Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993 Útgáfufélag: FRjALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblaö 180 kr. m/vsk. Vaxandi sveiflur Kosningaúrslitin í Kanada sýna ótrúlega sveiflu. 170 þingmanna íhaldsflokkur, sem haföi meirihluta á þingi, situr eftir meö tvo þingmenn, er mega ekki kalla sig þing- flokk. Tveir nýir þingflokkar fengu rúmlega 50 þingmenn hvOT og Frjálslyndir rúmlega tvöfölduöu þingstyrk sinn. í Kanada eru einmenningskjördæmi, sem magna fylg- issveiflur. Meðan íslendingar búa við hstakjördæmi, má ekki búast við kanadískum úrshtum hér á landi. En sveiflur hafa líka vaxiö hér á landi og veröa ekki minni í náinni ffamtíð, ef miðað er við skoðanakannanir. Ekki er lengur deht um nákvæmni skoðanakannana hér á landi. Nokkrir aðilar kanna skoðanir almennings og nota nokkrar aðferðir til þess. í öhum thvikum sýna þessar kannanir sömu sveiflur í fylgi flokkanna. Stærð- fræðhega eru þessar sveiflur greinhega marktækar. Kannanir eru hins vegar ekki kosningar. Margir kjós- endur hafa ekki gert upp hug sinn, þegar skoðanir eru kannaðar, en eru búnir að því, þegar þeir standa í kjör- klefanum. Margir kjósendur skipta um skoðun við lok kjörtímabhs. Spághdi kannana er því takmarkað. Þær eru þó einu spámar, sem við höfum. Samkvæmt þeim hafa stjómarflokkamir tveir glatað trausti í sam- starfinu. Fylgi þeirra mæhst mun minna en í kosningun- um, fomstumenn þeirra hafa persónulega htið fylgi og búa raunar sumir við meiri óvinsældir en vinsældir. Raunar er aðeins einn foringi í stjómarhðinu, sem nýtur trausts meðal kjósenda. Það er Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra, sem hefur verið í hlutverki eins konar stjómarandstöðu í stjóminni og er þar ger- samlega einangruð. Hún nýtur ekki trausts samráðherra. Verst er staða Alþýðuflokksins og hefur enn versnað við ráðherraskipti flokksins. Th sögunnar em komnir tveir skrípakahar, sem fæla kjósendur frá sér og flokkn- um í hvert skipti, sem þeir sjást á skjánum, enda era þeir af tegundinni, sem ekki nennir að kynna sér mál. Athyghsvert er, að í könnunum blómstra flokkar og leiðtogar, sem sárasjaldan sjást á skjánum. Steingrími og Hahdóri og Ingibjörgu Sólrúnu bregður þar fýrir svo sem einu sinni í mánuði, en flokkar þeirra, Framsókn og Kvennalisti, em að nálgast meirihluta í könnunum. Á sama tíma em ráðherrar ijármála og utanríkis- mála, hehbrigðismála og landbúnaðar, svo og forsætis- ráðherra nánast daglega í stofum almennings. Það er greinhega tvíeggjað að vera á skjánum. Slíkt þarf að vanda og hafa í hófi eins og annað góðgæti 1 lífinu. Jarðvegur hefur um langt árabh verið góður fyrir nýjar stjómmálahreyfingar, Sjaldnast hafa þær orðið langlífar, enda er auðveldara að sigra í einni onrustu en að halda úti hehu stríði, kosningar eftir kosningar. Að þessu sinni era engar slíkar hreyfingar á ferð. Skilin milh stjómmálaflokka era orðin dauf og áhugi fólks á þeim hefur minnkað. Landsfundir og flokksráðs- fundir stjómmálaflokka era að verða eins konar limbó, sem er í htlu samhengi við raunveruleika þjóðarinnar um þessar mundir. Hinum