Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1994 Fréttir Komu auga á mann sem tók upp seðlaveski með peningum á veitingahúsi: Tvö dæmd í fangelsi fyrir að ræna mann - traðkað á höfði mannsins og hann barinn með spýtu í höfuðið Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt þrítugan karlmann og tvítuga konu í 12 og 8 mánaða fangelsi fyrir rán með því að hafa ráðist á manninn með ofbeldi og tekið af honum seðla- veski með a.m.k. 30 þúsund krónum og armbandsúr. Atburðurinn átti sér stað á bílastæöi norðan við Grettis- götu 87 aðfaranótt 10. óktóber síðast- Uðins. Maðurinn kærði atburðinn til lög- reglu síðar sama dag en þá var hann skrámaður á hálsi, bringu og kinn- um, með glóðarauga og kúlu á hnakkanum. Hann lýsti því að hönd- um hans heíði verið haldið fyrir aft- an bak og hann barinn í höfuðiö meö spýtu. Maðurinn hafði verið ölvaður á veitingahúsinu Keisaranum um nóttina og taldi hann fyrst að tveir menn hefðu rænt sig. Við yfirheyrslur kvaðst konan hafa ákveðið að reyna að komast yfir pen- inga mannsins þegar hún sá hann taka upp seðlaveski sitt á Keisaran- um. Hjá lögreglu viðurkenndi konan að hafa elt manninn ásamt félaga sínum út af veitingastaönum, þau stöövað fór hans og stohð rúmlega 30 þúsund krónum af honum og greiðslukorti. Félagi konunnar sagöi við yfir- heyrslur að hún hefði traðkað á höfði mannsins og viðurkenndi hann jafn- framt að hafa hrint kærandanum. Maðurinn viöurkenndi jafnframt að hafa tekiö armbandsúr af honum. Þegar kærandi kom fyrir dóm sagði hann að þaö hefði rifjast upp fyrir sér að það hefðu verið karl og kona sem réðust á hann og rændu. Héraðsdómur taldi sannað að sak- bomingamir hefðu tekið veskið af manninum með ofbeldi. Maðurinn hefur 19 sinnum hlotið dóma fyrir brot gegn hegningarlögum og um- ferðarlögum. Hann hlaut síðast 6 mánaða dóm í desember. Konan hef- ur áður hlotið dóm fyrir skjalafals en hefur 7 sinnum sæst á sektar- greiðslur fyrir brot á almennum hegningarlögum. Fólkið var jafn- frpmt dæmt til að greiöa manninum sem það rændi 30 þúsund krónur í skaðabætur. -Ótt Danskeppnin í Blackpool: Sátuheima með fótbrot og puttabrot Svo óheppilega vildi til að Asta Lára Jónsdóttir, fjórfaldur íslands- meistari í dansi, fótbrotnaöi í kapp- leik í íslandsmóti kvenna í fótbolta í lok janúar og var með spelkur á vinstra fæti meðan alþjóðlega dan- skeppnin í Blackpool var fyrir nokkrum vikum. Svo óvenjulega vildi til að dansfélagi Ástu Láru, Andri Stefánsson, puttabrotnaði fjórum vikum fyrir danskeppnina þannig að þau voru bæði fjarri góðu gamni meðan landar þeirra dönsuðu í Englandi. „Ég er alveg rosalega spæld yfir að hafa brotnað í vetur því þetta er búið að skemma svo mikið fyrir mér. Ég get ekkert dansað og svo er ég búin að missa af Blackpool. Ég er farin að reyna smávegis að dansa en þaö er ekki öruggt hvenær ég get byijað að dansa aftur,“ sagði Ásta Lára þeg- ar DV hafði samband við hana í gær. Ásta Lára og Andri kepptu í flokki sex til ellefu ára í Blackpool í fyrra og vonuðust til að gera góða hluti í ár. Þau verða tólf ára í vor og var þetta því