Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994 Nýi borgarstjórinn í Reykjavík: Aldrei verið borinn um sali Valhallar , ,r - segir Ami Sigfússon sem hlakkar til að takast á við erfið verkefni á næstu vikum „Fyrir mig, sem er ekki meðal þekkt- ustu manna þjóðarinnar, er það auð- vitað visst átak að verða skyndilega svona sýnilegur. Ég hef aldrei haft mikinn áhuga á að vera í sviðsljósinu þótt ég sé auðvitað mannlegur. En þessi barátta öll leggst vel í mig. Hún verður erfið en það væri heldur ekk- ert skemmtilegt ef þetta reyndi ekki 'aðeins á þolrifin," segir Árni Sigfús- son, nýr borgarstjóri í Reykjavík og forystumaður Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Ámi settist í borgarstjórastólinn í fyrradag og kosningabaráttan er haf- in fyrir alvöru. Þrátt fyrir að Árni hafi veriö í borgarstjórn Reykjavíkur í átta ár og setið í hinum ýmsu nefnd- um á vegum borgarinnar er hann ekki vel þekktur meðal borgarbúa og annarra landsmanna. Hinn nýi borgarstjóri er fæddur í Vestmannaeyjum 30. júlí 1956. Árni er næstelstur af sex sy stkinum. Hann er kvæntur Bryndísi Guðmundsdótt- ur talmeinafræðingi og eiga þau fjög- ur börn, dæturnar Aldísi Kristínu, tæplega fjórtán ára og eitt af ferming- arbörnum þessa árs, Védísi Hervöru, 12 ára, Guðmund Egil, flmm ára, og Sigfús Jóhann sem er þriggja ára. Fyrir jóbn kom út bók eftir Árna, uppeldisbók fyrir feður, en hann hef- ur lýst sér sem miklum fjölskyldu- manni. Árni er t.d. formaður nefndar sem starfaði að undirbúningi fyrir ár fjölskyldunnar. Árni segir að tjöl- skylda sín sé samhent og starfi mikið saman. „Við sitjum oft saman, hlæj- um og skemmtum okkur,“ segir hann; Árni segist hjálpa nokkuö tb við húsverkin og býr til matinn þegar efna á til sælkeraveislu. „Ég fæ að sleppa í hin skiptin," útskýrir hann. Bryndís starfar á Borgarspítalanum á háls-, nef- og eyrnadeild og sinnir þar aðallega eldri borgurum. Auk þess rekur hún talmeinastöð ásamt nokkrum öðrum. Það er því mikið að gera á stóru heimili. Til að létta undir hafa þau fengið danska au pair-stúlku sem er að læra íslensku hér á landi. Draumur um borgarstjórann í eina kvöldstund Frá árinu 1989 hefur Árni verið framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands en mun nú taka sér frí frá því starfl um tíma vegna óvæntra breytinga í pólitíkinni. Honum hafði ekki gefist færi á að ræða við stjórn Stjómunarfélagsins til að kynna þessar breytingar þegar viðtalið var tekið. - Ámi er talinn hinn mjúki maður og hefur talsvert verið fjallaö um þá ímynd hans undanfarna daga. Finnst hinum mjúka manni ekki erfitt að fara í baráttu á móti konu? „Ég bt ekki þannig á að ég muni berjast á móti konu heldur málefn- um. Stefna mín í borgarmálum verö- ur sett á oddinn og ég mun kapp- kosta að gera grein fyrir þeim bak- grunni sem styður stefnu mína á móti fimm ólíkum flokkum. Á þann hátt mun ég bta á mábn.