Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Page 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoöarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÖNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSÖN og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SiMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Tæknilegar hindranir
Árangur í sameiginlegu framboði flokka í byggðakosn-
ingum leiðir ekki til þess, að búast megi við sameiginleg-
um listum flokkanna í alþingiskosningum. Þótt slíkur
árangur vísi í átt til tveggja flokka kerfis, koma tæknileg-
ar hindranir í veg fyrir greiða framkvæmd málsins.
Listakosningar freista alltaf til sérframboða, þegar
sérsjónarmiðum er ekki talið borgið í regnhlífarsamtök-
um á borð við R-listann og D-listann í Reykjavík. Sam-
starf getur haldizt sums staðar og um tíma, en ekki alls
staðar og alltaf. Regnhhfarsamtök eru óstöðugt fyrirbæri.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur náð meiri festu en önnur
regnhlífarsamtök, en það hefur ekki fengizt ókeypis. Þeg-
ar margar vistarverur eru í húsi flokks, hættir hann að
verða málefnamiðstöð og verður að kosningabandalagi í
valdaklúbbi stjómmálamanna og fylgismanna þeirra.
Slíkur flokkur getur orðið með afbrigðum sveigjanleg-
ur. Hann skiptir eins og ekkert sé um borgarstjóra í
miðri á og tekur upp vinstri stefnu í miðri kosningabar-
áttu eins og að drekka vatn. Málefnalega er minni festa
í honum en regnhlífarsamtökum á borð við R-hstann.
Uppbótarkerfi þingkosninga dregur úr líkum á sameig-
inlegum framboðum af staðbundnu tagi. Slík framboð
trufla nýtingu atkvæða til uppbótarsæta. Kerfið er í raun
þannig, að kjósendur eru að hluta til að greiða atkvæði
í öðrum kjördæmum en sínu eigin og vita ekki í hverjum.
Með einmenningskjördæmum væri hins vegar hvatt
til kerfis tvennra regnhlífarsamtaka á borð við R-hstann
og D-hstann í Reykjavík. Eins og stjómmálaflokkum er
háttað hér á landi nú til dags mun þeim reynast auðvelt
að renna í tvær sængur 1 kerfi einmenningskjördæma.
Pólitískur grundvaharmunur hefur minnkað. Sem
dæmi má nefna, að undir forustu Ólafs Ragnars Gríms-
sonar hefur Alþýðubandalagið orðið að eins konar
MöðruvaUahreyfmgu Framsóknar. Kvennahstinn gæti
málefnalega séð aht eins verið kvennadeild Framsóknar.
Öflin að baki R-hstans í Reykjavík snúast um póhtíska
miðju, sem er á þröngu bih miUi MöðruvaUahreyfingar-
innar sálugu og Framsóknarflokksins, Að baki D-hstans
eru öfl, sem snúast um póhtíska miðju, sem er á þröngu
bih milli Bændaflokksins sáluga og Framsóknar.
Ekkert ætti að vera því til fyirstöðu í kerfi einmenn-
ingskjördæma, að þjóðin safnaðist í tvo Framsóknar-
flokka, sem skiptust á um að fara með völd að engUsaxn-
eskum hætti. Annar væri með R-hsta ímynd og hinn
með D-hsta ímynd, en innihaldið væri mjög svipað.
Það leiðir af þessum hugleiðingum, að ekki er ástæða
tU að reikna með umtalsverðum ágreiningi innan meiri-
hluta R-hstans í Reykjavík á kjörtímabilinu. Með nokkru
lagi ætti R-hstinn að geta lifað af kjörtímabihð og að því
loknu verið álika frambærUegur kostur og D-hstinn.
Þá mætti segja, að eins konar brezku ástandi yrði
komið á í Reykjavík. Það fæhst í, að meirihlutaskipti
yrðu í sumum borgarstjómarkosningum, en ekki öðrum.
Embættismanna- og smákóngagengið héldi hklega áfram
að ráða ferð eins og það hefur gert um langan aldur.