óákveðnu Qölgar stöðugt. í þessu ástandi ætti að vera betra að fiska en oft áð- ur. Góð færi era fýrir nýja flokka og leiðtoga eða nýupp- gerða flokka og leiðtoga eins og andrúmslofdð er núna. Og ahs ekki er fráleitt, að þjóðin vhji eitthvað annað en núverandi stjómmálaþvælu og sérhagsmunaræktun. íslenzk stjómmál hefðu gott af kosningasveiflum að kanadískum hætti. Limbó hðandi stundar hefur gengið sér th húðar og ffamtíðin er opin upp á gátt. Jónas Kristjánsson Áaðstækka Reykjavík? í lok nóvember eiga íbúar á höf- uðborgarsvæðinu að greiða at- kvæði um það hvort mynda eigi eitt gríðarstórt sveitarfélag sem næði frá Seltjamarnesi upp í Hval- fjörð og rúma um helming þjóðar- innar. Ekki er lagt til að sveitarfé- lögin til suðurs sameinist að neinu marki. Þannig er Garðabæ og Bessa- staðahreppi ætlað að sameinast, en Kópavogur og Hafnarfjörður eiga að haldast óbreyttir. Sameining sveitar- félaga löngu tímabær Sveitarfélög á íslandi hafa lengi verið alltof mörg og smá. Kröfur nútímans til þjónustu em það miklar að fámennum sveitarfélög- um er um megn að uppfylla þær. Það hefur verið heldur nöturlegt að fylgjast með því þegar lítil sveit- arfélög hafa verið að rembast við að byggja íþróttahús, heilsugæslu- stöðvar og skólabyggingar fyrir hundmð miiljóna króna, þar sem ræstingarkostnaðurinn einn nem- ur stómm hluta útsvarstekna. Um skeið var talað um að taka upp svokallað þriðja stjómsýslu- stig hér á landi og mynda öflugar landshluta- eða héraðsstjómir. Með því mód hefði verið hægt að dreifa völdum í þjóðfélaginu og draga verulega úr þeirri miðstýr- ingu sem við búum við nú. Gömlu stjómmálaflokkarnir lögðust eindregið gegn þessari hug- mynd, enda hefði hún líklega skert völd og áhrif þeirra verulega. í stað þess hefur verið vahn sú leið að sameina sveitarfélög um allt land og reyna þannig að ná fram stærri einingum. Þetta er mun erfiðari leiö að sama marki en viðheldur betur völdum gömlu flokkanna. Sérstaða Reykjavíkurborgar í hrifningarvímunni yfir samein- ingu sveitarfélaga hefur mönnum sést yfir kjama málsins, þegar fiall- %ð er um vandamál sveitarfélag- anna, en það er sérstaða Reykjavík- urborgar. Allt frá stríðslokum hef- ur höfuðborgin borið ægishjálm yfir önnur sveitarfélög í landinu í krafti stærðar sinnar. Reykjavík- urborg getur gert hluti, sem ekkert annað sveitarfélag ræður við. Byggt perlur og ráðhús og flókin samgöngumannvirki, sem kosta milljarða króna. Þess vegna vaknar sú spuming hvers vegna í ósköp- unum vom ekki sett sérlög um Reykjavík og borginni haldið utan við sveitastjómarlögin og lögin um tekjuskiptingu milh ríkis og sveit- arfélaga, í stað þess að hafa hana undir sömu lögirni og smáþorp úti á landi. Eins og málin hafa þróast hefði verið miklu skynsamlegra aö KjaUaiinn Júlíus Sólnes fyrrv. umhverfisráðherra láta Reykjavík lúta sérlögum og hafa síðan sérstök sveitarstjómar- lög fyrir önnur sveitarfélög í land- inu. Þannig hefði náðst miklu betri jöfnuður milli sveitarfélaganna og raunhæfari tekjuskipting milli rík- is og þeirra. Með því að leggja Mosfellsbæ, Seltjamames, Kjalameshrepp og