Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Qupperneq 26
58 Afmæli MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1994 Sannkölluð HAPPASJOPPA Opið frá 7-23.30 alla daga Skalli Hraunbæ 102 - sími 672880 Aðalfundur íslandsbanka Aðolíundur íslandsbanka hf. 1994 verður haldinn í Borgarleikhúsinu mánudaginn 25. apríl 1994 og hefst kl. 1630. Dagskrá 1. Aöalfundarstörf í samræmi við 19. grein samþykkta bankans. 2. Tillögur til breytinga á sam- þykktum bankans: a) Skipulagsbreytingar í yfirstjórn b) Um eignaraðild útlendinga c) Um verkefni bankaráðs d) Um verkefni bankastjórnar 3. Önnur mál, löglega upp borin. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka hf. Ármúla 7, Reykjavík 3. hæð 20. og 22. apríl n.k. frá kl. 915-1600 og á fundardegi frá kl. 915 - 1200. Ársreikningur félagsins fýrir árið 1993 sem og tillögur þær sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til sýnis á sama stað. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir um að vitja aðgöngumiða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 1200 á hádegi á fundardegi. Reykjavík, 19. apríl 1994 Bankaráð íslandsbanka hf. ÍSLANDSBANKI Sigurður Haraldsson Sigurður Haraldsson, b. í Kirkjubæ á Rangárvöllum, nú búsettur að Kornvöllum, er sjötíu og íimm ára ídag. Starfsferill Sigurður er fæddist á Tjörnum undir Vestur-Eyjafjöllum og ólst upp undir Fjöllunum. Hann var við nám í Bændaskólanum á Hólum 1937-39, við Iðnskólanum í Reykja- vík 1943—47, varð byggingameistari 1950 og hefur auk þess sótt nokkur kennaranámskeið. Sigurður var kennari í Barnaskóla Vestur-Eyjafjalla 1939^0, við Bændaskólann á Hólum 1962-67, skólastjóri á Strönd á Rangárvöllum 1967-72 og kennari í Gagnfræðaskól- anum á HeUu 1973-86. Hann var byggingameistari í Reykjavík og í Rangárvallasýslu 1950-962, bústjóri á Hólum 1962-67 og hefur verið bóndi á Kirkjubæ 1967-92. Sigurður var formaður Nemenda- félags Hólaskóla 1938-39, Ung- mennafélagsins Trausta undir Vest- ur-Eyjafjöllum 1939-41, Hesta- mannafélagsins Geysis á Rangár- völlum 1957-62, Hrossaræktarsam- bands Norðurlands 1964-86, Hags- munafélags hrossabænda frá stofn- un 1975-78. Hann var ritari Lands- sambands hestamannafélaga 1979-85, hreppsnefndarmaður Rangárvallahrepps 1970-78, forseti Rotaryklúbbs Rangæinga 1978-79 og formaður útgáfustjórnar Eiðfaxa 1977-80. Fjölskylda Sonur Sigurðar með Sigurbjört Kristjánsdóttur er Kristján, f. 29.1. 1941, trésmiður í Keflavík. Sigurður er þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Una Huld Guð- mundsdóttir, f. 21.3.1918. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jóhanns- son, verkamaður í Hafnarfirði, og Júlíana Guðmundsdóttir húsmóðir. Börn Sigurðar og Unu Huldar eru Haraldur, f. 5.6.1942, verslunarmað- ur í Reykjavík; Valgarður, f. 14.5. 1943, lögfræðingur í Reykjavík; Her- móður, f. 26.9.1945, prentari í Reykjavík; Þórhallur, f. 20.1.1947, skemmtikraftur í Reykjavík. Sigurður og Una Huld skildu. Önnur kona Sigurðar er Sigríður Ágústsdóttir, f. 21.8.1933. Foreldrar hennar voru Ágúst Kristjánsson, b. á Snotru í Landeyjum, og Guðbjörg Guðjónsdóttir. Börn Sigurðar og Sigríðar eru Guðjón, f. 7.2.1954, trésmíðameist- ari á Hellu; Sigríður, f. 24.9.1955, bankastarfsmaður í Reykjavík; Guðbjörg, f. 2.11.1958, húsfreyja í Keflavík; Ágúst, f. 31.10.1964, bú- fræðingur við framhaldsnám í bú- fræði í Svíþjóð. Sigurður og Sigríður skildu. Þriðja kona Sigurðar er Eveline Ella Haraldsson, f. 18.12.1937, sjúkranuddari. Foreldrar Eveline eru Heinrich Dethof, byggingaverk- fræðingur í Þýskalandi, og Helena Dethofhúsmóðir. Foreldrar Sigurðar voru Haraldur Jónsson, b. á Tjömum undir Eyja- fjöllum, og kona hans, Sigríður Tómasdóttir húsfreyja. Ætt Föðurbróðir Sigurðar er Ingiberg- ur, faðir Egils Skúla, verkfræðings og fyrrv. borgarstjóra. Haraldur var sonur Jóns, b. í Vesturholtum, Jón- geirssonar, b. í Neðra-Dal undir Sigurður Haraldsson. Eyjafjöllum, Jónssonar, b. í Hamra- görðum, Jónssopar, fálkafangara á Eyvindarmúla, ísleikssonar, lang- afa Ragnhildar, langömmu Sváfnis Sveinbjarnarsonar, prófasts á Breiðabólstað í Fljótshhð. Móðir Jóns í Vesturholtum var Gunnvör Jónsdóttir, b. í Hlíðarendakoti, Ól- afssonar, prests í Eyvindarhólum, Pálssonar, klausturhaldara