Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993 13 DV gerir verðkönnun í mötuneytum framhaldsskólanna: Neytendur Hundrað króna verðmunur á heitri samloku - kostar 210 kr. í MH en 110 kr. í MS Það fer drjúgur peningur í matar- kaup hjá framhaldsskólanemum, einkum ef þeir versla daglega í mötu- neytum skólanna í stað þess að smyija heima. DV fór á stúfana og gerði verðsamanhurð í mötuneytum fjögurra framhaldsskóla í Reykjavík; MS, MR, MH og Versló, og komst að því að þar getur munað heilum hundrað krónum á heitri samloku með skinku, osti og ananas og helm- ingsverðmunur er á '/. 1 mjólk. Mismunandi samlokur Hvað samlokurnar áhrærir þá eru þær ýmist aðkeyptar eða smurðar á staönum og fer verðið auðvitað eftir því. MS er svolítið sér á báti því þar kaupa nemendur brauðið, áleggið og smjörið sitt í hverju lagi, laga sína eigin samloku og hita hana sjálf. Það skýrir e.t.v. lága verðið. Næstmesti verðmunur reyndist vera á rúnstykki með osti. Það var líka ódýrast í MS (70 kr.), þar sem nemendur smyrja það sjálfir, en dýr- ast í MH (130 kr.). Kleinuhringir í sókn AUs staðar voru kleinuhringir og snúðar á boöstólum og sums staðar annað bakkelsi en Versló var þó einn um að selja Domino’s pizzur. í heildina var verðmunurinn í mötuneytunum á bilinu 20-91%, minnstur á snúðum og jógúrt en mestur á heitum samlokum. Af níu vörutegundum voru MR og Versló með hæsta verðiö í fjórum tilfellum, MH í þremur en MS í tveimur. í sex tilvikum var MH með lægsta verðið, MS í þremur, MR í einu tilvikinu en Versló aldrei. -ingo Mikill munur getur verið á þvi hvað nemendur framhaldsskólanna þuría að greiða fyrir mat í skólanum. Verðmunur einstakra vörutegunda er á bilinu 20-91%. Óhentugar mjólkurumbúðir „Það kemur vel til greina af okkar hálfu að auka fjölbreytni mjólkur- umbúðanna en við höfum ekkert svigrúm til að bjóða þá fjölbreytni sem við vildum nema það komi niður á vöruverði," sagði Baldur Jónsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Mjólk- ursamsplunnar, í samtali við DV. Mikið hefur verið hringt á neyt- endasíðuna og kvartað yfir mjólkur- lítraumbúðunum hér á höfuðborgar- svæðinu. Fólk á erfitt meö að opna þær og segir að sóðaskapur fylgi. „í mötuneytum er starfsfólkið með puttana ofan í fernunni til að opna hana á milli þess sem þaö tekur við peningum. Svo hellist mjólkin út um allt ef feman er full því umbúðirnar gefa eftir,“ sagði t.d. langþreytt kona sem hringdi. Baldur sagði að þeir sæju sér ekki fært að selja mjólkina í dýrari um- búðum án þess að geta hækkaö verð- iö en því hefur verið hafnað þar sem verðlag mjólkur er ekki fijálst. Hann benti þó á að í könnun sem gerð var á þeirra vegum voru 80% neytenda á höfuðborgarsvæðinu ánægð með umbúöirnar og gamalt fólk ætti t.d. auðveldara með að opna þessar nýju hymur en gömlu femumar. -ingo kaupauki -sparaðu með kjaraseðlum Kjaraseðillinn gildir í versluninni sem Itilgreind er hér til hliðar. Seðillinn Igildir sem 25% afsláttur af Alnó | eldhúsinnréttingum | Þessi seðill gildir til 15. nóvember 1993 afsláttur af öllum Alnó eldhús- Kjaraseðillinn gildir í versluninni sem tilgreind er hér til hliðar. Seðillinn innréttingum ef I gildirfynreitteintak . _ - . 1 af vörunni. pantað er fyrir i 15, nóv. n.k. ■ Þessiseð,"g,ldir ELDHUS Sími 814448 Grensásvegi 8 I 30. nóvember 1993 STÚDÍÓ myndin"} Grettisgötu 46 - S. 27744 og 624344 Barnamyndir Brúðarmyndir Fermingarmyndir Fjölskyldumyndir Tilboð: Kr. 11.500 | (3500 kr. afsláttur af venjulegu verði, kr. 15.000, gegn framvísun þessa miða) Myndataka: 12 myndir (9x13); 3 myndir (13x18); 2 myndir (20x25) Myndatöku þarf að panta og staðfesta fyrir 30. nóvember 1993 J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.