Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1994, Blaðsíða 6
i
Háskólabíó:
Leitin að Bobby Fischer
Leitin að Bobby Fischer er sönn saga
um þroskagöngu undrabarnsins Josh
Waitzkin sem nú er orðinn 15 ára gamall
og einn fremsti skákmaður Bandaríkj-
anna.
Skákmaðurinn Bruno Pandolfini upp-
götvaði hann þegar Josh var sex ára gam-
all og dundaði sér við að rústa menn í
hraðskák í hinu fræga skákhomi Was-
hington Square Park. Pandolfini sá snilld-
argáfuna og einsetti sér að búa til nýjan
Bobby Fischer. En ef maður á að verða
jafngóður og Fischer verður maður þá að
lifa eins og hann?
i myndinni eru margar hörkuspennandi
skákir sem Pandolfini og Waitzkin settu
upp fyrir myndina. Til aö finna pilt í hlut-
verk Josh Waitzkin var haldin hæfileika-
keppni um öll Bandaríkin og var hinn átta
ára gamh Max Pomeranc valinn en hann
er einn af 100 fremstu skákmönnum í sín-
um aldursflokki í Bandaríkjunum.
Mikið er vitnað til ferils Bobbys Fischer
í myndinni og meðal annars sýnt frá ein-
vígi hans við Boris Spassky hér á landi
árið 1972.
Aðalhlutverkin leika Joe Mantegna,
Laurence Fishburne, Joan Allen, Max
Pomeranc og Ben Kingsley. Handrit og
leikstjórn er í höndum Stevens Zaillian.
Scott Rudin og William Horberg eru fram-
leiðendurmyndarinnar. -em
River Phoenix og Samantha Mathis í hlutverkum
sínum sem sveitatónlistarfólk.
Háskólabíó:
Eins
konar
ást
Háskólabíó frumsýnir í dag kvikmyndina Eins
konar ást eða The Thing Called Love. í myndinni
kynnumst við fjórum ungmennum sem eru að
reyna að fóta sig á þymum stráðri frægðarbraut
sveitatónlistar í höfuðborg þeirrar tónlistarstefnu,
Nashville.
James Wright (River Phoenix) frá Texas, Mir-
anda Presley (Samantha Mathis) frá New York
City, Kyle Davidson (Dermot Muironey) frá
Connecticut og Linda Lue Linden (Sandra Bullock)
frá Alabama eru öll lagasmiðir sem fara til höfuö-
borgar sveitatónlistarinnar, NashviUe, þar sem
þau hyggjast freista gæfunnar og leita frægðar.
Gatan að frægð og frama er oft þyrnum stráð
eins og ungmennin komast að. Fjölda fólks dreym-
ir um það sama og samkeppnin er því mikil og
erfið. Unga fólkið, sem kemur til Nashville með
vonina í farteskinu, þarf að læra ýmislegt um leið-
ina tii frægðar. Það skiptir engu hversu grýtt
brautin er því aö leiðin að hinni einu sönnu ást
er jafnvel ennþá grýttari.
Leikstjóri myndarinnar er Peter Bogdanovich
og framleiðandi er John Davis. Handritið skrifaði
Carol Heikkinen. Peter Bogdanovich hefur komið
sveitatónhst að í myndum sínum aUar götur frá
því að hann leikstýrði The Last Picture Show árið
1971. Hann hefur leikstýrt myndum eins og Paper
Moon, Saint Jack og They AU Laughed. -em
Háskólabíó:
litli
Búdda
ítalski leikstjórinnn Bernardo Bertolucci ræðst
ekki á garðinn þar sem hann er lægstur með síð-
ustu mynd sinni, LitU Búdda. Tibetski munkurinn
Lama Norbu og aðstoðarmaður hans, Champa, lifa
í útlegð í búddaklaustri í konungsríkinu Búthan
í Himalajaíjöllum. Þeir leggja af stað í langferð til
Seattle í Bandaríkjunm. Ástæður ferðalagsins eru
þær aö vísbendingar hafa borist um að látinn læri-
faðir þeirra og mikiU meistari hafi endurholdgast
í Ukama Jesses, Utils drengs sem þar býr uppi á
hæð ofan við borgina með foreldrum sínum.
