Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1994, Side 5
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1994
21
Leikjadagur
á Akureyri
Minjasafniö á Akureyri stendur
fyrir leikjadegi á sunnudag. Dag-
skráin hefst kl. 13 og stendur til
17. Margt verður í boði svo sem
leikjadagskrá þar sem áherslan
verður lögð á eldri sem yngri leiki
sem allir geta tekið þátt í. Einnig
stíga „Eyjafjarðar skotturnar"
gömlu dansanna við harmon-
ikkuleik og sýnt verður bruðu-
leikhús fyrir yngstu bömin.
Baptistar
byggja
Fyrsta skóflustunga að kirkju-
byggingu Baptista að Fitjum 4 í
Njarðvík verður tekin á sunnu-
dag kl. 11. Ba’ptistar hafa starfað
í Njarðvík í um 12 ár og telur
söfnuðurinn um 150 manns. Þeir
hafa verið til húsa í einni af
gömlu verbúðarbyggingunum
við Fiijabraut. Kirkjubygging
baptista er fyrsta Baptistakirkja
á Islandi.
Silfur-
stigamót
Bridgesamband íslands býður
upp á þá nýbreytni í starfinu í
sumar að hafa silfurstigamót með
peningaverðlaunum nokkra
laugardaga. Helmingur af 1500
kr. keppnisgjaldi fer í verðlaun
svo þau ráðast af þvi hve margir
veröa meö. Mótin byrja kl. 12 og
spiluð verða 44 spil í tveim um-
ferðum. Fyrsta mótið veröur á
laugardaginn og er skráning á
skrifstofú Bridgesambands ís-
lands.
Bubba '94
við Flúðir
Nemendur sem stunda nám við
Menntaskólann að Laugarvatni
hafa haldið útihátíð, sem hlaut
nafnið Bubba, á hverju sumri síð-
an 1990. Að þessu sinni er Bubba
haldin við Flúðir og er búist við
að Laxárbakkamir verði troðfull-
ir af menntskælingum og stans-
lausri gleði fram eftir nóttum.
Grillað verður á stóruútigrilli og
hljómsveitin SSund (áður
Sjáumst í sundi) leikur fyrir
dansi.
AFS-fjöl-
skylduhátíð
íViðey
Skiptinemasamtökin AFS
halda fjölskylduhátíð í Viðey á
sunnudag kl. 14. Þar verður heitt
i kolunum allan daginn, leikir og
létt gaman fyrir unga sem aldna.
Bjölmennt verður í staðarskoðun
undir leiðsögn staðarhaldara kl.
15.15 og einnig verður möguleiki
á reiðtúr um eyjuna. Ferja fer frá
Sundahöfn kl. 14 en eftir það
gengur ferjan á klukkutíma
fresti. AFS-samtökin bjóða alla
hjartanlega velkomna á íjöl-
skylduhátíð út i Viöey þennan
dag.
Háskóli íslands
og íslenska
lýdveldið
í tilefni 50 ára afmælis lýöveld-
isins efnir Háskóli islands til dag-
skrár í Perlunni. Á sunnudag kl.
14 fjallar Sígmundur Guðbjarna-
son prófessor um visindi og fram-
tíð Islands. Þvinæst leika þær
Bryndís Haila.og Steinun Bima
Ragnarsdóttir verk fyrir selló og
píanó. Stefán Ólafsson prófessor
flytur erindi um forsendur fram-
fara í íslensku þjóðfélagi og aö
lokum fjallar Sigurður Steinþórs-
son prófessor um sérstöðu fs-
lenskrar náttúru.
Sniglar ætla að fjölmenna á bifhjólum sinum á laugardag
Hjóladagur Snigla
- heiðurssnigill útnefndur á Ingólfstorgi
„Um 75 til 100 bifhjól verða í hóp-
keyrslunni sem er aðallega farin til
að vekja athygli á okkar málum,
einkum tryggingamálum. Þetta era
áhugamanna- og baráttusamtök en
þaö veröur örugglega nóg um glens
og gaman. Viö ætlum að útnefna
heiðurssnigil númer 900 og fleira,"
sagði Björn Ragnarsson, fréttafull-
trúi Bifhjólasamtaka lýðveldisins, í
samtah við DV en Sniglarnir halda
sinn árlega hjóladag á laugardaginn.
Bifhjólafólk hittist með fáka sína
kl. 14 viö Kaffivagninn á Granda.
Síðan verður ekið í hópkeyrslu um
höfuðborgarsvæðið; Tryggvagötu,
Sæbraut, Reykjanesbraut, Lækjar-
götu, Strandgötu, Reykjavíkurveg,
Kringlumýrarbraut, Bústaðaveg,
Skógarhlíð, Snorrabraut, Eiríksgötu,
Skólavöröustíg, Laugaveg og endaö
á Ingólfstorgi kl. 16.
Formaður stjórnar Snigla, Ofur-
Baldur, flytur ræðu dagsins og út-
nefnir heiöurssnigil númer 900.
