Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994 17 r Iþróttir________________ Birgirvann Egilsmótið Birgir Leifiir Haíþórsson, GL, sigraði án forgjafar á opna Rgils mótinu í golfi sera fram fór í Graf- arholti um helgina, Birgir lék á 71 höggi en leiknar voru 18 holur. Þórður Ólafsson, félagi Birgis úr GL, varð annar með 75 högg en hann vann sigur á Sigurjóni Am- arssyni, GR, í bráöabana á 1. braut. Axel Skúlason, GR, vann sigur með forgjöf en hann lék á 68 höggum. Með sama högga- fjölda í 2. sæti varð Gujón R. Emilsson, GR, og Hermann Guð- mundsson, GR, varð þriðji á 70 höggum. Guðbjörg vann kvennamótið Guðbjörg Sigurðardóttir, GK, sigraöi í A-IIokki á opna Diletto- mótinu í golfi sem fram fór í Graf- arholti á sunnudaginn en þar kepptu eingöngu konur. Guð- björg lék holumar 18 á 67 högg- um. Aðalheiður Jörgensen, GR, varð önnur á 71 höggi og Kristj- ana Eiösdóttir, GG, þriðja með 72 högg. í B-flokki sigraði Þuríður Pétursdóttir, GKJ, á 65 höggum. Þyrí Þorvaldsdóttir, GR, varö önnur með 67 högg og Margrét Jónsdóttir, GR, þriöja með 67 högg. Guðbjörg Sigurðardóttir, GK, náði besta skori eða 80 högg. Boss-mótiðer um næstu helgi Boss-mót Sævars Karls veröur haldið hjá GR í Grafarholti á laugardag og sunnudag. Leiknar verða 36 holur í flokki kvenna og karla án forgjafar og í opnum flokki með forgjöf. Skráning er í Golfverslun Sigurðar Pétursson- ar í sima 682215. ÓlafurogKári íslandsmeistarar íslandsmót eldri ílokka karla i borðtennis fór fram um helgina. I flokkí 40-50 ára sigraði Ólafur Ólafsson, Eminum. Pétur Ó. Stephensen, Víkingi, varð annar og Gunnar Hall, Eminum, þriðji. í flokki 50 ára og eldri sigraði Emil Pálsson, Vikingi. Jóliann Sigurjónsson, Erninum, varð annar og Ragnar Ragnarsson, Erninum, í þriðja sæti. I tvíliða- leik sigruðu Jóhann Sigurjóns- son og Ólafur Ólafsson. Sigurður meistari Noröiu'landamót lögreglu- manna í júdó fór fram i Gauta- borg fyrir skömmu. Þar keppti Sigurður Bergmann, lögreglu- maður frá Grindavík. Hann varð Norðurlandameistari í 95 kg flokki og lagði alla sína andstæð- inga. Þá keppti Sigurður einnig í opnum flokki og varö þriðji. Sænsku löggurnar bestaríhandbolta Þá fór fram Norðurlandamót Iögreglumanna í handknattleik í Stavanger. íslensku lögreglu- mennimir urðu þar í 2.-4. sæti ásamt kollegum sínum frá Dan- mörku og Noregi en Svíar urðu Norðurlandameistar. ísland vann Dani, 25-22, en tapaði fyrir Svíþjóð, 25-20, og Noregi, 23-19. Rangar upplýsingar um mörk Ökklans DV fékk rangar upplýsingar um markaskorara Ökklans í sigur- leiknum gegn Smástund, 5-3, i 4. deildínni í knattspyrnu. Sagt var í blaðinu í gær að Baldvin Har- aldsson hefði skorað öll mörkin en hiö rétta er að Ámi Harðar- son, Arnar Halldórsson, Styrmir Siguröarson, Einar Baldvin Ámason og Grétar Jónasson skiptu þeim á milli sín. Siguröur Grétarsson og Grasshoppers: Samkomulag um að slíta samningnum - samiö um lokabætur vegna meiöslanna Jón Björgvinssan, DV, Sviss: Sigurður Grétarsson knattspyrnu- maður, sem leikið hefur með sviss- neska 1. deildar liðinu Grasshoppers, hefur komist aö samkomulagi við lið- ið um að slíta endanlega fjögurra ára samningi. Vegna endurtekinna meiðsla í hné hefur Sigurður ekkert leikið með lið- inu undanfarið eitt og hálft ár og á þessum tíma