“ - En nú hefur væntanlega gamab draumur þinn ræst, að komast í borgarstjórastóbnn? „Nei. Ég hef aldrei haft í frammi persónulega pólitíska drauma. í al- vöru talað. Ég hef gert mér grein grunnur er sá að ég er alinn upp í sjávarplássi, sonur kennara úr Vest- mannaeyjum. Við fluttum til Reykja- víkur í blokkaríbúð á Háaleitisbraut þegar ég var tólf ára gamall. Þar er ég abnn upp. Ég naut góðs uppeldis sem ég tel mig geta miðlað mínu fólki." - Hvernig uppeldi fékkstu? „Það var byggt á virðingu. Þar var rætt við mann eins og viö fullorðinn einstakbng abt frá blautu barns- beini. Maður fann fyrir ást og hlýju og í því skjób var ég alinn upp. Ég tel mig hafa lært að bera ábyrgð snemma.“ - Voru fastar reglur á heimibnu? „Ekki á mér. Það kann að vera vegna þess að þegar ég kom til Reykjavíkur var ég á viðkvæmum aldri til að flytja og þurfti tíma tíl að átta mig á nýju umhverfi. Vegna þess lagði ég mikla áherslu á, þegar við stækkuðum við okkur fyrir tveimur árum, að fmna húsnæði í sama hverfi. Ég býst við að það hafi verið meiri kraftur i mér meðan ég bjó ennþá í Vestmannaeyjum og það tók mig örugglega þrjú tíl íjögur ár að átta mig á þessari breytingu í lífi mínu. Ég fór lítið út utan skólatíma og þess vegna voru engin vandræði á mér. Ég gekk i Vogaskóla þó aö ég byggi í Háaleití og var því ekki í ná- vígi við neina félaga. Kannski fór ég betur í gegnum unglingsárin vegna þess.“ - Þú hefur þá ekki verið neinn vand- ræðaungbngur? „Nei, ég var meiri vandræðagemsi sem barn. Ég var mjög stríðinn. Eig- inlega svo stríðinn að ég sé enn eftir sumum strákapörunum sem ég framdi á þeim árum. Þau eru svo svakaleg að ég get varla sagt frá þeim. Annars þýðir lítið að vera að rifja upp einhver svona prakkara- strik. Eg fór oft iba með fólk þá. Þaö er sagt að ég fari enn iba með menn í póbtíkinni í mínum flokki. Menn verða oft sárir í gegnum kosningar en þetta er jú barátta," segir Árni án þess að vbja skýra það nánar. Með Ásgeiri Sigurvins í boltanum - Varstu ekkert í íþróttum? „Jú, ég var landsbðsmaður í Eyj- um. Ég var markmaður í flmmta flokki IBV og með mér lék Ásgeir Sigurvinsson. Síðan ákvað hann að velja sér knattspyrnuna en ég pób- tíkina," segir Árni og hlær. „Maður verður að láta líta út eins og maður heíði getað farið í atvinnumennsk- una. Annars var þaö þannig að við töpuðum svo bla fyrir KR rétt áður en ég flutti að ég lét öll Reykjavíkur- bðin sigla sinn sjó.“ Árni segir aö ástæða þess að fjöl- skyldan fluttí tb Reykjavíkur á sín- um tíma hafl veriö sú að foreldrarnir" vbdu koma börnum sínum til mennta. Sá elstí í röðinni var að byija í menntaskóla um það leytí. „Athafnaþráin fylgdi mér auðvitað hingað upp á land og ég réð mig því í vinnu með skólanum. Eftir skóla fór ég og þreif portíð við Nýja bíó og fékk 500 krónur á viku fyrir. Það voru vasapeningar mínir á þeim árum og vegna þeirra hafði ég efni á að kaupa mér fermingarfót sem ég keypti í Andersen og Lauth. Þetta er ég að segja dóttur minni núna sem á að fermast 10. apríl." Jassað lítillega á siðkvöldi. Arni með bassa sem hann (éll fyrir er hann sá hann útstilltan í verslun í bænum, Védis við píanóið og Guðmundur spilar ábúðarmikill á „trommur". DV-myndir GVA fyrir að ég ættí möguleika á að taka að mér þetta starf en draumar af því tagi hafa ekki verið á mínu borði. Fyrir tæpum þremur árum virtust þeir möguleikar verða nokkuð raun- hæfir. A einni kvöldstund taldi ég að bklega yrði ég borgarstjóri en það var aðeins ein kvöldstund. Þegar af því varð ekki fannst mér mjög auð- velt að sætta mig við það.