Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1994, Blaðsíða 6
22
MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 1994
V
Iþróttir
Keppmb-liða:
Gyifi Erístjánssqji, DV, Akuxeyrí:
Framarar urðu sigurvegarar í
keppni b-liða eftir hörkuúrslita-
leik við Þór, Vestraannaeyjura.
Framarar reyndust reyndar
sterkari og unnu öruggan 3-0 sig-
ur. Önnur úrslit ura sæti urðu
þessi:
3. sætiÍR-UBK............2-0
5. sætiKR-ÍBK...............3-1
7. sæti Valur-Haukar........2-4
9. sæti Fylkir-Þróttur.....3-2
11. sæti KA-Víkingur........5-3
13. sæti Afturelding-Týr...1-2
15. sæti Stjarnan-JA...... .4—1
17 sæti FH-Þór Ak.................„2-5
19. sætiSamherjar-Völungur .2-0
Gylfi Kristjánsaon, DV, Akureyri:
Keflavíkurstrákarmr unnu ör-
uggan sigur í úrslitakeppni c-
liöanna. Þeir unnu fyrst Fram í
undanúrslitaleik, 2-0, og síðan
völtuöu þeir yfir KR-inga í úr-
slitaleiknum sjálfum og unnu,
5-0. Önnur úrslit um sæti uröu
þessi:
3. sæti Valur-Fram....4-2
5. sæti Fylkir-Þróttur..2-1
7. sætiUBK-Víkingur.....2-1
9. sæti FH-Haukar.......0-1
U.sætiKA-ÞórAk..........0-1
13. sæti Stjarnan-ÍR....2-0
15. sæti Afturelding-Völsungur
&-0'
17. sæti Samherjar-Týr..0-6
19. sæti Þór Ve.-ÍA.....4-1
Keppnid-liða:
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyii
Þróttarar úr Reykjavík urðu
sigurvegarar í keppni d-liða. Þeir
unnu bæði Akureyrarliðin í úr-
slitakeppninni, fyrst KA, 4rl, og
síöan Þór í úrslitaleik, 3-1. Önnur
úrslit um sæti urðu þessi:
3. sæti KA-KR..........4-0
5. sætiFylkir-tA..........3-1
7. sæti Þór Ak.-ÍBK.......2-1
9, sæti UBK-Valur.........3-1
Fagnað
aðhætti
Brassa
4
Gylfi Krístjáiœson, DV, Akweyrí:
Strákarnir á ESSÓ-mótinu voru
iðnir við að skora mörk og fógn-
uðu hvetju einasta þeirra mjög.
Vakti t.d. mikla athygli er þeir
fögnuöu með því að hlaupa að
homfánunum og taka smá
„sömbudans" að hætti Brasilíu-
marraa.
í 210 leikjum raótsins voru
skoruð hvorki fleiri né færri en
754 raörk eða nálægt 3,5 að raeðai-
tali í leik. Flest voru raörkin í
leikjum b-liða eða 232, a-liðin
skoruðu 224 mörk, c-liðin 203 og
d-liðin 95 mörk.
„Mikið fyrirtæki að
halda svona mót“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyxi:
„Ég héld ég megi segja að fram-
kvæmd mótsins hafi tekist vel, a.m.k.
hafa gestir okkar ekki verið neitt að
kvarta. Annars er þetta svo gott fólk
að það nennir ekki að standa í nein-
um vandræðum," sagði Gunnar Ní-
elsson, mótsstjóri ESSÓ-móts 5.
flokks drengja sem fram fór í 8. skipti
á Akureyri um helgina. í mótinu var
metþátttaka en í því tóku þátt um 70
lið frá 21 félagi og lætur nærri að
keppendur hafi verið um 750 talsins.
Þeim fylgdi mikill íjöldi þjálfara, liðs-
stjóra, annarra aðstoðarmanna og
ekki má gleyma foreldrunum sem
voru fjölmennir og létu að sér kveða
á hliðarlínunni jafnt sem annars
staöar.
Það er mikið fyrirtæki að halda
svona mót og Gunnar sagði að um
150 starfsmenn heföu lagt hönd á
plóginn þá daga sem mótiö stóö yfir.
Mótiö var sett sl. miðvikudagskvöld
eftir skrúðgöngu aö KA-svæðinu og
síðan tók við þriggja daga hörku-
keppni. Inn á milli var brugðið á létt-
ara hjal, t.d. var mikil dagskrá innan-
húss á Ðmmtudagskvöld þar sem
keppt var í knattþrautum og ýmsu
öðru, strákamir fengu landsþekkta
skemmtikrafta í heimsókn t.d. starfs-
menn Spaugstofunnar og liðsmenn
hljómsveitarinnar Pláhnetunnar
sem kepptu í knattspymu við dóm-
ara mótsins.