hefur hann þegið trygg- ingarlaun. Nú er verið að semja um lokabætur vegna meiðslanna sem valda því að hann kveður 1. deildar knattspyrn- una fyrir fullt og allt. Sigurður hefur notað tímann und- anfarið til að þjálfa unglingalið Grasshoppers og ala upp son sinn Tómas Núma sem fæddist einmitt um svipað leyti og Sigurður var að hætta vegna meiðsla. Ellefu ár í atvinnumennsku að baki Sigurður er nú 32 ára gamall og á aö baki 11 ára feril sem atvinnumað- ur í knattspyrnu; fyrst í Grikklandi en síðan 9 ár í Sviss. Þar lék hann í fimm ár með Luzern áður en hann fluttist yfir til Grasshoppers. Ekki á heimleið Þrátt fyrir samningsslitin við Grass- hoppers eru Sigurður og Ýr Gunn- laugsdóttir kona hans þó ekki á heimleið. Sigurður hefur gert tveggja ára samning um þjálfun 4. deildar liðsins Affolten í Sviss. Þar sem æfingar hjá þeim eru færri en í 1. deildinni er ekki loku fyrir það skotið að Sigurður reyni jaihframt að leika eitthvaö með liðinu. Þjálfarastaðan ekki fullt starf Þjálfarastaða Sigurðar hjá Affolten er ekki fullt starf. Þvi mun félagið sjá honum fyrir annarri vinnu að auki og sagði Siguröur í samtali við DV að sennilega færi hann að vinna í sportvöruverslun hluta úr degi. Sigurður Grétarsson kveður knatt- spyrnuna. Islandsmótið í knattspymu - Trópídeildln: Frískir Framarar - sýndu mikla yfirburði gegn Valsmönnum 1 Laugardal og sigruðu, 3-0 Framarar fengu ærna ástæðu til að fagna í gærkvöldi þegar þeir lögðu Valsmenn að velli. Á myndinni eru þeir kampakátir Gauti Laxdal, Hólmsteinn Jónasson, Helgi Sigurðsson, Rikharður Daðason og Ágúst Ólafsson. DV-myndir Brynjar Gauti Helgi Sigurðsson fagnar síðara marki sínu i gærkvöldi. Víðir Sigurðsson skriíar: Vilji Framara til að koma sér af botnin- um var greinilega yfirsterkari löngun Valsmanna til að komast í 2. sæti 1. deild- arinnar þegar Reykjavíkurfélögin áttust við á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Það tók Framara aðeins 23 mínútur að ná tveggja marka forystu og þeir inn- sigluðu sigurinn, 3-0, snemma í síðari hálfleik, og þá var endanlega ljóst að daufir Valsmenn áttu sér ekki viðreisnar von. Hólmsteinn baneitraður á hægri kantinum Yfirburðir Framarar á fyrsta hálftíman- um voru algjörir og þeir sýndu þá oft mjög skemmtilega takta, með Hólmstein Jónasson baneitraðan á hægri kantin- um. Hann skoraði fyrra markið og lagði það síðara upp. Síðan urðu kaflaskipti, Framarar drógu sig til baka, gáfu eftir miðjuna og bökkuðu jafnvel hættulega mikið á tíma- bili. En þeir spiluðu vömina af öryggi og Valsmenn náðu aöeins einu einasta markskoti allan fyrri hálfleikinn. Vals- menn sóttu nokkuð framan af síðari hálfleik en leikur þeirra var allur laus í reipunum og ljóst að þeir sakna mjög Ágústs Gylfasonar á miöjunni. Þeir ógn- uðu helst þegar Eiður Smári Guðjohnsen fékk boltann en falleg tilþrif hans dugðu ekki til aö sigur Framara kæmist í minnstu hættu. Eftir að Helgi skoraði voru Eiður Smári og Hörður Már Magnússon ná- lægt því aö minnka muninn, en á loka- kaflanum voru þaö síðan Framarar sem voru líklegri til að bæta við fjórða mark- inu. „Finnst þetta vera að smellasaman" „Við vorum búnir að spila tvo leiki mjög vel, vera betri aöilinn en fengið óþarfa mörk á okkur. En núna lékum við vöm- ina miklu betur en áður. Miðjan