Alþýðublaðið - 24.04.1967, Blaðsíða 3
23. apríl 1967 Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIO
3
SKOTHRIÐ
Aþenu 22. 4. (NTB- Reuter). —
Nýja stjórnin í Grikklandi hefur
aflétt ströngnstu öryggisráðstöfun
uuum sem gripið var til eftir bylt
ingu hersins í gærmorgun.
Innanrik'isráðherrann, sem er
hersliöfðingi eins og allir samráð-
herrar hans nema forsætisráðherr
ann, Konstantín Kolias, sem er for
seti hæstaréttar, skýrði frá því í
morgun að fólki væri heimilt að
vera á ferli á götunum til kl. 1
eftir miðnætti. Skemmtistaðir og
verzlanir verða opnaðar á ný, sam
göngur færðar í eðiilegt horf og aU
ir fá að íai'a frjálsir ferða sinna.
Áætlunarflugvélum hefur verið
leyft að fljú!ga frá Aþcnu. Sumir
farþegar segja að þeir liafi heyrt
skothríð á götum Aþönu í nótt.
í útvarpsávarpi sagði Kolias for
sætisráðherra, að herinn hefði séð
sig tilneyddan til að gera byltingu
þar sem landið stæði á barmi
ógæfunnar. Grikkland hefði stefnt
í átt til haturs, glundroða og blóðs
úthellinga. Grafið hefði verið und
an stofnun ríkisins og þingið gert
óstarfhæft. hað væri stefna stjórn
arinnar að útrýma spillingu, koma
á lögum og reglu og undirbúa
myndun þingræðislcígrajr stjárt,i
ar.
★ PRINSESSU RÆNT.
Ferðamönnum, er komið hafa til
Római', Vínar og Genfar frá A-
þenu ber saman um að skipzt hafi'
verið á skotum í Aþenu undanfar
inn sólarhring. Farþegi sem kom
til Rómar sagði að hann hefði
heyrt orðróm um að dóttur Konst
antíns konungs, Alexíu hefði ver
ið rænt. En engin staðfesting hef
ur fengizt á þessum orðrómi.
Bandarísk hjón sem komu til
Genfar lýstu ástandinu fyrir blaða
mönnum. Þau heyrðu skothríð o!g
•sáu skriðdreka umhverfis þinghús
bygginguna og á aðaltorginu í A-
þenu. Þau gátu ferðazt um borg
ina um daginn og sáu Grikki reisa
götuvígi, cn þeim var bannað að
taka ljósmyndir. Þau sögðu, að út
varpið útvarpaði nær eingöngu
hergöngulöigum milli þess sem op
inberar tilkynningar væru lesnar
og sögðu að yfirleilt virtlst allt
vera með kyrrum kjörum.
Illíll!llliíl!ílíijilllilll!]|]|illlllllllllil!llllllil!l!iílll!llll!iillllllllllllllllil!!lil!l!illllll
|kONUR!
Munið fund Kvenfélags
Alþýðuflokksins í Ing-
lólfskaffi niðri á þriðju-
Idagskvöld kl. 8,30.
íbúar Kýpur fylgjast nákvæm
lega með þróun miáia í Grikklandi
en þar virðist allt vera með kyrr
um kjörum.
Frá Kaupmannahöfn berast þær
fréttir að þrjár leiguflugvélar séu
væntanlegar til Kastrup með 400
farþega frá Aþenu og Rhodos. Auk
þess eru væntanlegir 50 aðrir far
þegar SAS í flugvélum frá öðr
um flugfélögum. Sósíalistíski þjóð
arflokkurinn hyggst skora á' stjórn
ina að lýsa því yfir að gríska kon
ungsfjölskyldan sé óvelkomin til
Danmerkur.
* UGGVÆNLEGT ÁSTAND
Kenneth MacKenzie, sérfræðing
ur i grískum stjórnmálum, sagði
í brezka útvarpinu í gær, að á-
standið í Grikklandi virtist vera
að færast í eðlilegt horf eftir bylt
inguna, en menn hlytu að vera
uggandi um framtíðina. Vinstri
sinnar njóta stuðnings mikils
hluta þjóðarinnar og muni ei taka
ósigri sínum með þögn og þolin
mæði. Stjórnin virðist njóta stuðn
ings allra greina heraflans, en
rísi upp klofningur í hernum, vofi
að sjálfsögðu yfir hætta á borgara
styrjöld.
Papandreou-feðgar, Georg og
Andreas, eiga mikla sök á því
hvernig komið er, heldur hann á-
fram, og því má halda fram að
ekkei-t hafi magnað óiguna í grísk
um stjórnmálum eins mikið og bak
tjaldamakk Andreasar Papandre
ous og vinstrisinnaðra stuðnings
manna hans. En að gera þá feðga
að píslarvottum er heimska, sem
hefur alvarlega hættu í för með
sér .Sennilega verður hægrisinn
inn Kanellopoulus, sem var forsæt
isráðherra síðustu stjórnar, fljót
lega leystur úr ihaldi, en óvíst er
hvað verða nlun um Papandreou
feðga. Papandreou eldri hefurNver
ið duglítill stjórnmálamaður en er
mikill ræðuskörungur sem nýtur
mikillar lýðhylli og hefur sefandi
áhrif á áheyrendur sína. Papandre
ou yngri hefur hins vegar að
mildu leyti tekið við forystu Mið
fiokkasambandsins af föður sín
um á undanförnum tveim árum.
Skátafélag
stofnaö í
i| Garöahreppi
Á sumardaginn fyrsta var
stofnað í Garðahreppi nýtt
skátafélag og hlaut það nafn
ið Vífill. Uppistaðan í hinu
nýja félagi eru tvær skáta-
sveitir, sení áður hafa starf-
að í Hraunbúum í Hafnar-
firði, og einnig gengu í fé-
lagið ýmsir gamlir skátar,
búsettir í hreppnum. Stofn-
un félagsins fór fram í
barnaskóla Garðahrepps og
var fjölsótt. Auk félags-
manna komu þar stjórnar-
limir Bandalags íslenzkra
skáta og Hraunbúa í Hafn-
arfirði. Félagsforingi hins
nýja skátafélags er Ágúst
Þorvaldsson. — Þessar
myndir tók Bjarnleifur af
stofnfundi félagsins.
★ BORGARASTYRJÖLD?
Byltingin getur haft alvarleg á
hrif í utanríkismálum, einkum þó
á Kýpurmálið. Óreynd herforingja
stjórn í Aþenu kann að freistast
til þess að reyna að knýja fram
sameiningu Kýpur og Grikklands
en það hefði í för með sér hættu á
styrjöld við Tyrki. Búast má við
að sambúð stjórnanna í Aþenu
Ankara og Nikósíu verði stirð á
næstu mánuðum, segir MacKenzie