Munkunum tekst að fá foreldra Jesse til að leyfa
sér að fara með Jesse til Himalaja svo hægt verði
að ganga úr skugga um hvort hann sé hinn mikli
lærimeistari endurholdgaður en hann keppir við
tvö önnur börn um það sæmdarheiti. Faðirinn fer
með, enda á hann í nokkru sálarstríði vegna ver-
aldlegra skakkafalla.
SamhUða sögunni af Jesse og munkunum er
sögö sagan af Siddartha prins sem gerðist fyrir tvö
þúsund og fimm hundruð árum, hvemig hann
uppgötvaði þjáninguna, sjúkdómana og dauðann
í heiminum og gerðist meinlætamaður-og loks
hinn mikU Búdda.
í Litla Búdda er ferðast inn i ólíka heima.
Laugarásbíó:
Tomb-
stone
Sýningar á stórmyndinni Tombstone standa nú
yfir í Laugarásbíói. í aðalhlutverkum eru Kurt
Russel, Val Kilmar, Sam EUiot, BiU Paxton, Micha-
el Biehn og Charlton Heston. Leikstjóri myndar-
innar er George Cosmatos.
Tombstone fjallar um Wyatt Earp, frægasta
byssubrand viUta vestursins. Wyatt Earp, bræður
Stórmyndin Tombstone er sýnd i Laugarásbíói.
hans tveir, Morgan og VirgU, ásamt Doc HolUday
settust að í bænum Tombstone. Þeir reyndu að
halda sér fyrir utan mál bæjarins en fljótlega lenti
þeim saman viö kúreka bæjarins, Clanton og
McClaury bræðurna. Þær deilur leiddu til bardag-
ans við O.K. Corral. Að honum loknum höfðu þrír
menn látið lífið. í stað þess að jafna deilurnar
varð bardaginn aðeins upphafið að blóðugustu
smástyrjöld sem átt hefur sér stað í vUlta vestr-
inu. Wyatt Earp var ekki upphafsmaður þessarar
styrjaldar og vUdi allt gera til að koma í veg fyrir
hana. Þegar það mistókst þurfti hann að beita allri
sinni kænsku og hugrekki til að sigra í henni.
-em
Anthony Hopkins leikur breskan yfirþjón sem
fórnar ástinni fyrir hollustuna.
Stjörnubíó:
Dreggjar
dagsins
í Stjömubíói standa yfir sýningar á stórmynd-
inni Dreggjar dagsins eða Remains of the Day sem
byggð er á samnefndri Booker-verðlaunaskáld-
sögu Kazuo Ishiguro. Með aðalhlutverk fara ósk-
arsverðlaunahafamir Anthony Hopkins og Emma
Thompson.
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1994
Kvikmyndir
BÍÓBORGIN
Sími 11384
Pelíkanaskjalið
Vel heppnaður spennutryllir um víðtækt sam-
særi í Washington. Stjörnuleikarar standa vel
fyrirsínu. -HK
Hús andanna *★★'/,
Bille August hefur tekist að gera áhrifamikla
og vandaða kvikmynd, mynd sem hrærir við
tilfinningum og lætur engan ósnortinn. -HK
BÍÓHÖLLIN
Sími 78900
Beethoven 2 ★ Zi
Það stendur upp úr annars slakri gamanmynd
eru hinir skemmtilegu St. Bernhardshundar
sem standa mennskum leikurum mun framar
i túlkun. Einnig sýnd í Háskólabiói. -HK
Aladdin ★*★
Aladdin er einstaklega vel heppnuð teikni-
mynd. islensku leikararnir, sem tala inn á
myndina með Ladda I broddi fylkingar, ná
góðumtökumápersónunum. -HK
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Mrs. Doubtfire ★★★
Robin Williams er frábær. Hann sýnir allar
sinar bestu hliðar sem gamanleikari i tvöföldu
hlutverki. Góð skemmtun fyrir alla fjölskyld-
una. -HK
HÁSKÓLABÍÓ
Sími 22140
Blár ★ '/;
Fremur tilgerðarleg mynd um unga ekkju sem
tekst á við lifið og sorgina eftir lát mannsins
síns. -GB
Litli Búdda ☆☆
Bertolucci hefur gert betur en hér i mynd
um leit búddamunka að leiðtoga sinum end-
urholdguðum. -GB
Listi Schindlers ☆☆☆
Spielberg tvinnar saman helförina og starf-
semi þýsks striðsmangara i Póllandi með
misjöfnum árangri en veitir óneitanlega eina
bestu innsýn til þessa I kafla mannkynssög-
unnarsemmáekkigleymast. -GE
I nafni föðurins ★★★'/J
Áhrifamikil og sterk kvikmynd frá írska leik-
stjóranum Jim Sheridan. Daniel Day Lewis
og Pete Postlethwaite eru mjög góðir i hlut-
verkum feðga sem verða fórnarlömb haturs.