Ekki væsti um strákana þá daga
sem mótið stóð yfir. Þeir gistu í
tveimur skólum í nágrenni KA-vall-
arins og veðurguðimir margum-
töluðu lögðu sitt af mörkum svo
mótiö gæti tekist sem best. Ekki bar
á öðru en allir skemmtu sér vel,
keppnin var mikil og kappið ekki
síðra. Þegar menn rákust saman og
meiddust var grátið smástund en síð-
an staðið á fætur og tekið til við bar-
'Éir''-'*?
Valsstrákarnir léku best allra liða og sigruðu I keppni a-liða.
DV-mynd gk
Keppni a-liðanna:
Valur kom fram hef ndum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
„Þegar þeir jöfnuðu hugsaði ég að
við myndum e.t.v. tapa þessu í víta-
spymukeppni eins og í fyrra. En
okkur tókst að vinna þá og það var
gaman,“ sagði Róbert Óli Skúlason,
fyrirliði a-liðs Vals, eftir sigurinn í
úrslitaleik á ÍBK í vítaspymukeppni.
Þessi sömu liö áttust éinnig við í úr-
slitaleik ESSÓ-mótsins í fyrra og þá
sigraði ÍBK eftir vítaspymukeppni.
í úrslitaleiknum nú komust Vals-
menn í 2-0 meö mörkum Sigurðar
Eggertssonar og Bjama Ó. Eiríks-
sonar en með mikiili baráttu jafnaði
ÍBK fyrir leikslok og voru það Magn-
ús Þorsteinsson og Grétar Gíslason
sem skomðu. í vítaspymukeppninni
skoruöu Sigurður Eggertssqn, Ró-
bert Skúlason og Helgi Páll Ásgeirs-
son fyrir Val, Georg Sigurðsson skor-
aði fyrir ÍBK en Sverrir Diego, mark-
vörður Vals, varði eina spymu og
þaö nægði Valsmönnum. Leikimir
um sætin fóra annars þannig:
3. sæti Fylkir-Víkingur...2-4
5. sæti KR-Fram.............3-4
7.sætiKA-ÍR.................0-6
9. sæti Haukar-Stjaman......1-0
11. sæti Þór Ak.-Þór Ve.....6-3
13. sæti UBK-ÍA.............0-1
15.sætiFH-Týr...............5-4
17. sæti Þróttur-Aftureld...2-4
19. sæti Huginn-Völsungur...1-7
Róbert Óli og Sigurður grátandi á sigurstundu.
DV-mynd gk
Grátið af gleði
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
Það er ekki á hverjum degi sem
knattspyrnumenn gráta yfir sigmrn
sínum, en Valsmennimir Róbert Óli
Skúlason og Sigurður Eggertsson
gáfu þó támnum lausan tauminn eft-
ir sigurinn gegn ÍBK í úrslitaleik a-
hða ESSÓ-mótsins.
„Við getum ekkert gert að þessu,
við erum bara svona glaðir," sögðu
þeir félagarnir sem minntu helst á
fegurðardrottningar á sigurstundu.
'Þeir voru þó fljótir að þurrka sér um
augun og taka þátt í fagnaðarlátum
félaga sinna „á heðfbundinn hátt“.
áttuna að nýju. Á hiiðarlínunni stóðu
svo foreldramir og höföu hátt, enda
keppnin orðin mikil þótt strákarnir
séu ekki nema 11-12 ára.
Mótið tókst í heildina mjög vel,
tímasetningar stóðust nær 100% og
þeir þátttakendur sem DV ræddi við
voru á einu máli um að KA-menn
væra búnir að ná mikilli færni í að
halda mót sem þetta sem er um-
fangsmikið, eins og sú staðreynd
undirstrikar að á mótinu voru leikn-
ir alls 210 ieikir.
Skothörkumæling:
matt-
Gylfi Krístjánsson, DV, Akureyn;
jLögreglan á Akureyri fram-
kvæmdi „skothörkumælingu“ á
keppendum í ESSÓ-mótinu og
kom þar glögglega fram að strák-
arnir búa yfír mikilli skothörku
þótt ekki séu þeir nema 11-12
ára. Þeir sem sigmðu skutu bolt-
anum t.d. með um 80 km hraða
sem hlýtur að teljast mjög gott.
Þetta voru þeir Guðlaugur A.
Hauksson úr IR sem er 12 ára og
sendi holtann aö radarbyssu lög-
reglunnar með 80 km liraða og
Birgir Haraldsson úr Þrótti
Reykjavík, 11 ára, en flug á hans
bolta mældist 81 krri. Aðspurðir
sögðust þeir ekki æfa skotin neitt
sérstaklega, en þessir piltar
hljóta að verða miklir mark-
varðaskelfar þegar fratn líða
stundir.
Guðlaugur og Blrgir með viður-
kenningarskjöl lögreglunnar fyr-
ir skothörkuna.
DV-mynd gk