Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglysingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1994.
Verkfall f lug-
virkja lamar flug
samdægurs
~—* Vinnuveitendasamband íslands
hefur fyrir hönd Flugleiða vísað
verkfallsboðun flugvirkja hjá Flug-
leiðum til félagsdóms og var stefnan
þingfest i gær. Vonast er til að félags-
dómur kveði upp dóm í málinu áður
en sex daga verkfall flugvirkja hefst
að morgni mánudagsins 25. apríl.
Einar Sigurðsson, upplýsingafulltrúi
Flugleiða, segir að milhlandaflug
Flugleiða lamist samdægurs og inn-
anlandsflugið mjög fljótlega ef verk-
fallið skellur á í næstu viku.
„Við gerðum samkomulag við
Flugleiðir í fyrra til að aflétta yfir-
vinnubanni. Við litum ekki á það sem
kjarasamning en þeir túlka það
þannig. Við erum búnir að vera með
'«►- lausa samninga í eitt og hálft ár og
höfum misst aðrar stéttir fram úr
okkur í bættum kjörum," segir The-
odór Brynjólfsson, flugvirki hjá
Flugleiðum.
„Verkfallið mun lama allt flug mjög
fljótt. Þetta mun raska starfseminni
mjög mikið, því miður. Það er samn-
ingur í gildi milli flugvirkja og Flug-
leiða sem var byggður á samkomu-
lagi sem var gert í júlí í fyrra þannig
að það eru engar lagalegar forsendur
til vinnustöðvunar," segir Einar Sig-
urðsson, upplýsingafulltrúi Flug-
'~~leiða.
Launakröfur flugvirkja nema að
minnsta kosti 15-20 prósentum.
-GHS
Skoskurlandsliðs-
maðurmeð KR?
Talsverðar líkur eru á að skoski
landsliðsmaðurinn James Bett muni
leika með 1. deildarliði KR í knatt-
spyrnu í sumar.
Bett kom til íslands um helgina
átti þar viðræður við forráðamenn
vesturbæjarliðsins. Bett hefur um
árabil leikið með skoska úrvalsdeild-
arliðinn Aberdeen en samningur
hans við félagið rennur út í sumar.
Lúvík Georgsson formaður knatt-
spyrndudeildar KR sagði í samtali
við DV í morgun að niðurstaða úr
þessum viðræðum ættu að liggja fyr-
ireinhvernnæstudaga. -GH
DV kemur næst út fóstudaginn 22.
apríl.
Smáauglýsingadeildin er opin í
kvöld til kl. 22.00 en lokuð á morgun,
sumardaginn fyrsta.
Síminn er 632700.
Gleðilegt sumar
Það væri ósatt
ef ég segðist
vera ánægður
tn
„Þetta var erfiður fundur í þing- Einar vildi ekki skýra frá því kvótanum. Loks mun eiga að halda
flokknum. Það sem gerðist var að strax i hverju lausnin hjá þing- togurum utar með því að loka
reynt var að mætast með mjög óiík flokki Sjálfstæðisflokksins væri veiðihóifum. Það sem þarna er um
sjónarmið og það tókst. Ég væri þó fólgin en þar er um að ræða nokkr- að ræða snertir fyrst og fremst báta
að hræsna og aö segja ósatt ef ég ar reglugerðarbreytingar. á Vesturlandi og Vestfjörðum.
seðistveraánægðurmeðþessanið- Samkvæmt heildum DV annars Samkvæmt heimildum DV mim
urstöðu. Það er ég alls ekki. Ég tei staðar frá er hér um að ræða reglu- þingmönnum Sjáifstæöisflokksins
hins vegar að miðað við aðstæður gerðarbreytingar sem sjávarút- á Vesturlandi og Vestfjörðum hafa
hafi ekki verið hægt að komast vegsráðherra mun kynna. Þær verið gerð grein fyrir því að ef þeir
lengra. Ég tel því skynsamlegra, munu ekki verða lagðar fyrir sjáv- héldu uppi enn frekara andófi í
meö hagsmuni þeirra er ég tei mig arútvegsnefhd. Þær eiga að auka þessu máli yrðu þeir einfaldlega
talsmann fyrir, að fallast á þessa nokkuð svigi-úm minni báta á skildir eftir. Það hefði verið hægt
niðurstöðu frekar en að tefla mál- grunnslóð. Eftir því sem DV kemst þar sem þingmenn úr stjórnarand-
inu í algera tvísýnu,“ sagði Einar næst er um að ræða að liðka fyrir stöðu, einkum Framsóknarflokki,
