Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Qupperneq 4
30 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994 Bflar Kynningarakstur - Stuttur Suzuki Vitara með aflmeiri véi: Ödýrasti sj álf- : skipti jeppinn Snarpur og liöugur, sjálfskiptur jeppi fyrir rétt rúmar tvær milljónir? - Það kom aldrei inn í umræðuna í haust þegar fjölmiðlar og kverúlantaþættir voru að spijinga af vandlætingu yfir því að seölabankastjóri nokkur átti aö fá vandaðan og góðan jeppa, en töluvert dýrari en þetta. Enda var nýja þriggja hurða súkkan með 96 hestafla 16 ventla vélinni og fjögurra gíra sjálfskiptingunni þá ekki komin á markaðinn. Allt frá því að Suzuki Vitara kom á markaðinn sem árgerð 1989 hefur þessi bíll staöið sig ágætlega. Framan af var aðeins þriggja hurða bíll, fjög- urra manna, í boði en síðar kom stóri bróðir hans fimm hurða, fimm manna, 41 sfn lengri og rúmbetri í samræmi við það. Eini litlijeppinn með sjálfskiptingu Fljótlega kom stutta Vitaran með þriggja gíra sjálfskiptingu og hefur alla tíð síðan verið eini litli jeppinn á markaðnum með sjálfskiptingu. Það er hins vegar ekki fyrr en núna sem hún fær jafn stóra vél og er í 5 hurða bílnum og þá um sjálfskipt- ingu við hæfi. Það flnnst strax á fyrstu metrunum að þessi aflmeiri Suzuki Vitara 3 huröa er frísk og kvik í svörun. Það merkilega er líka að maður hefur ekki á tilfinningunni að maður sé að aka einhverjum tiltakanlega litlum bíl eða stuttum. Þó er Vitara 3 hurða næstum 7 sm styttri er Fiat Uno, svo tekið sé dæmi af vinsælum og kunn- uglegum bíl á götunum. Á sama hátt er ekki til baga stutt á milli fram- og afturása á bílnum þannig að hann steypi stömpum eins og gamall Willys. Hann er tommu lengri á milli fram- og afturása en til að mynda Daihatsu Feroza og aðeins 3,5 sm styttri en Mitsubishi L-300. Sérstólar fyrir alla Hins vegar er ekkert verið að bruðla með innanrými í þessum bíl. Að visu fer dável um fjóra í honum, en þeir mega ekki hafa ýkja mikið með sér. Alhr hafa stóla út af fyrir sig, bæði frammi í og aftur. Stólarnir frammi í eru sýnu betri og ekkert upp á þá að klaga. Þeir halda vel við á alla vegu og eru hin þægilegustu sæti. Sætinu hægra megin er hægt aö halla og hleypa vel fram til að umgangast aftursætin en því miður hefur framsætið ekki „minni“ eða þá heldur slælegt minni; fer ýmist í öftustu stöðu eða fremstu eftir svona tilfæringar. Svo er líka hægt að halla framsætisbakinu alveg aftur og ímynda sér að maður geti lagst út af. Áfturstólamir eru til muna íburð- arminni og ekki formmótaðir eins og hinir. Samt er vel viðunandi að sitja í þeim og kostur að hægt er að velja um fleiri en eina stillingu á bakhalla. En þar er enga hnakkpúða að finna svo dæmi sé tekið, og nú er búið að taka af það sem áður var, aö hægt sé aö renna þessum afturstól- um aftur og fram eins og framsætun- um. Framleiðandi ber því við að það sé út af einhveijum stjórnarreglu- gerðum - hvar í veröldinni veit ég ekki. Altént ekki í Frakklandi, þar sem til að mynda bæði Citroén ZX og Renault Twingo eru búnir þessum ágæta kosti. Hins vegar er auðvitað hægt að Skiptar skoðanir eru um útlitsfegurð stutta Vitara jeppans. Fáir setja þó út á fremri hluta hans - það er frekar af afturparturinn sé gagnrýndur. Notagildið er greinilega látið sitja í fyrirrúmi. Afturhurðin opnar bílinn upp á gátt að aftan, svo auð- velt er að nota hann til hverra þeirra flutninga sem hann hentar til. Afturstólana er hægt aö leggja fram, annan eða báðam en almennt farangursrými er aðeins þaö litla rúm sem verður fyrir aftan þá upprétta. Mælaborð er næsta hefðbundið, svo og vinnuumhverfi ökumannsins almennt. Innrétting í hurðum hefur verið bætt frá því að bíllinn kom fyrst fram fyrir fimm árum, en þó eru rúðurofarnir enn dálítið aðkrepptir svo neðar- lega sem þeir sitja. leggja