Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Page 31
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994
43
„Efnaskipti líkamans eru breytileg og fara eftir hreyfingunni."
Nökkvi læknir og
þybbna konan sem
fitnaði í megr-
unarkúrum
Hún sagöist heita Heiörún en aU-
ir kölluöu sig Heiöu. Nökkvi lækn-
ir heilsaði henni kurteislega. Heiða
var myndarleg kona á ágætum
aldri, ljóshærð með himinblá augu.
Hún var faliega klædd í litríkan
hólkviðan kjól, dökkbrún stígvél
og kvenveski í stíl. „Ég er alltof
feit,“ sagði hún. „Getur þú hjálpað
mér, Nökkvi? Ég er búin að reyna
alla mögulega megrunarkúra af
síðum vikublaða og mánaðarrita
síðustu ára. Auk þess hefégfjár-
fest í nokkrum vörubílsfórmum af
megrunardufti, þangtöflum og
greipaldinhylkjum. Það er ekki til
sá kúr sem ég hef ekki keypt dýru
verði. En því miður gengur þetta
ekki nógu vel. Ég grennist um
nokkur kíló í byrjun en þyngist
fljótt aftur. Stundum finnst mér
þessir kúrar fremur fita mig en
grenna og sömu sögu segir Brim-
gerður vinkona mín. Hún er viðlíka
feit og ég og saman höfum við bor-
ið krossana upp á þessa Golgata-
hæð megrunarkúranna. Ég er eig-
inlega alveg ráðalaus og þrauta-
lendingin var að hitta þig fyrir.“
Nökkva þótti lofið gott. Hann virti
Heiðu fyrir sér blíðum augum
mannvinarins. „Mér finnst þú ekki
svo feit,“ sagði hann með hægð.
„Fyrir 2-300 árum hefðir þú verið
talin ímynd hins þrýstna kvenleika
en nú er öldin önnur. Konur elta
stundum óraunhæfar feguröarfyr-
irmyndir. Fegurðardrottningar og
tískufyrirsætur samtímans hafa
glatað kvenlegum eiginleikum sín-
um; brjóstum, mjöðmum og rassi."
Borða minna/hreyfa
sig meira
Nökkvi hélt áfram eftir nokkra
þögn: „Einungis tvær aðferðir til
að grennast eru til; borða minna
og hreyfa sig meira. Megrunar-
kúrar vikublaðanna eru ráðlegg-
ingar um mataræði og almenn
hollráö. Margir leggja höfuð-
áherslu á fáar matartegundir eins
og egg, kálsúpu, banana eða greip-
aldin. Aðrir kúrar byggja á ein-
hveijum pillum, dufti eða hylkjum
sem þenjast út í maganum og eyða
hungurkenndinni. Árangurinn
lætur í fæstum tilfellum bíða eftir
sér og fólk léttist um5-6kgá fyrstu
vikunni. En þetta er sýnd ve.iði en
ekki gefin. Fituvefurinn hefur ekki
minnkað heldur vatn og svokallaö
glycogen, sem er vara-orkuforði
líkamans. Þegar hann hverfur
lækkar blóðsykur, hungurtilfinn-
ing eykst og menn verða oft þreytt-
ir og daufir. Þegar kúmum lýkur
bætir fólk þessum kílóum strax á
sig aftur. Það er ákaflega erfitt að
halda svona einhæfar megranir út
nema skamman tíma. Hver nennir
að éta kálsúpu ævina á enda eða
troða sig út af greipaldinhylkjum
til langframa. Duft kemur ekki í
stað matar nema hjá fólki með
næringarlegan sadómasókisma.
Á laelmavaktmrd
Óttar
Guðmundsson
læknir
Langtímaárangurinn er því næsta
lítill." Nökkvi læknir tók sér stutta
málhvíld. Hann naut þess aö tala
fyrir konu eins og Heiöu og finna
stigvaxandi aðdáun.
Neikvæðar megranir
Hann hélt áfram: „Alvarleg
megrun gengur á fituvefi likamans
en vöðvamir rýrna einnig. Vöðva-
vefur brennir mikilh orku svo að
orkubruninn verður minni eftir
kúrinn en fyrir hann. Fituforði lík-
amans er varaforði sem hægt er
aö grípa til ef í nauðirnar rekur.
