Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 5
24 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994 íþróttir__________________ Sagteftirleikinn: Brotnuðum niður síðustu mínúturnar Ægir Már Kárasan, DV, Suöumesjnm; „Við spiluðum mjög illa og þá sér- staklega vamarlega séð í fyrri hálf- leik. Þeir voru að skora bæði inni í teig og svo hittu þeir vel í þriggja stiga skotunum. Við vorum mjög seinir í gang eins og í fyrsta leiknum og það nýttu þeir sér. Við töluðum um það i hálfleik að spila betri vöm og leggja aðeins meira á okkur og að ná frá- köstunum. Þetta gekk mjög vel í síð- ari hálfleik, bæði í sókn og vöm, og þá fengum við hraöaupphlaupin og ódým stigin. Viö ætlum okkur sigur í Grindavík á þriðjudaginn og mun- um reyna að halda þessari vörn sem við náðum upp í síðari hálfleik," sagði Teitur Örlygsson yið DV en hann átti stórleik í Uði Njarðvíkinga. Verðum að keyra á fullu allan tímann Við brotnuðum niður síðustu 8 mín- úturnar og þaö fór allt úrskeiðis hjá okkur. Við spiluðum vel í fyrri hálf- leik en við verðum að halda áfram að spila eins vel í síðari hálfleik, það þýðir ekkert að fara að slappa af þótt við séum með forystu í hálfleik. Við verðum að keyra á fullu allan leikinn því þeir em með mjög gott Uð. Það sem við ætlum að gera í næsta leik er að spila vel í 40 mínút- ur,“ sagði Bandaríkjamaðurinn Wa- yne Casey í liði Grindvíkinga. A eftir að skoða hvað fór úrskeiðis „Það er ekki nóg að spila vel annan hálfleikinn og þá sérstaklega á útivelU á móti Njarðvik. Ég á eftir að skoða hvað fór úrskeiðis í síðari hálfleik. Skotin duttu ekki niður eins og þau gerðu í þeim fyrri og þeir náðu að stöðva þriggja stiga skotin. ísak og fé- lagar fóru í gang í síðari hálfleik og þá var erUtt að eiga við þá,“ sagði Guð- mundur Bragason, þjálfari og leikmað- ur Grindvíkinga, eftir leikinn. Njarövlk (44) 96 Grindavik (52) 82 4-3,4-8,15-14,15-21,19-21,19-25, 21-29, 30-41, 37-43, 38-50, 44-50, (44-52), 49-58, 55-81, 62-62, 64-66, 70-66, 72-70, 79-70, 79-74, 90-79, 96-79,96-82. Vítanýting: Njarövík 30/17, Grindavík 21/16. 3ja stiga körfur: Njarðvík 5, Grindavík 8. Villur: Njarðvík 17, Grindavík 25. Áhorfendur: um 800. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Jón Otti Ólafsson. Höfðu góð tök á leiknum sem var sá síðasti sem Jón dæmir og er eftirsjá að þessum brosmilda dómara. Maður leiksins: Teitur Örlygs- son, Njarðvík. Rondey Robin- son hefur átt frá- bæra leiki með Njarðvíkingum í fyrstu tveimur úr- slitaleikjunum. Rondey Robinson: Erum vonandi komnir með sjálf straustið Ægir Mar Kárason, DV, Suðumesjum: „Þeir hittu mjög vel í fyrri hálf- leik en viö náðum að hanga í þeim í þetta skiptið og misstum þá ekki of langt frá okkur eins og síðast. í síðari hálfleik náðum við upp góðri vörn, liðsheiidin var öflug og viö náðum að halda þeim algjörlega í skefjum. Ég held að orsökin fyrir því að við vorum svona rólegir í fyrri hálfleik hafi verið sú að við vorum að passa okkur á að safna ekki villu"i eins og í fyrsta leiknum og fórum því full varlega í sakim- ar,“ sagði. Rondey Robinson, Bandaríkjamaðurinn snjalli í liði Njarðvíkinga, við DV eftir leikinn í