Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1993, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1993, Blaðsíða 20
50 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993 Öirnur rit Saga tímans ...... StephenW. STiPHfN W. HAWKtNO Saga tímans 0 Hawking Þessimet- sölubókkem- urnúútí3. prentunhjá Bókmennta- félaginuí2. útgáfu. Orða- skýringum hefurnúver- iðfjölgaðtil þess að gera lesendum auðveldara um vik að nýta sér efni bókarinnar. Bókin fjallar um kenningar höfundarins um upphaf alheims í miklahvelli og endalokum stjama þegar þær hrynja undan eig- in þyngd í svokölluð svarthol. Bókin er skrifuð fyrir almenning og hefur hlotið fádæma góðar undirtektir. Þýöing og skýringar eru eftir Guð- mund Arnlaugsson en inngang skrif- ar Lárus Thorlacius. 289blaðsíður. Hið íslenska bókmenntafélag. Verð: 1.689 kr. Um vináttuna MARCUS TULLIUS CICERO Um vináttuna © Marcus Tull- ius Cicero Um vináttuna er samræða þar semfjall- að er um ein- kenni sannr- arvináttuog gildi hennar með tilvísun tilalmennra kenxúsetn- ingastóu- spekinnar. Bókin er rituö á 1. öld f. Kr. Höfundurinn var einn mesti stjómmála- og ræðuskörungur Rómaveldis, auk þess sem hann var vel að sér um heimspeki, lögvís og skáld gott. Hann var einhver mesti meistari latneskrar tungu sem uppi hefur verið og er oft talinn hold- gervingur rómverskrar menningar. Bókin er jafn mikilvæg nútíma- manninum sem Rómverjanum. 150blaðsíður. Hið íslenska bókmenntafélag. Verð: 1.690 kr. Svipmót og manngerð Svipmót og Erlendur Jónsson Svipmótog manngerð ersafnend- urminn- ingaþátta þarsem höfundur riljarupp kynnisínaf mönnumog málefnumá árum áður, einkum að því er varð- ar bækur og bóklestur og annað efni bókum tengt, hvaöeina skoðað og metið í ijósi síns tima. Sumir þættimir eru færðir í letur fyrir aUnokkrum árum en hafa ekki birst á prenti fyrr en nú. 239blaösföur. Smáragil. Á slóðum Vílhjálms ■ HelgiHálf- danarson Áslóðum Vilhjálms inniheldur sögureftir leikritum Williams Shake- speares. i þessaribók errakinn gangur mála úr nokkrum þekktum leikrit- um eftir Shakespeare meö frásagn- arsniöi. Lesendur verða þess brátt áskypja að því fer fjarri aö verk Shakespeares séu einhver torskilin háspeki. Reynt er aö koma til skila sem mestu af aðalefni leikritanna og eru frásagnimar nokkurs konar vegvísir inn i leikritaheim meistar- ans. 186blaðsíður. Málogmenning. Verð: 1.985 kr. Hvað tekur við þegar ég dey? Karl Sigur- björnsson Hvað tekur viðþegarég dey?inni- heldur spum- ingar um kristna trú, dauðannog eilífa lífið. Bókintekur fyrirspum- ingareins og: Hvar em hinir dánu? Hvað er upp- risa? Samrýmast spíritismi og kristin trú? Hvað með endurholdgun? Hvemig býr maður sig undir dauð- ann? Með einfóldum og ljósum hætti er leitast við að varpa ljósi á svör kristinnar trúar við þessum og öðr- um áleitnum spurningum andspænis ráðgátum dauðans. 