Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Side 8
8
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994
Vísnaþáttur
Sumir
prestum
sýna traust
„ Afstaðan milli trúar og þekking-
ar er eins og hjá skálum á vigt, ef
önnur hækkar þá sígur hin.“ Þessi
orð eru höfð eftir þýzka heimspek-
ingnum Arthuri Schopenhauer og
svipar mjög til orðtaks sem ég
heyrði einhvem tíma endur fyrir
löngu og hljóðar svo muni ég rétt:
„Eftir því sem þekking mannsins á
tilveranni verður meiri minnkar
guð.“ Ekki man ég eftir hveijum
þessi orð eru höfð en mér virðast
þau benda til að höfundur þeirra
hafi talið trúna á almættið stafa af
vanþekkingu. Ameríski rithöfund-
urinn Mark Twain komst svo að
orði: „Ein sönnun fyrir ódauðleika
sálarinnar er sú að ótölulegur fjöldi
fólks trúir á hann. En það trúði því
líka að jörðin væri flöt.“ Oft tala
menn um trú og vissu sem and-
stæður, aðrir um trúarvissu. Mér
hefur aldrei tekist að finna nokk-
urn botn í þeim fræðum þrátt fyrir
talsverðan lestur trúfræðirita en
sé mark á þeim takandi, þrátt fyrir
mismunandi túlkanir, tek ég vissu-
lega þátt í áhyggjum leikarans og
leikstjórans Woodys Allens sem
sagði: „Alheimurinnerstundarfyr-
irbrigði í huga guðs sem er heldur
óþægileg tilhugsun fyrir þann sem
hefur nýverið fest kaup á húsi.“
Þórarinn Þorleifsson frá Skúfi í
Vindhælishreppi í A-Hún. hefur
verið í vafa um að boöskapur prest-
anna hafi veriö sá eini rétti þegar
hann kvað:
Kirkjunnar er kenning sum
klerka táh slegin,
svo ég er að verða vokins um
vistina hinum megin.
Haraldur Stígsson orti um grínið
í guðspjöllunum, samanber dokt-
orsritgerð séra Jakobs Jónssonar:
Að mér sækir enn á ný
efinn, því er fjandans ver.
Og ekki getur grínið í
guðspjöllunum bjargað mér.
Ólafur Ólafsson á Brattavöllum á
Árskógsströnd í Eyjafirði hefur
haft trausta trú á almættinu og lýs-
ir því þannig:
Guð mér sanna sendir náð,
sem allt kann að bæta.
Þaö er hann sem hefir ráð
að hugga mann og græta.
Þá koma hér stökur „Úr ljóða-
bréfi“, sem kunna aö hafa verið
fleiri, upphafið bendir til þess, en
höfundur fellir nafn sitt inn í síö-
ustu stökuna:
Margur kennimaöur þó
missti styrk úr taugum,
þegar á bikars barminn sló
bhki úr fógrum augum.
Lífsins freku freistingar
friðinn rjúfa og næðið.
Eftir kjass og kreistingar
kemur hættusvæðið.
Þorpsins for þó flæði skæð,
fylli kjallarana,
kristninni upp á efri hæð
ekki er hætt við bana.
Þó skal öllum þetta ljóst:
Þar er gleði að völdum.
Ljósin skína á lostug brjóst
ljúft í dansi á kvöldum.
Enda sturidum, er oss kennt,
olli prestum trega
hefði signing heilög lent
heldur neðarlega.
En ég hygg að hætta brýn
hvergi nálæg verði,
þó að klerki veitist vín
vestur í Hveragerði.
Enda beint úr Eden valt
Eva, smáð og hrakin,
þegar hún, heimsk og hrædd við
allt,
hætti að ganga nakin.
Ekki rénar „andagt" þín
eftir þennan lestur.
Hér er undir handskrift mín
Helgi Sveinsson prestur
„Kraftaskáld Klettafjalla", Step-
han G. Stephansson, orti svo árið
1875, þá 22 ára gamall:
í æsku tók eg eins og barn
alheimskunnar trúna.
Meö aldri varð ég efagjam.
Engu trúi eg núna.
Jakob Aþaníusson, bóndi og
hreppstjóri í Uppsölum, Tungu-
múla og síðast í Gerði á Barða-
strönd, orti að beiðni þriggja
presta:
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Þar sem heilög þrenning býr
þróast aldrei friður.
Blessun guðs í burtu flýr
og bölvun rignir niður.
Síðasta kveðja Rósbergs G. Snæ-
dals til Gunnars Ámasonar, fyrr-
um bónda í Þverárdal í Laxárdal í
A-Hún.:
Verði þér að þinni trú,
þegar hérvist lýkur kærri:
Æðri veröld eignist þú
öllum Þverárdölum hærri.
Vesturíslenzka skáldið Káinn
nefnir stöku sína Mottó (einkennis-
orð):
Öfundaði ég áður mest,
er nú fengin vissa,
alla þá sem engan prest
eiga til að missa.
Bjarni Jónsson frá Gröf hefur
talið öraggast að snúa sér beint til
almættisins:
Sumir prestum sýna traust
sálina að náöa,
en ég vil millihðalaust
láta Drottin ráða.
Lúðvík Kristjánsson frá Sævar-
enda í Fáskrúðsfirði (f.1887 - d.
1958) sem fiutti th Kanada:
í umsjá guðs með geði ljúfu
er gott að mega hjúfra sig,
ég lagðist bara í bæn á grúfu
og breiddi rassinn yfir mig.