spilaði vel, senteramir voru ógnandi, og mér finnst þetta vera að smella saman. Ég vona bara að við höldum svona áfram, og við þurfum að koma okkur niður á jörðina því við eigum erfiðan leik við Breiðablik á fimmtudaginn," sagöi Mar- teinn Geirsson, þjálfari Fram, við DV eftir leikinn. „Vorum sjálfum okkur til skammar“ „Við vomm sjálfum okkur til skammar, við eigum ekki að dirfast að sýna svona frammistöðu og getum ekki boðið okkar stuðningsmönnum upp á hana. Þeir voru betri á öllum sviðum knattspyrn- unnar, börðust betur og spiluðu betur. Við þurfum að hta í spegil og taka okkur á,“ sagði Guðni Bergsson, fyrirliði Vals. Skagamenn í knattspymunni: Siaurður frá keppni í þrjár vikur? - gæti verið kviðslitinn í nára Skagamaöurinn Sigurður Jóns- dagskvöld og Breiöabliki 15. júní son gæti þurft að gangast undir oghæpiö verður að hann geti leikiö aðgerð vegna kviðslits einhvern stórleikinn gegn KR fóstudaginn næstu daga og yrði þá frá knatt- 24. júní. spymuiðkun í að minnsta kosti þijár vikur. Meiðsli Oskars I leik Skagamanna gegn Þórsur- ekki alvarleg um í Trópídeildinni á laugardaginn KR-ingurinn ungi og efnilegi Óskar fór Sigurður að finna fyrir verkjum Hrafn Þorvaldsson, sem fór meidd- í nára þegar hða tók á leikinn en ur af leikvelh eftir rúman hálftima lék þó með allan tímann. leik í Eyjum á sunnudagskvöld, í gær fór hann svo i læknisskoð- ætti að vera klár í slaginn þegar un hjá Sigurjóni Sigurðssyni KR-ingar fá FH-inga í heimsókn á landsliðslækni og við fyrstu sýn fimmtudagskvöldið. virtist Sigurður vera kviðshtinn. Óskar tognaði á vöðva í aftan- Sigurður sagði í samtah við DV í verðulærienífyrrameiddisthann gær að hann færi í myndatöku í illa á hné og missti af íslandsmót- dag og þá ætti að koma í Ijós hvort inu. Sem betur fer fyrir KR-inga um kviösht væri aö ræða. reyndust þessi meiðsli ekki alvar- Fari svo aö Sigurður þurfi að leg og verður hann því væntanlega gangast undir uppskurð missir meö gegn FH. hann af leiknum gegn Val á fóstu- Fram-Valur (2-0) 3-0 1- 0 Hólmsteinn Jónasson (10.) geystist inn í vítateig Vals eftir aukaspymu Gauta Laxdai frá vinstri og skoraði meö góðu skoti. 2- 0 Ríkharður Daðason (23.) - Hólmsteinn þeyttist upp hægri kantinn og sendi glæsilega inn fyrir vömina þar sem Ríkharður afgreiddi boltann lag- lega framhjá úthlaupandi markverði. 3- 0 Helgi Sigurðsson (62.) fékk laglega hælsendingu frá Ríkharði á vita- teigslínu, lék á vamarmann og skoraði af öryggi. Lið Fram: Birkir Kristinsson - Helgi Björgvinsson (Valur F. Gíslason 67.) Pétur H. Marteinsson, Ágúst Ólafsson, Ómar Sigtryggsson - Hólmsteinn Jónasson (Þorbjöm A. Sveinsson 69.), Gauti Laxdal, Steinar Guðgeirsson, Kristinn Hafliðason - Helgi Sigurðsson, Rikharður Daðason. Lið Vals: Láms Sigurðsson - Guðni Bergsson, Bjarki Stefánsson, Kristján Halldórsson - Guðmundur P. Gíslason (Sævar Pétursson 73.), Atli Helgason, Steinar Adolfsson, Hörður Már Magnússon, Jón S. Helgason (Davíð Garðars- son 52.) - Eiöur Smári Guðjohnsen, Jón Grétar Jónsson. Fram: 14 markskot, 7 hom. Valur: 11 markskot, 12 hom. Gul spjöld: Atli (Val), Guðmundur (Val), Helgi S. (Fram). Dómari: Kristinn Jakobsson, yngsti dómari 1. deildar, sýndi og sannaði að hann á framtiðina fyrir sér. Áhorfendur: 1.744. Skilyrði: Gola, svalt, Laugardalsvöllurinn þurr en nokkuð gisinn ennþá. Hólmsteinn (Fram), Rikharöur (Fram). ® Pétur (Fram), Gauti (Fram), Kristinn (Fram), Steinar (Fram), Eiður _______Smári (Val).