Eins og sjá má, að í sumum byggðum koma málefni
ekki í veg fyrir samstarf Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
bandalags, þá er ekki efnislega ástæða tU að efast um,
að hinir ýmsu Framsóknarflokkar geti með ýmsum hætti
myndað með sér regnhlífar- eða kosningabandalög.
Þröskuldurinn felst hins vegar í tæknUegum aðstæð-
um í alþingiskosningum, annars vegar í kerfi framboðs-
hsta og hins vegar í úthlutunarkerfi uppbótarsæta.
Jónas Kristjánsson
Ymislegt er að gerast á sviði pappirslausra viðskipta, m.a. hefur Hagkaup verið að vinna að máiinu með
helstu viðskiptaaðilum sínum, segir m.a. í grein Vilhjálms.
Pappírslaus viðskipti:
Upphaf nývrar sóknar
Pappírslaus viðskipti, sem fara
fram meö sendingum staðlaðra
tölvuskjala milli viðskiptaaðila,
eru óhjákvæmileg forsenda fram-
fara og framleiðniaukningar í við-
skiptum. Á undanfomum árum
hefur verið unnið mikið undinbún-
ingsstarf að því að gera pappírslaus
viðskipti möguleg á íslandi þannig
að við getum staðið erlendum
keppinautum okkar snúning á
þessu sviði. Innan fyrirsjáanlegs
tíma munu ýmsir viöskiptaaðilar
íslenskra fyrirtækja líka gera það
að skilyrði fyrir viðskiptum aö þau
geti stundaö pappírslaus viðskipti.
Hér á landi hafa nokkur félög,
s.s. EDI félagið, EAN á íslandi og
Icepro nefndin unnið að útbreiðslu
pappírslausra viðskipta, opinberir
aðilar hafa sýnt málinu áhuga, sér-
staklega tollyfirvöld sem hafa verið
brautryöjendur í innleiðingu nýrra
samskiptahátta og fjölmörg fyrir-
tæki í tölvuviðskiptum hafa látið
að sér kveða. Sú gjörbylting sem
pappírslaus viðskipti hafa í för með
sér kalla hins vegar á víðtækar
breytingar á löggjöf og vinnubrögö-
um þannig að undirbúningsstarfiö
hefur tekið nokkur ár.
Hagkaup í gang með stórum
viðskiptaaðilum
Nú er ýmislegt að gerast á sviði
pappírslausra viðskipta sem mun
marka upphafið að nýrri sókn. Hag-
kaup hefúr verið að vinna með
helstu viðskiptaaðilum sínum á síð-
ustu mánuðum aö því að taka upp
pappírslaus viðskipti. Er reiknað
með þvi að þetta gerist á þriggja
mánaða tímabili sem hefst nú í júlí.
Verkefni af þessum toga er stórvirki
á sinn hátt og kallar á agaðri vinnu-
brögö og bætta stjómun.
Með þessu móti minnkar verulega
pappírsflæðið sem hefur fylgt þess-
um stórviðskiphun, villutíðni lækk-
Kjallaririn
Vilhjálmur Egilsson
alþingismaður, framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs íslands
ar og öryggi eykst. Ennfremur
verða mögúleikar á mun markvdss-
ari birgðastýringu og birgðaeftirhti
sem lækkar kostnað allra vdðskipta-
aðila og eykur samkeppnishæfni
þeirra. Innan fárra mánaða munu
keppinautar Hagkaups og þeirra
fyrirtækja sem taka þátt þessu nýja
átaki í pappírslausum vdðskiptum
horfa á þessi fyrirtæki verða enn
sterkari. Það hlýtur að kalla á vdð-
brögð frá þessum aðilum.