þessi aftursæti niður, annað eða bæði, og fá þá allgott farangurs- rými, sem með öll sætin í notkun er satt að segja afar lítilfjörlegt. Því er reynt að mæta með ágætum hirslum innan í hhðum og í hurðum, auk hanskahólfs, en dugar fremur skammt. Þess vegna hafa eigendur 3 dyra Vitara gjarnan gripið til þess ráðs að fá sér farangurskistu á topp- inn, en það leysir heilmikinn vanda fljótt og auðveldlega. Afarlipur-gott að leggja honum Það er að mörgu leyti gaman að aka 3 dyra Vitara með stærri vélinni, með íjögurra gíra sjálfskiptingunni. Hann er einkar Upur með henni inn- an bæjar og alveg sérlega auðvelt að leggja honum í kröpp stæði. Þar við bætist að þó að varadekkið gangi nokkuð upp á afturgluggann er all- gott að sjá aftur úr þessum- bíl. Þá er hann líka með prýðilega útispegla, og nú rafstýrða innan frá. - Úti á vegum er bíllinn eins og hugur manns og auðvelt að halda góðum Hurðirnar opnast vel og þægilegt að renna sér inn í sætið og út úr þvi aftur. og jöfnum feröahraða. Þó verður að segjast eins og er að hann tekur dálít- ið áberandi á sig stífan hliðarvind, og geldur þar sköpulags síns. Sjálfskipting er það sem bílakaup- endur velja í vaxandi mæh, ekki síst fólk sem farið er að reskjast. Þess vegna er það uppsláttur fyrir Suzuki að framleiða þennan netta og hpra bíl með góðri fjögurra gíra sjálfskipt- ingu, með vali um sportstillingu og sparnaðarstilhngu. Hins vegar þykir mér einboðið að hann sé afar skemmtilegur með handskiptingu, ekki síst af því að ég veit hve þægileg og góð handskiptingin á Vitara er. Ótrúlega stöóugur í hálkunni Bíhinn sem prófaður var hafði að- eins venjulegri dekkjastærð af að státa. Þannig búinn er bíllinn fremur lágur svo að vel liggur við að setjast inn í hann og stíga út úr honum. Hins vegar er einfalt mál að hækka þessa bíla lítihega upp, setja á þá brettakanta og stærri dekk. Það hef- ur th dæmis komið afar vel út aö setja þá á 30" dekk. Hins vegar get ég ekki orða bundist um þaö hvað mér þótti hann seigur í snjó og hálku á verksmiðjudekkjun- um. Vissulega hefði mátt bjóða hon- um dýpri skafla og lengri á stærri og gripmeiri dekkjum, en það kom mér mjög á óvart hvað hann komst á þessum spariskóm. Og var stöðug- ur í hálkunni, bæði til átaks og heml- unar. Það er minnsta kost ekki þaö fyrsta sem meðaljóninn þarf að gera, þegar hann kaupir bhinn, að hækka hann upp og setja undir hann stærri dekk. Nema eitthvað alveg sérstakt standi th. Vitara jepparnir eru um margt skynsamlegir bhar. Þeir eru þægileg- ir í umgengni, liprir og léttir, spar- néytnari á dekk og eldsneyti en obb- inn af jeppaflórunni. Ég hef ekki th- tæka mæhngu á stutta bílnum, en langi bílhnn með 16 ventla vélinni og handskiptingu er gefinn upp með 9,6 1 aö meðaltah á hundraðið. Þá hafa þeir staðið sig prýðhega með tilhti til bhana. Það er helst að finna aö stutta bílnum - 3 hurða bílnum - að það er lítið rúm í honum fyrir farangur, en á hinn bóginn dugar hann ágætlega fyrir hjón sem oftast eru aðeins tvö á ferð, ekki síst þegar þau þurfa að hafa með sér einhvem farangur að ráði. Sérbúnir fyrir norrænar slóðir Þeir bílar af 3 dyra Suzuki Vitara, sem hér verða í boði, verða sérstak- lega búnir fyrir norðlægar slóðir, með þvottasprautur á framljósum og upphituð sæti fyrir ökumann og framsætisfarþega. Þegar þetta er skrifað liggur endan- legt verð á 3 dyra Vitara með afl- meiri vél ekki fyrir. Þó má gera því skóna að 5 gíra bíllinn með hand-' skipta kassanum verði rétt innan við tvær milljónir, en sá sjálfskipti losi 2,1 mihjón. Þar með verður hanr. langsamlega ódýrasti sjálfskipti jeppinn á markaðnum - og vel áht- legur kostur fyrir þá sem ekki þurfa beinlínis á stærri bh að halda og ekki vhja leggja allt of mikinn pening í bh og rekstur hans. S.H.H.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.