Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Síða 32
Ætla má að ungmennl á aldrin-
um 12 til 24 ára hafi eytt tæplega
100 milljónum til landakaupa á síð-
asta ári ef marka má könnun sem
Gallup gerði á áíengisneyslu 1.500
ungmenna á landinu.
Samkvæmt könnuninni drukku
ungmenni á aldrinum 12 til 24 ára
1,5 flösku af landa á síðasta ári.
Samkvæmt Hagtíðindum eru ung-
menni á þessum aldri tæplega 55 :
þúsund og má því ætla að ung-
mennin hafi drukkíð 82 þúsund
flöskur af landa á síðasta ári.
Lögreglumaður sem vinnur að
þessum málum sagði í samtali við
DV að á meöan á þessari könnun
stóð, á siöasta ári, hefðu sérstakar
aðgerðif staðið yfir gegn bruggur- ;
um og eitthvað hefði slegiö á fram-
boöið um líma. Fyrir þann tíma
sem könnunin var gerð mættí. því
gera ráð fyrir að framboðið hefði
veriö enn meira og nú hefði frain-
boðið aukist á ný.
Samkvæmt sömu könnun var
meðaltalsneysla ungmenna á aldr-
inum 12 til 24 ára á sterku áfengi
og landa samtals 6,2 flöskur á ári.
Ef gengið er út frá verði áfengis í
áfengisútsölum og verði á landa
má þvi ætla að þær rúmlega 340
þúsund flöskur sem umræddur
aldurshópur drakk hafi kostað hátt
í rúu hundruö milljónir.
Veðriðámorgun:
Hiti 7 til
13 stig
Norðlæg eða vestlæg átt, víðast
fremur hæg. Víða skýjað um
norðanvert landið og sums staðar
súld eða skúrir við ströndina,
einkum framan af degi. Bjart veð-
ur að mestu sunnanlands og vest-
an, þó sums staðar síðdegisskúr-
ir. Hití 7 til 13 stíg.
Veðrið í dag er á bls. 28
LOKI
Er þetta ekki bara enn einn
Hafnarfjarðarbrandarinn?
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, ’greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Futlrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn
Askrift - Dreifing; Sími @32700
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994.
Vicky van Meter á Reykjavíkurflug-
velli. DV-mynd ÞÖK
ÁframtilSkot-
lands í dag
Vicky Van Meter, 12 ára bandarísk
stúlka, lenti eins hreyflls Cessna 210
flugvél sinni á Reykjavíkurflugvelli
í gærkvöldi. Hún hefur einsett sér
að verða fyrsta stúlkan til þess að
^ fljúga yfir Atlantshafið.
Vicky er of ung til þess að mega
fljúga ein og því er aðstoðarmaður
með henni. Hún millilenti á Græn-
landi í gær þar sem fjölmörg börn
tóku á móti henni og fógnuðu henni
eins og poppstjörnu. Flugið til •
Reykjavíkur gekk mjög vel þrátt fyr-
ir smáísingu og ókyrrð.
Vicky fer til Skotlands í dag og síð-
an til Frakklands.
Ingibjörg Sólrún:
’ Ætlar að selja
Cadillacinn
„Ég mun skoða þessi mál. Ég tel.
ástæðu til að athuga hvort einhver
vill ekki kaupa þennan Cadillac. Það
gæti orðið eitt af fyrstu verkunum
að athuga hvort ekki fengist tiiboð í
hann,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, nýr borgarstjóri í Reykjavík.
Borgarstjórinn í Reykjavík hefur
tvo bíla til afnota, jeppa og glæsilegan
Cadillac.
Leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Ragnheiður Elfa Arnardóttir urðu fyrir
valinu til að kynna þjóðhátíðardagskrána á Þingvöllum 17. júní.
„ DV-mynd GVA
Jóhann G. Bergþórsson:
Útilokar
ekki
klofning
„Það hefur engu verið ýtt út af
borðinu. Það er enn haldið fast við
kröfuna um óháðan bæjarstjóra. Ég
hef sagt aö ég hef ekki hugsað mér
að kljúfa flokkinn og það stendur,"
sagði Jóhann G. Bergþórsson, bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, í morgun.
Jóhann vildi hins vegar ekki gefa
afdráttarlaust svar um hvað hann
gerði ef hann og hans sjónarmið yrðu
undir.
- Gefið þið eftir ef ráðinn verður
pólitískur bæjarstjóri?
„Það segi ég ekkert um.“
- En ætlið þið að kljúfa flokkinn ef
pólitískur bæjarstóri verður ráðinn?
„Það segi ég ekkert um heldur."
- sjá einnig bls. 2
Reykjavlkurlistmn:
Fjórir gera til-
lögur um menn
í nefndir
Fjögurra manna hópur Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, Sigrúnar
Magnúsdóttur, Guðrúnar Agústs-
dóttur og Péturs Jónssonar hefur
unnið að tillögum um skipan í nefnd-
ir og ráð borgarinnar á næsta kjör-
tímabili og er búist við að nefnda-
skipanin skýrist fljótlega.
Ljóst er að Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir verður formaður borgarráðs
en aðrir í borgarráði verða: Sigrún
Magnúsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir
og Pétur Jónsson.
Líklegt þykir að Sigrún Magnús-
dóttir verði formaður skólamála-
ráðs, Steinunn V. Óskarsdóttir, verði
formaður íþrótta- og tómstundaráðs
og Guðrún Ágústsdóttir fái for-
mennsku í félagsmálaráði.
Kosið verður í borgarráð á auka-
fundi borgarstjórnar 13. júní þegar
nýr meirihluti tekur við en gert er
ráð fyrir að tillögur um nefndaskipan
verði lagðar fyrir borgarstjómar-
fund 16. júní.
Þjóðbúningar
karla til London
„Þetta verður sýning á íslenskri
hönnun með þjóðlegum formerkjum.
Búningamir tíu veröa allir sýndir
þar og annar fatnaður að auki. Við
gemm þetta í tengslum við 50 ára
lýðveldisafmælið," segir Jakob Frí-
mann Magnússon, menningarfull-
trúi íslands í London.
Hönnunarsýning verður í Butler’s
War við Design Museum í London
17. júní. Einnig mun skipið Leifur
Eiríksson standa fyrir utan safnið en
Design Museum og stórblaðið The
Times styrkja sýninguna.
Þess má geta aö Jakob hefur stað-
'~Mest að fötin sem lentu í fyrsta sæti
verði seld í 17 og fleiri verslunum og
muni kosta 20-40 þúsund.
Þjóðhátíð á Þingvöllum:
Gunnar og Ragnheiður kynna
Búið er að velja kynna á þjóðhátíð-
ma á Þingvöllum. Leikaramir Gunn-
ar Eyjólfsson og Ragnheiður Elfa
Arnardóttir urðu fyrir valinu og eiga
þau áreiðanlega annasama daga fyrir
höndum.
„Þau leiða alla dagskrána og eru
því aðalpersónumar í allri dag-
skránni ásamt því að þurfa að bera
uppi sjónvarpsútsendinguna sem
stendur alveg fram á kvöld,“ segir
Ingólfur Margeirsson, upplýsinga-
fulltrúi þjóðhátíðamefndar.
lent
alltaf á
Miðvikudögnm
NITCHI
RAFMAGNSTALÍUR
Powlseti
Suéurlandsbraut 10. S. 68M99.