Ný bókhaldslög
Fjármálaráðherra lagði á síðasta
þingi fram frumvarp til nýrra bók-
haldslaga sem færir þá löggjöf tii
nútímahorfs og vdðurkennir m.a.
hin stöðluðu tölvuskjöl pappírs-
lausra vdðskipta eins og hver önnur
bókhaldsgögn. Væntanlega verður
þetta frumvarp aftur lagt fyrir Al-
þingi næsta haust og afgreitt þá.
Núverandi bókhaldslög eru löngu
úrelt og hin nýja löggjöf verður því
sérstaklega þýðingarmikil fyrir
framgang pappírslausra viðskipta
og aukna framleiðni í vdðskiptum
á íslandi.
Á næstu árum mun hagvöxtur á
íslandi þurfa að koma innan frá,
þ.e. með bættri nýtingu helstu auð-
hndar þjóðarinnar sem er hún
sjálf, fólkið í landinu. Upptaka
pappírslausra vdðskipta er stór Uð-
ur í þessari þróun en með þeim
lækkar vdðskiptakostnaður og
samkeppnishæfni íslensks at-
vdnnulífs eykst.
Á þessum svdðum höfum vdð alla
burði til að ná árangri. Því er
ánægjulegt að vdta til þess að at-
vdnnulífið í landinu skuli vera að
vinna að stórverkefnum á þessu
svdði. En langflestir möguleikamir
eru ennþá ónotaðir bæði á svdði
hins opinbera og hjá atvdnnulífinu.
Því veröur að halda áfram áróðrin-
um og undinbúningsstarfinu. -
Áfram með pappírslaus vdðskipti.
Vilhjálmur Egilsson
„Innan fyrirsjáanlegs tíma munu ýms-
ir viðskiptaaðilar íslenskra fyrirtækja
líka gera það að skilyrði fyrir viðskipt-
um að þau geti stundað pappírslatis
viðskipti.“
Skoðanir aimarra
Ekkert pólitískt spennuf all
„Það æflar ekki aö verða mikið spennufall í póh-
tíkinni eftir sveitarstjómarkosningamar og útht fyr-
ir að næstu vikur verði fréttnæmar á landsmálasvdð-
inu... Jóhanna Sigurðardóttir tilkynnti í vdkunni
að hún myndi fara í framboð til formanns Alþýðu-
flokksins gegn Jóni Baldvdni... Ég hef fram að þessu
verið vantrúaður á að Jóhanna færi með sigur af
hólmi í vdðureign vdð Jón Baldvdn. Nú er ég hins
vegar í vafa og er vdss um aö slagurinn verður harð-
ur. “ Jón Kristjánsson ritstj. í Tímanum 4. júní.
Réttar upplýsingar
„Óskynsamleg og ábyrgðarlaus efnahagsstjórn
árum og áratugum saman hefur kahað lengsta sam-
dráttarskeið aldarinnar yfir fólkið í landinu ásamt
auknu atvdnnuleysi. Þessi lægð mun trúlega halda
áfram að dýpka í nokkur ár enn, áður en það getur
byrjað að rofa til á ný. Réttar upplýsingar, almanna-
fræðsla og skynsamleg skoðanaskipti innan lands
og utan em bezta tryggingin fyrir því, að hægt sé
að snúa vörn í sókn og koma efnahagsmálum þjóðar-
innar á réttan kjöl.“
Þorvaldur Gylfason prófessor í Mbl. 3. júní.
Löndunarbann er tímaskekkja
„Skrýtið þætti ef íslensk skip fengju ekki að selja
afla sinn í hvaða landi sem er, eða að þau fengju
ekki alla þá þjónustu sem útgerðin og áhafnimar
þarfnast. Það er sönnu nær að allar hafnir í nálægum
löndum em íslenskum skipum opnar og hægt að
stunda þar öh eðhleg vdðskipti, m.a. að selja aflann
ef einhver vdh kaupa. Löndunarbann og lokun ís-
lenskra hafna fyrir erlendum fiskiskipum er tíma-
skekkja, sem hlýtur að veröa lagfærð."
Úr foystugrein Tímans 3. júní.