síðasta ánð sem þau keppa í yngri flokknum. Ásta Lára og Andri eru fjórfaldir íslandsmeistarar og hafa oft komist í úrslit í danskeppni. Ásta Lára er enn í endurhæfingu þannig að óljóst er hvort þau ná að keppa í íslandsmeistarakeppninni í dansi í maí. -GHS ijiríiu Ellefu ára danspar, Ásta Lára Jónsdóttir og Andri Stefánsson. Hún fótbrotn- aði og hann puttabrotnaði skömmu fyrir alþjóðlegu danskeppnina i Black- pool i Englandi fyrir stuttu og voru þau þvi f spelkum og gifsi meðan land- ar þeirra dönsuðu i útlandinu. Meinatæknar: Dregiðúrrann- sóknum umallt að90prósent Ástandið á Ríkisspítölunum, Borgarspítala og Landakotsspít- ala versnar stöðugt, vegna verk- falls meinatækna, og er nú svo komið að helmingur sjúkrarúma á Landspítalandaum, eða 100-120 rúm, standa tóm auk þess sem dregið hefur úr rannsóknum í meinaefna- og blóðmeinafraeði- deild um 75 prósent og sýklarann- sóknum um 90 prósent, svo nokk- ur dæmi séu nefhd. „Ástandið verður verra með hverjum klukkutimanum sem líður. Innan spítalans er mjög gott samstarf við meinatækna um undanþágur en menn halda að sér höndum á öllum sviðum. Nánast helmingur af öllum sjúkrarúmum hér standa tóm og vinnuafl margra starfsmanna nýtist ekki. Biðlistar lengjast og maður veit ekki alveg í hvað stefnir með vissar alvarlegar rannsóknir, til dæmis blóðþynn- ingar,“ segir Ásmundur Brekkan, formaður Læknaráðs Landspítal- ans. -GHS EES-samningurinn: Dagljósabún- aðar ekki kraf ist Sjálfvirkur dagljósabúnaður á bifreiðum, sem fluttur er til landsins, verður ekki skylda samkvæmt reglum sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu. Að sögn Guðna Karlssonar, deildar- stjóra í dómsmálaráðuneytinu, breytir þetta ekki þeirri reglu aö ekið skuli með ökuljós jafht að degi sem nóttu allan ársins hring. Guðni segir að ekki hafi þótt stætt á að halda þeirri reglu að allir nýir innfluttir bílar hefðu sjálfvirkan dagljósabúnað. Hægt væri aö túlka slíka reglu sem tæknilega viðskiptahindrun. Hann bendir á að á víða I Evrópu sé verið að innleiða notkun dag- ljósa og að annars staðar á Norð- urlöndunum sé slíkt skylda. -kaa í dag mælir Dagfari Fleiri móðgaðir Dagfari gerði það að umtalsefni í gær hvað bankaráðsformaðurinn í Seðlabankanum er móðgaður. Formaðurinn, Ágúst Einarsson, fulltrúi Alþýðuflokksins, móðgað- ist svo rosalega að hann sá sig knú- inn til að segja af sér formennsku. Ágúst hélt nefnilega að það væri einhvers virði að sitja í bankaráði og að bankaráðið væri einhvers virði og aö menn tækju mark á því. Hvemig manninum hefur dott- ið þetta í hug er hin mesta ráögáta vegna þess aö bankaráð Seðlabank- ans hefur aldrei ráöið einu né neinu og aldrei til þess ætlast. Jó- hannes Nordal hefur stjómað þess- um banka í marga áratugi og bankaráðið hefur ekki skipt neinu og á ekki að skipta neinu. Bankaráð er til punts í Seðlabankanum og bankaráðsmenn sem halda annað eiga ekki að vera í bankaráðinu. En það em fleiri en Ágúst sem hafa móðgast. Guðmundur Magn- ússon prófessor, sem einnig situr í bankaráðinu, sótti um og fékk þrjú atkvæði. Hann er mjög móðgaður yfir því að