Njarðvík. „Við komum sterkir til næsta leiks og vonandi erum við komnir með sjálfstraustið sem við þurfum. Við verðum að vinna leikinn í Grindavík og viljum ekki fara í 5 leiki á móti þeim. Það er kominn tími á okkur að vinna þá á þeirra eigin heimavefli en það er mjög erfitt aö leika í Grindavík. Það er alveg öruggt mál að við látum þá ekki vera með 23 stiga forskot í hálfleik,“ sagði Rondey sem leikið hefur stórt hlutverk í Njarðvíkurl- iðinu í fyrstu tveimur úrslitaleikj- unum. Teitur Örlygsson átti frábæran leik með Njarðvíkingum i sókn sem vörn og hér sýnir hann glæsiieg varnartilþrif undir körf- unni gegn Wayne Casey. Jóhannes Kristbjörnsson Njarðvikingur stendur álengdar og fylgist með. DV-mynd G£ Staðan jöfn í baráttunni um Islandsmeistaratitllinn: Teitw í stuði - stórleikur hans lagði grunninn að sigri Njarðvíkinga Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Njarðvíkingar sigruðu Grindvíkinga í öðrum leik hðanna um íslandsmeistara- titilinn í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik, 96-82, í Njarðvík á laugardaginn og jöfnuöu þar með metin en Grindvíkingar unnu fyrsta leikinn í einvíginu. Grindvíkingar byrjuðu leikinn mjög vel og voru fljótir aö þagga niður í stuðn- ingsmönnum Njarðvíkinga. Njarðvík- ingar höfðu góðar gætur á Hirti Harðar- syni og Wayne Casey og þá tók Marel Guðlaugsson til sinna ráða og raðaði niður hverri þriggja stiga körfunni á fætur annarri. Grindvíkingar náðu mest 13 stiga forskoti í fyrri hálfleik en í leik- hléi var munurinn 8 stig, 44-52. Varnar- leikur Njarðvíkinga var mjög slakur í fyrri hálfleik og leikmenn liðsins náöu aldrei að sýna sitt rétta andlit. Þegar líða tók á síðari hálfleikinn náðu Njarðvíkingar að minnka muninn jafnt og þétt, þeir lokuðu vörn sinni og Grind- víkingar fengu ekki frið til að ná góðum skotum. Njarðvíkingar pressuðu stíft og náðu að stela boltanum oft af Grindvík- ingum og um hálfleikinn miðjan var staðan orðin jöfn. Síðustu 8 mínúturnar voru algjörlega eign heimamanna. Grindvíkingar virtust algjörlega búnir og Njarövíkingar fognuðu gríðarlega þegar leikurinn var úti. Þegar Njarðvíkurhðið er að sýna sitt rétta andht þá er erfitt að stöðva það. í fyrri hálfleik í báöum leikjunum hafa leikmenn Uðsins verið að skjóta úr léleg- um færum og einstaklingsframtakið hef- ur ráðið ríkjum en allt annað hefur ver- ið upp á teningnum í síðari hálfleikjun- um. Teitur Örlygsson átti frábæran leik. Hann hélt Uði sínu á floti í fyrri hálfleik og í síðari hálfleik dreif hann félaga sína með sér. Rondey Robinson var mjög sterkur og ísak kom mjög öflugur upp í lokin og hann fékk það hlutverk að halda aftur að Hirti Harðarsyni og leysti það feiknalega vel. Jóhannes Kristbjömsson komst ágætlega frá sínu sem og Friðrik Ragnarsson. Leikur Grindvíkinga var mjög kafla- skiptur. í fyrri hátfleik gekk flest upp, vörnin var sterk og hittni leikmanna góð en í síðari hálfleik fór flest úrskeiðis. Nökkvi Már Jónsson lék best Grindvík- inga. Marel Guðlaugsson átti frábæran leik í fyrri hálfleik og Guömundur Bragason var þá ágætur líka. Hjörtur Harðarson var í mjög strangri gæslu og gekk illa í sókninni og munar um