Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994 5 Fréttir Seðlabankastjórar: Sighvatur með naf na- súpuá borðinu Sighvatur Björgvinsson viðskipta- ráðherra hefur falið bankaráöi Seðlabankans að meta hæfni þriggja manna til að gegna stöðu seðla- bankastjóra. Um er að ræða þá Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, Steingrím Hermannsson, formann Framsókn- arflokksins, og eins sem óskaö hefur nafnleyndar. Samkvæmt heimildum DV er þar um að ræða Indriða H. Þorláksson, skrifstofustjóra í fjár- málaráðuneytinu. Alls sótti 331 um starf seðlabanka- stjóra í kjölfar auglýsingar frá bankaráði, þar af 328 nemar í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Bankaráðið vinnur nú að umsögnum um umsækjendur og er ekki búist við að ráðherra ráði í stöðurnar fyrr en eftir ársfund Seðlabankans sem haldinn verður á miðvikudaginn kemur. Auk þeirra þriggja sem ráðherra tilnefndi sóttu eftirtaldir um stöð- una: Ásmundur Stefánsson, Baldvin Björgvinsson, Birgir Árnason, Bjami Bragi Jónsson, Bjarni Einarsson, Björn Tryggvason, Bolh Héðinsson, Edda Helgason, Eiríkur Guðnason, Guðmundur Guðmundsson, Guð- mundur Magnússon, Gunnar Jón Yngvason, Haraldur Jóhannsson, Ingimundur Friðriksson, Jafet S. Ól- afsson, Jóhannes Ágústsson, Jón Guðmundsson, Jón Pálmi Pálmason, Kristín Sigurðsdóttir, Kristinn Ey- mundsson, Már Guðmundsson, Ólaf- ur ísleifsson, Pétur Blöndal, Sigurjón Samúelsson, Sveinn Valfells, Tómas Gunnarsson, Yngvi Örn Kristinsson, Ægir Geirdal Gíslason. Þrír óskuðu nafnleyndar. -kaa Ásatúarmenn: Leynilegt kjör allsherjargoða Framboðsfrestur fyrir kosningu allsheríargoða hjá Ásatrúarfélaginu rennur út 1. apríl. Meðal ásatrúar- manna er talið víst að Jörmundur Ingi Hansen, forstöðumaður safnað- arins, bjóði sig fram. Enn hafa ekki fleiri verið nefndir. Á aðalfundi Ásatrúarfélagsins var samþykkt að halda leynilega kosn- ingu sem færi fram bréflega. Talning fer fram 21. maí að öllum frambjóð- endum viðstöddum. Kjöri verður lýst á Þingvöllum á Þórsdegi í tíundu viku sumars. Bjóði aðeins einn sig framtelsthannsjálfkjörinn. -IBS í fréttaljósi á fimmtudag var rangt farið með nafn frambjóðanda í próf- kjöri alþýðuflokksmanna í nýja sveitarfélaginu á Suðumesjum um helgina. Frambjóðandinn heitir Val- ur Ármann Gunnarsson, ekki Valur G. Ármannsson eins og sagt var í fréttaljósinu. -GHS STÖÐIN HF. SÍÐUMÚLA 2 - SÍ3VTI 68 90 90 Islandsmeistarakeppni 10 dansa í suðuramerískum og standard dönsum með frjálsri aðferð verður haldin laugardaginn 19. mars í íþróttahúsinu Ásgarði Garðabæ. Einnig verður einsdanskeppni í grunnsporum fyrir 10 ára og eldri. Miðasala verður í Ásgarði og hefst hún kl. 12.00. Húsið opnað kl. 14.00. Keppnin sjálf hefst kl. 15.00 með setningarathöfn. Við viljum hvetja dansáhugafólk að koma og horfa á spennandi og skemmtilega keppni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.