-HK
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Tombstone ★ Vi
Slappur og sundurlaus vestri sem er óþörf
viðbót i stóran hóp mynda um Wuatt Earp,
Doc Hojliday og lætin i O.K. Corall. Góður
leikhópur virðist ráðvilltur.
Leiftursýn ★'/;
Þokkaleg spennumynd um blinda konu sem
fær hálfa sjón og baráttu hennar við að sann-
færa lögguna um að hún geti ’borið kennsl
á morðingja.
-GB
Dómsdagur ★★
Spennandi tryllir um unga menn sem villast
af leið i borgarfrumskóginum. Kemur á óvart.
-GB
REGNBOGINN
Sími 19000
Lævis leikur ☆
Litt spennandi spennumynd um meint
læknamistök og svik og pretti.
-GB
Germinal it+Zi
Niðurdrepandi stórmynd um eymd, volæði
og verkföll kolanámufólks en góður efniviður
skáldsögu Emile Zola og frábær ieikhópur
heldur henni uppi. -GE
Far vel, frilla mín ☆☆J4
Stórglæsileg mynd um róstusamt líf tveggja
óperusöngvara sem nær samt aldrei flugi
vegna fjarlægðar við persónurnar. -GE
Arizona Dream ☆'/:
Evrópskur leikstjóri varpar Ijósi á tálsýn
draumalandsins. Góðir punktar inn á milli en
heildin ber þess merki að hann hafi látið of
mikið eftir eigin duttlungum. -GE
Kryddlegin hjörtu ★★★
Heillandi frásagnarmáti í bragðmikilli og
dramatiskri mynd þar sem ýkjukennd sagna-
hefð nýtur sin vel. Athyglisverð og vel leikin
kvikmyndiháumgæðaflokki. -HK
Píanó ★★★ Vi
Pianó er einstaklega vel heppnuð kvikmynd,
falleg, heillandi og frumleg. Þrátt fyrir að rauði
þráðurinn sé erótik með öllum sínum öfgum
er myndin aldrei yfirþyrmandi dramatisk. - H K
STJÖRNUBÍÓ
Sími 16500
Dreggjar dagsins ★★★★
Anthony Hopkins er maður dagsins i þessari
úrvalsmynd um þjóninn Stevens sem missir
af lifsins strætó en vill bæta fyrir mistök sin.
-GB
Fleiri pottormar ★l/J
Hugmyndin var góð i fyrstu myndinni en er
orðin útþynnt og að láta hunda hugsa eins
og manneskjurerfullmikiðafþvigóða. -HK
Morðgáta á Manhattan ★★★
Léttur og leikandi Woody Allen og félagar í
þráhyggjuleit að meintum morðingja.
-GB
I kjölfar morðingja ★★
Bruce Willis í banastuði sem fljótalögga I
Pittsburgh I spennandi eltingaleik við band-
óðan fjöldamorðingja. Hasar í góðu meðal-
lagi. -GB