Sniglar hafa þá hefð að taka sléttu
tölumar frá til heiöurs einhverjum
sem greitt hafa götu þeirra. Þeirra á
meðal eru Ómar Ragnarsson, Ami
Johnsen og fleiri góðkunnir. Einnig
flytja ræöur fulltrúi Umferöarráðs
og Ómar Smári frá Lögreglunni.
Trúbadorinn Bjami Tryggva ætlar
síöan að leika fyrir áhorfendur.
■w- r gi /i* •• '
Lif og fjor a
Suðurgötu
Búist er við hörkukeppni.
Motokross
Það verður líf og fjör á Suðurgötu
7 á Árbæjarsafni á sunnudag. Þór-
unn Pálsdóttir leikkona og nokkrir
áhugamenn um liðna tíö munu setja
á svið heimilislíf skömmu eftir alda-
mótin síðustu. Hestakerra veröur á
staðnum fyrir bömin og í Dillons-
húsi er ávallt heitt á könnunni.
Heimilislif frá því skömmu eftir alda-
mót verður sett á svið.
Fyrsta motokross-keppni sumars-
ins verður haldin á vegum Vélhjóla-
íþróttaklúbbsins VIK á sunnudag kl.
14. Keppt veröur í opnum flokki
motokross-hjóla og í flokki léttra bif-
hjóla. Keppt verður í A- og B-flokki.
Margir nýir keppendur munu taka
þátt í keppninni sem fram fer á svæöi
VIK við Sandskeið, ekið af Bláfjalla-
afleggjara.
Útskriftar-
dansleikur
H.fe
Á laugardag verður haldinn
dansleikur í tilefni af útskrift við
Háskóla íslands en er haldinn á
Hótel Sögu. Dansleikurinn er sér-
staklega ætlaður þeim sem eru
aö útskrifast þennan sama dag
ur Háskóla íslands en að sjálf-
sögðu er makar og vinir útskrift-
amema einnig velkomnir.
Tjaldmark-
aðurogtívolí
á Selfossi
Á laugardag verður mikið um
að vera á Selfossi. í míðbænum
verður markaður í nýjurisatjaldi
bæjarins og tívolí UK verður á
gamla Kaupfélagsplaninu alla
helgina. Ungmennafélag Selfoss
mun standa fyrir margs konar
afþreyingu og skemmtun. Boðið
verður upp á útsýnisflug, götu-
körfubolta, kvöldvöku auk þess
sem lista- og dýrasafn Árnesinga
verður opið.
Bryggjuhátíö verður haldin á
Reyöarfirði um helgina sjötta ár-
ið í röð. Hátíðin, sem hefur öðlast
stóran sess í hugum Austfirðinga,
hefst með formlegum hætti í
kvöld með harmónikuballi. Á
laugardag verður hátíðin sett
með hávaða og iátum. Ýmislegt
verður til skemmtunar og má þar
nefna tívolí, eldgleypi, trúöa i
fallhlíf, karamelluregn, Ðos Pilas
og Vini Dóra ásamt Chicago
Beau. Bryggjuhátíð lýkur með
hinu rómaða Skemmuballi á
laugardagskvöld.
Hátíðisdagur
homma og
lesbía
Samtökin 78, félag homma og
lesbía á íslandi, standa ásamt
Félaginu, réttindafélagi samkyn-
hneigðra og tvikynhneigðra, að
dagskrá á laugardag til aö minn-
ast þess aö 25 ár em liöin frá því “
að atburðir áttu sér staö í New
York-borg sem mörkuðu upphaf
virkrar baráttu samkynhneigðra
fyrir mannréttindum.
Helgistund á vegum Áhugahóps
homma og lesbia tun trúarlíf
verður í Háskólakapellu kl. 11.
Fariö verður í göngu um miðbæ
Reykjavíkur kl. 14 til að vekja
athygli á tilveru og réttindabar-
áttu samkynhneigðra, Að göngu
lokinni verður dagskrá við fé-
lagsheimili Samtakana 78 og Fé-
lagsíns. Hátíðinni lýkur með
dansleik á vegum Samtakanna 78
í Risinu við Hverfisgötu. Félags-
heimili Samtakanna 78 og Félags-
ins verða opin þennan dag og eru
allir velkomnir.
Hafnarfjörður:
Tjaldmarkaður
við Kænuna
- ásamt skemmtiatriðum
Viö Kænuna við smábátahöfnina í
Hafnarfiröi er starfræktur tjald-
markaður alla sunnudaga kl. 11 til
16. Þar eru aðallega seld matvæli
ýmiss konar. Um helgina verður gott
úrval af fiski, hákarl, svartsfuglsegg,
harðfiskur, kökur, sælgæti o.fl. á
hagstæðu verði.
Fiskabúr með ýmsum sjávardýr-
um verður til sýnis. Á milli kl. 13.30
og 16 verða hestar teymdir undir
bömum og harmónikuleikari spilar
fyrir gesti.
Það er þjóðlegt andrumsloft a Kænunm.