60 blaðsíður. Skálholt. Verð: 1.200 kr. Að sigra óttann Harold Sher- man Mörgum finnstþað eins eðlilegt að hafa áhyggjurog aðdragaand- ann. Enþað ersamtsem áðurtímitil kominn að geraeitthvað í málinu. Þessi bók er ætluð þeim sem vilja breyta til. Höfundurinn sýnir hvernig unnt er, með ákveð- inni aðferð, að nota lykilinn að innra sjálfi sínu til að opna fyrir aukabirgð- ir af skapandi orku sem býr innra meðöllum. 160blaðsíður. Skuggsjá. Verð: 2.718 kr. Lifandi eftirmyndir Coral Polge og Kay Hunter CoralPolge hefuróvenju- lega náðar- gáfu. Þar sem flestirhefð- bundnir skyggnilýs- ingamiölar lýsagestum sínum að handan stígur hún í raun einu skrefi framar og teiknar á pappír eftir- myndir af þeim sem hún er í þannig sambandi við, ættingjum hinna brottfluttu til mikillar undrunar. Coral Polge er mörgun íslendingum að góðu kunn og eiga margir slíkar miðilsmyndir eftir hana í fórum sín- um en Coral hefur heimsótt ísland nokkrum sinnum. 279blaðsíður. Skjaldborghf. Verð: 2.995 kr. Sögubrot frá Seyðisfirði Sigrún Klara Hannesdóttir Þetta er ævi- ágripog niðjatal Elín- ar Júlíönu Sveinsdóttur ogJóhannes- ar Sveinsson- ar úrsmiðs á Seyðisfirði. Rakinner æviferill þeirra hjóna og tildrög þess að þau settust að á Seyðisfirði. Þar bjuggu þau allan sinn búskap og er sagt frá ýmsum atvikum í lífi þeirra. Þau eignuðust 13 börn og eræviferill þeirra allra rakinn. í bókinni er niðjatal þeirra hjóna og framættir og auk þess eru myndir af afkomendum þeirra. ítarleg nafnaskrá fylgir. Dreifing: Ættartalan. 94 blaðsíður. Sigrún Klara Hannesdóttir. Verð: 2.500 kr. Póla á milli Michael Palin Póla á milli er ferðabókeftir hinn víð- kunnabreska sjónvarps- mannogháð- fugl Michael Palinsemís- lendingar kannastvel við, m.a. fyrir sjónvarps- þættina Umhverfis jörðina á 80 dög- um. Árið 1991 fór Palin í aðra ferð, frá norðurpólnum til suðurpólsins, og þræddi 30. gráðu austur-lengdar- bauginn eins og framast var unnt. Ferðast var á margvíslegum farar- tækjum á sjó og landi, en í lofti að- eins í neyðartilfellum, og lá leiðin um 17 þjóðlönd. 147 bls. Almenna bókafélagið. Verö: 3.993 kr. — Eftir - mrt;i lAi- i „ PALIN Sögubrot í'rá Seyðkfirði DV Laxdæla íslensk fjöl- skyldusaga í myndasögu- formi Laxdælainni- heldurfyrri hlutaLax- dæluí myndasögu- formi en und- anfarnamán- uði hefur sag- anbirstíLes- bók Morgimblaðsins í myndgerð Búa Kristjánssonar. Síðari hlutinn kem- ur væntanlega út næsta haust. Lax- dæla er eitt af höfuöverkum ís- lenskra bókmennta, íslensk fjöl- skyldusaga fyrir alla fjölskylduna. í þessari útgáfu er reynt að láta upp- runalega textann, áherslur höfundar og framvindu sögunnar njóta sín sem best. 32 blaðsíður. Laxdæluútgáfan. Verð: 1.680 kr. An lcelandic Áslaug Bene- diktsdóttir Þettaerlítið kveráensku með upp- skriftum að íslenskum „þjóðarrétt- um“ eins og fiskbollum, kjötsúpu, steiktu lambalæri með brúnuðum kartöflum, kleinum og kartöflum. Uppskriftimar eru valdar og myndskreyttar af Áslaugu Benediktsdóttur. Alls eru uppskrift- irnar 17 og litmynd á hverri síðu. Pappírskilja. 