Alþýðublaðið - 24.04.1967, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 24.04.1967, Qupperneq 8
23. aprf! 1967 Sunnudags ALÞYÐUBLAÐiO Roger Moore hefur leikið Dýrling- inn í meira en 100 kvikmyndum DÝRLINGUR í FIMM ÁR Roger Moore hefur Dýrling- inn í meira en 100 kvik- myndum. i Bækurnar um Dýrlinginn hafa fyrir löngu náð ótrúlegri út- breiðslu um allan heim og selzt í tugmilljónum eintaka á einum seytján tungumálum, auk þess sem myndasögur, útvarpsleikrit, kvik- myndir og nú seinast sjónvarps- serían alkunna hafa verið gerðar eftir þeim. En Símon Templar, hinn góðkunni heimilisvinur okk- ar, var upphaflega hugmynd og hugsjón ungs stúdents sem stund- aði nám við háskólann í Cam- bridge. Leslie Charles Bowyer Yin hét hann, en kallaði sig síðar Leslie Charteris. Móðir hans var ensk, en faðirinn kínverskur skurðlækn- ir, og Loslie fæddist í Singapore 12. maí 1907. Hann var snemma lieimsborgari og hafði farið þrisv- ar kringum hnöttinn fyrir tólf ára afmælið sitt. Og rithöfundarhæfi leikarnir létu fljótt á sér bæra, því að tíu ára gamall gaf hann út og ritstýrði sínu eigin tímariti og skrifaði mestallt efnið í það sjálf- ur. Hann menntaðist í Englandi, en áður en hann varð fyrir al- vöru frægur, vann hann fyrir sér á hinn fjölbreytilegasta hátt: var meðal annars gullgrafari, perlu- fiskari, sjómaður, sjónhverfinga- maður, barþjónn, námumaður og gúmmíekrueigandi. Enda er ekki einleikið hvað Símon er vel að sér á öllum sviðum. Fyrsta bókin um Dýrlinginn kom út árið 1929, og svo einkennilega vildi til, að sama ár fæddist í þennan heim sá maður sem stend- ur orðið milljónum sjónvarps- áhorfenda fyrir hugskotssjónum sem þessi víðfræga persóna holdi klædd. Þegar litið er í bækur Charteris og rekizt á lýsingar af „hávöxnum, sólbrúnum sjóræn- ingja með langleitt, laglegt and- lit og glettnisglampa í ótrúlega bláum augum,” kemur mynd Rog- . ers Moore ósjálfrátt í hugann. Roger Moore fæddist árið 1929 í London og var sonur brezks lög- regluþjóns. Eins og aðrir drengir á hans reki hreifst hann af Dýrl- ingnum og gleypti í sig allar bæk urnar um hann með áfergju. Að vísu átti Símon alltaf í dálitlum erjum við lögregluna og gerði ó- spart gys að snillingunum hjá Scotland Yard, en það var bara betra. Roger vissi, að lögreglan var ekki eins vitlaus og hún var gerð í bókunum. Hann var námfús drengur og átti auðvelt með að læra, en reglubundin skólaganga var erf- ið á stríðsárunum, og hann varð stöðugt að skipta um skóla. Hann hugsaði sér að verða arkítekt og notar enn þann dag í dag sínar fáu frístundir til að teikna og mála sér til skemmtunar. En ann- að átti fyrir honum að liggja en að verða arkítekt. Af tilviljun að virtist fékk hann statistahlutverk í nokkrum brezk- um kvikmyndum, meðal annars í „Sesar og Kleópatra” með Vivien Leigh og Claude Rains. Og þar tók leikstjórinn eftir honum og rá'ðlagði honum eindregið að læra leiklist. Það var úr, að Roger innritaðist í RADA (Tlie Royal Academy of Dramatic Art) og lauk námi eftir tilskildan tíma. Eftir það fékk hann hlutverk í nökkrum leikritum, en var svo kvaddur í herinn. Það varð honum til gæfu, því að í hernum lærði hann margt sem síðar kom í góðar þarfir: að aka bílum og mótorhjólum — og slást og glíma. Roger Moore not- ar aldrei staðgengil í kvikmynd- um sínum, jafnvel ekki í lífs- hættulegum atriðum. Hann vill gera það allt sjálfur; annað finnst honum svindl. En eftir stríð var erfitt fyrir óþekkta leikara að fá hlutverkl Roger gafst samt ekkj upp og tók hvert smáhlutverk sem hann gat fengifj, þó að hann þyrfti ekki að segja annað en „Síminn til frúar- innar” eða „Kvöldverðurinn er til reiðu.” Smám saman lengdust þó ræður hans á sviðinu, og brátt lá Ieið l.ans til Hollywood. Þar fékk hann að leika með stjörnúm á borð við. Elizabeth Taylor, Eleanor Parker, Glenn Ford og Van Johnson, þótt hlut- verk hans væru ekki sérlega stór. En Iiann fékk aðalhlutverk í myndinni „Diana”, og þ'ar var mótleikkona hans Lana Turner. Af því leiddi, að hann fékk tilboð um að leika í sjónvarpskvikmynd- um, og hann' lék aðalhlutverk í hverii seríunni af annarri, þar á meðal „ívar hlújárn” eftir hinni víðlesnu skáldsögu Sir Walthers Scott. Og síðan kom Dýrlingurinn, fornkunningi hans. Hann hefur Roger Moore verið að leika i meira en fimm ár og er nú orð- inn hálfleiður á öllu saman, enda myndirnar orðnar yfir hundraS talsins. Hann langar að fara at breyta til, en hann gerir sér ekk Framhald á 14. síðf

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.