Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1994, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1994
21
Landskeppni kaupstaða í kara-
oke fer fram í kvöld í Félagsheim-
ilinu Víkurbæ í Bolungarvík.
Keppnin fer síðan vestur á fsa-
fjörð og ísfirðingar syngja í Sjall-
anum á laugardagskvöld.
Spilaborgin í
Tumhúsinu
Hljómsveitin Spilaborgin leikur
á nýjasta skemmtistað borgar-
innar, Turnhúsinu við Tryggva-
götu, á laugardagskvöld. Hljóm-
sveitinni hefur borist hösauki
sem er slagverksleikarinn Krist-
ín Þorsteinsdóttir en hún er
þekkt undir nafninu Stínabongo.
Tónlist hljómsveitarinnar ein-
kennist af djassi, latin og blús.
Bláeygt sak-
leysi
Bláeygu sakleysingjarnir verða
í Gjánni á Selfossi á fóstudags-
og laugardagskvöld. Á efnisskrá
Sakleysingjanna er að finna lög
eftir Pearl Jam, R.E.M., Police og
Elvis. Einnig er að fmna efni eftir
Sakleysingjana sjálfa sem stend-
ur til að komi út á geislaplötu i
náinni framtíð.
Bogomil í
Perlunni
Hinn sivinsæli Bogomil Font er
kominn heim frá Bandaríkjunum
og ætlar að halda dansleik í Perl-
unni á föstudag.
Bylgjuball
Bylgjan og Hótel ísland halda
Bylgjuball á föstudagskvöld á
Hótel íslandi. Þar verður stór-
kostleg danssýning á Grease sem
Heiena Jónsdóttir hefúr samið og
kemur fram fjöldi dansara. A
laugardagskvöidiö mætir Sumar-
gleðin aftur til leiks.
Menningar-
hátíð
Breiðabliks
Breiðablik heldur sína árlegu
menningarhátiö í kvöld kl. 20 í
Félagsheimili Kópavogs. Megin-
efni hátíðarinnar er listaverka-
uppboö þar sem flölmargir góðir
iistamenn koma við sögu.
Skólahijómsveit Kópavogs leik-
ur nokkur lög. Kynnir kvöldsins
verður Eyjólfur A. Kristjánsson.
Grindavík-
urbær 20
ára
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum
Grindavikurbær verður 20 ára
á sunnudaginn. í tilefni af því
efnir bæjarstjóm Grindavikur til
mikillar hátíðar um helgina.
Dagskráin hefst með unglinga-
dansleik á föstudagskvöldið í fé-
iagsheimilinu Festi. Á laugar-
dagsmorgun verður ný sundlaug
vígð og eftir hádegi verður dag-
skrá í umsjón UMFG. Þar verða
sýndir fimleikar, júdó, karfa og
fótbolti. Fyrsta sundmótið verður
haldiö kl. 15.
Á sunnudag kemur Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands, í
heimsókn og verður viðstödd
opnim sýningar á málverkum
Gunniaugs Schevings. Ki. 17 á
sunnudag hefst hátíðardagskrá í
íþróttahúsinu, tileinkuð Sigvalda
Kaidalóns tónskáidi.
Það er oft múgur og margmenni i bænum á löngum laugardögum.
Langur laugardagur:
Vorstemning á
Laugaveginum
Kaupmenn við Laugaveg og
Bankastræti standa fyrir Löngum
laugardögum fyrsta laugardag hvers
mánaðar. Nún nálgast vorið óðfluga
og umferð verður umtalsvert meiri í
miðbænum en á köldum vetrardög-
um. Á morgun mun söngleikjahópur
Söngsmiðjunnar koma og skemmta
vegfarendum Laugavegar og Banka-
strætis frá kl. 13.30 með atriðum úr
söngleikjunum American Graffiti,
Kabarett og Hippatímanum.
Hagkaup í Kjörgarði mun bjóða
gestum og gangandi upp á nýmalað
Gevalia sælkerakaffi kl. 13-17. Kod-
ak-bangsinn skemmtir flölskyldunni
í Bankastræti. Bangsaleikurinn
verður í gangi og munu stóri og litli
bangsinn verða á svæðinu og leita
að bangsanum með krökkunum. í
Verðlaun verða fimm vinningar frá
versluninni Vínberinu, Laugavegi
43. Auk þess bjóða verslanir og veit-
ingastaðir upp á afslátt eða sértilboö
í tilefni dagsins. Á löngum laugar-
dögum eru verslanir opnar kl. 10-17.