minna. Þriðji úrslitaleikur Uðanna fer fram í Grindavík annað kvöld og hefst leikur- inn klukkan 20.30. MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994 25 Iþróttir Urslitakeppni 1. deildar kvenna í körfu: Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum: „Við lékum mjög skynsamlega í þessum leik og höfðum leikinn 1 höndum okkar allan síðarí hálf- leikinn. Þær fengu aldrei tíraa til að skjóta auðveldum skotum og við náðum að stöðva þær. Fjórði leik- urinn veröur án efa mjög flörugur og sennilega munu úrslitin ekki ráðast fyrr en á lokasekúndun- um,“ sagði Sigurður Ingimundar- son, þjálfari ÍBK, eftir sigur liðsins á KR, 71-61, í Keflavík í gærkvöldi. Þetta var Þriöji leikur stúlknanna og staðan er 2-1 fyrir ÍBK. Leikurinn var mjög sveiflu- kenndur og mörg mistök voru á báða bóga og mikill taugatitringur hjá leikmönnum. Leikurinn byrj- aði mjög fjörlega og var jafn en á síðustu mínútum fyrri hálfleiks náði ÍBK góðum kafla og hafði 12 stiga forskot í hálfleik, 37-25. KR-ingar náðu að minnka mun- inn í 6 stig um miðjan síðari hálf- leik en náðu ekki að fylgja því eftir enda Keflvíkingar mun ákveðnari. „Við vinnum ekki Keflavík á þvi aö tapa boltanum 30 sinnum í leik. Það er hægt á móti lélegum liðum en ekki gegn svona sterku liði. Við gerum breytingar í sóknar- og varnarleik okkar fyrir næsta leik. Viö höfum ekki tapað á heimavelii í vetur og ætlum ekki að gera það í næsta leik,“ sagði Stefán Amar- son, þjálfari KR-inga, eftir leikirm. Anna María Sveinsdóttir var besti maöur Keflvíkinga. Hún var gríðarlega sterk í vörn sem sókn. Olga Færseth átti einnig mjög góð- an leik og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. KR-ingar náðu sér aldrei al- mennilega á strik í sóknarleiknum. Helga, Þorvaldsdóttir, sem hefur átt frábært tímabil með KR, átti ágæt- an síðari hálfleik í sóknarleiknum en hún var mjög grimm í varnar- leiknum. Þá átti María Guðmunds- dóttir góðan síðari hálfleik. Stig IBK: Olga Færseth 21, Anna María Sveinsdóttir 18, Björg Haf- steinsdóttir 14, Hanna Kjartansdótt- ir 10, Guðlaug Sveinsdóttir 4, Elin- borg Herbertsdóttir 4. Stíg KR: Helga Þorvaldsdóttir 18, Guðbjörg Norðfjörö 14, María Guö- mundsdóttir 14, Eva Havlikova 8, Kristin Jónsdóttir 4, Kolbrún Páls- dóttir 3. Spenna á föstudagskvöld Það þurfti að framlengja leik KR og ÍBK tvisvar sinnum til þess að fá fram úrslit í öörum úrslitaleik liöanna í Hagaskóla á fóstudags- kvöld. KR-ingar voru sterkari á endasprettinum og sigruðu, 80-77. Leikurinn fór flörlega af stað og leiddu Keflavíkurstúlkur lengst af venjulegs leiktíma en KR-stelpurn- ar áttu góðan endasprett og náðu að breyta stöðunni úr 63-54 í 63-63 og náðu þannig í framlengingu. Þær komu síðan mjög ákveðnar til leiks í framlenginguna en þá náði Olga Færseth aö jafha tveimur sek- úndum fyrir leikslok með tveimur vitaköstum. KR lék síðan mun bet- ur í seinni framlengingunni og sigraði, 80-77. „Þær voru stressaðri heldur en við í framlengingunni og það réð úrslitum. Þetta var rosaieg barátta en við spiluðum skynsamlega vörn. Við áttum í erfiðleikum með svæð- isvörnina hjá þeim en þetta hafð- ist. Það er gaman að vinna eftir tvær