hafa ekki hlotið stöð- una. Hann íhugar afsögn. Ólafur B. Thors situr einnig í bankaráðinu. Hann sótti að vísu ekki um en hann er stórlega móðg- aður yfir þeim yfirgangi í ráðherr- anum að skipa bankastjóra án þess að taka tillit til bankaráðsins. Olaf- ur íhugar þó ekki afsögn enda er hann orðinn formaður út á það aö Ágúst Einarsson er meira móðgaö- ur en hann. Ólafur passar sig sem sagt á-því aö vera móðgaður en ekki samt nógu móðgaður til að hætta. Út á það verður hann for- maður í bankaráðinu. Einn umsækjendanna, Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri í fjár- málaráðuneytinu, er mjög móðgað- ur. Hann sótti ekki um stööuna en sótti svo um hana þegar hann fékk skilaboð frá ráðherra um að hann hvetti hann til að sækja. Magnús hélt að þessi skilaboð þýddu að ráðherrann vildi gera hann að bankastjóra og gladdist mjög yfir þvi og sótti. En svo kom í ljós aö ráðherrann meinti ekkert með þessu og var að plata Magnús sem sótti þótt hann ætlaði ekki aö sækja um fyrr en hann sótti af því að ráðherrann baö hann um að sækja. Magnús getur þó ekki sagt af sér sem bankaráðs- maöur af því hann er ekki í banka- ráðinu. Honum flnnst þetta hins vegar hryggileg framkoma hjá ráð- herranum og er það í sjáífu sér skiljanlegt að Magnús sé hryggur yfir því aö láta hafa sig að fífli. Bæði hryggur og móögaður. Ef menn halda aö nú sé nóg kom- ið af móðgunum þá er þaö mis- skilningur. Sighvatur bankamála- ráðherra er bæði æstur og móðgaö- ur yfir þessum viðbrögðum. Hann er þó móögaöastur yfir fréttaflutn- ingi Stöðvar tvö af málinu en Stöð tvö hélt því fram að hálfur Alþýðu- flokkurinn hefði móðgast út af ráðningu Steingríms Hermanns- sonar og Sighvatur hefði móðgast út í flokksmenn sína yfir því að þeir væru móðgaðir. Sighvatur mótmælir því aö flokksbræður hans hafi móðgast eða hann hafi móðgast út af þeirra móðgunum. Hann er aftur á móti afar móðgaður yfir því að Stöö tvö segir að hann hafi móðgast út í móðgaöa flokksmenn sína og segir þetta hreina lygi. Gera má ráð fyrir að Stöð tvö verði móðguð út í þessi ummæli ráðherrans og þar með er skrið- unni hleypt af stað. Það eru nánast allir að verða móðgaðir út í alla. Nema auðvitað þeir sem málið snerist um, þ.e. bankastjórarnir sem voru skipaðir! Eiríkur Guðna- son hefur látiö fara lítið fyrir sér en er sjálfsagt harla glaður yfir því að hafa ekki verið í hópi þeirra umsækjenda sem hafa móðgast yfir því að hafa ekki fengið stöðuna. Steingrímur Hermannsson hefur heldur ekki látið í ljós neina móðg- un þótt hann ætti jafnvel helst að móðgast yfir þeim aðdróttunum sem á honum hafa dunið, enda stafa móðganir annarra langflestar af því að þeir sætta sig ekki við að maöur á borð við Steingrím sé tek- inn fram yfir þá. En Steingrímur hefur ekki móðg- ast og ætlar ekki að móðgast þótt Ágúst Einarsson og Guömundur Magnússon og Ólafur B. Thors og Magnús Pétursson séu allir stór- lega móðgaðir yfir því að það skuli ekki hafa veriö tekið mark á því að þeir séu móðgaöir yfir því aö Steingrímur er tekinn fram yfir þá. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.