Kjósahrepp undir Reykjavík er verið að auka þetta misræmi enn frekar. Hefði þá ekki verið betra að reyna heldur að búa til þrjú stór sveitarfélög á höfuðborgarsvæð- inu, þ.e. sameina Seltjamames og Reykjavík að EUiðaám, sameina Reykjavík austan Elhöaáa Mos- fehsbæ, Kjalamesi og Kjós og sam- eina svo Hafnarfjörð, Garðabæ, Bessastaðahreppi og Kópavogi í þriðja sveitarfélagið á höfuðborg- arsvæðinu. Seltirningar segja nei Sú tillaga, sem okkur Seltiming- um er ætlað að taka afstöðu til, er út í hött. Þessi sameining er óskyn- samleg og okkur til tjóns. Seltjam- ameskaupstaður stendur mjög traustum fótum. Við höfum þá sér- stöðu um fram flest önnur sveitar- félög í landinu að við viljum ekki stækka. Við teljum að nesið sé full- byggt. Við höfum lokið við að byggja allar þjónustubyggingar, sem þörf er á, fyrir íbúana og rekst- ur bæjarfélagsins er eins hagstæð- ur og hann getur verið. Að auki höfum við okkar eigin hitaveitu, sem er ein ódýrasta á landinu. Okkar eina vandamál er að passa upp á að bæjarstjómin fari ekki að hrúga niður húsum vestan Nes- stofu, en það er önnur saga. Júlíus Sólnes „Sú tillaga, sem okkur Seltirningum er ætlað að taka afstöðu til, er út I hött,“ segir Július m.a. I grein sinni. „í hrifningarvímunm yfir sameiningu sveitarfélaga hefur mönnum sést yfir kjarna málsins, þegar fjallaö er um vandamál sveitarfélaganna, en það er sérstaða Reykjavíkur.“ Skodanir annarra Próf steinn í bitlingakerf inu „Stóh Tómasar Ámasonar seðlabankastjóra er prófsteinn á samtryggingakerfi flokkanna í stöðu- veitingum. ... Raunar má spyrja sig hvort hugur fylgi máh hjá almenningi í gagnrýni sinni á bithnga- kerfi flokkanna. Furðulegar þverstæður koma nefni- lega fram í skoðunum fólks í mörgum málum. ... Stóh Tómasar er prófsteinn. Ætla kjósendur áfram að reka upp tímabundna háværa hvehi yfir stöðu- veitingum flokkanna - og gleyma svo? Jón G. Hauksson í forystugrein Frjálsrar verslunar GJaldtaka í sjávarútvegi „Landsfundur Sjálfstæðisflokksins tók enga efn- islega afstöðu til fram kominnar tihögu um gjaldtöku í sjávarútvegi. Fimdurinn vísaði þeirri tihögu til miðstjómar án þess að taka afstöðu til hennar. Eftir þessar umræður á landsfundi sjálfstæðismanna er ljóst, að hugmyndin um gjaldtöku á meiri stuðning innan flokksins en ýmsir forystumenn hans hafa vhjaö vera láta.... Þau sjónarmið, sem Morgunblað- ið hefur barizt fyrir á undanfórnum áram, eiga þar sterka talsmenn. Það er alveg sérstakt fagnaðarefni. Úr forystugrein Mbl. 26. okt. Veiðileyf agjald í pækil „Niðurstaða landsfundar um að leggja hugmynd- ir um veiðheyfagjald í pækh em auðvitað dapurleg fyrir samstarfsflokk Sjálfstæðisflokksins í ríkis- stjórn. ... Jafnaðarmenn hafa barist fyrir réttiátri gjaldtöku af þeim sem nýta auðlindina. Það er þessi réttiáta og skynsama gmnnhugmynd sem lands- fundur Sjálfstæðisflokksins hefur ýtt á undan sér. ... En aö sjálfsögðu mega sjálfstæðismenn búast við að afstaða landsfundarins til veiðheyfagjalds er ekki th þess að auðvelda stjórnarsamstarfið." Úr forystugrein Alþbl. 26. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.