Líkaminn reynir að verja þennan
varaforða og lætur því megrunina
frekar bitna á vöðvavef en fitu-
keppum. Hlutfall fituvefs og vöðva-
vefs breytist svo að fituhlutfall lík-
amans verður hærra en það var
fyrir kúrinn vegna vöövarýrnunar.
Þetta leiðir til þess að megrunin er
dæmd tfl að mistakast þegar htið
er til lengri tíma. Efnaskipti líkam-
ansembreytilegog fara eftir
hreyfingunni. Maður sem vinnur
erfiðisvinnu brennir meiru en
kyrrsetumaður. Feitt fólk borðar
ekki meira en aðrir en magurt fólk
virðist þola betur aö borða mikið.
Ástæðan er sú að hlutfall vöðva-
vefs er hærra hjá mögrum en feit-
um og bruninn í vöðvum er meiri
en bmninn í fituvef. Stööugar
megranir hafa þau áhrif að vöðva-
vefur minnkar meira en fituvefur
sem leiðir til þess að bmninn í hk-
amanum minnkar. Þetta verður til
þess að fólk hreyfir sig minna en
áður. Vöðvamassinn heldur sér illa
við og bruninn minnkar enn og
þannig viðhelst offitan. Það er ekki
að ósekju að frægur maður sagði
einu sinni viö mig; „fólk verður
feitt af því að fara í megrun. Ekki
man ég lengur hver hann var þessi
maður.“
Hvað er þá til ráða?
„En hvað er til ráða,“ sagði Heiða.
Nökkvi svaraði spaklega: „ Allir
megrunarkúrar em gagnslausir ef
einstaklingurinn er ekki tilbúinn
að breyta lífsmynstri sínu og
hreyfa sig meira. Það verður að
auka vöðvamassann til að bruninn
aukist í líkamanum. Til að bæta
úthald sitt og þjálfa og styrkja
vöðvana er nauösynlegt að hreyfa
sig a.m.k. 20-30 mín. þrisvar í viku.
Best er að fara varlega af stað en
auka áreynsluna smátt og smátt.
Stjóm matarlystar verður mun
betri við reglubundna líkamsþjálf-
un. Bruninn í líkamanum eykst svo
menn þola matinn betur vegna
aukins vöðvamassa. Eiginlega em
flestir venjulegir megrunarkúrar
gagnslausir fyrir heilbrigt fólk.
Regluleg hkamshreyfing og að-
haldssemi í sambandi við ákveðnar
fæðutegundir er aht sem þarf. Þú
verður að breyta lífsháttum þínum
Heiða, en hætta þessum eilífa elt-
ingaleik við töframegranir. Megr-
un er aldrei átakalaus og enginn
verður tággrannur fyrir tilstuðlan
töfralyíja." Hann horfði girndar-
lega á Heiðu og bætti svo við: „Mér
finnst að þú eigir að hætta þessu
megrunaræði og sætta þig við
kvenlegan Ukama þinn. Láttu ekki
kynlausa tískuhönnuði úti í heimi
stjórna lífshamingju þinni.“ Heiða
leit í augu Nökkva og skildi þau
skilaboö sem þar var að finna. Hún
tók veskið sitt, kvaddi hann bhð-
lega og hraöaði sér út. Nökkvi
skráði símanúmerið hennar
laumulega í vasabókina sína og
kahaði á næsta sjúkhng.
Konukvöld
AMERICAN MALE
á Hótel íslandi sunnudags-
kvöldið 20. mars vegna fjöida
áskorana. Húsið opnað kl. 19.
Matseðill
Gratineraðir sjávarréttir
með hvítlauksbrauði.
Verð með mat kr. 2.400,-
Verð án matar kr. 1.200,-
Tískusýning o.fl.
Diskótek Kvennaklúbbur
íslands
HÓTEL plND
Miða- og borðapantanir í síma 687111.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi:
RARIK-94003 11 kV rofabúnaður fyrir aðveitustöð,
Raufarhöfn.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudegi
21. mars 1994 og kosta kr. 2.000 hvert eintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 26. apríl 1994.
Verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Aðalstræti 92,
Patreksfirði, fimmtudaginn 24.
mars 1994 kl. 9.00 á eftirfarandi
eignum:
„Nýi bær“ veiðarfærageymsla í landi
Þinghóls, Tálknafirði, þingl. eig.
Hraðfiystihús Tálknaíjarðar hf., gerð-
arbeiðandi Sveinn Sveinsson hdl.
Aðalstræti 50, verbúð, Patreksfirði,
þingl. eig. Fiskvinnslan Straumnes
hf., gerðarbeiðendur Brunabótafélag
íslands, Byggingarsjóður ríkisins og
Patrekshreppur.
Aðalstræti 77A, Patreksfirði, þingl.
eig. Harpa Pálsdóttir, gerðarbeiðend-
ur Landsbanki íslands og Mál og
menning.
Aðalstræti 85, n.h., Patreksfirði, þingl.
eig. Rikhard Heimir Sigurðsson, gerð-
arbeiðandi sýslumaðurinn á Patreks-
firði.
Breiðavík, Rauðasandshreppi, þingl.
eig. Amheiður Guðnadóttir og Jónas
Hörðdal Jónsson, gerðarbeiðendur
Dynjandi hf. og sýslumaðurinn á Pat-
reksfirði.
Dalbraut 42, Bfldudal, þingl. eig.
Gunnar Valdimarsson, gerðarbeið-
andi Sláturfélag Suðurlands hf.
Grænibakki 5, Bíldudal, þingl. eig.
Guðmundur Ásgeirsson, gerðareió
andi sýslumaðurinn á Patreksfirði.
Hellisbraut 57, Reykhólum, þingl. eig.
Reykhólahreppur, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins.
Hlaða/fjárhús, Flatey, þingl. eig. Haf-
steinn Guðmundsson, gerðarbeiðandi
sýslumaðurinn á Patreksfirði.
Hraðfrystihús Tálknafjarðar ásamt
vélum, tækjum og áhöldum, þingl. eig.
Hraðfrystihús Tálknafjarðarjif., gerð-
arbeiðandi Fiskveiðasjóður íslands.
Lóð úr landi Bijánslækjar II, til bygg.
veitingaskála, þingl. eig. Ragnar Guð-
mundsson, gerðarbeiðandi Þór hf.
Miðtún 4,1-B, Tálknafirði, þingl. eig.
Hraðfrystihús Tálknafjarðarhf., gerð-
arbeiðendur Búland hf. og Tæknival
h£_________________________________
Mb. Tálknfirðingur BA-325, 1534,
þingl. eig. Hraðfrystihús Tálknafjarð-
ar hf., gerðarbeiðandi Fiskveiðasjóður
íslands.
Sláturhús á Gjögrum, Rauðasands-
hreppi, þingl. eig. Valdimar Össurar-
son, gerðarbeiðendur Brunabótafélag
íslands og Vátryggingafélag íslands.
Strandgata 19, Patreksfirði, þingl. eig.
Erlingur S. Haraldsson, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins.
Strandgata 20, leikskóh, Patreksfirði,
þingl. eig. Patrekshreppur, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Strandgata 5, 3. hæð austur, þingl.
eig. Geir Gestsson og Jóhanna Gísla-
dóttir, gerðarbeiðendur Innheimtu-
stofhun sveitarfélaga, Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna, sýslumaðurinn á
Patreksfirði, Tryggingastofhun ríkis-
ins og Veggprýði hf
Urðargata 19, n.h., Patreksfirði, þingl.
eig. Þórður Steinar Ámason og Krist-
ín G. Björgvinsdóttir, gerðarbeiðandi
sýslumaðurinn á Patreksfirði.
Ysta-Tunga, Tálknafirði, þingl. eig.
Tungueignir hf., gerðarbeiðandi
sýslumaðurinn á Patreksfirði.
Álfheimar 01, Reykhólahreppi, þingl.
eig. Reykhólahreppur, gerðarbeiðend-
ur Jarðboranir hf. og sýslumaðurinn
á Patreksfirði.
Þórsgata 9, Patreksfirði, þingl. eig.
Fiskvinnslan Straumnes h£, gerðar-
beiðendur Brunabótafélag Islands',
Eyrasparisjóður og Patrekshreppur.
SÝSLUMAÐURINN Á PATREKSFIRÐI