32blaðsíöur. Iceland Review. Verð: 747 kr. Á landinu bláa Jónas Árna- son Á landinu bláaergefin útítilefnisjö- tugsafmæhs Jónasar Árnasonar. í bókinnierúr- val frásagna hans, auk þess sem einnigeru þrjár smásögur. Þótt Jónas sé kunn- astur sem leikrita- og söngvísnahöf- undur haslaði hann sér fyrst vöh með greinaskrifum og ritun stuttra frásagna. Sumt af þáttum þeim sem eru í Á landinu bláa var gefið út í fjórum bókum. Þær eru Fólk, Sjór og menn, Vetumóttakyrrur og Fleira fólk. Ólafur Haukur Ámason hefur búið bókina til prentunar og skrifar formála. 290 blaðsíður. Hörpuútgáfan. Verð: 3.420 kr. Hestar í norðri II Gísli Pálsson, Kristín Linda Jónsdóttir og Anna Bryndís Tryggvadótt- irtóku saman Fróðlegog hagnýtbók fyrirhesta- menn. í henni máfmna kynsturupp- lýsingaum fólk, hesta og hrossarækt á Norður- landi eystra og Austurlandi. Bókina prýða á þriðja hundrað mynda, þar af meira en þriðj ungur litmyndir. Einnig fylgir ítarleg nafnaskrá, bæði yfir menn og hesta, svo og kort af svæðunum. 335blaðsíður. Bókaútgáfan á Hofi. Verð: 3.990 kr. Nostradamus - horfttil framtíðar Peter Lorie íþessaribók kemur fiöl- margt fram semekkihef- uráðurverið ljóstíftarleg- umspádóm- umfyrirEvr- ópulöndin, Bandaríkin ogjörðina aha skýrast viðburðir næstu tveggja áratuga; ýmsar þrengingar eru framundan en þessarnýju frásagnir af framtíðinni gefa þó von um bjartari tíð. í bókinni er sagt af ótrúlegri nákvæmni frá spádómum Nostradamusar, enda er í henni að finna merkilegstu túlkun sem hefur komið fram á verkum mesta spámanns sögunnar. 223 blaðsíður. Forlagið. Verð: 2.850 kr. Viðreisnarárin Dr.GylfiÞ. Gislason Viðreisnarár- in er ítarleg oghlutlæg greinargerð mnþáríkis- stjórn'sem lengsthefur setiðáís- landi, tólfár. Höfundurinn Vcuráðherraí þessari ríkisstjóm allan tímann og er þvi manna kunnastur því sem gerðist innan veggja stjómarráðsins og utan þeirra. Viðreisnarstjómin var samsteypustjóm Sjálfstæðis- flokks og Alþýöuflokks og fékk hún nafnið vegna þess að hún boðaði við- reisn á ýmsum sviðum og tókust henni sum ætlunarverk sín en ekki aht. í bókinni er engin dul dregin á mistökin og er frásögnin baeði hrein- skihn og óhlutdræg. 272blaðsíður. Almenna bókafélagið. Verð: 3.593 kr. Cookbook 9ICE1ANDIG CÖOKBÖOK ***** á 'u ,Wi unarlaus ;í flestum sviðum en þegar kom art stóru stundinni var kjarkurinn kannski ekki svo mikill." „O" þá geróist þaó í fvrsta skipti aó hann baröi mig. Hann notaði skóstrekkjara - trélíkan af fæti meö málmstöng i miöjunni ... Hann greip bara einn rétt sisvona og byrjaói aö berja mig. S\o rak hann mig í rúmið og hafói kynmök vió niig." ,.Kg elska aö vera kona. Kg elska hverja olíu. h\ert krem. hvert ilmvatnsglas, allt sem sérstaklega er húió til handa konum .. . Kg þoli ekki aö koma inn í baöherbergi karlmanns og uppgötva aó hann á meira af kremum og kölnarvatni en ég." Sjálfsævisaga Tinu Turner þar sem hún segir söguna eins og hún var í raun og veru. Til dæmis: „Kram til þessa höföum vió kysst og kelaó og hann hafói fengió aö lauma hendinni inn undir hlússuna og síóan upp undir pilsiö og svo framvegis. Næsta skref í málinu lá því Ijóst f\rir. Kg var aó vísu blvgó- A næsta sölustað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.