“ - Þetta hljóta þó að hafa verið þér viss vonbrigði: „Vegna þess að ég hef ekki látið mig dreyma um aö verða borgar- stjóri urðu það mér engin vonbrigöi." Rétt að breyta um forystu Árni staðhæfir að það hafi komiö honum mikið á óvart þegar Markús Örn Antonsson ræddi við hann fyrir viku. - Hvers vegna kláraði Markús ekki kjörtímabihö sem borgarstjóri þótt hann drægi sig í hlé á lista flokksins og færi ekki í kosningabaráttuna? „Markús verður að svara fyrir það. Hins vegar gefst mér með þessu færi á að vinna strax að okkar málum og leiða kosningabaráttuna. Ég mun ekki gagnrýna ákvörðun Markúsar. Hún kom mér mikið á óvart og ég efaðist um að þetta væri rétt mat á þessum tíma. Það reynist hins vegar vera, eftir skoðanakönnunum að dæma, að mat hans hafi verið rétt. Líklega hefur það áhrif að breyta um forystu þó ég telji að staða flokksins skýrist út frá mörgum þáttum." - Nú er baráttan hafin. Finnur þú fyrir því? „Já, ég fmn fyrir því og hlakka tíl að takast á við þetta verkefni." - Margir tóku eftír því er þið Ingi- björg Sólrún mættust fyrst að hún talaði við þig eins og krakka, sagöi t.d. Árni minn í móðurlegum tón. Tókst þú eftír þessu? „Ég tók eftír því og margir hafa nefnt það við mig. Ef Ingibjörg Sól- rún velur þessar aðferðir tb að tala við fólk þá er það hennar val. Ég mun áfram sýna henni tílhlýðbega virð- ingu. Ég hef áður heyrt Ingibjörgu tala við fólk á þessum nótum og kannski er þetta bara hennar stíll. Ég er reyndar aðeins tveimur árum yngri en hún.“ Alinn upp í sjávarplássi - Sumumfinnstþúkannskiofmjúk- ur og tala jafnvel um að þú sért svo fullkominn að þig hafi varla hent nokkuð í lífinu. Hefur líf þitt allt verið á þráðbeinni línu? „Auðvitað hefur maður þurft aö glíma við ýmislegt í gegnum tíðina og ekki síst í póbtíkinni þar sem menn eru sífellt að glíma við hin margvíslegustu mál. Minn bak- LAUGARDAGUR 19. MARS 1994 39 Nýi borgarstjórinn í (aðmi (jölskyldunnar. Árni með Guðmund Egil og Védisi Hervöru, eiginkonan Bryndís með þann yngsta, Sigfús Jóhann, og loks fermingarbarnið, Aldís Kristin. Þegar Árni hafði lokið landsprófi frá Vogaskóla fór hann tb náms í Menntaskólann við Hamrahlíð. „Þar hitti ég aftur marga félaga mína frá Eyjum,“ segir hann. Þegar gpsið varð í Heimaey í janúar 1973 var Árni á fyrsta ári í MH. Hann taldi að brýn þörf væri á hjálp hans þar og lagði því land undir fót og tók að sér að sinna björgunarstörf- um. Rektor í MH skildi hins vegar ekki köllunina og rak hann úr skó- lanum fyrir lélega mætingu. Síðar náðist samkomulag mibi þeirra um að Árni fengi að haltja áfram námi utanskóla þann veturinn. Með nám- inu í MH stundaði hann kennslu í Vogaskóla. í stríöi við kokkteildrengi Póbtískur áhugi hans vaknaði í gagnfræðaskóla. „Ég var þó orðinn átján ára gamall þegar ég gekk í Heimdall. Það eru sterkir sjálfstæðis- menn og framsóknarmenn í ættinni en ég var ekki tílbúinn fyrr að taka sterka póbtíska