í Gufu- nesi, Jónssonar, ættfóður Pálsætt- arinnar. Móðir Jóns var Helga Jóns- dóttir eldprests Steingrímssonar. Sigríður var dóttir Tómasar, b. í Svaðbæh undir Eyjafjöllum, bróður Þórðar, langafa Stefáns Harðar Grímssonar skálds, Þórðar Tómas- sonar, safnvarðar og rithöfundar í Skógum, og Ólafs Laufdal. Tómas var sonur Tómasar, b. og smiðs í Varmahlíð, bróður ívars, langafa Oddgeirs Kristjánssonar tónskálds. Tómas var sonur Þórðar, b. í Mold- núpi Pálssonar, b. í Langagerði í Hvolhreppi, Þórðarsonar, prests í Skarði í Meðallandi, Gíslasonar. Sigurður verður ekki heima á af- mæhsdaginn. Þórarinn Sigurður Kristinsson Þórarinn Sigurður Kristinsson for- stjóri, Holtaseli 35, Reykjavík, verð- ur fimmtugur á morgun. Starfsferill Þórarinn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp'í Kleppsholtinu. Hann lærði vélvirkjun hjá Birni og Hall- dóri í Reykjavík, stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík og lauk sveinsprófi 1965 og meistaraprófi 1969. Þórarinn starfaði hjá Björgun hf. 1965-70 en hefur síðan rekið eigið fyrirtæki, Víkurvagna, sem fram- leiðir vagna og kerrur og dráttar- beish. Þórarinn situr í stjóm Björgunar hf. Fjölskylda Kona Þórarins er Guðrún Sveins- dóttir, f. 28.2.1948, húsmóðir. Hún er dóttir Sveins Benediktssonar, sjó- manns í Reykjavík, og Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður en þau eru bæöi látin. Börn Þórarins og Guörúnar eru Gyða Þórdís Þórarinsdóttir, f. 8.4. 1965, húsmóðir og skrifstofumaður í Kópavogi, gift Jóhannesi Valgeiri Reynissyni matsveini og eiga þau tvo syni; Sveinn Rúnar Þórarinsson, f. 2.7.1966, vélvirkjameistarií Reykjavík, kvæntur Rakel Jóns- dóttur húsmóður og eiga þau tvær dætur; Kristinn, f. 22.6.1968, tölvuð- ur í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Jóhannsdóttur skrifstofumanni. Foreldrar Þórarins eru Kristinn Þórarinn Siguröur Kristinsson. Guðbrandsson, f. 13.6.1922, forstjóri í Björgun hf„ og kona hans, Gyða Þórdís Þórarinsdóttir, f. 6.7.1922, d. 18.2.1992, húsmóðir. Þórarinn og Guðrún taka á móti gestum á heimili sínu á morgun, sumardaginn fyrsta, milli kl. 17.00 og 20.00. Kristbjörg S. Kristbjörg S. Olsen húsmóðir, Þver- brekku 4, Kópavogi, veröur áttræð á morgun. Starfsferill Kristbjörg fæddist í Stakkahlíö í Loðmundarfirði og ólst þar upp. Hún flutti til Patreksfjarðar 1936 og átti þar heima til 1974 er hún flutti í Kópavoginn þar sem hún hefur búiðsíðan. Kristbjörg var formaður Kvenfé- lagsins Sif um árabil og gjaldkeri slysavarnadeildarinnar Unnar á Patreksfirði. Fjölskylda Kristbjörg kvæntist 15.10.1938 Ásmundi B. Olsen, f. 2.12.1910, d. 21.5.1985, kaupmanni ogoddvita. Hann var sonur Björns Matthías- sonar, kaupmanns á Patreksfirði, og Margrétar Víglundsdóttur Olsen húsmóður. Börn Kristbjargar og Ásmundar eru Birna Á. Olsen, f. 16.2.1939, hjúkrunarfræðingur, búsett í Hafn- arfirði, gift Jóni V. Halldórssyni bankadeildarstjóri og eiga þau eitt bam; Ásrún A. Olsen, f. 4.2.1941, verslunarmaður í Hafnarfirði, gift Hilmi Guðmundssyni vélstjóra og eignuðust þau íjögur börn en þijú þeirra eru á lífi; Viðar Á Olsen, f. 26.12.1945, lögfræðingur í Amster- dam í Hollandi, og á hann eitt barn en sambýhskona hans er Valerie Hamehnck bankamaður; Gunn- laugur Már Á. Olsen, f. 2.7.1949, bankafulltrúi í Reykjavík, og á hann tvö börn en kona hans er Friðrikka Hermannsdóttir skrifstofumaður. Systkini Kristbjargar: Baldvin Trausti, f. 7.2.1911, d. 6.12.1983, b. á Sævarenda í Loðmundarfirði og umboðsmaður á Seyðisfirði; Sigurð- ur Snæbjörn, f. 29.12.1912, d. 16.11. 1980, b. í Stakkahlíð í Loðmundar- firði og verkamaður á Seyðisfirði; Ingibjörg, f. 18.11.1915, d. 9.4.1987, húsmóðir í Reykjavík; Hulda, f. 26.11.1920, d. 26.4.1989, húsmóöir á Þrándarstöðum í Eiðaþinghá; Ólaf- ur, f. 18.4.1923, vélsmiður í Kaupa- mannahöfn; Sigríður Ásta, f. 13.4. 1927, húsfreyja í Stakkahlíð og á Olsen Kristbjörg S. Olsen. Seyðisfirði, nú búsett á Egilsstöð- um. Foreldrar Kristbjargar voru Stef- án Baldvinsson, f. 9.1.1883, d. 10.8. 1964, b. og hreppstjóri í Stakkahlíð, og Ólafía Ólafsdóttir, f. 12.11.1885, d. 3.1.1971-, húsfreyja. Kristbjörg verður að heiman á af- mæhsdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.