__________________________________________________ Maður leiksins: Hólmsteinn Jónasson (Fram). Sýndi sniildartakta ó hægri kantinum í fyrri hálfieik og nánast vann leikinn með markinu og sending- unni á Ríkharð. Laudrup til Real Madrid Danski landshðsmaðurinn í knatt- spymu, Michael Laudrup, hefur ákveðið að ganga til hös við spænska hðið Real Madrid frá erkifjendunum í Barcelona. Laudrup gerir tveggja ára samning við Madridarhðið sem hefur ekki átt sjö dagana sæla í spænsku knattspyrnunni síðustu ár- in. Laudrup hefur undanfarin 5 ár leikið með Börsungum en ákvað að fara frá félaginu vegna deilna við Johan Cruyff, þjálfara Barcelona. Hann er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Real Madrid á skömm- um tíma en á dögunum skrifaði arg- entínski landsliðsmaðurinn Fem- ando Redondo undir 5 ára samning við félagið. Nýr þjálfari verður í her- búðum Real Madrid en það er Jorge Valdano, fyrrum þjálfari Tenerife. Körfuknattleikur: Ósigur gegn Kýpurbúum íslenska landshðið í körfuknatt- leik beið lægri hlut gegn Kýpur á Promation bikarkeppninni á írlandi í gær. Lokatölur leiksins urðu, 75-83, eftir góðan fyrri hálfleik þar sem ís- lenska liðið leiddi lengst og hafði yf- irhöndina í hálfleik, 44-38. í síðari hálfleik hmndi sóknarleik- ur íslendinga og Kýpurbúar gengu á lagið. Til marks um hittnina skoraði íslenska hðið aðeins sex stig á átta mínútna leikkafla gegn 19 stigum Kýpurbúa. Liðið tapaði boltanum 16 sinnum í síðari hálfleik og eftirleikur Kýpurbúa var auðveldur. Leikið verður um sæti á miðvikudag íslendingar lentu í öðra sætinu í sín- um riðh og leika í dag gegn ímm í undanúrshtunum. írar hafa ágætu liði á að skipa og verður leikurinn því íslendingum að öllum hkindum erfiöur. Á miðvikudag verður leikið um sæti. Stig íslands í leiknum: Hermann Hauksson 19, Nökkvi Már Jónsson 18, Jón Kr. Gíslason 13, Guðmundur Bragason 11, Jón Arnar Ingvarsson 4, Hinrik Gunnarsson 4, Marel Guð- laugsson 3, Guðjón Skúlason 3. Fréttir úr 1. deildinni Þrettán án jafnteflis Fram og Valur hafa ekki gert jafntefli sín á milh í l. deildinni í knattspymu frá árinu 1987, eða í 13 síðustu viðureignum hðanna. Þar á undan geröu hðin hins vegar 9 jaíhtefli í 13 leikjum! Tiu sigrar Fram Afþessum 13 síðustu leikjum hð- anna í deildinni hafa Framarar unnið 10 en Valsmenn aðeins 3. Valur hefur þó ennþá betur í heild- ina því af 109 leikjum liðanna i 1. deild hefur Valur unnið 43 en Fram 37. Krtstinnerfrá Kristinn I. Lárusson, sóknarmað- urinn efnilegi hjá Val, verður lík- lega ekki með fyrr en í 7. umferö. Kristinn rifbeinsbrotnaði skömmu áður en mótið hófst, kom inn á gegn ÍBV, en versnaði síðan og þarf að bíða lengur. Marteinn Geirsson, þjálfari Fram, gat ekki ákveðið byrjunarlið sitt fyrr en nokkrum minútum áö- ur en leikurinn hófst þar sem bæði Helgi Björgvinsson og Ágúst Ólafs- son vom tæpir vegna meiðsla, Báð- ir gátu þó spilað. Arnór Guðjohnsen, leikmaöur með Örebro í Svíþjóð, sá son sinn, Eið Smára, í fyrsta skipti í 1. deild- arleik í gærkvöldi. Hlé hefur verið gert á sænsku úrvalsdeildinni vegna heimsmeistarakeppninnar og Amór því í frii. /1. DEILD KARLA ÍFÓTBOLTA Akranes... KR....... FH........ Keflavík.. Fram...... ÍBV....... Valur..... UBK....... Þór....... Sfiarnan.... ...4 3 1 0 7-2 10 ...4211 8-2 7 ...4211 2-1 7 ...4 1 3 0 7-3 6 ... 4 12 17-5 5 ...4 12 12-3 5 ...4 12 13-5 5 ...4 1 0 3 2-10 3 ...4 0 2 2 4-6 2 ...4 0 2 2 1-6 2 Markahæstir: Tómas Ingi Tómasson, KR.......4 Óli Þór Magnússon, ÍBK.......4 Mihajlo Bibercic, ÍA..........3 James Bett, KR................2 Eíður S. Guöjohnsen, Val.....2 Helgi Sigurðsson, Fram.......2 Ríkharöur Daðason, Fram......2 Bjami Sveinbjörnsson, Þór....2 Jón Erling Ragnarsson, FH....2 ________________íþróttir Körfubolti hjá Fylki Fylkir er með körfuboltanám- skeið í Árbæjarskóla þessa dag- ana og er það opið öhum krökk- um fæddum 1983 og síðar frá klukkan 12.30 til 15 en fyrir krakka fædda 1981 og 1982 frá klukkan 15 til 17.30. Pylsuvagnistolið Knattspymudeild Stjörnunnar varð fyrir því óláni um helgina að pylsuvagni var stohð af svæði félagsins við Ásgarð í Garðabæ. Hann er rauður og hvítur með auglýsingum frá Coca-cola, og þeir sem vita um hann eru beðn- ir um að láta Stjörnuna eða lög- regluna vita. Þórdísslóbest Þórdís Geirsdóttir, GK, sigraði á opnu kvennamóti á Hvaleyrar- holtsvehi um helgina. Þórdís sló best án forgjafar á 74 höggum. Anna Jódís Sigurbergsdóttir, GK, lenti í ööru sæti á 82 og Jóhanna Ingólfsdóttir, GR, á 90 höggum. Margrét Jónsdóttir, GR, sigraði í keppni með forgjöf á 69 höggum. Grikkirrændir Grikkir, sem léku vináttulands- leik gegn Kólumbíu í New Jersey á sunnudag, voru rændir í New Jersey. Brotist var inn í nokkur hótelherbergi á meðan á leiknum stóö. Peningum og öðra lauslegu var stohð og vinnur lögreglan að rannsókn málsins. Bandaríkja- menn líta máhö mjög alvarlegum augum svona skömmu fyrir heimsmeistarakeppnina og munu í framhaldið herða eftirlit til muna. írarhvattir Um sjö þúsund manns voru samankomnir á flugvelhnum í Dubhn þegar írska landsliðið lagði upp til Bandaríkjanna til þátttöku í heimsmeistarakeppn- inni í gær. Hátt í níu þúsund Irar hafa síðan í hyggju að fylgja sín- um mönnum á keppnina. írar dvelja í Orlando fyrir fyrsta leik sem veröur gegn ítölum í New Jersey 18. júní. Fágóðanstuðning írar þurfa ekki að óttast að fá ekki stuðninginn í keppninni. í Bandaríkjunum búa nokkur hundruð þúsund írskir innflytj- endur sem ætla að fjölmenna á leiki hðsins. Það segir sína sögu að leikurinn sem fyrst varð upp- selt á var leikur íranna gegn ítölum í New Jersey. Ráðherrann kemur Albert Reynolds, forsætisráð- herra írlands, er mikih áhuga- maður um knattspymu. Hann Uggur ekki á Uði sínu heldur því aö hann ætlar gagngert til New Jersey til aö sjá fyrsta leik íra í keppninni. Miðasalatekiðkipp Eftir því sem nær dregur keppninni í Bandaríkjunum hef- ur sala á aðgöngumiðum tekið mikinn kipp. Forráðamenn keppninnar er himinlifandi með þessa þróun og segja það ekki síst heimamenn sem hafa tekið hvað harðast við sér. Keppnin hefur fengið gífurlega auglýsingu sem farin er að skila umtalsverðum árangri. í kvöld Mjólkurbikar kvenna: Valur-IA kl. 20.00 ÍBA-ÍBV 20.00 UMFA-Leiftur kl. 20.00 TindastóU-Sindri 20.00 Höttur-Reynir 20.00 Stjaman-Dalvík KR-Fjölnir kl. 20.00 20.00 Breiðablik-Haukar 20.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.