ákvörðun. Þeir sem þekkja mína sögu úr Heimdalb vita að ég var allt öðruvísi ungur sjálf- stæðismaður en þeir sem þar voru fyrir. Þegar ég fór fram í formanns- slag gagnrýndi ég mjög ríkjandi skipulag. Ég kabaði Heimdelbngana kokktebdrengi. Sumir hafa ekki enn gleymt því. Þá fannst mér menn hafa lítínn áhuga á öðru en ganga á milh sendiráða og gleypa í sig kokkteil- snittur. Þama var hart barist og ég hafði betur. Ég tók að mér að koma á breytingum í Sjálfstæðisflokknum. Mér fannst fub þörf á að fá skóla- nema inn í flokkinn. Þeir sem þarna voru fyrir voru eldri og ekki í anda þess umhverfis sem ég vildi sjá í flokknum." Ör ogsárhjáSUS Árni og Bryndís kynntust þegar hann var tvítugur en hún sautján. Þegar hann lauk stúdentsprófi fór hann í Kennaraháskólann og var blaðamaður á Vísi meðfram því námi. Árið 1982 var hann ráðinn framkvæmdastjóri fulltrúaráös sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík og gegndi því starfi tb ársins 1984. „Þá fórum við Bryndís tb Bandaríkjanna í nám og tókum dætur okkar tvær með, sem þá voru 4ra og 2ja ára. Bryndís var með mér í Kennarahá- skólanum og ákvað að leggja fyrir sig talmeinafræði en ég fór í opinbera stjórnsýslu. Við lukum námi frá Uni- versity of Tennessee í Knoxvibe 1986. Ég kom heim til að taka þátt í próf- kjöri flokksins og náöi þar í gegn. Fór síðan aftur út og kláraði námið um vorið. Þegar ég kom heim var ég ráðinn deildarstjóri Fjárlaga- og hag- sýslustofnunar ríkisins. Um svipaö leyti var ég formaður félagsmálaráðs borgarinnar og það tók mikinn tima frá mér þannig að um tíma kaus ég að gegna því eingöngu. Frá árinu ’89 hef ég gegnt starfi framkvæmda- stjóra Stjórnunarfélagsins." Árið 1987 gaf Árni kost á sér tíl formanns SUS á mótí shjandi for- manni. Baráttan var hörð en Ámi náði aö sigra. „Það er abt orðið gott núna en þetta hefur skibð eftir sig ör og sár. Þegar menn eru að tala um að ég sé óvæginn eru þeir að vitna til þessara tíma. Ég hef aldrei verið borinn um sab Valhallar á silf- urbakka. Mín barátta hefur skbað sér upp úr atkvæðakössunum og það líkar mér best. Nema kannski núna þegar mér er boðinn borgarstjóra- stólbnn." Jákvæður fyrirmyndarfaðir - Það er sagt að þú sért mjög já- kvæður: „Ég er mjög jákvæður og geri mér far um að hugsa jákvætt. Ég vil ekki gera mér þá vitleysu að hlaða í mig neikvæöum upphfunum eða tilfinn- ingum.“ - Þín ímynd byggist á því aö þú sért fyrirmyndarfaðir. Af hverju? „Ég lít ekki á mig sem fyrirmynd- arföður. Ég vil einungis gera betur og hef áhuga á að finna leiðir tb að sameina annasamt starf og ánægju- legt fjölskylduhf." - Hvað gerir flölskyldan í frístund- um? „Við höfum gaman af því að vera heima og sitjum oft og spjöbum sam- an. Við höfum gaman af að fara í heimsóknir tb vina og kunningja. Við hjónin notum tímann tb að læra saman. Við erum núna að byrja í spænsku, höfum keypt okkur barna- spólu og ætlum að læra með bömun- um. Okkur finnst skemmtbegt að ferðast hér innanlands og höfðum pantað okkur sumarbústað aðra helgi við Úlfljótsvatn en það getur varla orðið úr því.