Ég tel rétt áð ljúka þessum pistli
með orðum spænska kvikmynda-
leikstjórans Luis Bunuels, sem
gætu sem bezt verið kjörorð fjöl-
margra: „Ég er enn trúleysingi -
svo er guði fyrir aö þakka.“
Torfi Jónsson
Matgæðmgrir vikunnar
Fiskur í
ostasósu
-með olífubrauði og melónu-gúrkusalati
„Ég var í Jórdaníu í fyrra og þá
fékk ég gúrku-melónusalat og
olífubrauð. Ég hugsaði með mér að
þetta yrði ég að búa til sjálf,“ sagði
Sólveig Hákonardóttir, matgæð-
ingur DV. Sólveig er í tveim matar-
klúbbum. „Annar þeirra heitir
Fiskiklúbbur, því þar erum við allt-
af með einhverja fiskrétti. Ég bauð
upp á þennan rétt, sem ég hafði
verið aö prófa mig áfram með, og
hann vakti talsverða lukku. Hægt
er að búa réttinn th að morgni og
skella honum í ofninn að kvöldi.
Uppskriftin er fyrir 6-8 manns.“
I olífubohurnar fer:
1 pk. Otker-bollur
2 glös grænar olífur
rifinn ostur
Bæta má 1 poka af salthnetum í
olífubollurnar ef vhl.
Ohfunum er blandað saman við
þurrefnin. Að öðru leyti er farið
eftir leiðarvísi á Otkerpakkanum,
nema að notaður er olífusafi í stað-
inn fyrir vatn. Úr deiginu era mót-
aðar bollur eða brauö og stráð yfir
rifnum osti.
Gott er að gera fiskinn meðan
bolludegið er að hefast. í þann rétt
fer:
1-1 '/2 kg ýsa
aromat-krydd
Sólveig Hákonardóttir, matgæð-
ingur DV. DV-mynd GVA
pipar
5 dl ijómi eða mjólk
250 g beikonostur
1 stk. piparostur
1 líth dós kotasæla
1 púrrulaukur
1 bakki sveppir
1 bréf beikon (meðalstórt)
Ofninn er stihtur á 180 gráður.
Rjóminn er hitaður og ostarnir
bræddir þar í. Eldfast form er
smurt að innan, fiskurinn skorinn
í hæfilega bita, einnig púrrulaukur
og sveppir. Þessu er raðað í lögum
í formið, krydd- og rjómablöndunni
hellt yfir. Síðan þakið með smátt
skornu beikoni og bakað í 30-35
mínútur. Fiskurinn er borinn fram
með soðnum hrísgrjónum.
Gúrku-melónusalat
1-2 gúrkur
1-2 hunangsmelónur (fer eftir
stærð)
Gúrkan er afhýdd og síðan eru
gúrkan og melónan sneiddar í litlar
kúlur með kúlujámi. Ef það er ekki
til er hægt að skera þær í smáa
ferninga. Þeir eru settir í skál og
salti stráð yfir. Salatið er látið
standa í kæli og borið fram mjög
vel kælt. Fallegt er að klippa stein-
selju yfir.
Sólveig skorar á Guðrúnu Geirs-
dóttur föndurkennara sem hún
segir að sé alveg meiri háttar kokk-
ur.
Hinhliðin
Ekki gæfu-
leg byrjun
- segir handboltamaðurinn Valdimar Grímsson
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
Ég er að verða mikih áhugamað-
ur um vélsleðasport þótt byijunin
hafi ekki verið gæfuleg eins og al-
þjóö veit. Það skemmtilegasta sem
ég geri er að stelast á sleöanum, en
það leiðinlegasta sem ég veit er að
meiðast á þessum sama sleða,“ seg-
ir handboltakappinn Valdimar
Grímsson úr KA. Valdimar wÞekk
ekki mörg prik hjá forráðamönn-
um KA á dögunum er hann skrapp
á vélsleða sínum í Hlíðarfiall og
velti honum þar yfir sig með þeim
afleiöingum að hann meiddist hla
á öxl. Sleðinn mun ekki hafa verið
mikið notaður síðan, en Valdimar
sem starfar sem auglýsingastjóri
tímaritsins Lífsmarks á Akureyri
sýnir lesendum hina hliðina í dag.
Fullt nafn: Valdimar Grímsson.
Fæðingardagur og ár: 5. desember
1965.
Maki: Kristín Gísladóttir.
Börn Ester Ösp 7 ára.
Bifreið: Nissan 100 NX árgerð 1993.
Starf: Auglýsingastjóri.
Laun: Þokkaleg.
Áhugamál: Vélsleðasport!
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Þijár samtals.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
Valdimar Grímsson.
gera? Stelast á vélsleðann.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Meiðast á vélsleðanum.
Uppáhaldsmatur: Rjúpur.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn og rauð-
vín þegar þaö á við.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Magnús
Scheving og Pétur Guðmundsson.
Uppáhaldstímarit: Lífsmark.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka Júlía
Roberts.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Golfleikarinn Nick Faldo
gæti kennt mér eitt og annaö.
Uppáhaldsleikari: A1 Pacino.
Uppáhaldsleikkona: Júlía Roberts.
Uppáhaldssöngvari: Bono.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð Öddsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hómer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir,
fréttir og skemmtiþættir.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Hlusta jafnt á þær.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Valtýr
Björn og Gestur Einar Jónasson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Jafnt.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?Ingvi
Hrafn Jónsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Við
Pollinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Hand-
boltalið KA.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að bæta og kæta bæði
mig og fiölskylduna.
Hvað ætlár þú að gera í sumarfrí-
inu? Ætli ég verði ekki að æfa hand-
bolta.