framlengingar, við höfum lent í framlengingum og gengiö illa svo að þetta var errn meíra gaman,“ sagði Helga Þorvaldsdóttir sem átti frábæran leik i liði KR. „Við lékumilla síöustu fimm min- útur venjulegs leiktíma á meðan þær spiiuðu vel,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfariKeflavíkur. Stig KR: Helga Þorvaldsdóttir 26, Eva Havlíkova 18, Kristín Jónsdóttir 17, Guðbjörg Norðflörð 12, Sara Smart 4, Hrund Lárusdóttir 2 og María Guðmundsdóttir 1. Stig ÍBK: Olga Faerseth 22, Hanna Kjartansdóttir 16, Anna María Sveinsdóttir 16, Björg Hafsteindóttir 15, Guðlaug Sveinsdóttir 6 og Elín- borg Herbertsdóttir 2. ih Torf i endurráðinn Torfi Magnússon var um helgina endurráðinn landsliðsþjálfari karla í körfuknattleik. Staða landsliðsþjálf- ara var lögð niður tímabundið vegna verkefnaskorts í fyrra og hætti Torfi þá í kjölfarið. Undanfarnar vikur hefur KKÍ verið í samningaviðræð- um við Torfa og um helgina tókst loks að ganga frá samningum. Næstu verkefni íslenska landsliðs- ins er þátttaka á Norðurlandamóti sem fram fer í Svíþjóð 10.-14. maí en þar leikur ísland í riðli með Litháum, Finnum og unglingalandsliði Svía. Þá fer Promotion-cup fram á írlandi í byrjun júni. Þátttaka á þessum mótum markar undirbúning fyrir Evrópukeppnina 1995. Á FIBA þing- inu í vor verður borin upp tillaga að fjölga Uðum sem komast í undanúr- slitakeppni Evrópukeppninnar. Þaö þýðir að möguleikar Islands á að komast í þá keppni aukast og sem meira er landshðið leiki þá mikil- væga landsleiki heima og að heiman. GH NJARÐVÍK Nafn Stig Fráköst Stoðs. Rondey Robinson 26 15 2 Valurlngimundarson 7 7 3 Friðrik Ragnarsson 11 1 3 Teitur Örlygsson 35 5 6 Jóhannes Kristbjörnsson 8 4 0 Ástþór Ingason 0 1 0 ÍsakTómasson 9 6 6 Samtals 96 39 20 GRINDAVÍK Nafn Stig Fráköst Stoðs. Wayne Casey 17 4 5 Guðmundur Bragason 14 8 1 Marel Guðlaugsson 14 2 0 PéturGuðmundsson 9 4 0 Nökkvi Már Jónsson 21 6 3 Hjörtur Harðarson 4 8 3 Unndór Sigurðsson 3 0 1 Samtals 82 32 13 . n SÁLFRÆÐILEGUR SPENNUROMAN ettir metsöluhöfundinn RAFAEL YGLESIAS hbífandi skáldsaga s fjctíon íWarner. j : an ] Ratael ^f^veiabour i aim°sl s. ’ aftermath- Á harrovong a on m FEAH' $18.95-) ln airplane c survlvors reader s har'- - r survive: OTTALAUS hefur hlotið mjög góðar viðtökur og verið þýdd á mörg tungumál. íslenska er níunda tungumálið sem færir lesendum sínum þessa heillandi skáldsögu innan árs frá því aó bókin kom út í Bandaríkjunum. Rafael Yglesias er einn fjölhæfasti rithöfundur okk- ar tíma. Hann hefur ein- stakt lag á að haida les- andanum föngnum og gefa persónum sínum það líf sem þær þurfa til að búa áfram í huga lesandans þegar bókin er lesin til enda. Samnefnd kvikmynd veró- ur synd í Sambíóunum Meó aðalhlutverk fara Jeff Bridges Rosie Perez og Isabella Rossellíni. OTTALAUS var efst á blaði hjá banda- ríska stórblaðinu New York Times þegar athyglisverðar skáldsögur árs- ins 1993 voru rifjaðar upp (NYT Book Review, 5 des. 1993). Það er ekki að- eins að sögupersónurnar lifi af flug- slysiö, heldur lifa þær áfram í hugum lesendanna segir í umsögn blaðsins. A NÆSTA SOLUSTAÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.