs er opið virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 11-16. Portið Strandgötu 50, Hafnarfirði. Berglind Sigurðardóttir sýnir olíumálverk. Sýning- in er opin alla daga nema þriðjudaga frá ki. 14-18 til 31. október. Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74, sími 13644 Opnuð hefur verið sýning á vatnslitamyndum Ásgrims Jónssonar i safni hans við Bergstaða- stræti. I vetur verður safnið opið á laugardögum og sunnudögum kl. 13.30-16. Lokað i desember og janúar. Sjóminjasafn islands Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 654242 Sjóminjasafnið er opið alla daga kl. 13-17. Snegla, listhús Grettisgötu 7, v/Klapparstig Þar stenaur yfir myndlistarsýning Ernu Guðmars- dóttur. Sýningin er opin á opnunartima Sneglu mánudaga til föstudaga kl. 12-18, laugardaga kl. 10-14. Sýningin stendur til 23. október. Stöðlakot Bókhlöðustig6 Nú stendur yfir sýning Ólafar Erlu Bjarnadóttur. Hún sýnir listmuni, unna í steinleir og postulín. Sýningin stendur til 31. október og er opin frá kl. 14-18 virka daga. Póst- og simaminjasaf nið Austurgötu 11, Hafnarfirði, simi 54321. Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar Hverf isgötu 59, simi 23218 Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmyndir, mál- verk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartima þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstu- daga kl. 12-18 og á laugardögum kl. 12-16. Þjóðminjasafn islands Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 12-17. Minjasafnið á Akureyri Aðalstræti 58, simi 24162. Opið daglega kl. 11-17. Listasafnið á Akureyri Opiö alla daga kl. 14-18. Lokaö mánudaga. Helga sýnir oliumálverk, pastel- myndir, vatnslit og skissur. listxnimahúsið: Olíumálverk ogpastelmyndir Helga Magnúsdóttir opnar sýning- ar í Listmunahúsinu, Tryggvagötu 17, á laugardag og jafnframt í List- munahúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. í Listmunahúsinu sýnir Helga olíu- málverk og í Listmunahúsi Ófeigs sýnir hún pastelmyndir, vatnsht og skissur. Verkin eru öll unnin á síð- astliðnum tveimur árum. Gallerí 11: Riddaraímynd gegn ógnvekjandi hlutum Norræna húsið: Skagenmál- ararnir - síðasta sýningarhelgi Nú eru síöustu forvöð að sjá sýn- inguna á verkum Skagenmálaranna, sem staðið hefur yfir í sýningarsöl- um Norræna hússins frá 23. sept- ember. Sýningunni lýkur á sunnu- dag. Á sýningunni í Norræna húsinu eru verk eftir Önnu og Michael Anc- her, Holger Drachmann, Viggo Jo- hansen, P.S. Kreyer, Carl Locher, Laurits Tuxen, Viggo Johansen og Carl Madsen. Skagensafnið á Jót- landi lánaði myndimar. Sæborg í Garði: Gunnar Öm með mál- verkasýningu Gunnar Öm myndlistarmaður opnar málverkasýningu á morgun kl. 14 í boði Gerðahrepps. Sýningin verður haldin í félagsheimilinu Sæ- borgu í Garði. Sýningin verður opin mánudag - fóstudag kl. 18-21 og laug- ardag og sunnudag kl. 14-21. Gallerí einn einn opnar sýningu á tækifærisverkum eftir Steingrím Eyíjörð og Lars Emil Ámason. Stein- grímur sýnir 32 teikningar þar sem hann teflir riddaraímyndinni gegn hlutum sem fólki stafar ógn af; svip- uð ógn og James Bond stafaði af dr. No, en tilvitnanir úr samnefndri mynd em á verkunum. Myndaserían sýnir tvær samfellur þar sem annars vegar er leitað fanga í vitundariðnað- inum og hins vegar í persónulegri upplifun. Þessar samfellur endur- taka sig á sama hátt í öllum 32 teikn- ingunum. Lars Emil sýnir verk af ólíkum toga. Sýningin er sölusýning og stendur í tvær vikur. Kjarvalsstaðir: Merkustu listaverk sem komið hafa í húsið „Þetta er yfirlitssýning á verkum Auguste Rodin sem tahnn er vera einn af stórmennum listasögunnar. Á sýningunni verða 62 höggmyndir og 23 ljósmyndir sem sýna umhverfi hans og verk. Sýningin kom hingað til lands í stórum gámi sjóleiðina frá Antwerpen," segir Gunnar Kvaran, forstöðumaður Kjarvalsstaða, en hingað til lands er komin sýning á höggmyndum og ljósmyndum Aug- uste Rodin sem tryggð eru fyrir tvo og hálfan milljarð. Gunnar var spurður um álit sitt á því að hýsa svo mikil verðmæti aö Kjarvalsstöðum. „í rauninni sjáum við þetta ekki í slíku samhengi. Fyrir okkur eru þetta fyrst og fremst merk- ustu listaverk sem hafa komið inn í húsið og við berum mikla virðingu fyrir þeim sem slíkum. Þetta eru samt gífurleg verðmæti sem hér er um að ræða,“ segir Gunnar. Á sýningunni verða meðal annars heimsþekkt verk eins og Hugsuður- inn, Hliðið að víti, Kossinn og Balzac. -em Grafíksýning í Iistasafni ASÍ {Listasafni ASÍ verður opnuð sýn- ing á grafíkmyndum eftir Sigrid Valt- ingojer. Þetta er tíunda einkasýning hennar auk þess sem hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga. Sigrid er einn af okkar þekktustu grafikhstamönnum. í verkum sínum lýsir hún á sterkan og frumlegan hátt áhrifum sínum frá íslensku landslagi. Gunnar Kvaran, forstöðumaður Kjarvalsstaða, og Kristín Guðnadóttir safn- vörður ásamt einu listaverki Rodins. DV-mynd ÞÖK Stöðlakot: Steinleir og postulín Nú stendur yfir sýning Ólafar Erlu Bjarnadóttur í Stöölakoti við Bók- hlöðustíg 6. Ólöf Erla sýnir listmuni, unna í steinleir og postulín. Munim- ir eru ýmist renndir eöa mótaðir og margs konar brennslutækni notuð. Má þar nefna oxidorandi brennslu, saltbrennslu og svokallaða holu- brennslu. Flestir munirnir era nytja- hlutir, ýmist seríur eða stakir hlutir. Ólöf Erla sýnir mestmegnis nytja- hluti í Stöðlakoti. Sigrid Valtingojer er ein af okkar þekktustu grafíklistamönnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.