K. Guðfmnsson, þingmaður Vest- um að eitthvað af þorski megi vera styðja sjávarútvegsfrumvörpin.
fjarðakjördæmis, í samtali viö DV í afla báta á sérveiðum. Einnig -S.dór
í morgmi. verður einhver aukning á rækju-
Drengjakór Laugarneskirkju varð i fyrsta sæti í þremur keppnisgreinum á alþjóðlegu drengjakóramóti sem fram fór
I Tampa, Flórída, 11.-16. apríl. Fékk kórinn fyrstu verðlaun í tvísöng, 20. aldar tónlist og drengjakórakeppni en
stjórnandi hans var Ronald Vilhjálmur Turner. Á myndinni eru Hrafn Davíðsson, t.v., og Ólafur Friðrik Magnússon
við heimkomuna i morgun en þeir unnu í tvísöngskeppninni. hlh/DV-mynd ÆMK
LOKI
Á KR þá séns í skoska meist-
aratitilinn?
Veöriðámorgun:
Kaldi eða
stinnings-
kaldi
Á morgun verður norðlæg átt,
kaldi eða stinningskaldi. Um
landið norðanvert verða él en
léttskýjað í öðrum landshlutum.
Hiti verður á bilinu (M stig syðst
á landinu yfir daginn en annars
vægt frost.
Veðrið í dag er á bls. 60
Bjargaðistúr
húsbruna með
tvöbörn
„Sonur minn, 6 ára, kom til mín
og lét mig vita að það væri rosalegur
reykur í forstofunni þar sem raf-
magnstaflan var. Ég fór fram í eldhús
og sá að það var eldur laus. Fyrsta
hugsunin var að opna stóran glugga
sem er á suðurhlið hússins. Ég kall-
aði til mannsins míns og hann spurði
hvar við værum því hann sá okkur
ekki fyrir reyknum. Síðan tók hann
drengina tvo og ég kom á eftir. Mað-
urinn minn var þá orðinn eitthvað
brenndur á höndum og andliti af að
reyna að komast inn í forstofuna.
Um það bil sem við sluppum út var
húsiö orðið alelda," segir Sigrún
Bára Eggertsdóttir sem bjargaðist
ásamt tveimur börnum sínum, 6 ára
og 3 mánaða, þegar heimili þeirra að
Svínhaga í Rangárvallahreppi brann
til kaldra kola í gærdag.
Maður Sigrúnar, Rúnar Gunnars-
son, var fluttur í sjúkrahús á Selfossi
þar sem gert var að sárum hans.
Einstaklingar í hreppnum hafa
hrundið af stað söfnun á fé, fatnaði
og öðru sem til hjálpar getur orðið í
neyð fólksins en fjölskylduna, þar á
meðal þrjú börn hjónanna, skortir
allt til alls. Reikningur hefur verið
opnaður í útibúi Búnaðarbankans á
Hellu. -JÞ/pp
Sigbjöm Gunnarsson:
Eðlilegtað
fá SR-skýrsluna
„Þó fjárlaganefnd viiji fá skýrsluna
viljum við góð samskipti við Ríkis-
endurskoðun. SR-skýrslan má ekki
verða til að breyta því. Af okkar hálfu
hefur aldrei verið gerð krafa til Rík-
isendurskoðunar um að hún skili
skýrslu innan tiltekins tíma. Hins
vegar hefur ríkisendurskoðandi lýst
því yfir að vinnunni sé lokið. Því er
eðlilegt að hann skili okkur skýrsl-
unni en það er hins vegar hans að
meta þaö,“ segir Sigbjörn Gunnars-
son, formaður fjárveitinganefndar.
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi mætir í hádeginu á fund
fjárlaganefndar til að ræða skýrslu
Ríkisendurskoðunar um sölu ríkis-
ins á SR-mjöli. Til þessa hefur hann
neitað að afhenda skýrsluna þar sem
málaferli standi nú yfir vegna söl-
unnaráSR-mjöli. -kaa
Mjólkurfræð-
ingar semja?
Hlé var gert á sáttafundi mjólkur-
fræðinga og fulltrúa Vinnumálasam-
bands samvinnufélaga í morgun til
kiukkan 14.30 eftir samningaviðræð-
ur í alla nótt. Líklegt er tahð að sam-
komulagséísjónmáli. -GHS
s. 814757
HRINGRÁS
ENDURVINNSLA
Kaupum góðmálma
t.d.ál, kopar, eir, rústfr.