Þjöðleikhúsið
Stóra sviðið:
Gauragangur
sunnudagkl. 20.00
Allirsynir mlnir
laugardag kl. 20.00
Skilaboðaskjóðan
sunnudagkl. 14.00
Smiðaverkstæðið
Blóöbruliaup
laugardag kl. 20.30
Borgarleikhúsið
Stóra svið:
Gleðigjafarnir
föstudag kl. 20.00
Eva Luna
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
Leiklestur á griskum harmleikjum
liigenla i Ális
föstudag kl. 19.30
Agamemnon
laugardag kl. 16.00
Elektra
sunnudag kl. 16.00
Islenskaleikhúsið:
Vörulyftan
laugardag kl. 20.00
Leikfélag
Akureyrar:
Óperudraugurinn
föstudagkl. 20.30
laugardag kl. 20.30
BarPar
sunnudagki. 20.30
Fyrirlestur
umtrjá-
klippingar
í tiiefni af útkomu bókarinnar
Trjákhppingar kynnir Steinn Kára-
son skrúðgarðyrkjumeistari bókina
og heldur fræðsluerindi um klipp-
ingu trjáa og runna í Norræna hús-
inu á laugardag kl. 14. Sýndar verða
skýringarmyndir og litskyggnur og
greint verður frá helstu atriðum er
varða klippingu viðargróðurs í görð-
um og garðskálum.
Sigríður Gröndal, Stefán Arngrimsson, Elín Ósk Óskarsdótlir og Sigurður
Bragason.
Tónleikar Sinfóníunnar
Sinfóníuhljómsveit íslands heldur
tónleika í íþróttahúsi Grindavíkur á
laugardag kl. 17. Tilefni heimsóknar
hljómsveitarinnar til Grindavíkur að
þessu sinni er að 20 ár eru liðin síðan
Grindavík fékk kaupstaðarréttindi.
Fjórir einsöngvarar koma fram
með hljómsveitinni, þau Elín Ósk
Óskarsdóttir, Sigríður Gröndal, Sig-
urður Bragason og Stefán Arngríms-
son.
Bústaðakirkja:
Lúðrasveit verkalýðsins
Vortónleikar Lúðrasveitar verka- son leikur einleik á básúnu. Stjórn-
lýðsins verða haldnir í Bústaða- andi er Malcolm Holloway.
kirkju á laugardag kl. 17. Einar Jóns-
Sunnan heiða:
Meö vífið í lúkunum
Leikflokkurinn sunnan Skarðs-
heiðar frumsýndi um páskana gam-
anleikinn Með vífið í lúkunum eftir
Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen.
Leikurinn flallar um leigubílsflór-
ann Jón Varan sem af góðmennsku
sinni lenti í að vera kvæntur tveimur
konum. Með þrotlausu skipulagi og
mikilli vinnu hefur þetta gengið upp.
Hann blandast síðan inn í annarra
manna mál og upphefst mikill lyga-
vefur.
Leikstjóri er Valgeir Skagflörð.
Sýningar verða að Félagsheimilinu
Hlöðum á Hvalflarðarströnd í kvöld
og sunnudagskvöld kl. 21.
Dröfn Friðfinnsdóttir myndlistarkona.
Dröfn sýnir í listasafni ASÍ
Fánar á Royalé
Hljómsveitin Fánar leikur á Café
Royalé í Hafnarfirði á laugardags-
kvöld. Hljómsvéitin leikur létta
blandaða tónlist og víst er að andi
J.J. Cale og fleiri gítarsnillinga mun
svífa yfir vötnunum. Einnig er ör-
uggt að dansglaðir fætur munu fá
sinn skerf af sprikli áður en nóttin
er öll. Hljómsveitina Fána skipa
miklir snilíingar, hver á sínu sviði;
Magnús Einarsson, gítar og söngur,
Þorsteinn Magnússon, gítar, Harald-
ur Þorsteinsson, bassi og söngur og
Ragnar Sigmjónsson, trommur.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Dröfn Friðfinnsdóttir, myndlistar-
kona frá Akureyri, opnar á morgun
sýrnngu á grafíkverkum í Listasafni
ASÍ við Grensásveg. Þetta er sjötta
einkasýning Drafnar.
Á sýningunni eru 24 verk unnin í •
tréristu, eintakaflöldi myndanna er
frá einþrykki til tíu eintaka og eru
öll verkin unnin á árinum 1992-1994.
Dröfn hefur tekið þátt í samsýning-
um og haldið einkasýningar hér á
landi og erlendis. Sýning hennar í
Listasafni ASÍ verður opin daglega
kl. 14-19 til sunnudagsins 24. apríl.