“ - Þú ert algjör bindindismaður á vín og tóbak. Er einhver ástæða fyrir því? „Upphaflega tók ég þessa ákvörðun vegna þess aö í fjölskyldu minni voru áfengissjúkhngar. Faðir minn er alkóhóbsti en hefur tekið á því og hefur staöið sig mjög vel. Ég er rpjög stoltur af honum vegna þess. í gegnum árin hef ég séð stöðugt fleiri kosti þess að láta áfengi eiga sig.“ Spilar og semur - Þú leikur á hljóðfæri: „Ég lærði á gítar sem ungbngur, aðabega vegna þess að það vantaði einhvern tb að spila í skólaferða- lagi.” - Þú hefur þá ekki smitast af frænda þínum, Árna Johnsen: „Nei, ég held að hann hafi ekki kunnað á gítar þegar ég lærði á hann. Foreldrar mínir eru músíkalskir og syngja oft saman. Það var oft spilað á gítar og sungiö heima hjá mér. Ég og bróðir minn, Þorsteinn, sem er tveimur ámm eldri, spbuðum saman og stofnuðum kassagítarhljómsveit- ir.“ - Þú hefur líka samið lög: • „Ég samdi á sínum tíma þjóðhátíð- arlag Vestmannaeyinga. Einnig samdi ég lag eftír eldgosið til styrktar uppbyggingunni í Eyjum. Síðan samdi ég skattalagið tb að mótmæla skattheimtu ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar. Ég hef samið þó nokkuð af lögum en einungis tb að syngja fyrir Bryndísi á kvöldin." - Takið þið frændur og nafnar lagið saman í fiölskylduveislum? „Hann hefur stöku sinnum dregið mig upp tb að skapa meiri festu í sönginn," segir Árni og hlær. „En ég hef mjög gaman af hans framlagi." Ámilli Davíðs og Markúsar - Nú hefur þú tekið við nýju emb- ætti og ert kominn í kosningaslag. Hvað sérðu fyrir þér á næstu vikum? „Ég sé auövitað fyrir mér þau verk- efni sem tilheyra borgarstjóra. Ég legg áherslu á að' ná meiri fótfestu í i ýmsum verkum sem ég hef unnið að. I Ég vb gjarnan setja af stað ákveðna fagvinnu tíl aö styrkja betur ýmsa ákvarðanatöku sem hefur verið í gangi og ég tel að þurfi að gera á nútímalegri hátt en tíðkast hefur. í því mun ég nýta mér þá þekkingu sem ég hef frá Stjórnunarfélaginu." - Telur þú þig geta breytt ein- hverju hjá borginni á þessum stutta tíma? „Ég held ég getí komið mjög mörg- um góðum hlutum af stað. Breyting- ar taka tíma en ég er sannfærður um að ég getí komið af staö atburðarás sem verður til góös. Ég vonast auö- vitað til að geta haldið þeim verkum áfram eftir kosningar." - Hvaö er efst á óskalistanum? „Aö festa í sessi ákveðna þætti í atvinnumálum. Ég vil sýna fram á hvemig hægt er að skapa betur laun- uð störf með einfóldum hætti. Fram- tíöin felur í sér smáiðnaðarstörf, verkefni sem byggjast ekki endilega á stórum fyrirtækjum. Stjórnunarfé- lagið hefur tekið þátt í tbraunum á þessu sviði sem hafa heppnast mjög vel.“ - Hvort munt þú tileinka þér starfs- hætti Davíðs eða Markúsar sem borgarstjóri? „Davíð og Markús eru ólíkir ein- stakbngar og unnu hvor með sínum hættí. Afgreiösla mála var öðruvísi hjá Davíð en hjá Markúsi. Ég uppbfði Davíö ekki sem einræðisherra. Davíð er sterkur persónulebtí og hefur því fljótar áhrif. Ég hef á tilfinningunni að ég sé einhvers staöar á milb þessara manna í mínum stjómunaraðferðum. Ég legg mbtíð upp úr þvi aö virkja fólk og dreifa valdi," segir hinn nýi borgar- stjóriíReykjavík. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.